Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 41
B 41
Ljóémynd/Júlíus
Doujj Scott hefur lagt margt Qallið að
▼elli, var m.a. fyrstur til að klífa suðvest-
urhlíð Mont Everest
Tindurinn í augsýn ...
vegginn. Ég fer yfirleitt alltaf
ótroðnar slóðir sem ekkert er vit-
að um. Ég geri ráð fyrir að það sé
sama ástæðan sem rekur mig í
þessa leiðangra og það sem rak
menn áfram til að finna áður
óþekkt lönd eins og t.d. Island."
— Hvemig tilfinning er það að
ná toppnum?
„Það er ólýsanlegt. Mér er
minnisstæðast þegar við komum
upp á Everest. Þetta var um 6
leytið, seinnipart dags, útsýnið
stórkostlegt og sólin hellti geislum
sínum út um allt.“ Hann horfir
hugsi fram í salinn og sér þetta
greinilega fyrir sér. „Þetta er eins
og vítamínsprauta, virkar í ákveð-
inn tíma, en svo verð ég að fara
aftur af stað.“
— Að kanna ókunnar slóðir,
segirðu. Þú hefur ekki verið að
hugsa um að slást í hóp geimfara?
„Nei, ég vil hafa fast land undir
fótum, og ráða ferðinni sjálfur.
Gæti ekki hugsað mér að vera
staddur í einhverri fjarstýrðri
blikkdós úti í geimnum. Auk þess
er ég í seinni tíð farinn að byggja
mun meira á allskyns hugboðum,
byggja á hinni kvenlegu innsæis-
gáfu, hvaða leið sé heppilegri upp-
göngu en önnur, og þeirri gáfu er
ekki hægt að beita í stjórnlausri
málmdós."
— Innsæisgáfa segirðu. Hef-
urðu einhvern tíma fengið hugboð
um að þú værir í hættu staddur?
„Nei, ekki ég sjálfur, en flestir
félaga minna sem hafa látist hafa
vitað það áður og fjölskyldur
þeirra líka.“
— Ertu kannski örlagatrúar?
„Ég held það séu ákveðnir hlutir
sem við ráðum yfir í þessu lífi en
yfir öðrum höfum við hugsanlega
lítið að segja.“
— Hefur þú orðið fyrir ein-
hverjum óhöppum í leiðöngrum
þínum?
„Já, árið 1977 var ég að klifra
ásamt félaga mínum, Chris Bon-
ington, á fjalli í Pakistan, datt og
braut á mér báða ökklana. Ég var
átta daga að skríða á hnjánum
niður að búðunum, sem voru við
fjallsræturnar, og þar beið ég í
þrjá sólarhringa eftir þyrlu. Það
tókst þó ekki betur til en svo að
hún fórst við búðirnar, og ég
komst ekki í læknishendur fyrr en
löngu eftir brotið.“
En ertu jafngóður í fótunum?
„Ég fékk meðferð færustu
skurðlækna, það eru skrúfur í báð-
um ökklunum, ég er alveg jafngóð-
ur, en þetta hefur haft þau áhrif
að ég er gætnari en ég var.“
Hann þegir smástund og bætir
svo við: „Ég held að starf mitt sé
síður en svo hættulegra en starf
ykkar fréttamanna, sérstaklega
þó þeirra sem eru í fréttaharkinu.
Það vekur hinsvegar ekki jafn
mikla athygli þegar einn frétta-
maður dettur niður annað hvort á
hlaupum eða í stól sínum eins og
ar fjallgöngugarpur ferst.“
kjölfar þessarar athugasemd-
ar hefjast umræður um mismun-
andi fréttagildi slysa og óhappa.
Tíminn líður, klukkan verður sex
og Scott fær bragðprufu af ís-
lenska bjórlíkinu. Hann segir
bjórdrykkju góðan undirbúning
fyrir háfjallaklifur, „Súrefnis-
skorturinn hefur svipuð áhrif á
heilann og að drekka nokkrar
bjórkollur, og því hærra sem við
klífum því fleiri kollur.“
Félagi í íslenska Alpaklúbbnum
er kominn að sækja Scott, spjallið
fer að snúast um íslenska fjall-
göngugarpa og Scott segir að við
ættum að geta myndað hér harð-
soðið lið klettaklifrara. Loka-
spurningunni er þó beint að Scott
sjálfum; er hann lofthræddur?
„It is okay with the rope on, —
mér er sama meðan kaðallinn er
mér til trausts og halds, en mér er
ekkert gefið um háar byggingar.
Ég get vanist litlu súrefni og
kulda en lofthræðslan hverfur
aldrei, — sem betur fer, því lík-
lega heldur hún í mönnum lífinu.“
Viðtal: Valgerður Jónsdóttir
Enginn efast um athafnaþrek og hugrekki þeirra
manna er leggja hæsta fjall heims undir fót.
V estmannaeyjar:
22 luku prófum frá
Stýrimannaskólanum
Vrxtmannaeyjum.
SKÓLASLIT Stýrimannaskólans í
Vestmannaeyjum voru hinn 18. mai
sl. í Básum. Að þessu sinni stunduðu
12 nemendur nám í I. stigi og 10
nemendur í II. stigi. Prófum 1. stigs
lauk 27. apríl sl. og náðu allir nem-
endur prófi. Hæstir og jafnir urðu
Agúst Ingi Sigurðsson, Vestmanna-
eyjum, og Kúnar H. Jóhannsson frá
Akureyri með meðaleinkunnina
8,84. Næstur þeim varð Magnús
Guðmundsson frá Vestmannaeyjum
með 8,31. Meðaleinkunn bekkjarins
var 7,56.
í II. stigi náðu allir prófi og þar
varð hæstur Roland Buchholz frá
Grindavík með meðaleinkunnina
9,26. Annar varð Ólafur Þ. Ólafs-
son frá Vestmannaeyjum með 8,93
og þriðji Hallgrímur Guðmunds-
son frá Hornafirði með 8,43. Með-
aleinkunn bekkjarins var 7,74.
Friðrik Ásmundsson skólastjóri
afhenti nemendum prófskírteini
sín og ávarpaði nemendur og gesti.
Sigurður Einarsson útgerðarmað-
ur gaf barómet fyrir hæstu meðal-
einkunn í II. stigi og hlaut það
Roland Buchholz en hann hlaut
einnig sjónauka sem Útvegsbænd-
afélag Vestmannaeyja gaf fyrir
hæstu meðaleinkunn í siglinga-
fræði. Rotaryklúbbur Vestmanna-
eyja veitti bókaverðlaun fyrir
hæstu einkunn í íslensku, hlutu
þeir Roland Buchholz og Ólafur Þ.
Ólafsson þau verðlaun. Jóhannes
Steingrímsson frá Akureyri hlaut
bókaverðlaun úr sjóði hjónanna
Ástu og Friðfinns frá Oddgeirs-
hólum fyrir ástundun og framfar-
ir t námi á skólaárinu. Þá færði
Sparisjóður Vestmannaeyja
styrktarsjóði nemenda kr. 20 þús.
að gjöf.
Skólastjóri Stýrimannaskólans
í Vestmannaeyjum er Friðrik
Ásmundsson. — hkj.
Fyrstu gestirnir komu áður
en tjaldsvæðið var opnað
SelfosHÍ. 29. m»i.
EYRSTH gestir tjaldvæðisins á Sel-
fossi birtust í gær 28. maí en form-
leg opnun svæðisins er 1. júní.
Tjaldsvæðið var áningarstaður
fjölmargra útlendinga á sl. ári.
Var einkum um fólk að ræða sem
lagði leið sína að Gullfossi og
Geysi. Sérleyfisbílar Selfoss halda
uppi áætlunarferðum að Gullfossi
og Geysi og bílar þeirra stansa á
götunni við tjaldsvæðið sem er
þægilegt fyrir ferðafólk.
Á tjaldsvæðinu er hreinlætis-
aðstaða og aðstaða fyrir fólk að
elda sér máltíð og snæða innan-
dyra. Þá er þar smáhýsi með
svefnplássi fyrir fjóra og eldunar-
aðstöðu.
Fyrstu gestirnir, H. Dullet og S.
Alex, sögðust koma beint frá Mex-
íkó og fannst viðbrigðin býsna
mikil. Þau létu vel af íslandi og
hugðu á ferð austur að Kirkjubæj-
arklaustri næsta dag.
Sig. Jóns
Ný brú yfir
Syór. Ungholti, 30. maí.
í SIJMAR verður byggð ný brú á
Stóru-Laxá í Hreppum. Fram-
kvæmdir eru hafnar fyrir nokkru og
er áætlað að brúarsmíðinni verði
lokið í október. Þessa nýju brú
tciknaði Einar Hafliðason verkfræð-
ingur hjá Vegagerðinni og sér Vega-
gerð ríkisins um framkvæmdir. Brú-
in verður 120 metra löng með einni
akgrein, svokölluð eftirspent bitabrú
með þremur höfum. Yfirsmiður er
Jón Valmundsson frá Vík í Mýrdal.
Gamla brúin yfir Stóru-Laxá er
orðin ansi hrörleg, vægast sagt,
Stóru-Laxá
enda byggð árið 1929. I miklum
jakaburði vetrarflóða hafa menn
óttast að hún myndi bresta. Þá
hefur hluti vatnsflaumsins iðulega
runnið yfir veginn norðan hennar
og rofið vegasambandið við
Hrunamannahreppinn. Hefur það
þó kannski bjargað því að brúin
stendur enn. Mikil ánægja er hér í
sveit með þessa nauðsynlegu
framkvæmd sem tryggir öruggar
samgöngur út úr hreppnum
hvernig sem Stóra-Laxá lætur í
vetrarhamförum sínum.
Fréttaritari