Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 50
50 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNl 1985
UE> HEIMI ItVIEMyNEANNA
Spielberg
á blaðamannafundi
STEVEN Spielberg hélt blaða-
mannafund í Lundúnum ekkl alls
fyrir löngu, og þar ræddi hann um
myndir sínar, ýmiskonar oröróm,
ofbeldi í kvikmyndum og framtiö-
aráætlanir. Meö á fundinum var fé-
» lagi hans og samstarfsmaöur
George Lucas.
Spielberg var strax spuröur
hvort hann ætlaöi aö gera mynd
um Pétur Pan meö Michael Jack-
son í titilhlutverki. Hann svaraöi
því til aö hann stefndi aö því aö
gera músíkmynd um Pétur Pan, en
áreiöanlega ekki meö söngvaran-
um vinsæla. Hann neitaöi því aö
Michael hafi nokkru sinni veriö
meö í myndinni. Spielberg hyggst
borga vel fyrir kvikmyndaréttinn,
þar sem Great Ormond Street-
-barnaspitalinn á réttinn. Spiel-
berg bjóst vió aö Ijúka viö myndina
annaö hvort 1986 eða 1987.
Spielberg hefur einbeitt sér aö
ævintýramyndum, og því var ekki
úr vegi aö spyrja hann hvort ætiaöi
aö gera slíkar myndir þaö sem eftir
væri. Spielberg sagöist sjá lífiö
meö augum barnsins og á þann
hátt takist honum best upp. Meö
því segist hann komast hjá heil-
miklu rugli sem „fullorðnu" leik-
stjórarnir gerast sekir um; hann
metur sem sagt mikils einfaldleika
barnsins. Engu aö síöur vill hann
víkka sjóndeildarhring sinn, gera
meira en þaö sem höföar eingöngu
til barna og unglinga.
Nýjasta mynd þeirra, Indiana
Jones, vakti ekki sist athygli fyrir
ofbeldiö. Spielberg svaraöi því til
aö fólk ruglaöi saman hræöslu og
ofbeldi, þ.a.l. fengi fólk rangar
hugmyndir um myndir sínar. En
hann vióurkennir aö Indiana Jones
sé full sterk mynd fyrlr tíu ára
börn.
George Lucas segir aö þeir hafi
börn ætíö meö í dæminu þegar
þeir setjist niöur og geri kvikmynd.
Hann segist hafa reynt aö hanna
myndina þannig aö fólk tæki
ofbeldiö sem gott og gilt, en benti
á aö Indiana Jones væri frekar fyrir
fulloröiö fólk en börn.
Spielberg og Lucas sögöust
vera ákveönir í aö gera myndir um
Indiana Jones svo lengi sem áhorf-
endur sýndu áhuga. Þeir byrja á
þrióju myndinni síöar á þessu ári.
Þá hefur Spielberg hug á aö gera
fjóröa Stjörnustríösmyndina, en
allt er óvíst um framtíö þeirrar
myndaseríu.
Á fundinum báru þeir fram þá
ósk aö einhverjir aörir geröu
ævintýramynd í svipuöum stíl og
þeirra eigin, þar sem þeir nytu ekki
aó sjá eigin myndir vegna þess aö
þeir kynnu þær utan aö. En þeir
hljóta aö þjást af sterkri sjálfspynt-
ingarhvöt því þeir ítreka aö þaö aé
hreint og klárt kvalræöi aö gera
stórar myndir eins og Raiders og
Indiana Jones.
Spielberg varöist allra frétta af
ET, sagöist kannski gera framhald.
Þaö var eiginkona Harrisons Ford,
Kathleen Kennedy, sem skrifaöi
handritiö, en hingaö til hefur höf-
undur ekki veriö spuröur aö því
hvort megi gera framhald, sam-
anber Ókindina tvö og þrjú, aó
ekki sé minnst á James Bond.
Steven Spielberg hefur oft og
mörgum sinnum veriö útnefndur til
Óskarsverölauna sem besti leik-
stjóri en aldrei hreppt verölaunin.
Spielberg segir aö þaö geri ekkert
til meöan hann hefur áhorfendur á
sínu bandi.
HJÓ.
David Keith og Malcolm McDowoll.
Konungur ævintýramyndanna, Stavan SpMbarg.
Raiders of tha Lost Arfc (1M1) bjargaöi farti SpMbargs á
elleftu stundu. Áöur haföi hann gart nMstarastykkin
„Ókindina“ (1975) og „Closs Encounters“ (1977), en dal-
aöi heldur betur meö dellumyndinni „1941“...
SpMberg bastti um batur maö ET áriö 1982, an myndin
trónir nú á toppi llstans yflr mast sóttu myndir í Banda-
Hkjunum.
Bíóhöllin:
Sumar myndir sagja meira en nokkur orð.
Gulag-eyjarnar
Þaö er ekki einu sinni annan
hvern dag sem okkur syndum
prýddu Vesturlandabúum er boöið
inn í myrkrahallir lögregluríkisins í
austri, svo aö þegar slíkt boö kem-
ur er ekki hægt aö slá hendinni á
móti því. Fyrir nokkrum árum sýndi
hinn landflótta Alexander Solsjen-
itsyn okkur inn í myrkustu afkima
sósíalismans, Gulag-eyjarnar, og
Bíóhöllin mun á næstunni sýna
mynd sem fjallar um þetta sama
fyrirbæri. Nefnist hún einfaldlega
Gulag-eyjarnar.
Engin tengsl eru á milli myndar-
innar og „tilrauna Solsjenitsyns til
rannsókna" önnur en þau aö
greina frá dapurlegum örlögum
fólks: David Keith (An Officer and
a Gentleman) leikur fréttamann viö
bandaríska sjónvarpsstöö. Fyrir
tilstilli einstaklega illra örlaga lend-
ir hann í höndum KGB (hann haföi
planað aö skjóta sprengjufrétt um
Sovét inn í íþróttaþátt sinn, rétt
sisvona til aö vekja athygli á sér
sjálfum, en útsendarar KGB eru á
hverju strái og þeir ræna honum
og flytja austur yfir). Fréttamaöur-
inn er yfirheyröur og sakaöur um
andsovéskan áróöur og dæmdur
til Síberíuvistar.
í nístingskulda Síberíu kynnist
hinn óheppni fréttamaöur sam-
föngum stnum, sem sumlr hverjir
vita ekki hvers vegna þeir eru þar.
Meöal fanganna er Englendingur
sem Malcolm McDowell leikur.
Miöaó viö kringumstæöur mætti
ætla aó þeir yöru hinir mestu
máta, en sú veröur ekki raunin, aö
minnsta kosti ekki i upphafi. Sjón-
varpsfréttamaöurinn víll skiljan-
lega ekki dúsa í síberískum snjó-
skafli lengur en þörf krefur og
hyggur strax á flótta. En aö flýja
land, sem leggur metnaö sinn í aö
halda öllum fyrir innan veggi og
giröingar, er ekkert grin, og
bandaríski sjónvarpsfréttamaöur-
inn skilur fljótt hvers vegna Gul-
ag-eyjarnar eru af mörgum nefnd-
ar „helvíti á jöröu".
STJÖRNU-
GJÖFIN
STJÖRNUBÍÓ:
Saga hermanns ★★★
í fylgsnum hjartans
TÓNABÍÓ:
Einvígiö í Djöflagjá **V4
HÁSKÓLABÍÓ:
Löggan í Beverly Hills ***Vi
LAUGARÁSBÍÓ:
Þjófur á lausu ★★
AUSTURBÆJARBÍÓ:
Lögregluskólinn **
NÝJA BÍÓ:
Skammdegi **
BÍÓHÖLLIN:
Hefnd busanna ★★
Dásamlegir kroppar *V4
Næturklúbburinn **★
2010 **V4
REGNBOGINN:
Vígvellir *★*
Cannonball Run *
Feröin til Indlands ***
SV