Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
STOFNAÐ 1913
138. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Margir handteknir
eftir sprengingar
Katmandu. Nepal, 21. júnf. AP.
LÖGREGLAN í Nepal hefur hand-
tckid 125 manns og fundið um hundr-
að sprengjur víðs vegar í konungs-
dæminu eftir að sex sprengjur
sprungu í konungshöll, þinghúsi og
stjórnarráði landsins í höfuðborginni
Katmandu sl. fimmtudag. 7 manns
létu lífið í þessum sprengingum, þar i
meðal einn þingmaður, og 24 særð-
ust.
I dag lét ein kona lífið þegar
spengja, sem hún bar á sér, sprakk
í Birguni, fjórðu stærstu borg
landsins.
Stjórnarhermenn standa nú vörð
um þær byggingar, þar sem
sprengjurnar sprungu, og er mikill
viðbúnaður í höfuðborginni. Marg-
ir erlendir ferðamenn hafa farið
frá landinu i kjölfar spreng-
inganna. Þetta er í fyrsta sinn í
nokkurn tíma, sem hermdar-
verkamenn láta að sér kveða í Nep-
al, en þó hefur verið róstusamt þar
undanfarið.
Mótmælin beinast einkum gegn
konungsdæminu, sem komið var á
1960, en starfsemi margra stjórn-
arandstöðuflokka í landinu er nú
bönnuð.
Konungur landsins, Birendra,
kallaði þjóðþingið saman til
skyndifundar í gær til að ræða
sprengingarnar. Enn hefur enginn
aðili lýst á hendur sér ábyrgð á
þeim. Stjórn Birendras telur hins
vegar, að hér hafi verið að verki
pólitískir andstæðingar konungs,
en þeir hafa krafist þess að lýðræði
að vestrænni fyrirmynd verði kom-
ið á í Nepal.
Flugræninginn á Fornebu-fhigvelli í Osló vopnaður skammbyssu í dyrum
Boeing 737-flugvélarínnar síðdegis ( gær. Verdens Gang/Slmamynd
Ræninginn gafst upp
eftir 4 klukkustundir
Osló, 21. júní. Frá AP og Ragnhildi Sverr»dóttur, frétUritara MorgunbUAninn.
DRUKKINN Norðmaður, sem rændi norskri farþegaþotu í innanlandsflugi
eftir hádegi í dag, gafst síðdegis upp fyrir lögreglumönnum á Fornebu-flugvelli
í Osló. Þá hafði hann haft flugvélina
klukkustundir.
Flugræninginn, sem er 24 ára að
aldri og á afbrotaferil að baki,
krafðist þess að fá að hitta að máli
Káre Willoch, forsætisráðherra
Noregs, og Monu Röekke, dóms-
málaráðherra. Hann var vopnaður
skammbyssu og hnffi.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing
737, var á leiðinni frá Þrándheimi
til Oslóar. Um borð voru 116 far-
þegar og fimm manna áhöfn.
Ræninginn leyfði 70 farþegum að
fara frá borði um klukkustund eftir
að lent var á Fornebu-velli og síðan
og áhöfn hennar á valdi sínu í fjórar
peim, sem áttu eftir að yfirgefa
vélina, í tveimur hópum. Hann
heimtaði að fá bjór um borð og
virðist sem mjöðurinn hafi lamað
þrek hans til að fylgja kröfunum
eftir.
Þetta er í fyrsta sinn, sem flug-
vél er rænt í Noregi. Slík atvik hafa
tvisvar áður oriðið annars staðar á
Norðurlöndum. Árið 1979 var sov-
éskri vél rænt á leiðinni frá Osló til
Stokkhólms og árið 1972 hótuðu
öfgamenn frá Króatíu að sprengja
upp SAS-vél í Malmö.
AP/Sínumynd
Frá mótmælafundi shíta á Beirút-flugvelli (gær, föstudag. Á borðanum, sem mótmælendur halda á, stendur á ensku:
„Niöur með Bandarfkin!"
Spennan eykst í gíslamálinu:
Mótmæli shíta á
Beirút-flugvelli
Beiiiit, 21. júnf. AP.
UM El'I’l' þúsund shítar söfnuðust
saman á flugvellinum í Beirút í Líb-
anon í dag til að lýsa yfir stuðningi
sínum við flugræningjana, sem
halda 40 Bandaríkjamönnum í gísl-
ingu víðs vegar í Beirút og ná-
grenni. Fólkið hafði jafnframt uppi
hróp gegn Bandaríkjunum og ísra-
el. Þykir atburður þessi hafa orðið
til að auka spennuna í gíslamálinu.
Hermenn Amal-sveita shíta,
vopnaðir sovéskum rifflum, voru
í varðstöðu við bandarísku far-
þegaþotuna á vellinum, sem rænt
var fyrir viku, og héldu þeir fólk-
inu í hæfilegri fjarlægð frá
henni. Um borð í vélinni eru enn
þrír úr áhöfninni auk flugræn-
ingja.
I dag flugu tvær ísraelskar
orrustuþotur yfir Beirút og rufu
þær hljóðmúrinn í grennd við
flugvöllinn.
Haft er eftir ónafngreindum
heimildarmönnum meðal shíta,
að flugræningjarnir íhugi að láta
tvo gísla til viðbótar lausa. Það
eru þeir Jimmy Dell Paller, 48
ára, og Claude Whitmoyer, sem
er tæplega fertugur. Báðir eru
þeir heilsuveilir.
í kvöld var haft eftir heimild-
um í Jerúsalem, að Shimon Peres,
forsætisráðherra ísraels, hefði í
dag hringt i George Shultz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
sem er í Washington og látið í
ljós stuðning við stefnu Banda-
ríkjamanna í gíslamálinu.
Flugræningjarnir krefjast
þess, að um 700 shítar, sem eru í
haldi í ísrael, verði látnir lausir í
skiptum fyrir bandarísku gíslana.
Bandaríkjamenn og ísraelar hafa
þvertekið fyrir að fallast á þá
kröfu.
Sjá: „Reagan leitar til Rauða
krossins", „Peres ber lof á
Reagan og Shultz“ og „Báðu
Rússar Assad að leysa gísla-
málið?" á bls. 20.
UNESCO:
Samstaða
um starfs-
áætlun
Parte. 21. jiaf. AP.
SEX vikna fundi framkvæmdastjórn-
ar UNESCO, Menningar- og vísinda-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna, lauk
í l’arís í dag með því að starfs- og
fjárhagsáætlun 1986—87 var sam-
þykkt án þess að gengið væri til at-
kvæða. Verður hún nú lögð fyrir aðal-
þing stofnunarinnar, sem haldið verð-
ur í Sofia, höfuðborg Búlgarfu, (
Umhverfismálanefnd danska þingsins:
Beitir sér gegn áformum íslend-
inga um hvalveiðar í vísindaskyni
KaupmmDnabörn, 21. júnf.
UMHVERFISMÁLANEFND danska þingsins hefur ákveðið að gera brag-
arbót á afstöðunni til hvalfriðunarmála. Kemur það fram hjá talsmönnum
nefndarinnar, að hingað til hafi gætt-nokkurs tvískinnungs í þessu efni, en
nú á að taka af skarið og hafa fulla samstöðu með þeim, sem vilja algera
friðun, á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í júl( nk. Voru nefndarmenn
sammála um þetta nema Pauli Ellefsen, fulltrúi Færeyinga.
Þessar upplýsingar koma fram hafi verið tekin skýr afstaða til
í fréttatilkynningu frá Sósialiska
þjóðarflokknum (SF) í Danmörku
en þar segir ennfremur, að auk
þess sem ákveðið var að fylgja
ávallt friðunarmönnum að máli
hvalveiða Norðmanna, Islendinga
og Færeyinga. Er hún þessi:
— Komið skal í veg fyrir, að
Norðmenn skilgreini veiðar sínar
að nýju, þannig að um sé að ræða
frumþörf en ekki veiðar i ábata-
skyni.
— Unnið skal gegn áætlunum
íslendinga um að árlega í fjögur
ár verði veiddar í visindaskyni 80
langreyðar, 80 hrefnur, 40 sand-
reyðar, 10 steypireyðar og 10
hnúfubakar.
— Barist skal gegn veiðum
Færeyinga í vísindaskyni á stór-
um, friðuðum hvölum.
Umhverfismálanefnd danska
þingsins leggur áherslu á, að
hrefnuveiðar Grænlendinga verði
tryggðar, og gerir hún greinar-
mun á þeim og veiðum Norð-
manna, lslendinga og Færeyinga.
Danska sendinefndin á ársfund-
inum i júli á einnig að vinna að
því, að Alþjóðahvalveiðiráðið hafi
með aðrar hvaltegundir að gera
eins og lagt sé til i Alþjóðahaf-
réttarsáttmálanum.
hausL
William Dodd, fulltrúi Breta í
framkvæmdastjóminni, sagði að á
fundinum hefðu Bretar ekki náð
öllu því fram, sem þeir stefndu að.
Lét hann i ljós óánægju með, að
ekki hefði náðst samstaða um að
skera niður útgjöld til umdeildra
pólitískra verkefna. Breska ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að hætta að-
ild að UNESCO um næstu áramót
ef ekki verða gerðar umtalsverðar
breytingar á starfsemi og skipulagi
stofnunarinnar. Bandaríkjamenn
hafa þegar hætt þátttöku i starf-
inu.
Yuri Khilchevsky, fulltrúi Sov-
étríkjanna, kvaðst fagna því „póli-
tíska raunsæi" sem fundarmenn
hefðu sýnt á undanförnum vikum.
Hann sagði, að Sovétmenn mundu
halda áfram að berjast fyrir aðild
UNESCO að nýskipan fjölmiðlunar
i heiminum og ýmsum póltískum
verkefnum er lúta að friði og af-
vopnun.
I
I
i
I