Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 48
KEILUSALURINN
—OPINN 9.00-02.00
LIL
HlfKKUR IHBMSHEÐJU
LAUGARDAGUR 22. JÍJNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Bensín-
hækkun
á mánu-
daginn
Lítrinn fer að líkind-
um yfir 30 krónur
Verðlagsyfirvöld munu að lík-
indum funda stíft yfir helgina, þar
sem fyrir dyrum er að ákveða
verðhækkun á bensíni nk. mánu-
dag á fundi verðlagsráðs. Eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst
verður um umtalsverða hækkun á
bensíni að ræða, og er því fleygt
að hækkunin verði einhvers stað-
ar á milli 15 og 20%, þannig að nú
má búast við að verð á bensínlítr-
anum fari yfir 30 krónur.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hafa yfirvöld haldið
að sér höndum í þessu hækk-
unarmáli og viljað bíða til þess
að hækkunin kæmi ekki beint
ofan í nýgerða kjarasamninga.
Beiðni olíufélaganna hefur hins
-^ffegar lengi legið fyrir og verður
nú afgreidd nk. mánudag. Jafn-
framt mun vera ákveðið að aðr-
ar olíutegundir hækki ekki að
svo stöddu.
Kýr á Kjar-
valsstöðum
ÓVÆNTUR gestur heimsótti Kjar-
valsstaði í gsr við opnun iðn-
kynningar Rangárvallasýslu sem
tuttugu fyrirtæki standa að, kýrin
Drottning frá Kirkjulæk í Fljótshlíð
mætti á staðinn við mikinn fógnuð
gesta.
Drottning er 12 ára gömul verð-
launakýr sem hefur mjólkað 52
þús kg af mjólk, um 6400 litra á sl.
ári, eða um 20 litra á dag. Hún er
frá Hólmi í Austur-Landeyjum og
hefur átt 10 kálfa, en á von á þeim
11. eftir mánuð. Drottning heim-
sótti Kjarvalsstaði til þess að
leggja áherslu á mikilvægi héraðs-
ins í landbúnaði, en um 6000 kýr
eru í Rangárþingi. Á myndinni er
Eggert Pálsson bóndi með Drottn-
ingu i taumi, en lengst til hægri
eru m.a. Þorsteinn Pálsson alþing-
ismaður, Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra og Jón Þorgilsson
sveitarstjóri á Hellu, en lengst til
vinstri er Árni Johnsen alþingis-
maður sem stjórnaði framkvæmd
Rangæingakynningarinnar.
Gunnar Flóvenz um afstöðu Rússa til síldarsamninganna:
Hljótum að endurskoða
öll viðskipti við Sovét
— segir undirboð Norðmanna gott dæmi um spillingu í ríkisstyrkjakerfi
í GÆR slitnaði upp úr viðræðum, sem staðið hafa yfir að undanförnu f
Moskvu um fyrirframsölu á saltsfld framleiddri á komandi vertíð. Sovét-
menn hafa gert kröfu um 45% lækkun á söluverðinu og jafnframt krafist
ýmissa breytinga á samningsákvæðum íslendingum í óhag.
Sem rök fyrir verðlækkunar-
kröfum sínum hafa Sovétmenn
lagt fram í viðræðunum undirrit-
aða sölusamninga sem þeir hafa
nýlega gert við helstu keppinauta
okkar, en þar er um að ræða 50%
lægra söluverð en Síldarútvegs-
nefnd samdi um við Sovétmenn á
síðastliðnu ári.
.Við höfum gert sjávarútvegs-
ráðherra og viðskiptaráðuneytinu
ítarlega grein fyrir stöðunni og ég
tel ekki rétt að tjá mig um öll
atriði málsins að sinni, þar sem
viðskiptaráðherra er væntanlegur
hingað á mánudag til að undirrita
fimm ára viðskiptasamkomulag
bað, er gert var í apríl í vor, ef það
verður þá á annað borð undirritað
eftir það sem hér hefur gerst und-
anfarna daga. Það skiptir miklu
máli að við stöndum alltaf upp-
réttir burtséð frá því hvaða þjóðir
eiga hlut að máli,“ sagði Gunnar
Flóvenz, framkvæmdastjóri Síld-
arútvegsnefndar, er Morgunblaðið
náði símasambandi við hann í
gærkveldi.
Gunnar sagði þó að greinar-
gerðir þær sem Síldarútvegsnefnd
Miklar svartolíubirgðir í landinu seljast ekki:
Svartolmbrennslu þegar
hætt á sextíu skuttogurum
— vegna of hás verðs — olíufélögin tapa hvert um sig 10 milljónum á mánuði
OV inTAI (linnnkTáTCII II L # _•« ■ f on ■ .1. . m r r r _x-ll.. I/ r _ n_ nbbn« _ ■»
SVARTOLÍUBRENNSLU hefur verið hætt á 60 skuttogunim frá áramótum
vegna þess hve dýr hún er. Eru nú til miklar svartolíubirgðir í landinu, nær
30 þúsund tonnum, eða nær Vt þess magns, sem flutt var til landsins eftir
áramótin. Hefur svartolíusala undanfarna mánuði verið sáralítil miðað við
sama tíma í fyrra, að sögn Þórðar Ásgeirssonar, forstjóra Olís.
Ástæðan er fyrst og fremst sú, tíu togara á móti því að nota gas-
að svartolían, sem hér er til, var
keypt á föstu verði, 11.800 krónur
tonnið í útsölu, í upphafi ársins og
hefur verðið ekki verið lækkað hér
þótt það hafi lækkað um 2.200
^jrónur á Rotterdam-markaði, skv.
upplýsingum Kristjáns Ragnars-
sonar, formanns og framkvæmda-
stjóra Landssambands íslenskra
útvegsmanna.
„Vegna þessara miklu birgða í
landinu fáum við ekki að njóta
lækkunarinnar á olíumörkuðum
erlendis," sagði Kristján í gær.
„Þetta munar okkur sex hundruð
þúsund krónum á dag á þessa sex-
olíu. Um gasolíuverð má segja
svipaða sögu — Verðlagsstofnun
fæst ekki til að lækka verðið á
henni þótt innkaupsverð í Rott-
erdam sé nú 60 aurum lægra en
það var í febrúar og felld hafi ver-
ið niður opinber gjöld um aðra 20
aura frá sama tíma. Þetta er hróp-
andi dæmi um óskynsamlega verð-
myndun á olíu og það einokunar-
kerfi, sem hér er í olíusölumál-
um.“
Þórður Ásgeirsson sagði að það
væri olíufélögunum mjög dýrt að
sitja uppi með svo miklar birgðir
af svartolíu. „Kristján Ragnars-
son gleymir því hinsvegar, að
þessa olíu vorum við búnir að
kaupa á þessu fasta verði. Það er
því ekki hægt að lækka þetta verð
enda er ekki bætandi á tap olíufé-
laganna,“ sagði hann. „Álagning
okkar var skorin niður um þriðj-
ung í nóvember síðastliðnum og
það hefur breytt rekstrarstöðu fé-
laganna svo, að í stað þess að vera
rekin með lítilsháttar hagnaði á
síðasta ári eru þau nú öll rekin
með bullandi tapi. Mér sýnist að
rekstrartap þeirra hvers um sig sé
um tíu milljónir króna á mánuði.
Þetta þýðir með öðrum orðum, að
síðan í desember hafa olíufélögin
tapað yfir 200 milljónum króna.
Við getum auðvitað ekki haldið
áfram að láta okkur blæða svona
— ef við fáum ekki leiðréttingu á
álagningu okkar verða aðrir að
taka við olíusölunni í landinu.“
Þórður Ásgeirsson sagði að sár-
alítið hefði gengið á svartolíu-
birgðirnar í landinu frá áramót-
um. Þá hefðu komið til landsins
tveir farmar, samtals 38 þúsund
tonn. Um síðustu mánaðamót
hefðu enn verið til tæp 30 þúsund
tonn og væri gert ráð fyrir að í
þessum mánuði yrðu seld 5—6
þúsund tonn. „Ég get ekki talað
fyrir hönd annarra oliufélaga en
við hjá Olís seldum í síðasta mán-
uði um 800 tonn, sem er ekki nema
um fjórðungur af því, sem við
seldum í maí í fyrra. Það er hins
vegar útilokað að við getum lækk-
að verðið — það er ekki hægt að
halda áfram að tapa tíu milljón-
um á mánuði.“
hefði sent viðskiptaráðuneytinu
og sjávarútvegsráðherra væru
ekkert leyndarmál, enda væri
nauðsynlegt að landsmenn gerðu
sér grein fyrir „viðskiptamóral"
ríkisstjórna keppinauta okkar svo
og þeim breytingum sem virðast
hafa orðið á viðhorfum Sovét-
manna til síldarkaupa frá Islandi.
Gunnar sagði að Sovétmenn
hefðu skýrt íslensku samninga-
nefndinni frá því að norsk samn-
inganefnd væri einnig stödd í
Moskvu til að reyna að selja þar
saltsíld og að Norðmennirnir
hefðu lýst því yfir á fundi hjá
þeim, áður en viðræður þeirra hóf-
ust, að Norðmenn skyldu alltaf
vera reiðubúnir til að bjóða
20—25% lægra verð en íslend-
ingar. „Þetta er gott dæmi um þá
spillingu sem ríkisstyrkjakerfið I
Noregi hefur leitt af sér,“ sagði
Gunnar Flóvenz.
Gunnar sagði að islenska samn-
inganefndin hefði átt bókað flug
frá Moskvu i gærkveldi en eftir
símtal sem hann og óskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasam-
bands íslands, hefðu átt við Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra í gær hefði verið ákveðið
að fslenska san.ninganefndin biði
komu viðskiptaráðherra í Moskvu.
Gunnar Flóvenz sagði að lokum að
saltsíldin væri nú meginuppistað-
an í viðskiptum íslands og Sovét-
ríkjanna. Ef Sovétmenn breyttu
ekki afstöðu sinni nú hlytu íslend-
ingar að taka öll viðskiptatengsl
landanna til endurskoðunar.
Þegar upp úr viðræðum slitnaði
höfðu Sovétmenn breytt verð-
lækkunarkröfum sínum úr 45% i
22%, en þeirri verðlækkun var al-
gjörlega hafnað af íslensku samn-
inganefndinni.