Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1985
fclk í
fréttum
Þeir sem tóku þitt í söng i plötunni USA for Afrika, We
are the World.
TÓNLISTARHÁTÍÐ:
Agóði rennur til sveltandi
fólks í Afrfku
Breskir rokktónlistarmenn
voru upphafsmenn að sam-
eiginlegu átaki tónlistarfólks til
stuðnings sveltandi fólki í Afr-
íku. í kjölfarið fylgdi m.a.
bandaríska platan vinsæla USA
for Africa „We are the world"
B r e s k i söngvarinn Bob
Geldof sem hefur staðið að
skipulagningu safnana í Bretl-
andi hugsar sér nú til hreyfings
á þessu sviði að nýju.
Fyrir skömmu tilkynnti hann
að nú myndu sameinast 50
stærstu nöfnin í poppheiminum
bæði í Bretlandi og Bandaríkj-
unum og efna til tónlistarhátíð-
ar.
Hátíðin mun fara fram 13. júlí
næstkomandi samtímis í London
og Fíladelfíu og mun verða tengd
saman með gervihnetti og sjón-
varpað til meira en billjón
manns í meira en 100 þjóðlönd-
um. Vonir standa til að þetta
eigi eftir að gefa af sér meira en
10 milljónir dollara.
Adam Ant, Elton John, Midge Ure og Geldof sem sér
um skipulagningu hátíðarinnar.
Ekkert lát á
vinnu þeirra
og vinsældum
Hver þekkir ekki þessa kappa úr
fjölmörgum kvikmyndum. Ekk-
ert lát er á vinnu þeirra og vinsæld-
um og nú fá aðdáendur þeirra brátt
að sjá þá saman í mynd sem fjallar
um tvo náunga sem eiga að sjá um að
áfengisbanni sé framfylgt. Jackie
Gleason er orðinn 69 ára að aldri en
Art Carney er 66 ára.
GRAHAM SMITH
Á LEIÐ HEIM
TIL BRETLANDS:
„Þessi ár mín
hérlendis ein
bestu árin í
lífi mínua
Undanfarin sex ár hefur
Graham Smith verið bú-
settur hérlendis, leikið með sin-
fóníunni, gefið út plötur og spil-
að, einnig sem popptónlistar-
maður. Á næstunni er Graham
að flytjast búferlum heim til
Englands.
„Það eru ekki leiðar ástæður
sem liggja að baki því að ég flyt
nú aftur heim til Englands, því
mér þykir verulega vænt um ís-
land og þessi ár mín hérlendis
eru ein bestu árin í lífi mínu.
En leiðin liggur aftur heim,
það var kominn sá tími að ég
varð að fara að gera upp hug
minn hvort ég ætlaði að setjast
hérna að eða snúa á heimaslóðir.
f Englandi bíða mín hlutir
sem ég hef ekki möguleika á að
sinna eins vel héðan. Ég á fjöl-
skyldu heima, dreng og stúlku,
og ég vil geta sinnt þeim betur
en hingað til. Ég á einnig góða
vini þarna ytra og ýmis önnur
sambönd sem bíða mín.
Fyrst um sinn kem ég til með
að búa í Bristol og ég stefni að
því að byrja heimkomuna á ær-
legu fríi. Ég veit ekki hvað tekur
svo við nema „freelance“-vinna.
Að nokkrum tíma liðnum get-
ur verið að mér bjóðist vinna við
félagsmiðstöð sem vinur minn
stjórnar í frekar erfiðu hverfi í
London. Þar ynni ég með ungu
fólki sem hefur lent i erfiðleik-
um, annaðhvort efnahagslegum,
tilfinningalegum eða sér lítinn
tilgang með lífinu. Þar á ég ef-
laust eftir að geta notað tónlist-
ina mína hvort sem það er rokk,
jazz, popp og klassík."
Graham Smith hefur verið að
vinna að hljómplötu undanfarið
ásamt Bergþóru Árnadóttur og
von er á henni f verzlanir þessa
dagana.
„Við höfum verið að vinna að
skífu, rétt er það, sem ber nafnið
„Það vorar“ eða á ensku heitir
hún „A musical affair".
Þetta er í reynd ný stefna
fyrir mig þar sem ég leik á önnur
hljóðfæri en fiðluna, þ.e. synth-
esizer og tölvu og tala jafnvel
inn á í takt við tónlistina.
Bergþóra syngur einnig og
þetta eru breytingar frá öðrum
skífum sem ég hef látið frá mér
því þar er fiðlan allsráðandi. Ég
samdi fjögur lög á plötunni og
þrjú eru um ísland, þ.e.a.s.
Snæfellsjökul, Hótel Búðir og
Snæfellsnes. Auk þessa hef ég
verið að spila í söngleiknum
Chicago undanfarið.
En nú er ég semsagt á leiðinni
heim. Ég er þó ekki að kveðja
endanlega. Hver veit nema ég
komi í haust og fari í tónleika-
ferð með Bergþóru til að kynna
plötuna okkar eða verði með ef
söngleikurinn Chicago verður
aftur tekinn til sýninga í janúar.
Hver veit ... allavega kem ég
aftur.“