Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1985 35 I Kristjana Sœmunds- dóttir — Minning Þann 14. þessa mánaðar andað- ist í Borgarspítalanum í Reykja- vík, Kristjana Sæmundsdóttir eft- ir langt og erfitt sjúkdómsstríð. Hún verður jarðsungin í dag, 22. júní, frá Höfn í Hornafirði. Meðal vina og ættingja ver hún alltaf kölluð Dídi. Hún fæddist á Litla- Árskógssandi í Eyjafirði 5. ágúst 1934, dóttir hjónanna Önnu Pét- ursdóttur og Sæmundar Bene- diktssonar, hún var næstelst af sjö systkinum. Dídí stundaði nám við Húsmæðraskólann á ísafirði vet- urinn 1952—53. Ung að árum gift- ist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Gísla Þorvaldssyni frá Norðfirði. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu þau í Keflavík, síðan mörg ár á Neskaupsstað og nú síðustu árin á Höfn í Hornafirði, en þar áttu þau fallegt heimili að Kirkju- braut 28. Börn þeirra hjóna eru fjögur, Sæmundur stýrimaður og skip- stjóri, búsettur á Höfn í Horna- firði, hann er kvæntur Sigríði Sig- urðardóttur. Jóhann, verslunar- maður, einnig búsettur á Höfn, eiginkona hans er Anna Valgarðs- dóttir. ólöf húsmóðir, búsett á Reyðarfirði, hún er gift Jóhanni Gunnarssyni og Anna María, sem dvelur enn í föðurhúsum. Barna- börnin eru nú orðin 6. Einhvern veginn er það nú þannig að þegar maður hefur hvað mesta þörf fyrir að tjá sig, þá láta orðin á sér standa, hugurinn leitar til löngu liðinna atburða, sem gerðu samfylgdina ánægjulega og maður fyllist trega, sársaukinn og söknuðurinn láta ekki á sér standa, en það er huggun harmi gegn að eftir stendur minningin um elskulega systur, sem ævinlega vildi öllum gott gera. Á gleðinnar stund var hún hrók- ur alls fagnaðar, margar voru stundirnar þar sem hún spilaði og söng af hjartans list og þá hreif hún alla viðstadda með sér. í mínum huga sem þessar línur rita, var hún góð kona og gjörvu- leg og þannig ætla ég að geyma minninguna um hana. Nú er Dídí systir mín gengin á fund skapara síns, ég efast ekki um að hún mun standa frammi fyrir honum í auðmýkt, en jafn- framt með þeirri reisn sem ávallt hvíldi yfir henni. Ég votta eiginmanni hennar, börnum, barnabörnum og öðrum ástvinum mína dýpstu samúð. Jón Aðeins nokkur fátækleg orð til að þakka Dídí, eins og hún var kölluð meðal vina. Þakka henni kímnina, glaðværðina, hjálpsem- ina, góðvildina, sem hún hafði ætíð tíma til að sýna þeim er til hennar leituðu. Fyrir utan hið indæla heimili hennar hér í Nes- kaupstað, ræktaði hún dásamleg- an blómagarð við heimili sitt. Hún var öllum góð. Hún vann mikið með manninum sínum í hans starfi, var stoð hans og stytta. Veikindi sín bar hún með einstöku þreki: Sú ijúfa minning létt og hljótt hún læðist til mín dag og nótt, sem aldrei, aldrei gleymi ég. Kristjana Sæmundsdóttir lést í Borgarspítalanum að morgni 14. júní. Hún var fædd 5. ágúst 1934. Foreldrar hennar voru Sæmundur Baldvinsson og Anna Pétursdótt- ir, sem látin er. Eiginmaður Kristjönu er Gísli Þorvaldsson. Voru þau flutt til Hornafjarðar fyrir nokkrum árum. Þau eignuð- ust fjögur börn, sem öll eru á lífi. Eftirlifandi manni hennar, börn- um hennar, tengdafólki og föður svo og öðrum aðstandendum votta ég innilega samúð og bið Guð sem græðir öll sár að græða einnig þeirra. Vinkona Sjá, ævin líður furðu fljótt, sólin hnígur, húmið stígur. Senn er komin svartanótt. I dag er til moldar borin elsku- leg móðursystir okkar Kristjana eða Dídí eins og hún var kölluð. Dídí yfirgefur nú þennan heim langt fyrir aldur fram eftir erfiða baráttu við sjúkdóm þann er lagði hana að velli. Æðrulaus og róleg mætti hún örlögum sínum og alltaf sá hún björtu hliðarnar á lífinu. Dídí var hrókur alls fagnaðar, gleðin og hlýjan geislaði af henni, hún var alltaf tilbúin að gefa af sjálfum sér. Fyrir tólf árum þegar við systurnar misstum móður okkar kom Dídí með opinn faðminn og þar áttum við alltaf vísan stað. Lífið er hverfult og enginn má sköpum renna, við sem eftir lifum verðum að trúa því að henni sé ætlað annað og meira hlutverk. Með þessum fáu orðum viljum við þakka Dídí fyrir samverustund- irnar sem urðu allt of fáar. Fari hún í Guðs friði og hafi þökk fyrir allt og allt. Anna Margrét og Ingigerður Guðmundsdætur Minning: Einar Indriðason Vestmannaeyjum Fæddur 17. nóvember 1933 Dáinn 13. júní 1985 Aðfaranótt 13. júní sl. varð bráðkvaddur á heimili sínu í Vest- mannaeyjum Einar Indriðason sjómaður. Fer útför hans fram frá Landakirkju í dag, 22. júní. Einar fæddist á Raufarhöfn þann 17. nóvember 1933 og var einn af fimm börnum þeirra hjóna Jóhönnu Helgu Önundardóttur og Indriða Einarssonar útgerðar- manns og skipstjóra. Móðir Ein- ars lést frá börnunum ungum og ólust systkinin upp hjá föður sín- um á heimili föðurömmu sinnar. Eru fjögur þeirra látin, en eftirlif- Gróðursett á Sauðárkróki SauAárkróki, 17. júní. UM SJÖHUNDRUÐ trjáplöntur hafa verið gróðursettar meðfram Skagfirðingabraut, frá Faxatorgi suður fyrir gagnfræðaskóla, sem er sjöhundruð metra vegalengd. Þetta eru myndarlegar Alaska- aspir, sem vonandi ná að dafna og þroskast, þótt ýmsir óttist að norðannæðingurinn geti reynst þeim skeinuhættur. Margt er nú gert til að fegra og prýða bæinn og vinna flokkar unglinga að ýmsum verkefnum, slá og hreinsa opin svæði og að- stoða einstaklinga sem óska að- stoðar við garðslátt o.þ.h. Kári. andi er Agnar sem búsettur er á Raufarhöfn. Eins og títt er um unga menn í sjávarplássum beindist hugur Einars fyrst og fremst að sjó- mennsku. Það varð og hlutskipti hans að gera hana að ævistarfi sínu. Byrjaði hann ungur sjósókn í heimaplássi sínu, en kom fyrst á vertíð til Vestmannaeyja árið 1955. Var það upphafið að tæplega sautján ára búsetu þar. Var Einar háseti á Hugin VE í sautján ár og síðar á Sindra VE en varð að hætta sjómennsku fyrir nokkrum árum vegna heilsubrests og vann í Vinnslustöð Vestmannaeyja til dauðadags. Engan þekki ég sem hafði annað en góð orð um Einar og var hann mjög vel iátinn af vinnufélögum sínum. Segir nafngiftin „félagi" sitt, en það var Einar almennt kallaður meðal vina. Það varð æ sjaldnar sem ég hitti Einar seinni árin, en alltaf jafn ánægjulegt, því gott er að þekkja fólk sem reynir ávallt að sjá það besta og jákvæðasta við tilveruna. Áttum við langt og gott spjall saman á síðasta ári. Hafði ég þá hugboð um að Einar væri ekki grunlaus um að hverju stefndi. En öll viljum við lifa sem lengst og njóta afraksturs lífsbaráttunnar, sjá börnin okkar komast til manns og njóta barnabarnanna. En vinnusömu fólki getur heilsuleysi orðið illbærilegt og því sáttara við en ella að sjá fram á skapadægur sitt. Einar gekk lifsveginn hljóðlega og skilur eftir þægilegar minn- ingar. Honum var það gefið að geta siglt í gegnum lífið án þess að láta utanaðkomandi áhrif trufla lífsmynstur sitt. Hann var ánægð- ur með hlutskipti sitt í lífinu og var það vel. Einar giftist árið 1959 Fjólu Guðmannsdóttur frá Vestmanna- eyjum og áttu þau myndarlegt heimili á Hásteinsvegi 55, sem án- ægjulegt var að kynnast. Þar leið honum vel, enda vel að búið. Eign- uðust þau sex syni og eru fjórir enn í heimahúsum, en tveir hafa stofnað heimili. Það var ánægður afi sem talaði um barnabörnin sín, enda mjög barngóður og þægi- legur heimilisfaðir. Átti þar einn- ig góðan að lítil sonardóttir mín, sem Einar reyndist sem besti afi. Væri ánægjulegt að mega sjá syni Einars og Fjólu feta í fótspor föður síns. Af því væri enginn svikinn, því þar fór góður drengur og félagi. Innilegar samúðarkveðjur til ástvinanna. Blessuð sé minning Einars Ind- riðasonar. Dóra Kristins Hollusta hrísgrjóna Hagskýrslur sýna að í vestrænum ríkjum er mun meira um meltingarsjúkdóma, offitu, sykursýki og hjartasjúkdóma en í fátækari og vanþróaðri ríkjum, til dæmis í Asíu og Afríku. Vísindamenn eru yfirleitt á þeirri skoðun að mataræði ráði hér miklu um, og ráðleggja þeir þá heilsusamlegri fæðu. Það er þessvegna ekki úr vegi að íhuga nokkuð matarvenjur okkar og hvað unnt sé að gera til bóta. Við vitum að trefjafæða er holl, og einnig að hollt er að draga úr neyzlu á sykri, fitu, kólesteról-ríkum mat og salti. Nú er okkur ráðlagt að neyta fæðu sem er rík af kolvetni, eins og hrísgrjón, brauð og kartöflur, nýir ávextir og grænmeti, fiskur og belgjurtir. Langkornuð hrísgrjón (long grain rice) hafa marga þá kosti til að bera sem nú þykja nauðsynlegir í mataræði. Ihrísgrjón- um er svo til ekkert salt, og eru þau því ákjósanleg fyrir þá sem vilja draga úr saltneyzlunni. Mjög lítil fita er í hrísgrjónum. Hrísgrjón eru trefjarík. I hvítum hrísgrjonum eru 2,7 trefja- grömm í hverjum 100 grömmum. I brúnum hrísgrjónum eru 4,4 trefjagrömm í hverjum 100 grömmum. Eftir suðu eru trefja- grömmin 0,9 í hvítu grjónunum og 1,4 í þeim brúnu. Þeir sem eru í megrun kvarta oft undan hungurverkjum. Hrísgrjón eru prýðis magafylling, og ekki eru þau fitandi. í hverjum 100 grömmum af soðnum hrísgrjónum eru aðeins um 120 hitaeiningar (kaloríur), en í ósoðnum 360 hitaeiningar. Um þrjár tegundir langkorna hrísgrjóna er að velja. í fyrsta lagi venjulegra hvítra hrísgrjóna (regular-milled). Grjónið er grannt og hálf glært útlits, fjórum til fimm sinnum lengra en það er breitt. Hýði, hismi og kim hafa verið fjarlægð. I öðru lagi eru forsoðin (parboiled) hrísgrjón. Þau hafa verið forsoðin með gufu undir þrýstingi til að þau haldi betur fjörefnum sínum og steinefnum. Þetta styrkir einnig grjónin og minni hætta er á að þau mauksjóði. Fyrir suðu hafa grjónin á sér gulan blæ, en verða rjómahvít, aðskilin og mjúk við suðu. Stærðin er sú sama og á venjulegum hvítum grjónum. í þriðja lagi eru svo brúnu hrísgrjónin. Þessi grjon eru með hyðinu, en hismið hefur verið fjarlægt. Hér á landi fæst nú fjölbreytt úrval góðra hrísgrjóna, svo allir ættu að geta fundið grjón við sitt hæfi. Um daginn rak á fjörur mínar tegund, sem ég hafði ekki áður reynt, en það voru forsoðin langkornuð hrísgrjón frá Kellogs (long grain parboil- ed), og þótti mér þau afbragðs goð. Ykkur er alveg óhætt að reyna þau. Soðin á eftirfarandi hátt urðu þau laus og ljúffeng: 1 bolli grjón, 2 bollar vatn og ein teskeið salt sett í pott og suðan látin koma upp. Hrært í einu sinni, lok sett á pottinn og soðið áfram við lágan hita í 20 mínútur (eða með 2Vt. bolla af vatni í 25 mínútur til að fá grjónin mýkri). Tekið af plötunni og látið standa óopnað og trekkja í 5 mínútur. Hrært í áður en grjónin eru borin fram. Þar sem Dyngjan rúmar ekki meira en þetta að sinni ætla ég að fylgja þessu eftir og gefa ykkur fáeinar hrísgrjónauppskrift- ir næsta laugardag, þó sérstaklega Auði í Grænumýri 9. p % rií § 8 CO Metsölublad á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.