Morgunblaðið - 22.06.1985, Page 4

Morgunblaðið - 22.06.1985, Page 4
4 MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 22. JÚNl 1985 Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra: Stórskaðlegt að selafrumvarpið var ekki samþykkt FORSÆTISRÁÐHERRA telur það stórskaðlegt íslenskum hagsmunum að einn þingmaður, Egill Jónsson (S), skuli hafa komið í veg fyrir að frumvarpið um að selveiðar heyri undir sjívarútvegsráðuneytið, en ekki landbúnaðar- ráðuneytið, varð að lögum á því þingi sem slitið var í gær. „Ég tel það ákaflega sorglegt, og þeirri upphæð í lakari nýtingu og raunar stórskaðlegt íslenskum hagsmunum, að einum manni skyldi takast að koma í veg fyrir að selafrumvarpið færi í gegn. Það er náttúrlega alveg hroðalegt að menn skuli ekki skilja það, að sel- urinn veldur okkur ekki bara 500 milljóna króna tjóni í auknum vinnslukostnaði, heldur margfalt tjóni sem við verðum fyrir á mörkuðum,” sagði forsætisráð- herra. Steingrímur sagði að ef menn ætluðu að halda verndarhendi yfir selnum og koma í veg fyrir að hon- um væri haldið eðlilega í skefjum þá væru menn á rangri leið. Verkalýðsmálaráð Alþýðuflokks: Tekist hefur að forð- ast kaupmáttarhrap MORGUNBLAÐINU hefur borist inga, hvort sem er í valdastríði eftirfarandi fréttatilkynning frá verkalýðsmálaráði Alþýðuflokks- ins: Vegna samþykktar frá verka- lýðsmálaráði Alþýðubandalags sem lesin var í Ríkisútvarpi fyrir skömmu hefur stjórn verkalýðs- málaráðs Alþýðuflokksins gert svofellda samþykkt: Verkalýðsmálaráð Alþýðu- flokksins minnir á samþykkt sína í apríl sl. undir kjörorðinu „Kjarabætur án kollsteypu". Þar var á það bent að 24% kaup- hækkun frá síðastliðnu hausti var þá þegar að engu orðin. Því yrði að gera skammtíma samn- inga strax til að stöðva stöðuga kaupmáttarskerðingu til sept- embermánaðar, en samningar voru bundnir til þess tíma. í nýgerðum kjarasamningum hefur tekist að forða því kaup- máttarhrapi sem fyrirsjáanlegt var, jafnframt því að á samn- ingstímabilinu verða málefni fiskverkafólks tekin til sérstakr- ar meðferðar með það að markmiði að bæta kjör þess. Verkalýðsmálaráð Alþýðu- flokksins varar alvarlega við þeirri ábyrgðarlausu tilhneig- ingu að fórna hagsmunum laun- þega í þeim tilgangi einum að koma höggi á pólitíska andstæð- innan flokks eða utan, eins og samþykkt verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins, sem lesin var í Ríkisútvarpinu, ber því miður með sér. (FrétuuikynwBg.) Morpjr.blaðið/Friðþjófur Alþingi slitið í gær Alþingi var slitið í gær og er þingið það lengsta frá upphafi, en það stóð í 216 daga. Rúmlega eitt hundrað frumvörp voru samþykkt sem lög, en þingið tók til meðferðar 537 mál. Á myndinni er Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs þings, að flytja þingslitaræðu sína. Næst á myndinni er Þórarinn Sigurjónsson, skrifari sameinaðs þings, en starfsbróðir hans, Árni Johnsen, er lengst til vinstri. nans, Arni jonnsen, er lengst tu vinstri. „Gerð til þess að varpa rýrð á þá sem að samningunum stóðu“ — segir Þröstur Ólafsson um ályktun opins fundar verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins óheppileg og að mínu mati er fólks væri víða mjög mikil og hefði ekki verið ósammála „ÉG TEL að svona yfirlýsing sé ákaflega óheppileg og að mínu mati er innihald hennar rangt,“ sagði Þröstur Olafsson, framkvæmdastjóri Dags- brúnar í samtali við Morgunblaðið, er hann var spurður hver hans skoðun væri á ilyktun opins fundar verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins um nýgerða kjarasamninga. Þröstur sagði þessa yfirlýsingu ekki breyta neinu um það sem gert hefði verið, en væri gerð til þess að varpa rýrð á þá sem að þeim stóðu. „Ég hygg líka að hún veiki þann flokk, á hvers fundi hún var samþykkt," sagði Þröstur. „Ég tel þvi að fólk sem er með svona leik, sé að leika sér með eld, sem það ráði sjálft ekkert við, hvar slái niður," sagði Þröstur. Þröstur sagðist ekki líta á þessa ályktun sem ályktun verkalýðs- málaráðsins, heldur ályktun opins fundar sem ráðið hefði boðað til. Þeir sem mótuðu stefnu þessa ráðs mest núna væru hins vegar höf- undar og flutningsmenn að þeirri ályktunartillögu, sem samþykkt hefði verið á fundinum og þar kæmi að sjálfsögðu fram hugur þessa fólks til verkalýðsmála og þessara samninga. Þröstur sagðist ekki telja að þeir sem samþykktu þessa ályktun væru málsvarar stórs hóps innan verkalýðshreyfingarinnar, en hitt væri alveg ljóst að meðal verka- fólks væri víða mjög mikil og niðurbæld reiði vegna þeirrar kjaraskerðingar sem launþegar hefðu orðið að taka á sig, og vegna þeirrar stefnu sem komið hefði fram hjá stjórnvöldum og vinnu- veitendum, gagnvart láglauna- fólki. „Það þarf ekkert verka- lýðsmálaráð Alþýðubandalagsins til þess að segja okkur þetta — við vitum það mætavel," sagði Þröst- ur. Þröstur sagði að ástæða þess að Dagsbrún hefði verið ansi þung til þessarar samningsgerðar hefði verið sú að þeir hjá Dagsbrún gerðu sér vel grein fyrir því að erfitt væri að bera svona heildar- samninga fyrir félagið. Dagsbrún hefði ekki verið ósammála heildarstærðunum sem þessir samningar gáfu, en félagið væri samsett úr svo mismunandi hóp- um, að erfitt hefði reynst að sætta hina ólíku hópa á eina heildartölu. Því væri það svo hjá Dagsbrún að sumir hópanna væru mjög ánægð- ir með þessa samninga, en aðrir væru langt frá því að vera ánægð- ir. „Þetta er ástæða þess að Guð- mundur J. Guðmundsson hefur sagt að það komi ekki til greina að Dagsbrún verði í heildarsamfloti áfram," sagði Þröstur, „því félagið er svo ólíkt öðrum félögum, að því leyti að það likist miklu fremur heildarsamtökum en félagi." Atlantshafsflugrallið: Flugvélarnar halda til Skotlands í dag — verðlaunaafhending í gærkvöldi Á GLÆSILEGRI flughátíð í veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi voru veitt verðlaun fyrir flugleiðina Grænland-ísland í flugkeppninni yfir Atl- antshafið. í þessari keppni keppa ekki allir þátttakendur um hraða, heldur aðeins þeir tíu bestu sem skipuleggjendur keppninnar völdu sér- staklega. En það var keppt í ýmsu ö< Verðlaun fyrir bestu lending- una féllu í skaut Kanada- mönnum Júergen og Julie Puett- er sem flugu vél af gerðinni Ted Smirh Aerostar. Á máli flug- manna er þetta kallað „að mark- -lenda“ og felst keppnin í því að lenda sem næst ákveðnu striki á flugbrautinni. Sigurvegarinn lenti nákvæmlega á strikinu. Flugstjóri einu þotunnar sem tók þátt í keppninni fékk verð- laun fyrir nákvæmustu flug- áætlunina. Hann er einnig frá Kanada, Sid McMurany. Fylgst var með flugvélunum á ratsjá í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík og þegar þær áttu eft- ir 70 sjómílur til Reykjavíkur var staðarákvörðun borin saman við flugáætlunina. Þotan var svo til nákvæmlega á réttum stað á réttum tíma. Keppendum var bannað að nota nýjustu og full- komnustu gerðir siglingatækja, en máttu nota sjálfleitandi mið- unarstöð (ADF) og fjölstefnu- vita (VOR). Þriðju verðlaunin voru veitt fyrir nákvæmustu áætlun um eldsneytiseyðslu. Þau hreppti Bandaríkjamaðurinn Garesche sem flaug Beechcraft Duke. í fyrradag áttu allar flugvél- arnar að vera komnar til Reykjavíkur en vegna þoku á Grænlandi tepptist 21 vél þar. Þær flugvélar lentu hér síðdegis í gær. Þetta voru minnstu vél- arnar sem þurftu að millilenda i Kulusuk á austurströnd Græn- lands til að taka eldsneyti áður en þær lögðu yfir saltan sæ. Flugkeppnin hefur nú staðið í viku og hafa fáir helst úr lest- inni eða átt í umtalsverðum erf- iðleikum. Flugmenn einnar vélar hættu keppninni í Kanada og þrjár hafa bilað lítilsháttar svo enn er óvíst hvort þær nái að ljúka keppninni. Ein þeirra, af gerðinni Beechcraft Bonansa A 36 TC, hún var nær hálfnuð til Reykjavíkur, í fyrradag, þegar vart var gangtruflana í hreyfli. Flugmennirnir ákváðu að snúa við og áttu um að velja að lenda við veðurathugunarstöð á Græn- landsjökli eða taka áhættuna á að halda lengra og lenda í byggð. Að sögn Rafns Jónssonar, vara- formanns Vélflugfélags íslands, Horginblaðið/RAX Fulltrúi keppnisstjórnar, Nico Bignam, tekur á móti Kanadamanninum Jiiergen Puetter, en hann fékk verðlaun fyrir nákvæmusy tu lendinguna í Reykjavík. völdu þeir seinni kostinn og lentu í Gotháb áfallalaust. Flug- stjóri vélarinnar var lamaður fyrir neðan mitti og var vélin þannig útbúin að hann gat stjórnað henni alveg með hönd- unum. í dag er áætlað að keppnin haldi áfram. Rafn Jónsson sagði í samtali við blm. Morgunblaðið í gærkvöldi að það gæti brugðið til beggja vona því spáð væri lé- legu flugveðri á leiðinni til Skot- lands, sem er næsti áfangastað- ur, 762 sjómílna leið. Munu sumar vélarnar þurfa að milli- lenda á Höfn í Hornafirði eða í Færeyjum til að taka eldsneyti. „Flugkeppnin hefur vakið mikla athygli, jafnt hérlendis sem erlendis, og hefur örugglega orðið lyftistöng fyrir einkaflug- ið. Mér finnst viðkoma vélanna hér hafa sett skemmtilegan svip á bæjarbraginn. Vegna þess hve allt hefur gengið vel, hingað til, er þetta ennþá ánægjulegra.” — G. Þorst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.