Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.06.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ1985 29 Stefán Georg Elísson — Minning Pæddur 12. júlí 1900 Dáinn 7. maí 1985 Aldamótafólk er sérstæður hóp- ur í minningum þeirra er síðar fæðast og þegar níundi áratugur aldarinnar er upprunninn, þá er- um við hvað örast að kveðja alda- móta ástvini og ættingja. Einn þeirra er nú kvaddur, frændi minn og fóstbróðir Stefán Georg Elis- son, f. í Stóru-Vogum í Vogum þ. 12. júlí 1900. Foreldrar hans voru: Ingveldur Sveinsdóttir frá Kvíhól- um, Vestur-Eyjafjöllum, f. 1861, og Elís Pétursson frá Nýjabæ i Vogum, f. 1877. Ekki var þessum unga dreng ætlað uppeldi hjá foreldrum sín- um, því ýmis atvik urðu til þess, að á öðru ári var hann tekinn til fósturs af föðursystur sinni, Mar- gréti Pétursdóttur frá Brekku, og hennar manni, Jóni Einarssyni frá Endagerði í Miðneshreppi (síðar búendur á Brunnastöðum i Vatns- leysustrandarhreppi). Var Stefán hjá þeim hjónum þar til hann fór til sjós um 16 ára að aldri og upp frá því að mestu alfarinn að heiman. Fóstra hans lést úr „spönsku“veikinni 1918 og fóstri úr afleiðingum þeirrar veiki 1920, var þá heimilið leyst upp og fóst- bræður hans 5 sendir til vina og ættingja. Stefán átti 3 alsystur, en þegar móðir þeirra dó 1901 var það heimili leyst upp og systrunum þrem komið fyrir hjá vinum og venslafólki, svo sem var með Stef- án. Síðar giftist Elís ráðskonu er hann hafði haft, Ingibjörgu Ólafs- Minning: I dag, laugardag 22. júní, verður til moldar borinn Guðmundur Eli- as Guðmundsson Silfurgötu 9, ísa- firði. Guðmundur var fæddur á Hest- eyri 16. maí 1917, sonur hjónanna Ketilríðar Veturliðadóttur og Guðmundar Þeófílussonar. Guðmundur var yngstur af 9 systkinum, en faðir hans drukkn- aði er Guðmundur var enn ófædd- ur. Hann ólst upp hjá móður sinni á Hesteyri og má nærri geta að hann hafi snemma á ævinni þurft að hjálpa til heima. Hann giftist Lilju Halldórsdótt- ir frá ísafirði þann 30. apríl 1942. Þau bjuggu fyrst á Hesteyri, en fluttu fljótlega til ísafjarðar og hafa átt þar heima síðan. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: Hákon Pétur, hann er giftur Ingi- gerði Traustadóttur og búa þau á Akureyri, Ólafur Njáll, sem giftur er ö-.-iu Gunnlaugsdóttir og búa þau á ísafirði, Katrín, gift Krist- jáni Ragnarssyni, þau eiga heima á Eskifirði. Yngstur er Ketill Guð- mundur, ógiftur. Hann dvelur nú í sjúkrahúsi í London. Guðmundur starfaði um árabil við skipasmíðastöð M. Bern- harðssonar, en gerðist síðan verk- stjóri hjá Hraðfrystihúsi Norður- tangans hf. Hann vann þar fjölda ára, eignaðist þar góða vini og þótti alltaf vænt um fyrirtækið. Þau hjónini keyptu þurrhreins- unina á Isafirði fyrir nokkrum ár- um og hafa rekið hana af mikilli samviskusemi, eins og allt það sem þau hafa tekið sér fyrir hend- ur. Guðmundur var góður heimil- isfaðir og bar hag eiginkonu og barna mjög fyrir brjósti. Voru þau hjónin mjög samhent og ekki síst í því að sýna barnabörnunum sín- um ást og umhyggju. Þau eru nú orðin ellefu og eitt barnabarnabarn. Guðmundur dáði þau mikið og voru þau öll mjög dóttur. Varð Elís þá stjúpfaðir Björns Ólafssonar fyrrv. ráðherra (og forstjóri Coca-Cola). Ingibjörg hafði hann með sér þá ungan að árum. Bjuggu þau fáein ár að Klöpp í Vogum en fluttu síðan til Reykjavíkur og eignuðust Njáls- götu 5 sem þau voru í til dauða- dags. Elís stundaði málaravinnu að aðalstarfi svo og húsgagna- smíði hin seinni ár. Elís og Ingi- björg eignuðust tvö börn, Guð- mund, er lést á besta aldri, skrif- stofumaður, og Guðrúnu, er nú lif- ir ein eftir systkinanna. Stefán hafði lítil samskipti við föður sinn og stjúpu. Hann vann hörðum höndum við hvað sem til féll, óstuddur af ættingjum eftir að fósturforeldrar hans féllu frá, hann þá 18 ára. Hann var eftir- sóttur starfsmaður því allt lék í höndum hans og urðu honum allir vegir færir þó ekki væri um menntun að ræða. Hann tók öku- próf um 1922 og starfaði sem bif- reiðastjóri mestan hluta ævinnar, fyrst hjá Bifreiðastöð Sæbergs í Hafnarfirði, síðan einkabifreiða- stjóri hjá Guðmundi Vilhjálms- syni forstjóra Eimskips, þá var hann alllengi hjá Steindóri Ein- arssyni, vann þar jöfnum höndum sem ökumaður allra tegunda bif- reiða og að bifreiðaviðgerðum, einnig við bólstrun á innviðum bifreiða, sem þá var einsdæmi hjá bifreiðastöð. Eins og áður er getið gekk Stefán að hvaða verki sem var með trúmennsku, verkhyggni og vandvirkni. Ég, sem þessar línur skrifa, átti því láni að fagna að vinna með hænd að honum. Oft hafði hann orð á því, ef eitthvað var um að vera hjá okkur, hvað gaman væri ef þau frá Akureyri og Eskifirði væru komin til þess að vera með. Þau munu öll sakna afa síns mik- ið, ekki síst börnin okkar, sem alltaf hafa getað komið í Silfur- götu til afa og ömmu, þar vissu þau að þeim yrði tekið með opnum örmum, eins og verður áfram hjá ömmu þeirra. Ég er þakklát fyrir þann tíma, sem þau gátu verið með afa sínum. Ég er búin að þekkja Guðmund í tuttugu ár og eru þau ár mér mik- ils virði. Ég mun ætíð minnast Mumma, sem elskulegs tengdaföð- ur, vinar og félaga. Elsku Lilja mín, Guð blessi þig og börnin þín og gefi ykkur styrk. Þessi fátæklegu orð eru þakklæt- isvottur fyrir allt sem Mummi hefur fyrir okkur gert. Far þú í friði friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Anna Gunnlaugsdóttir, ísafirði þessum hægláta frænda mínum, þegar við áttum að heita fulltíða menn, hann reyndar eldri. Nam ég af honum margt er varð mér sem menntun síðar. Það var ekki ein- göngu hans haga hönd, er þar átti hlut að máli, heldur og þau skap- gæði og hógværð sem hægt var að læra af honum, hann skipti aldrei skapi því hann átti ekki nema eitt skap, „það besta sem aldrei brást". Um 1929 giftist Stefán Aðal- Fæddur 13. janúar 1915 Dáinn 26. maí 1985 Hann Hörður er látinn, rétt sjötugur að aldri. Ég hafði ekkert heyrt um hann í langan tíma. Taldi þó nokkurn veginn víst að hann væri ekki á landinu. Það reyndist og vera rétt ályktað hjá mér. Hann var erlendis hálfa ævina eða meir, mest vestanhafs, og þar lést hann 26. maí sl. Lík- amsleifar hans voru fluttar heim og hann jarðsettur í kyrrþey hér. Systkini hans fjögur sáu um jarð- arförina, þau Páll, fvrrum skóla- stjóri á Akureyri, Arni, fyrrum bóndi í Þverárdal, Ingibjörg, hús- freyja á Akureyri og Órn, kennari í Reykjavík. Hörður var fæddur á Krónu- stöðum í Eyjafirði hinn 13. janúar 1915. voru foreldrar hans Gunnar Árnason bóndi þar og ísgerður Pálsdóttir kona hans. Þau fluttust vestur að Þverárdal í Bólstaðar- hreppi, er Hörður var á barns- aldri, svo og flest önnur systkini hans. Hann ólst upp í Þverárdal, allt þar til hann hóf skólanám rétt eftir ferminguna. Hörður leitaði sér snemma menntunar. Hann stundaði nám í lýðskóladeild á Hólum í Hjaltadal og síðar í Kennaraskóla íslands. Lauk kenn- araprófi rétt tvítugur þar. Þremur árum síðar stundaði hann nám í Askov í Danmörku, en þar hafa margir Islendingar dvalist við nám fyrr og síðar. Enda mennta- stofnun góð, jafnvel á heimsmæli- kvarða. Þarna nam Hörður einnig smiðar, en hann var mjög hand- laginn og stundaði smíðar mjög um ævina. Vestur um haf fór Hörður á stríðsárunum og dvald- ist þar við nám og störf þar til langt var liðið á sjöunda áratug- inn. Hann kom þá upp, en stað- næmdist lítt. Hann hélt til okkar gamla sambandslands, Danmerk- ur. Þar hitti ég hann oft, er ég dvaldi við kennslu í Ballerup vet- urinn 1973—’74. Hörður var fé- lagslyndur og sótti mjög Jónshús Sigurðssonar. Þar sá ég hann oft. í Jónshúsi liggja frammi íslensk blöð jafnan og er ekki nema eðli- legt að íslendinga á Hafnarslóð fýsi að renna augum yfir þau. Hörður stundaði tafl og spil í Jónshúsi, en herbergi í kjallara þar er notað til þeirra hluta. Hann sótti samkomur íslendinga þarna. Er mér einkar minnisstætt, er hann var á svokölluðu Þorláks- blóti í Munkakjallaranum í Norð- urgötu ásamt mörgum öðrum Is- lendingum. Hann var hrókur alls fagnaðar þarna og kunni vel að blanda geði við fólk. Sat Hörður við hlið mína og danskar sambýl- heiði Guðmundsdóttur frá Blá- feldi í Staðarsveit á Snæfellsnesi, f. 21.11. 1908, d. 29.9. 1979. Þau hjónin hófu búskap í Hafnarfirði að Jófríðarstaðarvegi 8, þá var Stefán ökumaður á leiðinni „Hafnarfjörður — Reykjavík". Aðalheiður, Heiða eins og hún var kölluð af kunnugum, kunni vel að meta mannkosti manns síns og milli þeirra var gagnkvæmt traust, sem styrktist eftir því sem árin liðu. Hún var lærð sauma- kona og vann mikla björg í búið enda komu kreppuárin eins og holskefla yfir þau hjón, sem og aðra, en í trú á framtíðina og betri tíma urðu þeim erfiðleikarnir létt- ari. Þau fluttu til Reykjavíkur og að því kom að þau bjuggu sér ynd- islegt eigið húsnæði og frá heimili þeirra eiga margir góðar minn- ingar enda oft gestkvæmt, óþrjót- andi umræðuefni, ásamt veislu- borði hvert sinn, aldrei komið að tómu, hvorki málefni, meðlæti né manngæsku. Margir vinir og vandamenn, hvort sem voru skammt eða langt að komnir, áttu öruggt athvarf hjá þeim hjónum og ekki síst ef leita þurfti lækn- inga og dvelja í bænum í leit að samastað á sjúkrahúsi eða skyld- um stofnunum. iskonu minnar þarna. Eitt sinn brá hann sér með lestinni út í Ballerup með okkur og er þess gott að minnast. 1 Höfn stundaði Hörð- ur smíðar, þegar þetta var. Því miður missti hann þá vinnuna, vegna þess að fyrirtækið sem hann starfaði hjá, var gjaldþrota. Var það vitanlega mjög slæmt fyrir vin minn. En hann var ekki á því að gefast upp, og vinnu mun hann hafa höndlað á ný, eftir nokkra leit í þá átt. Hann var reglumaður um sína daga, eins og það er oftast skilgreint. En þrátt fyrir það, var nú svo, að honum var fé lítt fast við hendur. Frá Danmörku kom hann heim til gamla Fróns og lagði stund á nám og vinnu. Kenndi um skeið, en hélt fljótlega til Vesturheims og dvald- ist nokkur siðustu æviárin í New York. Þar andaðist hann eftir nokkra vanheilsu 26. maí sl. Þegar litið er yfir ævibraut Harðar Gunnarssonar sést, að hann hefur lítt stöðvast við ákveð- in verkefni. Hann kvæntist vestra amerískri konu og eignaðist með henni nokkur börn. Þau skildu síð- ar. Var hún lengi sjúklingur. Þetta mun hafa orðið Herði vini mínum þung reynsla. Hörður aflaði sér allmikillar skólamenntunar, bæði hér heima og þó öllu meir vestra. Málamaður var hann góður, sér i lagi voru tök hans á enskri tungu örugg. Hann þýddi nokkrar bækur úr því máli. Einkum fyrir börn og unglinga. Mun Kibba kiðlingur vera þessara bóka þekktust. Ágæt barnabók og hefur oft verið gefin út. Hörður var góður íslenskumaður, og þess vegna tókst honum að þýða erlend rit sómasamlega á móðurmál sitt. Kunningi minn einn hafði orð á því við mig, eftir að hann hafði frétt lát Harðar, hvort ég ætlaði ekki að skrifa eitthvað eftir hann, jafn ötull eftirmælamaður og ég Stefán og Aðalheiður eignuðust einn son, Jón Marinó, nafnið eftir fósturforeldrum Stefáns. Að sjálf- sögðu var Jón þeirra augasteinn í uppvextinum. Nam hann renni- smíði og hefur síðan að mestu starfað við málmiðnað og vélvirkj- un. Hann er giftur Valgerði Mar- sveinsdóttur frá Hafnarfirði, þáu eiga tvær dætur, Aðalheiði Sveinsínu sem er gift Einari Bald- vinssyni, eiga þau tvo syni, hin dóttirin heitir Stefanía Gerður og hefur valið sér námsbrautina bæði hérlendis og erlendis. Að sjálfsögðu er söknuður við missi föður, tengdaföður, afa, langafa, uppeldisbróður, frænda og góðs vinar, en eins og í upphafi er getið, þá eru frá aldamótum ár- in orðin 85 og hljótum við þá ekki að vera búin að ljúka lífshlaupinu, er hægt að krefjast lengri lífdagftj án erfiðleika eða þrautar, er ekki hvildartíminn kominn, kvöldið með svefninn sæta sem þjáðir og þreyttir þrá? Far þú nú í friði, föðurhönd mun þig leiða að sólgullnu sálarhliði, sjá, þar bíður Heiða. G.BJ. væri. Ég gaf honum lítið út á það í fyrstu. Væri kannski rétt að láta það eiga sig? Gæti ég eitthvað sagt um hann, eftir tiltölulega stutt kynni? En verkefnið sótti æ fastara á, og ég settist við ritvél- ina og setti þessar línur á pappír- inn, sem þú, lesari góður, rennir augum yfir meðan þú drekkur morgunkaffið þitt. Ég gat ein- faldlega ekki stillt mig um að minnast manns, sem mér varð eft- irminnilegur. Býst ég við, að svo muni hafa verið um marga fle40 en þann sem þetta ritar. Nefnd hafa verið fjögur systkini Harðar sáluga. Auk hans eru nú látin: Birgir, er fórst af slysförum á besta aldri, og Baldur, garð- yrkjumaður í Hveragerði um langt árabil. Systkinin frá Þver- árdal urðu því alls sjö að tölu, sex synir og ein dóttir. Vestanhafs tók sér Hörður nafnið Harry, og skrifaði sig þannig eftir það. En í hugum ættmenna og annarra er þekktu hann hér heima var hann alltaf hinn sami Hörður Gunnarsson frá Þverárdal. Fari hann í friði, friður Guðs blessi hann ævinlega. “'P Með samúðarkveðju til ætt- menna. A.BJS. Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Guðmundur Elías Guðmundsson Hörður Gunnarsson kennari — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.