Morgunblaðið - 25.06.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.06.1985, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI STOFNAÐ 1913 140. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kanadísk stjómvöld um sprengjuna í indversku þotunni: Fullvíst að hermdarverka- menn grönduðu risavélinni ■ -; ’V 131 lík hefur fundist AP/Símamynd Lík farþega indversku Boeing-þotunnar í sjúkrahúsi í Cork í írlandi. Efri myndin sýnir móður og tengdamóður annars fhigstjóra vélarinnar í sorg sinni á flugvellinum í Nýju Delhí, en þær voru á leið til að sækja lík hans. — 329 manns fórust þar af 83 börn — unnið að því að samræma að- gerðir gegn hryðjuverkum STJÓRNVÖLD í Kanada telja nú fullvíst, að sprengja hermd- arverkamanna hafí grandað indversku farþegaþotunni, sem fórst undan suðvesturströnd írlands árla á sunnudag. Með vélinni fórust 329 manns, þar af 83 börn. Lík 131 manns hefur fundist. Líkur eru taldar á því, að tengsl séu á milli flygslyssins og sprengingarinnar á Tókýó-flugvelli á sunnu- dag, þar sem tveir létu lífíð og margir slösuðust. Er tveggja síkha leitað vegna rannsóknar þess máls. Berri setur ný skilyrði fyrir lausn gísladeiiunnar: Vill bandarísk á brott Beirul. 24. jáoi. AP. NABIH Berri, leiðtogi shíta í Líbanon, setti í dag fram ný skilyrði fyrir því, að 40 Bandaríkjamenn, sem hafa verið í haldi flugræningja í Beirút og nágrenni í ellefu daga, verði látnir lausir. Krefst hann þess, að öll bandarísk herskip, sem eru fyrir utan strönd Líbanons, sigli á brott. Blaðafulltrúi Hvíta hússins sagði í kvöld, að Bandaríkjastjórn hyggðist ekki beygja sig fyrir kröfum flugræningjanna. Sprengja í grennd við Buckingham BRESKA lögreglan hefur komið upp um fyrirætlanir hryðju- verkamanna írska lýðveldishers- ins (IRA) að koma fyrir sprengjum á hótelum í 12 strandbæjum á Englandi í sumar. Á sunnudag gerði brezka lögreglan óvirka öfl- uga sprengju á Rubens hótelinu í London, sem er skammt frá Buck- ingham-höll, og er talið að IRA beri ábyrgð á henni. Blaðamaður Morgunblaðsins gisti Ruben8-hótelið um helgina og er frásögn hans: „Sprengjan hefði orðið tugum manna að fjörtjóni", að finna á bls. 35. Stjórnvöld í Israel létu í morgun lausan 31 líbanskan fanga, 26 shíta og 5 súnníta, en þau segja að það standi f engu sambandi við gísladeiluna. Flugræningjarnir f Beirút hafa krafist þess, að 766 Líbanir, flestir þeirra shítar, sem eru í fangelsi í Israel, verði látnir lausir f skiptum fyrir bandarfsku gíslana. Berri, sem er dómsmálaráð- herra Líbanons, sagði f dag, að Bandaríkjamönnunum yrði ekki sleppt fyrr en allir Líbanirnir í ísrael hefðu fengið frelsi. Bandarfkjastjórn hefur stað- fest, að bandarísk flotasveit sé f au9tanverðu Miðjarðarhafi, þ. á m. flugmóðurskipið USS Nimitz. Er talið að skipin séu um 40 km undan strönd Líbanons. Varnar- málaráðuneytið í Washington hef- ur hins vegar vísað á bug fréttum um, að bandarískar herþotur hafi á laugardag flogið yfir Beirút. Læknir var í dag kvaddur um borð í þotu TWA, sem flugræn- ingjar halda á Beirút-flugvelli, vegna þess að einn bandarísku gíslanna um borð þjáðist af maga- verk. Ræningjarnir bönnuðu lækninum að segja blaðamönnum nokkuð um heilsufar Bandaríkja- mannsins. „Ef hann segir auka- tekið orð, skerum við úr honum tunguna. Konan hans verður ekkja,“ sagði einn byssumannanna um borð í vélinni við flugumferð- arstjóra í flugtuminum á Beirút- flugvelli. Mikinn óhug hefur slegið á fólk um heim allan vegna atburða þessara. Þeir leiða hugann að flugránunum f Austurlöndum nær, bandarísku gíslunum f Beir- út, ódæðisverkinu á Frankfurt- flugvelli og öðrum hermdarverk- um víða um heim að undanförnu. Hafa stjórnmálaleiðtogar margra landa gefið fyrirheit um samstarf og samráð til að vinna gegn ofbeldisöflunum og hóf George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, ferð um Vestur-Evrópulönd í þeim tilgangi í gær. Leitarskip hafa fundið brak úr indversku þotunni víðs vegar á þeim slóðum þar sem síðast heyrð- ist til hennar. Þotan var af gerð- inni Boeing 747 í eigu Air India- félagsins. Hún var á leið frá Tor- onto í Kanada og var ætlunin að millilenda í Lundúnum á leiðinni til Bombay á Indlandi. Sambandið við vélina rofnaði skyndilega og þykir það, ásamt hinu dreifða braki og sundurtættum likum sem fundist hafa, benda til þess að öfl- ug sprenging hafi orðið um borð. Bresk rannsóknarskip og kaf- bátar eru á leið á slysstaðinn til að freista þess að finna „svarta kass- ann“ úr vélinni, en þar kann að vera að finna ráðningu gátunnar um örlög hennar. Hins vegar er talið að leitin að kassanum muni verða miklum erfiðleikum bundin, þar sem hljóðmerki sýna að hann er á 1.650 metra dýpi. Nokkru áður en indverska þotan fór frá Montreal á leið til Toronto voru þrjár ferðatöskur um borð teknar til rannsóknar og haldið . eftir, en þar reyndist ekkert grunsamlegt að finna. Lundúna- blöð segja í gær, að vegna þessa hafi þotan verið nærri tveimur tímum á eftir áætlun. Segja þau, að ef flugáætlun hefði verið fylgt hefði sprengingin um borð orðið eftir að lent hefði verið á Heath- row-flugvelli. Þrjú samtök herskárra síkha segjast hafa komið sprengju fyrir Sprengjuótti Lundúnum, Róm. 24. júni. AP. SEINT í kvöld var DC-9-farþega- þotu Austurríska flugfélagsins, sem var á leið frá Róm til Vínar meó 65 manns innanborðs, snúið við vegna sprengjuhótunar. Um- fangsmikil leit var gerð á flugvell- inum í Róm, en hún bar engan árangur. Þá var í dag gerð sprengjuleit í farþegaþotu Air India-félags- ins á Lundúnaflugvelli, en engin sprengja fannst. Nokkrir shítanna, sem íi AP/Simamynd létu lausa í gær, á leið til heimkynna sinna. f indversku farþegaþotunni, en talsmenn annarra samtaka síkha hafa vísað þeim yfirlýsingum á bug og fordæmt ódæðið. óttast margir að deilur milli síkha og hindúa á Indlandi kunni að magn- ast vegna þessa máls. Sean Brady, blaðafulltrúi utan- rikisráðuneytis Kanada, sagði f gær, að rannsókn væri hafin á því hvort tengsl væru á milli flug- slyssins undan írlandsströnd og sprengingarinnar, sem varð um sama leyti í farangursgám kanad- ískrar flugvélar á Tókýó-flugvelli. Fjölmiðlar í Kanada segja, að hafin sé víðtæk leit að tveimur indverskum flóttamönnum af trúflokki síkha, sem lögðu á ráðin um að myrða Rajiv Gandhi, for- sætisráðherra Indlands, er hann var í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Er haft eftir embættis- mönnum á Indlandi, að annar mannanna hafi átt flugmiða til Tókýó með kanadfsku vélinni, sem flutti farangursgáminn sem sprakk. Sjá nánari frásagnir á bls. 38—39 og forystugrein í miðopnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.