Morgunblaðið - 07.07.1985, Side 2
2
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1985
Skortur á ýsu og karfæ
Framleiðsla á
karfa er 40 %
minni en í fyrra
Skömmtun á erlendum mörkuðum
FRAMLEIÐSLA i karfa er 40% minni í ár en var á sama tíma í fyrra og
hcfur það, ásamt skorti á ýsu, valdid erfiðleikum í samningum við fiskkaup-
endur erlendis.
verðið og fækka viðskiptavinum á
þann hátt. Ekki er i ráði að grípa
til þeirrar ráðstöfunar."
Hjalti sagði ennfremur að ein
afleiðingin af þessari lágu birgða-
stöðu á ýsu og karfa væri að nán-
ast engin frysting væri á ýsu á
Bretlandsmarkað, þar sem verðið
lægra. Á Bandaríkjamarkaði
Hjalti Einarsson, framkvæmda-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, sagði i samtali við Morg-
unblaðið að þessi lága birgðastaða
á ýsu og karfa væri óvenjuleg, því
oft hefðu verið til miklar birgðir
af karfanum, en nú væru nánast
engar birgðir til, af neinum gerð-
um pakkninga. Hefði þetta valdið
erfiðleikum vegna fiskviðskipta
erlendis. „Þetta er einfalt við-
skiptalögmál," sagði Hjalti. „Ef
vöru vantar er þrennt sem hægt er
að gera. í fyrsta lagi að skammta
til viðskiptavinanna, eins og til
dæmis Coldwater hefur þurft að
grípa til. f öðru lagi er hægt að
komast að samkomulagi um lengri
afgreiðslufrest, en það hentar illa
i matvælaiðnaði. Menn bfða ekki
eftir því að borða. Þriðja leiðin
sem hægt er að fara er að hækka
hefði verið skömmtun á ýsu i
fimm punda pakkningum siðan í
fyrrahaust en birgðastaðan á ýsu
hefði þó eitthvað skánað að und-
anförnu. Ýsublokk hafa fyrirtæk-
in orðið að kaupa annars staðar
frá. Sömu sögu væri að segja um
karfann, en hins vegar héldi
þorskurinn nokkurn veginn velli i
aðalpakkningum, en i öðrum
þorskpakkningum, sem væru dýr-
ar og seinunnar, hefði nokkuð bor-
ið á skorti að undanförnu.
3V2 árs fangelsi
fyrir nauðgun
- og nauðgunartilraun
HÆSTIRÉTTUR dæmdi fyrir helg-
ina 37 ára garalan Reykvíking,
Reyni Lúthersson, til þriggja og
hálfs árs fangelsisvistar fyrir að
nauðga ungri konu við Þjóðleikhúsið
13. maí í fyrra og gera tilraun til að
nauðga annarri ofar á Hverfisgötu
sömu nótt. í undirrétti var maðurinn
Ólympíuleikarnir
í stærðfræði:
Úrslit
óljós
Ólympíuleikarnir í stærðfr-
æði standa nú yfir í Helsinki í
Finnlandi. íslensku þáttakend-
unum tveim, þeim Ágúst Eg-
ilssyni og Hákoni Guðbjarts-
syni hefur gengið vel og þeir
fengið hrós dómnefndar fyrir
lausnir sínar á erfiðum dæm-
um, en gert er ráð fyrir að úr-
slit liggi fyrir seinnipartinn i
dag.
Sem stendur eru Austur-
og Vestur-Þýskaland, Ástr-
alía, Pólland og Víetnam í
forustu, en staðan er mjög
óljós vegna þess hve mismörg
dæmi hafa verið yfirfarin.
Fararstjóri íslensku sveit-
arinnar er Benedikt Jóhann-
esson.
dæmdur í fjögurra ára fangelsi í
september sl.
Hann var jafnframt dæmdur til
að borga konunni sem hann
nauðgaði skaðabætur, auk þess
sem honum var gert að greiða
málskostnað. Hinni konunni hafði
hann þegar greitt miskabætur
þegar undirréttardómurinn var
kveðinn upp. Til frádráttar
gæsluvarðhaldsvistinni koma þeir
27 dagar, sem Reynir sat í gæslu-
varðhaldi skömmu eftir verknað-
inn.
Þetta mun vera einn þyngsti
dómur, sem hér hefur verið kveð-
inn upp fyrir nauðgun.
Morgunblaðið/Friðþjófttr
„Hótel HoP‘ á Eyvindarstaðaheiði, Gangnamanna„kofinn“ sem Landsvirkjun er að byggja fyrir bændur í
samræmi við samninga um Blönduvirkjun. Gamli skálinn stendur framan við þann nýja og sést stærðarmunur-
inn því vel, Hofsjökull er f baksýn.
„Hótel Hof“ á Eyvindarstaðaheiði að verða tilhúið
GANGNAMANNASKÁLINN við Ströngukvísl á Ey-
vindarstaðaheiði, sem Landsvirkjun er að byggja, í
samræmi við ákvæði í samningum um Blönduvirkj-
un, er nú rúmlega fokheldur. Vinna við lokafrágang
hans hefst einhvern næstu daga og verður honum
lokið í sumar.
Skálinn er í Álfgeirstungum, norð-vestan
Hofsjökuls. Hann er stór af gangnamanna„kofa“
að vera, 160 fermetrar. Gamli skálinn sem þarna
stendur ennþá kemst sjálfsagt fyrir í einu her-
bergi nýja skálans. í tilefni af stærðinni og
nálægðinni við Hofsjökul gengur hann oft undir
nafninu „Hótel Hof“.
150 þúsund regnbogasilungsseiði til Noregs:
Hægt að margfalda verðmætið
með því að ala seiðin lengur
- segir Sveinn Snorrason, stjórnarformaður Laxalóns hf.
Sveinn sagði að fyrir hvert hefðu skilning á arðsemi þessar-
seiði fengjust 6,85 krónur norsk- ar ræktunar gætum við alið seið-
ar, eða sem svarar 32,60 ísl. in í ár til viðbótar og þá fengjum
krónum. Fyrir farminn allan
fást því tæpar fimm milljónir.
„Ef íslenskar lánastofnanir
I DAG
Meðal efnis í blaðinu í dag er:
Útvarp/sjónvarp ........ 6
Dagbók ................. 8
Fasteignir .......... 9/19
Leiðari ............... 28
Reykjavíkurbréf ...... 28/29
Peningamarkaður ....... 30
Myndasögur ........... 31
Raðauglýsingar ..... 40/48
fþróttir ........... 54/55
Fólk i fréttum ... 22b/23b
Dans/bíó/leikhús ... 24b/27b
Velvakandi ....... 28b/29b
Menning/listir ..... lc/8c
150.000 regnbogasilung8seiði frá
Laxalóni hf. voru sett um borð í
norskt fiutningaskip, Heddu Gabler,
í llvammsvík í Hvalfirði sl. fimmtu-
dag. Um síðustu helgi seldi Laxalón
50 þúsund laxaseiði og 50 þúsund
regnbogasilungsseiði til Noregs og
eftir 10 daga kemur þriðja flutn-
ingaskipið til að sækja 150 þúsund
regnbogasilungsseiði til viðbótar, að
sögn Sveins Snorrasonar hrl., stjórn-
arformanns Laxalóns.
Norræn fimleika-
hátíð hefst í dag
NORRÆNT fimleikamót verður sett
í Reykjavik í dag. Mótið stendur til
föstudags. Þátttakendur eru um 650.
Mótið verður sett í Laugar-
dalshöll klukkan 15 í dag. Davíð
Oddsson borgarstjóri flytur ávarp
og fjölmörg atriði verða á
dagskrá. Þátttakendur ganga
fylktu liði frá Hlemmi í Laugar-
dalshöll.
við kannski fimmtíu milljónir
fyrir þau, í stað 12—13 milljóna
fyrir þessa þrjá farrna," sagði
Sveinn Snorrason. „Ef við gæt-
um alið þau í tvö ár til viðbótar
væri verðmæti þeirra komið upp
í 150 milljónir. Þetta vita Norð-
menn og því kaupa þeir af okkur
ung seiði og ala sjálfir upp með
miklum hagnaði."
Pflagrímaflug Flugleiða:
Flytja 22.500 pflagríma
á milli Alsír og Jeddah
FLUGLEIÐIR hafa gert samning
um fiutninga á 22.500 pflagrímum á
milli Alsír og Jeddah í Saudi-Arabíu.
Flutningarnir hefjast 1. ágúst næst-
komandi og lýkur um 20. september.
Að sögn Sigfúsar Erlingssonar,
framkvæmdastjóra markaðssviðs,
munu Flugleiðir leggja til þrjár
farþegaþotur fyrir flugfélagið Air
Algerie og verða vélarnar teknar á
leigu, tvær hjá Arnarflugi og ein
hjá kanadíska leiguflugfélaginu
„World Ways“. Áhafnir verða þar
af leiðandi að litlu leyti frá Flug-
leiðum, en hins vegar verða um 15
manns frá félaginu við ýmiss kon-
ar störf á jörðu niðri varðandi
þetta flug. Flogið verður frá fimm
borgum í Alsír og hefjast flutn-
ingarnir frá Alsír til Jeddah 1. ág-
úst og lýkur 20. ágúst. Heimflutn-
ingarnir hefjast svo 31. ágúst og
er áætlað að þeim ljúki 18. eða 19.
september. Farþegafjöldinn verð-
ur samtals 45.000 farþegar og
hljóðar samningurinn upp á 1.320
til 1.400 flugstundir og samnings-
upphæðin á milli 4 til 6 milljónir
dollara.