Morgunblaðið - 07.07.1985, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ1985
Kveðjuorð:
Guðmundur Angan-
týsson, kokkur
Guðmundur Angantýsson, gam-
all vinur minn, lést 17. júní sl. og
var til moldar borinn 26. s.m. Þótt
þetta sé þannig um garð gengið
fyrir nokkru langar mig til að geta
hér þessa minnisstæða manns
með nokkrum orðum.
Við kynntumst norður í Trékyll-
isvík á Ströndum við heimavist-
arskólann á Finnbogastöðum.
Vegna veikinda hins ágæta manns
og skólastjóra Guðmundar Þ.
Guðmundssonar var ég fenginn til
að kenna þar veturinn 1937—38.
Guðmundur Angantýsson var
þar önnur hönd húsfreyjunnar,
Guðrúnar Sæmundsdóttur, ekki
einasta í eldhúsi heldur þvoði
hann líka og baðaði yngri strák-
ana og kenndi þeim þar með þrifn-
að. Mikið lof hlaut hann fyrir
þetta hjá frú Guðrúnu. Honum
þótti líka sárt að sjá hve mikið
þessi ágæta kona varð að vinna, og
hafði þar um sérstakt orðbragð.
í vetrarveðrum og sérstaklega
norðan garði var ekki fært yfir
Vík á árabát. Inn úr Trékyllisvík
skerst Norðurfjörður. Og þar er
Kaupfélagið. Þangað urðu allir úr
norðurhluta Víkursveitar að
sækja ýmis matföng og annað sem
til bús þarf. Dögum saman gat
verið ófært að komast þangað á
sjó og einnig illfært á landi, eink-
um í urðunum undir Urðartindi.
Gat því á stundum orðið nokkuð
þröngt í búi á hinu mannmarga
heimili, þar sem 10—15 nemendur
voru saman komnir auk heima-
fólks. Þá kom sér vel að hafa
matsvein eins og Guðmund er
bæði kunni sögur af sjó og landi
sem ungum og gömlum þótti gam-
an að og einnig lýst matföngum og
réttum sem enginn af okkur hin-
um höfðu heyrt nefnda — hvað þá
smakkað. Fengum við vatn í
munninn af lýsingum Guðmundar
og nutum einhvern veginn betur
en ella matarins er til var. Þarna
heyrði maður til dæmis í fyrsta
sinn hamborgara og hamborg-
arhrygg nefndan á nafn.
Allan veturinn lá Guðmundur
skólastjóri rúmfastur. Var nafni
t
Miss MARY MOFFAT MILLER
lést á heimili sínu i London 29. júní síöastliöinn.
Sendiráö íslands í London.
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR
i Von,
Laugavsgi 55,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. júlí kl.
10.30.
Gyöa Gunnarsdóttir,
Guöríöur Gunnarsdóttir, Daníel Helgason,
Sigríöur Gunnarsdóttir, Jóhann Marel Jónasson,
Auöur Gunnarsdóttir, Haraldur Árnason,
Edda Gunnarsdóttir, Konráö Adolphsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns mins, föður, tengdafööur og afa,
JAKOBS JÓNSSONAR,
yfirþingvaröar,
Sigtúni 53,
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 9. júlí kl. 3 e.h.
Aöalheiöur Gísladóttir,
Guórún H. Campbell, James Campbell,
Anna Heiöa Kvist, Brian Jakob.
t
Utför
GUÐRÚNAR SCH. THORSTEINSSON
fer fram þriöjudaginn 9. júlí kl. 10.30 frá Fossvogskirkju.
Unnur Sch. Thorsteinsson,
Gyöa Bergs,
Erla Sch. Thorsteínsson.
t
Sendum innilegar þakkir öllum er sýndu okkur samúö og hluttekn-
ingu viö andlát og jaröarför
KRISTÓFERS JÓNSSONAR
frá Einarslóni.
Jarösungiö var 26. júni sl.
Guö blessi ykkur öll.
Nanna Jónsdóttir,
Gunnar Kristófersson,
Ólafur Kristófersson.
hans honum til mikillar afþrey-
ingar og uppörvunar með glað-
værð sinni, bjartsýni og hressilegu
tali. Frú Guðrún naut líka aðstoð-
ar hans til að hjúkra honum. Ýms-
ar setningar sem hann sagði hafa
orðið fleygar þó að aldrei talaði
hann ljótt orð um nokkurn mann.
Vinsældum að fagna átti hann
líka á hinum bæjunum í Vikinni.
Skyldurækni Guðmundar var
einstök, eins og ein af hans gull-
vægu setningum ber vott um. Ein-
hvern tíma á hans sjómannsferli
var hann matsveinn á skipi sem
lenti í ofsaveðri og leit út fyrir að
illa færi. Varð Guðmundi þá að
orði: „Guð almáttugur, skipið er
að farast og ég er ekki búinn að
vaska upp.“ Ekki var hér að ræða
um hræðslu hjá honum. Ætla má
að hann hafi hvorki hræðst reiðan
sjó né jafnvel dauðann sjálfan. En
harla sárt mun honum hafa fallið
það ef hann hefði verið kallaður
héðan frá óloknu skyldustarfi.
Um vorið 1938 andaðist Guð-
mundur skólastjóri á spítala I
Reykjavík. Hann hafði f lengstu
lög viljað fylgjast með skóla sín-
um. Flutti ekkja hans með fjöl-
skyldu sína til Akureyrar um
haustið. Við Guðmundur Angan-
týsson sáumst ekki aftur fyrr en
eftir 14 eða 15 ár. Mættumst við
hér á götu. í engu hafði hans góða
viðmót breyst. Hann var nákvæm-
lega samur við sig eins og þegar
við vorum saman í Trékyllisvík.
Eftir þetta hittumst við annað
kastið. Og einlægt bauð hann mér
í meiriháttar afmæli sín. Notalegt
var að gleðjast með honum. Lengi
lét hann lítt á sjá. 84 ára aldri
náði hann. Trúa má að nú sé hann
kominn á „lífsins land“ þar sem
sakleysið og einlæg gleðin á
heima. Með hreinan skjöld fór
hann héðan. Fögur og skilningsrík
var ræðan sem prestur hans hélt
yfir honum liðnum. Sem vinur
hins látna vil ég þakka hana. Ég
trúi að hann hafi átt hana skilið.
Þorsteinn Björnsson
Lokaö
Vegna jaröarfarar Margrótar Gunnarsdóttur
í Von, veröur lokaö allan daginn miövikudaginn 10. júlí.
Dömu & herrabúðin, Laugavegi 55.
Júnó-Í8, Skipholti 37.
L. M. Jóhannsson & co.,
Efnisvinnslan V. Jóhannsson sf.,
Síðumúla 4.
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát og útför
GUNNLAUGS BARKAR ÞÓRISSONAR,
Bragagötu 30.
Sóley Sturlaugsdóttir, Magnús Þórisson,
Sigríöur J. Eggertsdóttir, Lýöur Viktorsson,
Sigurlaug B. Jóhannesdóttir.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKBvIMUVEGI 48 SÍMt 76877
Tökum að okkur að rétta og
lagfæra legsteina í kirkjugörðum
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SK0<|MUVEQt 48'SlMt 76677
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Slmi 81960
f
Tveir fyrrverandi ráðamenn I
Reykholti, Snorri Sturluson og Ey-
steinn Jónaason.
Borgarfjörður:
Manna-
breytingar
við Reyk-
holtsskóla
Borgarnrti, 28. jámí.
TÖLUVERÐAR breytingar verða á
kennaraliði Héraðsskólans í Reyk-
holti í sumar. Skólastjórahjónin, Ey-
steinn Jónasson og Jódís Sigurðar-
dóttir, láta af störfum og hverfa
utan til Danmerkur í framhalds-
nám. Við skólastjórn tekur Jónas
Jónsson, sem hefur verið kennari í
Keykholti. Verður hann settur, þar
sem Ólafur Þórðarson alþingismað-
ur er í leyfi frá störfum við skólann.
Þá hætta einnig hjónin Kristó-
fer Kristinsson og Margrét Gunn-
arsdóttir, sem halda til Reykja-
víkur þar sem Kristófer starfar
hjá Bandalagi jafnaðarmanna.
Elzti kennarinn við skólann, Jón
Þórisson, lætur af störfum þar
sem hann er kominn á hina svo-
kölluðu 95 ára reglu, þ.e. þegar
samanlagður starfsaldur og líf-
aldur er orðinn samtals 95 ár, þá
eru menn komnir á eftirlaun.
Búið er að ráða einn kennara i
stað þessara, sem hverfa frá skól-
anum, en eftir á að ráða tvo
raungreinakennara. Aðsókn að
skólanum er góð, og hefur þurft
að neita nokkrum vegna fjölda
umsókna að sögn Eysteins Jóns-
sonar fyrrverandi skólastjóra.
Vinna við byggingu mötuneytis
við skólann hefur legið niðri um
hríð. Lokið er við að steypa upp
kjallara og plötu. Ætlunin var að
steypa húsið upp í sumar og koma
húsnæðinu undir þak fyrir vetur-
inn. Sagði Eysteinn, að þetta mál
væri mjög brýnt, þar sem gamla
mötuneytið er orðið lélegt og heil-
brigðiseftirlit hefði gert athuga-
semdir við áframhaldandi rekstur
á því. Vonaðist Eysteinn til þess
að þetta yrði aðeins smástopp og
vonandi rættist úr þessum bygg-
ingarmálum hið allra fyrsta.
— pþ
Blömastofa
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavtk. Sími 31099
0pi6 öilkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar viö öli tilefni.
Gjafavörur.