Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
29
Stjómarherinn í Afganistan;
Setur sprengjur
í barnaleikföng
Bonn, Vestur-I>ýskalnndi.
AÐ SÖGN vestur-þýsks sérfrsðings í málum Afganistan, er her Sovét-
manna þar í landi farinn að koma fyrir sprengjum í barnaleikfongum í
baráttu sinni við frelsissveitirnar.
Jurgen Todenhöfer, sem situr í
utanrikismálanefnd þingsins
fyrir hönd Kristilega Demókrata-
flokkinn í Vestur-Þýskalandi,
sagði að hann hefði fengið stað-
fest að Sovétmenn kæmu
sprengjunum fyrir í leikföngum
og væri sprengjunum beint að al-
menningi í Afganistan.
Todenhöfer sagði að félagar í
frelsissveitum Afgana hafi oft
fengið gistingu og fæði hjá
óbreyttum borgurum og sveita-
fólki í landinu og væri stjórnar-
herinn nú að hefna fyrir greiða-
semi fólksins við frelsissveitirn-
ar.
Todenhöfer sagði að „töluverð-
ur“ fjöldi barna hefði nú þegar
látið lífið af völdum leiktækja-
sprengjanna, en sagðist ekki hafa
tölu yfir fórnarlömbin á reiðum
höndum.
Hinar fólsuðu „dagbækur Hitlers“:
Kujau og Heidemann
fá fangelsisdóma
Mamborg, 8. julí. AP.
DÓMSTÓLL í Hamborg I Vestur-Þýskalandi fann í dag þrjá menn seka
um, að hafa falsað hinar svonefndu „dagbækur Hitlers" og selt þær
tímaritinu Stera á fólskum forsendum fyrir 9,3 milljónir marka (jafnvirði
rúmlega 127 milljóna íslenskra króna).
Þá var vinstúlka Kujau, Edith
Lieblang, dæmd í átta mánaða
fangelsi fyrir samstarf við falsar-
ann.
Kujau sagði fréttamönnum í
morgun að hann væri búinn að
semja 340 síðna bók um fölsun-
arstarf sitt, sem héti Ég var Hitl-
er og kvaðst hann vonast til að
geta fengið hana gefna út innan
skamms. Heidemann sagði við
fréttamenn áður en dómurinn var
kveðinn upp, að hann vonaðist til
að rétturinn hefði „hugrekki til
að sýkna" sig, eins og hann komst
að orði. Hann kvaðst hafa selt
dagbækurnar í góðri trú, hann
hefði ekki vitað að þær væru fals-
aðar.
Konrad Kujau, sem játað hefur
að hafa falsað dagbækurnar, sem
voru 60 að tölu, var dæmdur í
fjögurra og hálfs árs fangelsi og
Gerd Heidemann, blaðamaður á
Stern, sem kom bókunum á fram-
færi við tímaritið, var dæmdur í
fjögurra ára og átta mánaða
fangelsi. Báðir hyggjast þeir
áfrýja dómnum.
Mesti veiði-
þjófnaður
sögunnar
AP/Slmamynd
BERLÍNARMÚRINN STYRKTUR
Þessa dagana er verið að gera endurbætur á Berlínarmúrnum og hækka hann. Miðar verkið að því að draga úr
möguleikum fólks á að flýja ófrelsið í Austur-Þýskalandi. Á myndinni, sem tekin er í Wedding-hverfinu í
Vestur-Berlín, sést í bifreið landamæravarðar fyrir innan gaddavírsgirðingu, sem er utan múrsins, og fyrir innan
múrinn sést í tjöld verkamannanna, sem vinna að því að endurbæta hann.
He fndarr áðsta fanir
gegn Union Carbide
Svdrn-,. Astraliu, 8. júlí. AP.
HÓPUR ANDSTÆÐINGA kjarnorkuvopna hefur lýst ábyrgð á sprengju sem
sprakk fyrir utan verksmiðju Union Carbide I Sydney í síðustu viku á hendur
sér. Segir hópurinn sprenginguna vera hefnd fyrir slysið sem varð í verk-
smiðju fyrirtækisins I Bhopal á Indlandi í desember I fyrra. Þar fórust um
2000 manns af völdum eiturgass sem lak frá verksmiðjunni.
Hópurinn, sem er nýr af nálinni
og kallar sig „Sigurvegara friðar-
ins“, segir að slysið á Indlandi hafi
verið fjöldamorð og sprengjan í
Sydney sé aðeins byrjunin á
hefndaraðgerðum hópsins.
Engin slys urðu á mönnum I
sprengingunni í síðustu viku og
olli hún ekki miklum skemmdum á
verksmiðjunni. Hópurinn sagði að
sprengingin hefði verið mjög
„vinaleg" miðað við þá sem varð á
Indlandi.
Hópurinn segist berjast fyrir
kjarnorkulausu og hreinu Kyrra-
hafi og segir að eina leiðin til þess
að fá áheyrn hjá kjarnorkuveldun-
um sé að beita ofbeldi. Hann fer
fram á að Bandaríkjamenn taki
burtu allt sitt lið í Ástralíu og
stórfyrirtæki þeirra verði lögð
niður. „Við munum ekki hika við
að drepa ef það reynist nauðsyn-
legt,“ sagði í bréfi frá hópnum.
Sovétríkin:
Hreinsanir halda áfram
OhIó. 8. jílí. Frí fréturiuni MorgunblaóHÍiw,
J. K Laure.
MESTI veiðiþjófnaður, sem vitað er
um í Noregi, varð í Raumadal fyrir
nokkru. Um 150 tonnum af eldislaxi,
meira en 50.000 fiskum að verðmæti
um 9 millj. n.kr. (um 43 millj. ísl.
króna) var stolið frá fyrirtækinu
Eyjalax í Misund.
Þessi gífurlegi þjófnaður upp-
götvaðist fyrst fyrir nokkrum dög-
um. Er það skoðun eigandans, að
ekki geti öðrum verið til að dreifa
en atvinnuþjófum, sem hafi geng-
ið mjög hratt til verks. Margt
bendir til þess, að fyrirtækið verði
gjaldþrota, ef laxinn finnst ekki —
dauður eða lifandi.
Vloskvu, 7. júlí. AP.
SKÝRT var frá því í Tass, hinni
opinberu sovésku fréttastofu um
helgina, að ráðherrann Nikolai N.
Tarasov, sem fór með málefni
smáiðnaðarins, hefði verið vikið úr
starfi. Við ráðherraembætti hans
tekur Vladimir G. Kluyev.
Af hálfu hins opinbera var
sagt frá mannabreytingunum á
þá lund að Tarasov hefði verið
„veitt lausn frá embætti", enda
hefði hann komist á eftirlaun
innan skamms.
Er þetta liður í hreinsunum
sovéskra stjórnvalda, en sl. laug-
ardag var Ivan P. Kazanets ráð-
herra járn- og stálvinnslunnar
látinn vikja.
Brottvikning Tarasovs siglir í
kjölfar gagnrýni á smáiðnaðinn,
en Gorbachev aðalleiðtogi
kommúnistaflokksins hefur lof-
að því að koma á auknu gæðaeft-
irliti með neysluvöru.
Samkvæmt frétt Tass hefur
Kluyev verið framkvæmdastjóri
fyrirtækis í vefnaðariðnaði í Iva-
novo-héraði norðaustan af
Moskvu. Hann varð flokksleið-
togi í þessu héraði árið 1972.
—
—
TILBUIN MALTIÐ!
Fiskbollur í tómat- og
karrísósu með kartöflum.
Þú hitar innihaldið í potti
í 3-5 mínútur, og máltíðin er
tilbúin.
Tilvalið í ferðalagið, sumar-
bústaðinn og hvar sem er.
Fæst í næstu matvöruverslun.
NNAR UR—
NYRRI ÝSU
Þú opnar
dósoggæóin
komaíljós!