Morgunblaðið - 09.07.1985, Síða 46
46
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
+ Jaröarför eiginkonu minnar, LAUFEYJAR HALLDÓRSDÓTTUR, hjúkrunarfræAíngs, Fornhaga 23, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. júlí kl. 15.00 e.h. Ingólfur Th. Guömundsson.
t Útför GUÐRÚNAR SCH. THORSTEINSSON fer fram þriöjudaginn 9. júli kl. 10.30 frá Fossvogskirkju. Unnur Sch. Thorstoinsson, GyAa Bergs, Erla Sch. Thorateinaaon.
+ Bróöir okkar, REYNIR VÍKINGUR MAGNÚSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 10. júlí kl. 13.30. Dagný Magnúadóttir, Elíaa Björk Magnúadóttir, Jóna Magnúadóttir.
+ Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, JAKOBS JÓNSSONAR, yfirþingvarAar, Sigtúni 53, fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 9. júli kl. 3 e.h. AöalheiAur Gialadóttir, Guórún H. Campbell, Jamea Campbell, Anna HeiAa Kviat, Brian Jakob.
+ Útför systur minnar og frænku okkar, GRÍMHEIDAR JÓNSDÓTTUR frá SkeiAflöt, Silfurteigi 4, Reykjavík, fer fram fimmtudaginn 11. júli kl. 15.00 síödegis frá Fossvogskirkju. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á tíknarstofnanir. Auöbjörg Jónadóttir, Guöjón HeiAar Jónaaon, Ólafur Þorateinn Jónaaon.
+ Þökkum auösýnda vináttu og hlýhug í okkar garö viö andlát og jaröarför fööur okkar, ÁGÚSTS HELGASONAR. Anna Ágúatadóttir, Svava Ágúatadóttir. 1
I Tökum að okkur að rétta og lagfæra legsteina í kirkjugörðum.
I K S.HELGASOH HF 1 81 STEINSMIÐJA ■■ SKEMMUVEGI46 SÍMI 76677
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
K S.HEL6AS0N HF IISTEINSMKUA ■■ SKEMMLVEGI 4ð SiMI 76677
Minning:
Böðvar Sigurðs-
son Hafnarfirði
Nú er Böðvar, uppáhalds frændi
minn, látinn. Hann hringdi í mig
rétt fyrir síðustu jól og bað mig
um smá aðstoð. Hann var að flytja
af Hringbrautinni til Skúla sonar
síns í Garðabæ. Virtist mér hann
vera mjög ánægður með það.
Hann sýndi mér nokkur verk, sem
hann hafði byrjað á, en ekki tekist
að ljúka og virtist mér eins og
hann hlakkaði til að takast á við
þau og Ijúka þeim. Böðvar var
mjög góður smiður og flinkur í
mörgu t.d. í útskurði og virtist
mér allt leika í hendi hans og var
ég að vona að hann ætti nokkur
góð ár eftir hjá Skúla, þar sem
hann gæti sinnt áhugamálum sín-
um.
Mér hefur alla tíð þótt mjög
vænt um Böðvar og þótt gaman að
ræða við hann, þegar hann hefur
komið til okkar.
Ég vil nú að lokum færa Böðvari
þakkir fyrir samfylgdina og bið
guð að blessa hann.
Haukur Emilsson
Böðvar Sigurðsson húsasmíða-
meistari í Hafnarfirði lést 1. júlí
sl. Hann átti við langvarandi van-
heilsu að stríða og gerði sér ljóst
að hinsta kallið gæti komið hve-
nær sem var. Hann virtist líka við
því búinn en ekki var á honum að
sjá að hann kviði fyrir því að
kveðja þennan heim. Hann tók
veikindum sínum með ró og æðru-
leysi, var ávallt léttur í skapi og
laus við að kvarta yfir hlutskipti
sínu. Var hann einn þeirra manna,
sem virtust að fullu sáttir við guð
og menn.
Böðvar fæddist 1. ágúst 1916 á
Þóroddstöðum í Hrútafirði. For-
eldrar hans voru hjónin Sigríður
Böðvarsdóttir og Sigurður Valdi-
marsson trésmíðameistari sem
þar voru en fluttu þá fljótlega til
Hafnarfjarðar. Böðvar ólst því
upp í Hafnarfirði ásamt stórum
systkinahópi, en þau voru alls 9 og
var Böðvar þeirra elstur.
Foreldrar Böðvars voru harð-
duglegir enda varð að vinna hörð-
um höndum til þess að koma stór-
um barnahópi til manns og það
tókst þeim hjónum farsællega. En
kreppuárin voru erfið og ég minn-
ist þess að Sigurður sagði frá því,
að hann hefði mjög verið að vega
það og meta hvort hann ætti ekki
að segja upp símanum til þess að
draga úr útgjöldum en hver króna
þurfti að koma að sem mestum
notum. En þegar hann gerði málið
upp komst hann að þeirri niður-
stöðu að hann fengi marga vinnu-
stund fyrir það að til hans náðist í
síma svo að það mundi verða til
tjóns að missa símann.
Á unglingsárum sínum kynntist
Böðvar þessu erfiða árferði. Hann
þurfti strax og kraftar leyfðu að
afla sér vinnu og létta þannig und-
ir með fjölskyldunni eftir því sem
hægt var.
Böðvar gekk í Flensborgarskól-
ann og iðnnám hóf hann hjá föður
sínum 1. sept. 1934 og lauk því 31.
ágúst 1938. Böðvar var mjög góður
iðnaðarmaður, handlaginn, út-
sjónarsamur og velvirkur, enda
var ekki hikað við að fela honum
þau verk sem vandasöm voru eða
gott handbragð þurftu að sýna.
Böðvar var mikið snyrtimenni,
prúður og léttur í skapi og þótti
því gott að vinna með honum og
eiga hann að félaga.
Böðvar kvongaðist eftirlifandi
konu sinni, Mörtu Jónsdóttur frá
Patreksfirði, 31. maí 1941. Sonur
þeirra er Skúli Böðvarsson kerfis-
fræðingur, kona hans er Laufey
Jóhannsdóttir og eiga þau þrjú
börn. Þau Böðvar og Marta fluttu
árið 1949 í hús er þau byggðu á
Hringbraut 56 í Hafnarfirði og
bjuggu þar síðan. Er þetta fallegt
hús og snyrtilegt í kringum það og
áttu þau þar góðan samastað og
fagurt heimili, enda samhent í því
að fegra og prýða í kringum sig.
Fyrir nokkrum mánuðum seldi
Böðvar húsið og flutti til sonar
síns, enda það hvort tveggja að
Blómastofa
Friöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöid
tii kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
t
Móöir okkar, tengdamóöir, amma og iangamma,
MARGRÉT GUNNARSDÓTTIR
(Von,
Laugavegi 55,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. júlí kl.
10.30.
GyAa Gunnarsdóttir,
Guöríöur Gunnarsdóttir, Daníel Helgason,
SigríAur Gunnarsdóttir, Jóhann Marel Jónasson,
AuAur Gunnarsdóttir, Haraldur Árnason,
Edda Gunnarsdóttir, KonréA Adolphsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa.
JÓHANNESARGUÐJÓNSSONAR,
Hlégaröi 11, Kópavogi.
Aslaug Jóhannsdóttir,
Gréta B. Jóhannesdóttir, Þórhallur Frímannsson,
Guójón R. Jóhannesson, Edda ö. Jóhanneedóttir, Asdís Jónsdóttir,
Krístjén Jóhannesson, Helga Jóhannesdóttir, og barnabörn.
Lokaö
vegna jaröarfarar Margrétar Gunnarsdóttur.í Von,
miðvikudaginn 10. júlí til kl. 13.00.
Gullfiskabúöin
(Fischersundi) Aðalstræti 4.
Lokað
Vegna jaröarfarar Margrétar Gunnarsdóttur
í Von, verður lokaö allan daginn miðvikudaginn 10. júlí.
Dömu & herrabúöin, Laugavegi 55.
Júnó-Í8, Skipholti 37.
L. M. Jóhannsson & co.,
Efnisvinnslan V. Jóhannsson sf.,
Síöumúla 4.
Birting afmœlis- og
minningargreina
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.