Morgunblaðið - 09.07.1985, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JtjTLl 1985
nmmm
£ * 4* © 1985 Universal Press Syndicate
„«9 heyrbi um
siobuhðemcun'mcx !"
skoAa fjölskyldumyndirnar,
áöur en ég kynnti þig fyrir
liðinu heima?
Með
morgunkaffinu
Heyrðir þú þegar stráksi
ætlaði að fá mig til að trúa
því að hann hefði yfirfært
úr bankanum með heimilLs-
tövlunni sinni 100.000 krón-
ur á launareikning minn í
sparisjóðnum?
HÖGNI HREKKVÍSI
„LAKJGAe þlc5 i'
KÁLHAOSOOXK.0 ?"
íslenska kindin á heima á íslandi
Gömul kona skrifar:
Heill og sæll Velvakandi góður!
Þökk fyrir Morgunblaðið í 55 ár.
Ég ætla nú í fyrsta skiptið að
senda þér línur. Eg sat fyrir fram-
an sjónvarpið þriðjudagskvöldið
25. júní og sá þá að veriö var að
flytja lifandi fé með flugvél til
Kananda.
Ég varð svo undrandi að fá lif-
andi fé héðan til þess að marg-
falda stofninn i öðrum löndum. ís-
lenska kindin á að vera á Islandi
með sína heimsfrægu ull.
Hvað segja þeir sem vinna úr
þessari ull allskonar fallegar flík-
ur til útflutnings? Aumingja
bændurnir að geta selt féð sitt á
þennan hátt. Eg vona að það séu
fleiri en ég sem líta svona á málið.
Stórmarkaðirnir
fara illa með
gamla fólkið
Gömul kona hringdi:
Mér finnst stórmarkaðirnir
fara illa með okkur eldra fólkið.
Við keyrum nú yfirleitt ekki bíla
þegar við erum komin yfir sjö-
tugt af augljósum ástæðum, og
er það að verða nokkuð erfitt að
komast í verslun ef maður býr
hér á Skólavörðuholtinu, austan-
verðu. Hvergi er verslun að
finna sem við getum skroppið í
til að kaupa brýnustu nauðsynj-
ar, ekki einu sinni mjólk hvað þá
heldur mat. Ég þarf t.d. alla leið
niður á Hverfisgötu til að nálg-
ast fiskbita. Það er markaður á
horni Barónsstígs og Laugavegs,
en fjarlægðin er alltof of mikil
fyrir gamalt fólk, sjónlítið og
ekki er einu sinni óhætt að fara
yfir götu.
Valinn maður í
hverju plássi
stúlkan sem er með hestanám-
skeiðin er búfræðingur að
mennt, stjórnandinn er kennari
með próf í uppeldisfræðum að
auki, svo að segja má að þarna sé
valinn maður í hverju plássi.
Ég er hissa á því af hverju
þetta hefur ekki hlotið meiri um-
fjöllun í blöðunum. Farið var
með krakkana að Gullfossi og
Geysi og dóttir mín hafði aldrei
komið þangað áður. Hún hafði
mjög mikið út úr þessum tíma,
tveimur vikum. Hún fylgdist t.d.
þarna með sauðburði, en það
hefur hún aldrei komist í tæri
við áður.
Styðjum Hjálparstofnun kirkjunnar
Móðir í Breiðholti hringdi:
Ég sendi dóttur mína á sumar-
dvalarheimili austur i sveit og
vildi ég fá tækifæri til að hrósa
þessu heimili. Þetta er nýtt
sumarheimili, sem opnað var nú
í sumar og heitir Kjarnholt og er
austur í Biskupstungum.
Heimili þetta er alveg til fyr-
irmyndar. Fólkið sem vinnur
þarna er allt með réttindi við
það sem það er að gera. T.d. er
íþróttakennari með íþróttirnar,
Blaðalesandi hringdi:
Mér eru ofarlega í huga frétt-
irnar í Morgunblaðinu ekki alls
fyrir löngu af íslenska hjúkrun-
arfólkinu í Eþíópíu. Þar sáum
við svo sannarlega að framlög
okkar til hjálparstarfs kirkjunn-
ar komast til skila. Manni hlýn-
ar um hjartaræturnar að finna
hversu mikið gagn hjúkrunar-
fólkið okkar hefur gert í
Eþíópíu. Nú verður bara að
halda þessu starfi áfram. Því vil
ég hvetja alla til að taka þátt í
söfnun Hjálparstofnunar kirkj-
unnar. Það er rétt sem stendur á
veggspjaldinu: „Þitt framlag
bjargaði þessu barni". Það hefur
íslenska hjúkrunarfólkið gert að
raunveruleika af fórnfýsi og
dugnaöi.