Morgunblaðið - 09.07.1985, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLl 1985
----- " . --|--------------—--i------
55
■5T
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
h// ujvun>\*'uhJ'ts if
Fíflalæti á knattspyrnuvelli
Knattspyrnuáhugamaður skrifar:
Tilefni þessara skrifa minna er
sú mikla athygli sem fjölmiðlar
hafa beint að Knattspyrnufélag-
inu Augnablik úr Kópavogi. Nú
fyrir skömmu kom m.a. næstum
heilsíðu frásögn um félagið í einu
dagblaðinu og skömmu þar áður
höfðu öll dagblöðin birt tilkynn-
ingu frá þeim. Að mínu mati ættu
þessir piltar ekki heima á knatt-
spyrnuvelli heldur miklu frekar í
leikhúsi eða jafnvel hringleika-
húsi. Knattspyrnan er ein vinsæl-
asta íþróttin á Islandi og hefur
hingað til farið að mestu leyti
friðsamlega fram. Hinsvegar
verðum við að passa okkur að láta
ekki fíflalæti innan vallar sem
utan eins og piltarnir í Augnablik
hafa stundað skemma fyrir íþrótt-
inni. Skemmst er að minnast ólát-
anna á knattspyrnuleikjum á
Bretlandseyjum og í Evrópu.
Hvernig er hægt að ætlast til að
áhorfendur hagi sér sómasamlega
þegar leikmennirnir eru með
bjánalæti?
Annað sem ég vil minnast á er
sú hneisa fyrir KSÍ að í lögum
Augnabliks er sú klásúla að liðið
megi ekki færast upp um deild.
Þetta þýðir auðvitað að félagið
verður að tapa leikjum viljandi
eins og þeir lýstu yfir í fréttatil-
kynningu sinni um daginn. Þetta
er að sjálfsögðu mjög niðurdrep-
andi fyrir önnur félög sem eru að
berjast fyrir því að komast upp
um deild en geta það ekki vegna
þess að þau tapa fyrir þessum
grínliðum. Það er skiljanlegt að
þessir drengir vilji spila knatt-
spyrnu en þeir ættu þá að snúa sér
að því alfarið með metnaði en
sleppa þessum apalátum. Ef þeir
geta það ekki eiga þeir ekkert er-
indi í knattspyrnumót á vegum
KSt heldur geta þeir þá bara tekið
þátt í firmakeppnum eða spilað
með kunningjum sínum því þar
geta þeir fíflast að vild.
Þakkir til Kiwanismanna á ísafirði
Svava Jóna Markúsdóttir,
Fornastekk 6, Rvík. skrifar:
Á síðastliðnu ári stofnuðu
brottfluttir Álftfirðingar og
Seyðfirðingar vestra með sér átt-
hagafélag í Reykavík. Fljótlega
var tekin ákvörðun um að heim-
sækja æskustöðvarnar.
14. júní fórum við 93 saman með
rútu til Súðavíkur, þar sem okkur
var tekið af einstakri gestrisni
sem ekki verður með orðum lýst.
í einni af mörgum veislum sem
okkur voru haldnar þar, var okkur
boðið af Kiwanisklúbnum Básum
á ísafirði að koma í ferðalag inn í
Æðey ásamt fólki af elliheimilinu
á ísafirði sunnudaginn 16. júní.
Við þáðum það með þökkum.
Þeir sóttu okkur inn í Súðavík á
„Fagranesinu" og allir sem gátu
komið því við fóru með eða 35
manns. Það var glaða sólskin og
blæjalogn. Ekki höfðum við siglt
lengi er okkur fór að langa í kaffi
og ætluðum við að kaupa kaffi. Jú
kaffi gátum við fengið en ókeypis.
Þetta var bara upphafið á gest-
risni þeirra.
Þegar við komum inn til Æðeyj-
ar lagðist skipið að bryggjunni.
Þannig hagar til á eynni, að bær-
inn stendur hinu megin á eynni
gagnstætt bryggjunni og er tals-
verður spölur að ganga þangað.
Buðust þá Kiwanismenn til þess
að selflytja þá, sem ekki treystu
sér að ganga, á litlum vélbát að
bænum.
Þau sem voru yngri og hraustari
gengu að bænum ásamt Engilbert
Ingvarssyni frá Tyrðilsmýri á
Snæfjallaströnd og Jónasi Helga-
syni bónda í Æðey. Sögðu þeir
okkur allt um það sem fyrir augu
bar á leiðinni.
Kiwanismenn, eiginkonur
þeirra og húsráðendur tóku á móti
okkur er við komum heim að bæn-
um.
Þar biðu okkar allskyns kræs-
ingar sem höfðu verið fluttar á
tveim hraðbátum alla leið frá ísa-
firði. Og nú höfðu eiginkonur Kiw-
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma þv( ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
anismanna lagt á borð fyrir okkur
þarna á hlaðinu.
Það er lofsvert framtak af Kiw-
anismönnum að bjóða fólki af elli-
heimili ísafjarðar í slíkt ferðalag,
sem mér skilst að þeir geri a
hverju sumri. Nú nutum við góðs
af tvöfaldri gestrisni þeirra.
Eftir veitingarnar skoðuðum við
eyjuna enn frekar, þar er margt
að sjá, þó æðavarpið sé sennilega
markverðast.
Áður en lagt var af stað heim til
Súðavíkur þá sæmdi Sturla Hall-
dórsson Jónas Helgason, bónda í
Æðey og frú hans, gullmerki
þeirra Kiwanismanna. Þá flaug í
gegnum huga minn að ánægjulegt
llallfríður Georgsdóttir, Mark-
holti 24, Mosfellssveit, skrifar:
Vegna skrifa Jóhanns Guð-
mundssonar í Velvakanda 3. júlí
sl. langar mig að fá birt eftirfar-
andi:
12. júní sl. var merkisafmæli
innan fjölskyldu minnar. 1 tilefni •
þess var ákveðið að borða í Valhöll
á Þingvöllum. Við pöntuðum borð
með fyrirvara fyrir tíu manns.
Þegar austur var komið upp úr
klukkan 19.00 var strax tekið á
móti okkur, okkur sýnt borðið,
sem var blómum skreytt og af-
hentir matseðlar.
Tveir frábærir þjónar þjónuðu
hefði verið ef okkar nýstofnaða fé-
lag hefði getað veitt Kiwanis-
mönnum einhverja viðurkenningu.
Við kvöddum síðan heimamenn
og héldum áleiðis með „Fagranes-
inu“. Á leiðinni tók einn Kiwan-
ismanna upp harmonikku settist
út á dekk og fólkið tók til við að
dansa.
Til Súðavíkur komum við kl. 21.
Við sem fórum þessa ferð munum
seint gleyma henni svo frábært og
elskulegt var allt fólkið sem að
ferðinni stóð.
Ég vil fyrir hönd félagsins færa
ykkur öllum alúðarþakkir, með
ósk um að ykkur gangi allt í hag-
inn í framtíðinni.
okkur til borðs allan tímann. Mat-
urinn kom fljótt og var mikill og
mjög góður en ég vil taka það
fram að fæst okkar pöntuðu sömu
rétti. Ekki má gleyma koníaks-
lögginni, sem kom óbeðið með
vindlunum svo hægt væri að
bleyta í honum á réttan hátt.
Reikningurinn kom þegar við ósk-
uðum eftir og kom mjög á óvart.
Fyrr á árinu höfðu fjögur af
okkur farið í mat á fínan veit-
ingastað í Reykjavík. Þar var
verðið miklu hærra, maturinn
ekki betri en svipuð þjónusta.
Með kærri kveðju til starfsfólks
í Valhöll þetta kvöld.
mm* ( 11 L*i
Ferðafólkið í bæjarhlaðinu í Æðey.
Hve há er húsaleigan hjá borginni?
Súsý skrifar:
Kæri Velvakandi, viltu ljá mér
pláss í dálkum þínum?
Það væri fróðlegt að vita hvað
húsaleigan er há hjá borginni.
Vonandi er það ekkert leyndar-
mál. Ekki er haft hátt um það
hve há hún er. Ég tel að við
skattborgarar eigum rétt á að
vita það.
Hvað er leigan há á tveggja
herbergja íbúðum, þriggja her-
bergja íbúðum og fjögurra her-
bergja íbúðum og er hitinn inni-
falinn í leigunni? Og hver borgar
mismuninn á leigu hjá borginni
og á frjálsum markaði?
Frábær þjónusta
í Hótel Valhöll
Vapona og Shelltox
Lyktariausu flugnafælurnar
fAst A öllum helstu shell-stöðum og
Í FJÖLDA VERSLANA UM LAND ALLT.
\Z
Skeljungur h.f.
SMÁVÖRUDEILD - SÍMI: 81722
/
Eg óska eftir aö fá sendan KAYS pöntunarlistann
í póstkröfu á kr. 200.- laöviöbættu póstburðargjaldi).
Nafn
Heimlli
Staður Póstnr.
NYJASTA
VETRARTÍSKAN
Hver var að tala
um dýrtíð?
Hjá okkur
er úrvalið ofsalegt
og verðið súper
W