Morgunblaðið - 09.07.1985, Page 60
SDUMFEST lANSTRAIIST
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
Mokveiði hjá Vestmanna-
eyjatogurunum:
Breki
fékk 140
tonn af
þorski á
þrjátíu
klukku-
stundum
Gkki hefst undan að
vinna aflann
Vestmannaeyjum, 8. júlí.
MOKVEIÐI hefur verið síðustu
dagana hjá þeim 7 togurum sem
héðan eru gerðir út og hefst eng-
ann veginn undan að vinna afla
þeirra í frystihúsunum. Er nú lönd-
unarbið hjá togurunum og nokkrir
þurfa að sigla með aflann til út-
landa.
í dag er verið að landa úr
Breka sem er með 250 tonn af
þorski, en það fékkst í flottroll út
af Vestfjörðum. Sem dæmi um
ævintýralegt fiskerí hjá þeim á
Breka má nefna að þeir fengu 140
tonn á 30 klukkustundum í lok
veiðiferðarinnar. Breki á nú að-
eins eftir 300 tonn af þorskkvóta
sínum. .
Klakkur bíður í höfninni eftir
löndun með 180 tonn af þorski,
sem einnig fékkst í flottroll fyrir
vestan. Þennan góða afla fékk
skipið á aðeins þremur veiðidög-
um. Á morgun er Bergey vænt-
anleg inn til löndunar með 100
tonn af karfa og ufsa. Sindri er á
landleið með 130 tonn af þorski
og Vestmannaey er komin með
160 tonn af ufsa. Er verið að
reyna að koma þessum skipum á
söludaga erlendis, Sindra í Eng-
landi og Vestmannaey í Færeyj-
um.
Litlu „tvílembingarnir" pólsku,
Gideon og Halkion, láta heldur
ekki sitt eftir liggja í þessum
uppgripum fyrir vestan. Halkion
er á leið til Englands með 90 tonn
af þorski og Gideon er kominn
með góðan afla og lá í aðgerð í
morgun. Ekki er vitað hvort
hann fær löndun í heimahöfn.
— hkj.
Náði 28 punda flugulaxi
eftir 1 km eltingarleik
BANDARÍSKUR veiðimaður, Phillip Bowie, veiddi 28 punda nýgenginn
lax í Laxá í Aðaldal á Tóstudagskvöldið í veiðistaðnum Vitaðsgjafa í landi
Ness og Árness. Laxinn tók fluguna Black Sheep um klukkan 21.00 og
það tók veiðimanninn eina klukkustund og tuttugu mínútur að landa
laxinum. Þetta er stærsti lax sem veiðst hefur í Laxá í allmörg ár.
„Þetta var feiknabardagi, einhver sá mesti sem maður hefur séð.
Laxinn tók miklar rokur og stökk aftur og aftur. Þarna voru sýnd öll
tilbrigði," sagði Stefán Skaftason, leiðsögumaður veiðimanna við
Laxá á þessum slóðum, í samtali við Morgunblaðið í gærdag, en
bandaríski veiðimaðurinn hélt til síns heima strax á sunnudag. Svo
mikið gekk á er Bowie þreytti laxinn, að leikslok urðu heilum kíló-
metra neðar í ánni en laxinn gein við flugunni.
Fremur lítil veiði hefur annars verið á þessum svæðum Laxár það
sem af er, í gær voru þar aðeins komnir um 15 laxar á land. Á
laugardaginn veiddist þar annar stórlax, 20 punda fiskur, einnig í
Vitaðsgjafa. Veiðimenn eru þó ekki svartsýnir, þvf vel hefur aflast á
neðri svæðunum í Laxá síðustu daga og svo að sjá sem öflugar
smálaxagöngur hafi gert þar vart við sig.
Sjá nánar: „Eru þeir að fá’ann? á blaðsíðu 32.
Morgunbladið/Vidar Völundarson.
Bandaríski veiðimaðurinn, Phillip Bowie (Lh.), heldur skclbrosandi á risalaxinum sem hann veiddi í Laxá í Þingeyjarsýslu. Með honum á myndinni er
Völundur Hermóðsson, veiðivörður.
Saltfiskútflutningurínn til Portúgal:
Undanþága frá 12 %
tolli hefur fengist
Sjá ennfremur: „Betra að koma
með minna af fiski og betri“ á
bls. 2.
UNDANÞÁGA frá 12% tolli á salt-
Hski til Portúgal hefur fengist fram-
lengd og gildir hún til áramóta.
Vegna undanþágunnar er áfram
greiddur 3% tollur af saltfiski sem
fluttur er til Portúgal.
Útilistayerk með
sírennandi vatni
FYRIRHUGAÐ er að efna til hugmyndasamkeppni um útilistaverk með sírenn-
andi vatni í Reykjavík. Stjórn Kjarvalsstaða, sem átti hugmyndina að sam-
keppninni, hefur óskað eftir ábendingum frá skipulagsnefnd og umhverfis-
málaráði um staðsetningu verksins.
Að sögn Einars Hákonarsonar,
formanns stjórnar Kjarvalsstaða,
verður hugmyndasamkeppnin
auglýst þegar ákvörðun liggur
fyrir um staðsetningu listaverks-
ins. „Svona listaverk með renn-
andi vatni eru víða erlendis og
okkur fannst kjörið að koma upp
slíku verki hérna í Reykjavík, sem
er fræg fyrir gott og tært vatn,“
sagði Einar. „Upphaflega var
hugmyndin sú hjá okkur í stjórn
Kjarvalsstaða, að koma upp svona
listaverki í nýja miðbænum, ná-
lægt borgarleikhúsinu, en þar sem
nokkur ár eru í að það svæði verði
tilbúið, var horfið frá þeim hug-
myndum. En það er til nóg af fal-
Iegum stöðum í Reykjavík þar sem
svona listaverk myndi sóma sér
vel,“ sagði Einar.
Undanþágan rann út 1. júlí og
um tíma var ekki ljóst hvort hún
fengist framlengd, meðal annars
vegna fyrirsjáanlegra stjórnar-
skipta í Portúgal, en undanþága
hefur verið veitt til sex mánaða í
senn og ávallt fengist framlengd,
síðast í desember á síðasta ári.
Spánn og Portúgal ganga í Evr-
ópubandalagið ( byrjun næsta árs
eins og kunnugt er og taka þá
reglur bandalagsins gildi.
Tvö skip eru nú á leið til Port-
úgal með saltfisk, samtals um
2.400 tonn, og Vesturlandið byrj-
ar að lesta í dag í Grindavík um
eða yfir þúsund tonn. Það sem af
er þessu ári hafa verið afhent
þangaö 16.500 tonn og nýlega tók-
ust viðbótarsamningar um sölu
8.500 til 15 þúsund lesta af blaut-
verkuðum saltfisk, þannig að í ár
verða seldar þangað á bilinu
25—30 þúsund lestir. I fyrra voru
seldar þangað 18 þúsund lestir og
1983 24.500 lestir.
Framleiðslan á blautverkuðum
þorski á árinu, fram til 1. júní,
var 32 þúsund tonn, en var á
sama tíma í fyrra 21 þúsund
tonn. Af þessum 32 þúsund tonn-
um hefur verið afskipað 27 þús-
und tonnum og skiptist það þann-
ig á milli landa, að til Portúgal
hafa farið 16.500 tonn eins og
fyrr sagði, 6.600 tonn hafa farið
til Spánar, 2.200 til Ítalíu, 1.540
til Grikklands og 400 tonn til
annarra landa. Gert er ráð fyrir
að 1.500—2.000 tonn til viðbótar
verði seld til Grikklands og
1.000-1.500 til Ítalíu. Þá hafa
Spánverjar lýst yfir áhuga á
kaupum á 4—5 þúsund lestum af
tandurfiski til viðbótar.