Morgunblaðið - 12.07.1985, Page 9
MORGUNBLAÐID, FÓSTUDAGUR 12. JÚLl 1985
9
Kostakaup Hafnarfíröi s. 53100
Kjötmidstöðin Laugalæk s. 686511
Góö
kaup
Tómatar....................................79 kr. kg.
Agúrkur....................................48 kr. kg.
Paprika...................................135 kr. kg.
Helgartilb. svínab....................... 270 kr. kg.
Svínalæri.................................270 kr. kg.
ítaiska gullaschiö........................320 kr. kg.
Fylltar svínakótilettur...................425 kr. kg.
Grill pinnar nauta—svína—lamba aöeins....75 kr. stk.
Pylsugrillpinnar aðeins..................35 kr. stk.
Kjúklingar aöeins.........................245 kr. kg.
Skattar
og skólar
Bandalag kennarafélaga
sendir frá sér skondna ál-
yktun, sem birt er blaðsíftu 27 í
Morgunblaftinu í g*r. Þar segir
m^Stjórn BK varar eindregið
vift þeirri stefnu sem þarna er
tekin upp og þeirri hugsun sem
á bak vift liggur, aft rétt sé aft
skattleggja nemendur og for-
eldra sérstaklega til aft greifta
hluta af eðlilegum skólakostn-
jafti.“ • x- X
) Nú er þaft á flestra vitorfti aft
tandsmenn allir, sem atvinnu-
[ tekjur hafa, þar á meftal nem- ^
l endur og foreldrar, eru skatt-
lagftir sérstaklega til aft standa
undir heildarkostnafti ríkissjófts,
þar á meðal stofn- og rekstrar-
kostnafti skélaílandinu.
Umræöan um einkaskóla
Stjórn Bandalags kennarafélaga hefur
sent frá sér ályktun gegn tilraun með
einkaskóla, sem tveir ungir kennarar
stofna til á haustdögum. Þessi ályktun
hlýtur aö beina hugum fólks, ekki sízt
foreldra, aö stööu grunnskólans í dag
og leiöum til aö styrkja undirstööu-
menntunina í landinu.
Flest orkar tvímælis þá gert er. Því er
eðlilegt aö skoönaskipti eigi sér staö.
Öll mál hafa og minnst tvær hliöar. Þess
veröur hinsvegar aö vænta aö umræöa
ábyrgra aöila fari fram meö velvilja í
garö tilrauna til aö bæta skólakerfið í
landinu. Staksteinar staldra viö þessi
mál í dag.
ísland
er engin
undantekning
Klest orkar tvínuelis Þ*
gert 'er.
Rekstur einkaskóla i
grunnskólastigi, sem nú er
fyrirhugaður, hefur eins og
annað framtak í landinu.
a.m.k. tver hliðar. Sjálf-
sagt er að skoða þetta mál
frá (leirum en einum sjón-
arhóli — en fordómalaust
Vesturlond hafa öll ríkis-
rekið skólakerfí. Hvar-
vetna i hinum lýðfrjálsa
heimi blómstra þó einka-
skólar við hlið eða í jaðri
þess kerfís. fsland er engin
undantekning í þessu efni,
þó einkaskólar séu hér
verulega færri en í öðrum
ríkjum, sem búa að sömu
mcnningarhefð og þjóðfé-
lagsgerð. Nefna má skóla á
vegum trúfélaga, svo sem
kaþólskra manna og að-
ventista. Nefna má fs-
aksskóla. Sömuleiðls
Verzhinarskóla fslands og
Samvinnuskólann.
Stöðu íslenzks grunn-
skólakerfis má gjarnan
styrkja. Sumir ganga svo
langt að segja verður að
styrkja. Einkaskóli, með
nokkra sérstöðu, veitir
nauðsynlegt aðhald sam-
anburðar. I‘au jákvæðu
teikn, sem sjást á himni
þessa framtaks, eru m.a.:
• Meiri fjölbreytni.
• Val um menntunarleiðir.
• Samanburður fíýtir fyrir
framþróun í skólakerfínu í
heild.
• Það styrkir og kjara-
stöðu kennara en veikir
ekki að fíeiri en ríkið sæk-
ist eftir þeim til starfa.
*
Alyktun
stjómar BK
Svo sem sjá má á úr-
klippu með Staksteinum í
dag varar stjórn Bandalags
kennarafélaga „eindregið
við þeirri stefnu, sem
þarna er tekin upp", þ.e.
með Tjamarskóla, „að rétt
sé að skattleggja nemend-
ur og foreldra sérstaklega
til að greiða hluta af eðli-
legum skólakostnaði".
Nú er það svo að allir,
sem skatt greiða í einu eða
öðru formi, hvort sem
tekjuskattur, söluskattur,
vörugjald, tollur eða ein-
hver önnur skatthcimta á í
hlut, greiða skólakostnað {
landinu, ekki bara að
hhita, heldur í heild. EAIi
þessarar skattheimtu, eða
hugsunin á bak við hana,
breytizt ekki þó fjölbreytni
og valkostir verði til á
grunnnámsleiðinni.
Tókum annað dæmi:
Margs konar menning-
arstarf, sem drjúgum hluta
er greitt úr ríkissjóði, svo
sem Þjóðlcikhús, Sinfónía
o-sv.frv., sækir hluta
rekstrarkostnaðar með
sölu aðgangs. Enginn hefur
„varað eindregið" við
þeirri „markaðsstefnu",
sem hér á hlut að máli, eða
talið . hana „andstæða
þeirra grundvallarreglu,
sem fslendingar hafa um
langt skeið aðhyllst".
Alyktun stjórnar BK geng-
ur hér á ská og skjön við
hefðir í menningarlífí
okkar.
Allir hafi rétt
til náms
l»að er meginregla að
allir hafí rétt til náms.
Þeirri reghi á að fram-
fylgja, eftir því sem að-
stæður frekast leyfa. Það
er enginn sem heldur því
fram að loka eigi námsleið-
um, sem færar eru í dag
eða opnar æsku landsins.
Þvert á móti. Ef rekstur
einkaskóla verður til þess
að styrkja stöðu grunn-
skólakerfísins f heild og
fíýta æskilegri framvindu
þar, eins og líkur standa
til, verður það framtak,
sem bér um ræðir, heild-
inni til gagns og góðs.
Hitt er svo annað mál að
fullur efnahagslegur jöfn-
uður hefur aldrei verið til
staðar hér á landi, fremur
en í öðrum löndum, er ekki
og verður sennilega aldrei.
Hinsvegar er efna- og
launamunur sennilega
hvergi minni en hér, þrátt
fyrir allt Fólk, sem hefur
ráð á, hefur alltaf getað
keypt hvers konar viðbót-
arnám handa sér og sínum,
bæði hérlendis og erlendis.
Meginmál er hinsvegar
að allir, sem til þess hafa
vilja og hæfni, geti afíað
sér þeirrar menntunar, er
hugur stendur til. Hægt er
hinsvegar að hafa áhrif á
þetta val með starfsfræðshi
og laða það að þörfum
þeirra atvinnuvega, sem
landsmenn reisa velferð
sína og lífskjör á.
I»að er af hinu góða að
standa trúan vörð um
námsrétt hvers þjóðfélags-
þegns. Þá varðstöðu má
aldrei vanrækja. Hitt er í
bezta falli misskilningur,
en, því miður, þröngsýni og
„pólitísk kredda" hjá sum-
um, að standa gegn tilraun
til fjölbreytni í skólakerf-
inu, eins og Tjarnarskólinn
er.
Góóan daginn!
ACME-FATASKÁPUR
undir súð
Þegar byggt er undir súð, er talað um-að
allt að 50% af plássinu nýtist ekki vegna
ónægrar lofthæðar.
ACME-kerfið býður upp á fjölbreyttar
lausnir á fyrirkomulagi fataskápa og það
þarf ekki endilega að vera manngengt inn
í fataskáp.
Hafðu samband við okkur og fáðu tillögur
að nýjum fataskáp sniðnum eftir þínum
þörfum. •
<SAMN»P
Grensásvegi 8 (áóur Axminster)
simi 84448
mklas