Morgunblaðið - 12.07.1985, Page 13
Eftir 8. Bxf7+ — Kxf7, 9. Rxe5+ —
Kg8, 10. Dxd4 - c5, 11. Ddl -
De8, 12. Rf3 - Dxe4, 13. Hel -
Dd5,14. Rbd2 — c4 er staðan jöfn.
8. — exd4, 9. e5 — Re4, 10. c3 —
dxc3,11. Df3 — d5, 12. exd6 — Df6,
Ekki 12. — Rxd6,13. Bxf7 og hvít-
ur hefur yfirburðastöðu.
13. d7+
Eða 13. Hel - 0-0-0 14. dxc7 -
Kxc7,15. Dxf6 - Rxf6,16. Rxc3 -
Bc5, 17. Bg7 — Hd7 með nokkuð
jöfnu tafli.
13. — Kxd7
Skákfræðin mælir með þessum
leik, en einnig kemur til greina að
leika 13.— Kd8, 14. Dxf6 — Rxf6,
15. Rxc3 — Bd6, 16. Bxf7 — Kxd7
og staðan er i jafnvægi.
14. Dg4+
14. - Ke8??
Alfræðiorðabókin mælir með
þessum leik, en hann leiðir beint
til taps eins og við fáum að sjá.
15. Rxc3 — H5
Þessa stöðu telur bókin mun betri
á svart, en ...
16. De2!
nú er ljóst, að svartur tapar
manni.
16.— De5, 17. Rxe4 — Bxe4
Eftir 17. — Dxe4, 18. Dxe4 —
Bxe4, 19. Hel vinnur hvítur einn-
«g-
18. f3 — Bc5+, 19. Khl og Martin
gafst upp.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLl 1985
13
Orð í belg um friðlýsingu
Hamarsins í Hafnarfirði
llppdrátturinn sýnir skipulag Hamarsins ásamt friólýsta svæðinu sem er
innan punktalínunnar, en uppdrátturinn var samþykktur i hátíðarfundi
bæjarstjórnar 1. júní 1983 í tilefni 75 ára afmælis bæjarins.
- eftir Jóhann
Guðbjartsson
1. Varðveita skal jarðmyndanir
og lífríki svæðisins í núverandi
mynd. Hverskonar mannvirkja-
gerð eða jarðrask sem breytt
getur eðli svæðisins eru óheim-
il, nema til komi sérstakt leyfi
Náttúruverndarráðs. Þó er bæj-
arstjórn heimilt, í samræmi við
skipulag Hamarssvæðisins og í
samráði við Náttúruverndar-
ráð, að láta planta trjágróðri,
leggja gangstíga og setja upp
bekki og annan búnað í þágu
útivistar á svæðinu.
2. Svæðið er einungis opið gang-
andi fólki og skal það gæta
góðrar umgengni.
3. Náttúruverndarnefnd Hafnar-
fjarðar hefur eftirlit með fram-
kvæmdum friðlýsingar í um-
boði Náttúruverndarráðs og
bæjarstjórnar.
Til undanþágu frá reglum þess-
um þarf leyfi Náttúruverndarráðs
og Náttúruverndarnefndar Hafn-
arfjarðar.
Eins og fram kemur í þeim regl-
um sem um friðlýsinguna eru sett-
ar er til skipulagsuppdráttur sem
sýnir skipulag Hamarsins og
næsta nágrennis ásamt friðlýs-
ingu, en sá uppdráttur var sam-
þykktur af bæjarstjórn á hátíðar-
fundi 1. júní 1983, sem haldinn var
i tilefni 75 ára afmælis Hafnar-
fjarðar sem kaupstaðar.
Jarðrask á frið-
lýstu landi
Sú ákvörðun sem bæjarstjórn
tók á hátíðarfundinum fyrir
tveimur árum sýnir glöggt þann
hug sem að baki býr og viljann til
að tryggja þetta sérstæða nátt-
úruvætti svo það megi setja sitt
sérstæða svipmót á bæinn um
ókomna framtíð.
Settar voru um staðinn sérstak-
ar reglur sem eru þó ekki strang-
ari en svo að bæjaryfirvöldum er
heimilt að viniia að skipulagi
Hamarsins, láta planta trjám,
leggja gangstíga og setja upp
bekki og annan búnað í þágu úti-
vistar í samráði við Náttúru-
verndarráð, en Náttúruverndar-
nefnd Hafnarfjarðar fer með um-
boð Náttúruverndarráðs og bæjar-
Jóhann Guðbjartsson
Enda þótt Hamarinn
hafi um árabil verið frið-
helgur í augum okkar
Hafnfirðinga þá var
hann þó ekki formlega
friðlýstur fyrr en með
auglýsingu í Þingtíðind-
um þann 16. apríl 1984
og gilda þar um eftirfar-
andi reglur:
stjórnar til eftirlits með fram-
kvæmd friðlýsingar. Til nefndar-
innar hefur ekkert erindi borist til
umsagnar um væntanlegar breyt-
ingar á friðlýsta svæðinu og því
hlýtur það jarðrask sem gert hef-
ur verið að teljast óheimil land-
spjöll á friðlýstu landi.
Höfundur er formadur Níítúru-
rerndarnefndar Hafnarfjarðar.
■ i ■■■—i—
Kr. 549
Sumaríœtur þuría létta
og lipra strigaskó
á góðu verði
. 599
Póstverslun: Sími (91) 30980
HAGKAUP
Reykjavik • Akureyri • Njarðvík