Morgunblaðið - 12.07.1985, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JtJLl 1985
Þórður Þórðarson garðyrkjubóndi Reykholtsdal:
Kjöttómatar meðfærilegri
Borgarfírði, 1. júlí.
SÁ, SEM HEFUR fengið einum of af tómötum ofan á brauð undir brauð og
milli brauða í æ.sku, hefur varla getað lagt þá sér til munns síðan með neinni
ánægju fyrir bragðlaukana. En eftir að hafa fengið kjöttómata ofan á brauð
undanfarið, þá var þar eitthvað nýtt og betra en gömlu tómatarnir. Til að
fregna nokkuð gerr um þessa kjöttómata var framleiðandi þeirra, Þórður
Þórðarson á Reit í Reykholtsdal, inntur eftir þvf, hver munurinn væri á
kjöttómötum og þessum gömlu.
Þeir eru holdmeiri, þ.e. þéttari í
sér. Fræhólfin eru miklu minni í
kjöttómötunum heldur en í hinum
hefðbundnu. Kjöttómatarnir eru
frábærir til að skera þá niður á
brauð, þar sem þeir krumpast ekki,
þegar verið er að skera niður né lek-
ur úr þeim. Einnig eru þeir það stór-
ir, að þeir passa beint ofan á
brauðsneiðarnar. Hamborgarastað-
ir nota þá mikið, þar sem svo auð-
velt er að skera þá niður og skella
einni sneið beint á hamborgarann f
stað þess að sneiöa niður margar
sneiðar af hinum til að hylja. Ein
sneið nægir af kjöttómötunum. Þá
má jafnframt minna á að auðveld-
ara er að láta krakka borða kjöt-
tómata en hina, þar eð ekki rennur
sem neinu nemur úr fræhólfinu eins
og úr hinum. Þess vegna missa
krakkarnir ekki innihald fræhólf-
anna niður og yfir sig.
— Hvaö með verð og uppskeru mið-
að við hina?
Þessir kjöttómatar — eða buff-
tómatar eins og sumir kalla þá —
eru verðlagðir eins og hinir. Alveg
sama verð. Þótt miklu minna sé
framleitt af þeim en hinum hefð-
bundnu, þá er salan ekki meiri en
það, að það koma toppar í söluna á
þeim sem og hinum. Ef fólk myndi
vita hversu kjöttómatarnir eru með-
færilegri en hinir við matargerð þá
myndi efalaust verða meiri sala f
þeim, og miðað við framleiðslu, þá
yrði eftirspurn meiri en framleiðsl-
an, svo þá yrðu ekki eins mikil afföll
á þeim. En þeir hafa átt auknum
vinsældum að fagna, enda fólk farið
að þekkja muninn. Uppskeran er
minni en af hinum, það er minna,
sem kemur af hverjum fermetra.
Einnig er heldur þyngri umhirða f
kringum þá, meiri vinna í kringum
plönturnar. Lágmarksstærð á þeim
er 100 gr og þess vegna verður klas-
inn þyngri.
Kjöttómatar hafa verið þekktir
hér um tíma, en ekki var byrjað
rækta þá af neinni alvöru fyrr en
fyrir 4—5 árum.
— Ætlar þú að stækka eða er nóg af
garðyrkjubændum fyrir í landinu?
Það virðist vera þannig, aö nóg sé
af öllu eins og er. Hygg ekki á
stækkun f bráð. Það er alltaf
offramleiðsla yfir hásumarið, af þvf
að sólargangurinn er svo langur.
Síðan leitar þetta til jafnvægis í júlf
og ágúst.
Eins og staðan er í dag, þá eru
nógu margir framleiðendur. Við vit-
um, að það er stöðug neyzluaukning
og þótt nóg sé framleitt í dag, þá
getur verið, að það sé ekki nóg eftir
2-3 ár.
— pþ
Morgunblaðið Pétur Þorsteinsson
Þórður Þórðarson garðyrkjubóndi með kjöttómata. Má glöggt sjá stærðar-
muninn frá venjulegum tómötum.
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Stýrimann og vélstjóra vantar á 150 tonna bát sem stundar rækju- veiöar frá ísafiröi. Upplýsingar í símum 94-4308 á daginn og 94-3627 á kvöldin. Þórshöfn Umboösmaöur óskast til aö annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaöiö. Uppl. hjá umboösmanni í síma 81281 og hjá afgreiöslunni í Reykjavík í síma 83033. Kennarar Kennara vantar viö Grunnskóla Patreksfjarö- ar. Húsnæöi fyrir hendi. Nánari uppl. hjá skólastjóra í síma 94-7605 eöa formanni skólanefndar í síma 94-1258. Skólanefnd.
Sjómenn Matsveinn óskast á M.B. Vikar Árnason sem er aö hefja dragnótaveiöar í Faxaflóa. Uppl. í síma 41278 eftir kl. 20.00 á kvöldin.
Kennarar í Borgarnes vantar 3-4 kennara. Ódýrt hús- næöi og mikil vinna er í boði. Meðal kennslu- greina eru: Líffræöi- og eðlisfræðikennsla meö nýrri og fullkominni aöstööu. Ensku- kennsla auk almennrar bekkjakennslu. Upplýsingar í símum 93-7297 og 93-7579.
Grundarfjörður Umboösmaöur óskast til aö annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaöiö. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 8864 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í sima 83033.
Atvinna óskast 21 árs stúlka óskar eftir atvinnu í ágúst- mánuði. Hef tungumála- og bókhaldsþekk- ingu, auk reynslu af tölvum. Uppl. í síma 75980 og 14489.
Lögfræðingar — laganemar Staöa lögfræöings viö lána- og innheimtu- stofnun í Reykjavík, er hér meö auglýst laus til umsóknar. Starfiö býöur upp á fjölþætta og dýrmæta reynslu fyrir ungt fólk á einum helsta vettvangi lögfræöinnar. í boöi eru góö byrjunarlaun, svo og bilastyrkur. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast lagðar inn á augld. Mbl. fyrirfimmtudag 18. júlínk. merktar: „Tækifæri — 8799“.
Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræöingur óskast tii starfa strax á meöferðarheimili fyrir áfengis- og eiturlyfja- sjúklinga. Æskilegt er aö viökomandi hafi einhverja þekkingu á áfengissýki. Nauðsyn- legt er aö viökomandi tali aö minnsta kosti eitt noröurlandamál. Uppl. veitir hjúkrunarforstjóri í síma 14058. Líknarfélagiö Von.
Hálfsdagsvinna Bókhaldsstofa óskar eftir karli eöa konu til starfa. Starfiö felst í fylgiskjalamerkingum, innskrift og merkingum. Aöeins vant fólk kemur til greina. Tilboö leggist inn á augl.deild Mbl. fyrir 18. þ.m. merkt: „Bókhald-2925“.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
v^-v-v-rrv—w
þjónusta
. A..Ay1.A A /
Dyrasímar — Raflagnir
Gestur rafvirkjam., s. 19637.
Húsbyggjendur
- Verktakar
Variö ykkur á móthellunni, notið
aóeins frostfrítt fyllingarefni f
húsgrunna og götur.
Vörubilastööin Þróttur útvegar
allar geröir af fyllingarefni, sand
og gróöurmold.
Vörubílastööin
Þróttur, s. 25300.
félagslíf :
JLÁ..A..A_aA-AA—aA—t
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SIMAR11796 og 19533.
Sumarleyfisferöir
Feröafélagsins:
1. 12.-17. júlí (S dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gengiö milli húsa. Fararstjóri:
Dagbjört Öskarsdóttir.
2. 12.-20. júli (• dagar). Borgar-
fjöröur eystri — Loömundar-
fjöröur. Fararstjóri: Tryggvi
Halldórsson.
3. 17.-21. júlf (5 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gengiö milli húsa. Fararstjóri:
Hjalti Kristgeirsson.
4. 19.-27. júfe' (9 dagar): Lónsör-
rafl. Fararstjóri: Þorstefnn Bjamar.
5. 19.-24. júlf (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gengiö milli húsa. Fararstjóri:
Ásgeir Pálsson.
6. 19.-24. júlf (• dagar):
Hvanngíl — Hólmsárlón —
Hólmsá — Hrífunes. Gönguferö
meö viöleguútbúnaö. Fararstjóri:
Siguröur Kristjánsson. Ath.
ranga dagsstnfngu i fsröaásBtl-
un.
7. 23.-28. júlf (• dagar): Norð-
vesturland. Skoöunarferöir f
Húnavatnssýslu og Skagaflröl.
Gist f svefnpokaplássi. Farar-
stjóri: Baldur Sveinsson.
Pantiö tímanlega i sumarleyfis-
feröirnar. Upplýsingar og far-
miöasala á skrlfstofu Fl, Öldu-
Q'ðtu 3. Feröafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11796 og 19533.
Dagsferöir Feröafólags-
-ins sunnudag 14. júlí:
1. Kl. 10.00. Hvalfoll — Glymur
— luaati foas landains. Hval-
fell er móbergsstapi (848 m)
og er kollur þess mosagróinn.
Verö kr. 400.00.
2. Kl. 13.00. Gsngiö sð Glym frá
Stórabotni. Glymur er 198 m
á hæö og er í Botnsá I Botns-
dal. Hvalflröi. Verö kr. 400.00.
Brottför frá Umferöarmiöstöö-
inni, austanmegin. Farmiöar viö
bil. Frftt fyrlr börn í fylgd fullorö-
inna.
Feröafélag Islands.
e
UTIVISTARFERÐIR
Helgarferöir 12. -14. júlí
Lakagfgar. Gfgasveeöiö skoöaö
og gengiö á Laka. Eklö um Eldgjá
og Lauga á heimleiö. Tjöld. Far-
arstjóri: Þorleifur Guömundsson
og Kristján M. Baldursson.
Þórsmórk. Gönguleiöir viö allra
hæfi. Gist f Útivistarskálanum
Básum og tjöldum. Fararstjórar:
Anton Björnsson og Friöa Hjálm-
arsdóttir Brottför kl. 20.00.
Þórsmorkurfarð á miövikudag
kl. 8.00. Muniö sumardvöl f Þórs-
mörk.
Uppf. og tarmiöar á skrifst. Lækj-
argötu 6a, sfmar: 14606 og
23732. Sjáumst.
Úthrist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11796 og 19533.
Helgarferöir 12.-14. júlí:
1. Hveravellir — grasaferö —
gönguferö.
Gist f sæluhusi Ff á Hveravöllum.
2. Landmannalaugar — Veiói-
vötn. Gist f Laugum.
3. Þórsmörk. Gist f Skagfjörós-
skála. Ath.: Sumarleyfi hálf eös
heil vika — f Þórsmörk og
Landmannalaugum.
Brottför í feróimar er kl. 20.00
fóstudeg. Farmiöasala á skrif-
stofu FL
Feröafélag Islands.