Morgunblaðið - 24.08.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
8-10 hæða
hótel í
Nýja mið-
bænum
— Jón Ragnarsson
hyggst reisa bygging-
una fyrir 250 milljónir
króna í samvinnu
við erlenda aðila
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum í gær að veita
Jóni Ragnarssyni forstjóra
forgangsrétt að byggingu 8 tii
10 hæða hótelbyggingar á 10
þús. fermetra lóö í nýja mið-
bænum. Forgangsrétturinn
gildir til 1. marz á næsta ári.
„Hótelið verður byggt í sam-
vinnu við erlenda aðila. Sam-
kvæmt þeim frumdrögum, sem
ég hef látið gera, er gert ráð fyrir
milli tvö og þrjúhundruð her-
bergjum og hljóðar kostnaðar-
áætlunin upp á um 250 milljónir
króna,“ sagði Jón.
Keppt á kjölbátum
ÍSLANDSMÓT á kjölbátum hófst í Fossvogi í gær og var siglt eftir kúnstarinnar reglum til Hafnarfjarðar. Keppnin heldur áfram í dag og henni iýkur
á morgun. Eins og sjá má á myndinni er það margt fallegt fleyið, sem þátt tekur í keppninni.
„í frumdrögunum er sérstak-
lega gert ráð fyrir að hægt verði
að halda fjölmennari ráðstefnur
en við höfum hingað til ráðið við
hér á landi. Þetta eru þær hug-
myndir í megindráttum, sem ég
kynnti borgarráði. Næst er að er
að fá samþykki annarra nefnda
borgarinnar. Hvort hugmyndirn-
ar í þeirri mynd sem þær eru í
dag ná endanlega fram að ganga
er of snemmt að segja til um.
Ég hef þá trú að hóteirekstur
borgi sig í dag. Augu manna
bæði hér og erlendis eru að
opnast fyrir mikilvægi íslands,
sem ferðamanna- og ráðstefnu-
lands,“ sagði Jón að lokum.
Fulltrúaráö Kennarasambands Islands:
Hafnar tíllögu BSRB um
nýja atkvæðagreiðslu
2,91 % hækkun
á framfærslu-
vísitölu
SEÐLABANKINN hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir september-
mánuð og gildir lánskjaravísitalan
1239.
Hækkun lánskjaravísitölu frá
mánuðinum á undan varð 2,91%.
Umreiknað til árshækkunar hefur
breytingin verið sem hér segir:
Síðasta mánuð 41,0%, síðustu 3
mánuði 37,6%, síðustu 6 mánuði
32,3%, síðustu 12 mánuði 34,7%.
Kennarar ganga úr BSRB 1. janúar
FULLTRÚARÁÐ Kennarasambands fslands hafnaði í gær beiðni stjórnar
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja um að endurtaka allsherjaratkvæða-
greiðslu kennara um úrsögn úr BSRB. Allt bcndir því til þess að kennarar
gangi úr BSRB um næstu áramót.
hafni Fulltrúaráðið því tilmælum
stjórnar BSRB þess efnis. Enn-
fremur skorar Fulltrúaráð KÍ á
stjórn BSRB að viðurkenna úrsögn
KÍ úr BSRB, „enda séu engar fé-
lagslegar forsendur fyrir áfram-
haldandi aðild, eftir jafn ótvíræða
viljayfirlýsingu félagsmanna og
úrslit atkvæðagreiðslunnar beri
með sér.“
Ennfemur var önnur samþykkt
gerð á þinginu í gær þar sem Full-
trúaráðið óskar eftir því að kjör-
stjórn sú sem annaðist allsherjar-
atkvæðagreiðsluna á sínum tíma
fjalli um niðurstöðu hennar, þann-
ig að úrskurður kjörstjórnar liggi
fyrir.
Að sögn Guðna Jónssonar skrif-
stofustjóra Kennarasabands ís-
lands, er þetta gert vegna bréfs
Forysta BSRB hefur verið ósátt
við þá niðurstöðu Fulltrúaráðs
BSRB að taka ekki tillit til auðra
seðla úr atkvæðagreiðslu Kennara-
sambandsins um úrsögn úr banda-
laginu, sem fram fór í vor. Ef auðu
seðlarnir hefðu verið taldir með,
hefði ekki náðst löglegur meirihluti
fyrir úrsögninni.
Á þingi Fulltrúaráðsins í gær
var samþykkt með 21 atkvæði gegn
7 að ítreka fyrri samþykkt ráðsins
frá 18. maí, þar sem m.a. kemur
fram að úrslit allsherjaratkvæða-
greiðslunnar 2. og 3. maí feli í sér
úrsögn KÍ úr BSRB og Kennara-
sambandið muni frá 1. janúar 1986
starfa utan heildarsamtaka.
Segir í samþykktinni að engin
haldbær rök mæli með því að
endurtaka atkvæðagreiðsluna og
Fimm unglingspiltar
viðurkenna 19 innbrot
stálu og sóuðu á fjórða hundrað þúsund kr. á tæpum tveimur mánuðum
FIMM reykvískir piltar á aldrinum 14—16 ára, hafa viöurkennt nærri 20
innbrot og þjófnaöi í Reykjavík og nágrenni í sumar, skv. upplýsingum
Rannsóknarlögreglu ríkisins. I'iltarnir stálu rúmlega þrjú hundruð þúsund
krónum í peningum auk tóbaks og áfengis. Allt féö er uppuriö enda munu
piltarnir hafa lifað hátt, einkum þrír þeirra, allir 16 ára, sem voru foringjar í
hópnum.
Innbrotin voru framin á tímabil-
inu frá í júní og til júlíloka. Þre-
menningarnir sextán ára tóku þátt
í þeim öllum en tóku hina tvo, 14
og 15 ára, með sér af og til. Fjórir
þeirra hafa áður komið við sögu
lögreglunnar fyrir þjófnaði og
óknytti.
Fyrstu innbrotin voru í íbúðar-
hús í Suðurhlíðum í Fossvogi. Þar
fóru þeir inn í fjórar íbúðir, þar af
þrjár þar sem fólk var í fasta-
svefni, og stálu 6—8.000 krónum úr
veskjum og vösum.
Skömmu síðar var farið að næt-
urlagi í fjögur einbýlishús í Garða-
bæ og stolið þar peningum — þar
af eitt þúsund þýskum mörkum úr
einu húsanna. I Kópavogi var farið
inn í tvö hús og úr öðru þeirra
stolið nær 200 þúsund krónum í
peningum.
Úr benzínsölu Olís við Álfheima
stálu þeir 18 þúsund krónum í pen-
ingum og afrakstur þriggja inn-
brota í verslanamiðstöðina í Suð-
sem stjórn Kí barst frá BSRB þann
20. júní, þar sem fram kemur álits-
gerð Gests Jónssonar lögfræðings
BSRB. Telur Gestur að það sé hlut-
verk kjörstjórnar að kveða upp úr-
skurði um ágreiningsefni, en geri
hún það ekki, sé það hlutverk
stjórnar BSRB að taka af skarið.
Guðni minnti á það að á sínum
tíma hefði kjörstjórn kvatt til fjóra
lögfræðinga til að segja álit sitt á
hvort taka ætti auða seðla gilda
eða ekki, og hefðu tveir talið svo
vera en tveir ekki. Þar með taldi
kjörstjórn sig vera lausa allra
mála. Sagði Guðni Fulltrúaráðið
vildi nú fela kjörstjórninni að
kveða endanlega upp úr varðandi
það hvort auðu seðlarnir teldust
með eða ekki.
Þingi Fulltrúaráðsins verður
fram haidið í dag og m.a. rætt um
hugsanlega sameiningu Kennara-
sambands íslands og Hins íslenska
kennarafélags.
urveri var um 130 þúsund krónur. I
innbroti í einbýlishús í Skerjafirði
náðu piltarnir í áfengi og tvær litl-
ar talstöðvar, skiptimynt hirtu
þeir á matsölustað á Grensásvegi,
skiptimynt og tóbaki stálu þeir í
tveimur innbrotum í söluturn á
Hlemmi og nokkrum tugum vindl-
ingalengja úr verslun í Síðumúla.
Tóbakið seldu þeir.
Ýmsir hafa haft afskipti af fjór-
um piltanna, svo sem lögregla og
barnaverndarnefnd borgarinnar,
en allar tilraunir til að snúa þeim
til betri vegar hafa reynst árang-
urslausar til þessa. Þeir gengust
hikstalaust við öllum innbrotunum
og hafa verið látnir lausir úr
vörslu lögreglunnar.
Borgarráð úthlutar
lóðum til fyrirtækja
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum á fóstudag gær að úthluta
átján fyrirtækjum lóöum undir atvinnurckstur víösvcgar um borgina
auk þess sem samþykkt var aö gefa tveimur félögum fyrirheit um
byggingarrétt á Sigtúnsreit.
Lóð við Kringlu 4—6, í nýja
miðbænum, sem er samtals
43.750 rúmmetrar, fengu eftir-
taldir fimm aðiiar. Nýja Köku-
húsið hf. og ísafoldarprent-
smiðja hf., sem sóttu um saman
og fengu 24.500 rúmmetra undir
bakarí, prentsmiðju, skrifstofur
og konditorí. Gatnagerðagjaldið
er kr. 7.533.015. Landsbankinn
fékk 10.500 rúmmetra af lóðinni
undir bankastarfsemi og greiðir
kr. 3.228.435 í gatnargerðargjöld.
Loks fengu Jónas Sveinsson
Nóatúni 27 og Gunnar Guð-
mundsson Borgartúni 33, 8.750
rúmmetra undir kvikmyndahús
og fjölmiðlun. Gatnagerðargjöld,
sem komu í þeirra hlut eru kr.
2.690.362.
Samþykkt var að úthluta
Málningarverksmiðjunni Hörpu
hf. 9.300 m2 lóð undir starfsemi
sína á svæði milli Stórhöfða og
Vesturlandsvegar. Áætlað
gatnagerðargjald 5.147.048 mið-
að við nýtingu 0,4 og meðalloft-
hæð. Gluggasmiðjan hf. fékk út-
hlutað lóð milli Stórhöfða og
Vesturlandsvegar, sem er 7.300
mz, gegn því að fyrirtækið afsali
sér lóð í Grafarvogi, sem það
fékk úthlutað 1983. Á sama
byggingarreit milli Stórhöfða og
Vesturlandsvegar fékk Sandur
sf. einnig útlutað 4.700 mz lóð
undir starfsemi sína gegn því að
afsala sér lóð í Grafarvogi, sem
fyrirtækinu var úthlutað 1983.
Fjögur fyrirtæki fengu úthlut-
un á þremur lóðum við vestan-
verðan Lágmúla undir starfsemi
sína, Bræðurnir Ormsson hf.,
Saga film hf., Ólafur H. Jónsson
hf. og Snorri hf. sem sóttu um
saman. Við Sogamýri austan við
Skeifuna fengu fyrirtækin Ryd-
enskaffi hf., Víkurbraut sf., Epal
hf. og Standberg hf. lóðir undir
atvinnuhúsnæði.
Á svokölluðum Sigtúnsreit á
mótum Kringlumýrarbrautar og
Suðurlandsbrautar fengu þrjú
fyrirtæki úthlutað lóðum undir
starfsemi sína. Dansstúdíó Sól-
eyjar, Ásgeir Einarsson hf. og
H.G. Guðjónsson. Auk þess var
samþykkt að gefa Kíwanísum-
dæminu á íslandi og Breiðfirð-
ingafélaginu í Reykjavík fyrir-
heit um byggingarrétt á lóðum á
Sigtúnsreit.