Morgunblaðið - 24.08.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.08.1985, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985 Myndlist: Helgi Vilberg á ísafirði ísafirði, 22. ágúst. HELGI Vilberg, listmálari og skóla- stjóri myndlistarskólans á Akureyri, er með sölusýningu í Slunkaríki á ísafirði þessa dagana. Á sýningunni eru 7 málverk öll ný og unnin með akryl á striga. Verð myndanna er frá 17.000 til 60.000 kr. Helgi Vilberg fæddist 1951. Hann stundaði nám í Handíða- og myndlistarskólanum 1969—1973. Hann fór í námsferðir til Eng- lands 1973, 1983 og 1984. Hann stofnaði Myndlistarskólann á Ak- ureyri 1974 og hefur verið skóla- stjóra hans frá árinu 1977, auk þess sem hann hefur kennt við Menntaskólann á Akureyri frá 1978. Helgi hélt einkasýningar á Akureyri 1975 og 1978, auk fjölda samsýninga á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík. Hann hlaut lista- mannalaun 1980 og 1983 og er fé- lagi í FÍM. Úlfar Islenskum fyrirtækjum boðið upp á kynningu í Minnesota FYLKISSTJÓRINN í Minnes- ota, Ruby Perpich, hefur boðið nokkrum ísienskum fyrirtækj- um að kynna vörur sínar og þjónustu á „Icelandic Days in Minnesota“ 25. og 26. ágúst nk. A sama tíma verður opnuð Ijósmyndasýning sem Ljós- myndasafnið setur upp. Heið- ursgestur á þessum kynning- um verður Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra. Perpich kom til íslands fyrir tveimur árum á ferð um öll Norð- urlönd. Hann var þá nýkjörinn fylkisstjóri. Perpich, sem mikinn áhuga hefur fyrir útflutningi og innflutningi vöru og þjónustu, stakk upp á sérstakri Islands- kynningu við forráðamenn hér. Fyrrverandi sendiherra Banda- ríkjanna hér á landi, Marshall Brement, hefur einnig unnið að þessu máli. Ljósmyndasafnið var fengið til að setja upp Ijósmyndasýningu sem sýnir aðstæður á íslandi frá því fyrir og um aldamótin en ein- mitt á þeim tíma var straumur versturfara frá íslandi hvað mest- ur. Til samanburðar hefur banda- rískum Ijósmyndara, Gary Spenc- er, sem tekið hefur mikið af ljós- myndum á Islandi og er sjálfur frá Minnesota, jafnframt verið boðið að sýna nútímaljósmyndir. Ljós- myndasýningin verður opnuð 25. ágúst í Science-safninu í Minne- appolis St. Paul. Kynning á vörum og þjónustu íslenskra fyrirtækja fer svo fram á International Market Square í Minneapolis. Þar munu Coldwat- er, Iceland Seafood og Iceland Waters Industries kynna fram- leiðslu sína og standa fyrir veit- ingum. Álafoss og Hilda kynna ullarvörur og halda tískusýningar með aðstoð stórverslunarinnar Daytons, sem mun leggja til sýn- ingarstúlkur, og Flugleiðir og Ferðamálaráð kynna Island sem ferðamannaland, en Hafskip kynnir gámaflutninga sina frá Norðurlöndum. Morgunblaðift/Úlfar Ágústason Ein af myndum Helga Vilberg á sýningunni í Slunkaríki. Glæsibær Opið í kvöld Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi. Opiö til kl. 03. Snyrtilegur klæönaöur. X/oitinnahúaiA CtIooeihaa huaardm BINGÓ! 7 25 40 57 63 6 22 45 56 62 15 21 • 51 72 10 20 35 53 67 12 24 31 55 73 Hefst kl. 13.30 5 18 34 52 61 1 19 38 46 70 1 11 30 • 60 64 | 13 27 32 58 71 4 26 33 50 68 Hœsti vinningur ad verdmœti kr. 30 þús. 9 23 44 59 66 % 8 16 41 54 75 3 29 • 49 65 «0 2 28 36 48 74 14 17 39 47 69 35 umferdir Heildarverdmœti vinninga yfir kr. 100 þús. Aukaumferd TEMPLARAHÖLLIN Eiríksgötu 5 — S. 20010 Skála fell eropiö öllkvold I kvöld Guömundur Haukur leikur og syngur «1 imn I.& czz o| *— mm nl FLUGLEIDA fm HÓTEL V^rlKMlfD Sími 68-50-90 VWmNGAHÚS HÚS GÖMLU DANSANNA. Gðmki danaamir í kvðld kl. 9—3. Hljómsveitin DREKAR ásamt hinni vinsælu söngkonu MATTÝ JÓHANNS Aöaina ródugjald. m m LAUGAVEGI 116. S. 10312 í kvöld og næstu kvöld skemmta hinir frábœru Grétar og Gylfi með músík og söng. Borgarinnar bestu steikur. Gott verö — góð þjónusta. Opið alla daga frá kl. 11—15. Opnum aftur kl. 18 á hverjum degi. Diskótek á hverju kvöldi til kl. 1.00. Rúllugjald. (Föstud. og laugard. frá kl. 10—3.) Aldurstakmark 20 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.