Morgunblaðið - 24.08.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
Að
hlusta
Miðdegissagan nefnist: Lamb
og er höfundurinn Bernard
MacLaverty en Erlingur E. Hall-
dórsson les og þýðir söguna. Ég vil
vekja athygli lesenda á þessari
miðdegissögu á rás 1. í fyrsta lagi
vegna lestrarlags Erlings E. Hall-
dórssonar en Erlingur gefur sér
góðan tíma til að segja frá því sem er
að gerast í sögunni. Ekki spillir þýð-
ingin sem er í senn kjarnyrt og safa-
rík og sagan sjálf er allrar athygli
verð en þar segir frá afar sérstaeðu
sambandi prestlings nokkurs við
ógæfusaman ungling. Finnst mér
raunar er ég hlýði á frásögn Erlings
að þar fari kvikmynd fyrir á skjá
hugans en meiri viðurkenningu er
naumast unnt að veita sagnamanni.
Minnist ég í þessu sambandi um-
mæla reynds skólamanns, er hafði
af því þungar áhyggjur, að sum
barnanna í dag hefðu misst
hæfileikamann að tengja frásögn og
mynd í huganum. Taldi þessi aldni
skólastjóri að sum barnanna væru
alls ófær um að hlusta nema textinn
væri tengdur einhverju sýnilegu,
hreyfimynd eða mynd á bók. Taldi
þessi ágæti maður að börn sem
hefðu glatað hæfileikanum að
hlusta og sem aldrei væri rætt við
heimafyrir hefðu í rauninni ekki
sömu möguleika til náms og hin er
ættu auðvelt með að tengja orð og
mynd.
Bjartar vonir
En hvað kemur miðdegissagan
hans Erlings E. Halldórssonar
þessu máli við? Jú, mér datt í hug er
ég hlustaði á Erling, hvort ekki væri
upplagt að láta slíka sagnaþuli, lesa
sögur í sérstakt skólaútvarp sem
vonandi fæðist með nýju útvarps-
lögunum. Finnst mér líka ekki frá-
leit hugmynd að senda slíka þuli í
skólana og mættu það gjarnan vera
eldri menn er hafa bergt af sagn-
abrunni liðinna kynslóða. Ég geri
ennfremur að tillögu minni að hér
verði eingöngu karlmenn valdir til
verka. Ástæðan fyrir því að ég vil
ekki að konur veljist til þessa starfa
er einfaldlega sú að karlmenn eru að
verða sjaldséðir gestir í grunnskólum
lands vors. Þannig ræddi ég nýiega
við skólastjóra í nýstofnsettum
grunnskóla hér í borginni er tjáði
mér að enginn karlmaður hefði
fengist til starfa í þeim skóla, vegna
þess að hann gat ekki boðið næga
yfirvinnu. Fer nú senn að rætast
draumur sumra um að kennsla
barna sé raunar aðeins „kven-
mannsverk" í ætt við fóstrustarf og
því táglaunastarf. Karlar eiga að
vera í stjórnunarstörfum og bissniss
en ekki sinna um börn. Þetta er
hvort sem er ekki nema „hálfsárs-
vinna eins og ein fótboltahetjan
komst að orði. Já það er af sem áður
var þegar barnakennarar nutu virð-
ingar í samfélaginu. Þannig varð
undirrituðum reikað með börnin í
gamla kirkjugarðinn einn sunnu-
daginn. Á margan fagran steininn
stóð ritað Jón Jónsson kaupmaður,
Jón Jónsson dómari eða Jón Jónsson
kennari. Hvers eiga annars blessuð
börnin að gjalda að hafa stöðugt
fyrir augunum launalausar mömm-
ur á heimilunum, láglaunafóstrur á
dagvistarheimilunum og láglauna-
kennslukonur í skólanum meðan
stóri sterki pabbi er alltaf úti í bæ
að afla peninga? Væri ekki kærkom-
in hvíld fyrir blessuð börnin að fá
við og við í heimsókn í skólann
karlmann er segði þeim sögur og
minnti á tilvist hins kynsins mitt í
kvennafansinum, eða væri kannski
nær að senda fótboltahetju á vettv-
ang til þess að börnin fengju nú
„rétta mynd“ af samfélaginu.
Kennslukonuherinn gæti svo mynd-
að klapp- og hopplið til heiðurs hetj-
unni og fengi að launum einn disco
fried og franskt nýhækkað rauð-
vínstár. En hver nennir að hlýða á
sagnaþuli í slíkum gleðskap jafnvel
þótt karlkyns væru?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
LAUGARDAGUR
24. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Tónleikar. þulur velur og
kynnir. 7.20 Leikfimi. Tón-
leikar
7Æ5 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur Guðvarðar Más
Gunnlaugssonar frá kvöldinu
áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg-
unorð — Karl Matthlasson
talar.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Forustugreinar dag-
blaðanna (útdráttur). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Öskalög sjuklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Oskalög sjúklinga,
frh.
11.00 Drög að dagbók vikunn-
ar. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
19.30 Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 Inn og út um gluggann.
Umsjón: Heiðdls Norðfjörö.
RUVAK.
14.20 Listagrip. Þáttur um listir
og menningarmál I umsjá
Sigrúnar Björnsdóttur.
15.20 .Fagurt galaöi fuglinn
sá“. Umsjón: Siguröur Ein-
arsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar
a. .Gaspard de la Nuit" eftir
Maurice Ftavel. Ivo Pogore-
lich leikur á planó.
b. Pepe og Celin Romero
leika lög eftir Isaac Albéniz á
tvo gltara.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Helgarútvarp barnanna.
17.00 iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
19.00 Hver er hræddur við
storkinn?
(Vem ár rádd for storken?)
2. þáttur. Finnskur fram-
haldsmyndaflokkur I þremur
þáttum um sumarleyfi
þriggja hressra krakka. Þýð-
andi Kristln Mántylá. (Nord-
vision — Finnska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
ÚTVARP
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Þetta er þátturinn. Um-
sjón: Örn Árnason og Sig-
uröur Sigurjónsson.
20.00 Harmonlkuþáttur. Um-
sjón: Högni Jónsson.
20.30 Utilegumenn. Þáttur I
umsjá Erlings Sigurðarsonar.
RÚVAK:
21.00 Kvöldtónleikar. Þættir úr
slgildum tónverkum.
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
24. ágúst
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Haltu vöku þinni
Stutt mynd frá Umferðarráði.
20.45 Allt I hers höndum
(Allo, Allo!) Sjöundi þáttur.
Breskur gamanmyndaflokk-
ur I átta þáttum. Leikstjóri
David Croft. Aðalhlutverk:
Gorden Kaye. Þýðandi
Guöni Kolbeinsson.
21.15 Sitt af hvoru tagi
(En lille show med jass) Létt
djasslðg I flutningi ýmissa
tónlistarmanna. (Nordvision
21.40 Rauöi kjóllinn, smásaga
eftir Alice Munro. Ragnheiö-
ur Tryggvadóttir les þýðingu
Önnu Marlu Þórisdóttur.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22 35 Náttfari. — Gestur Einar
Jónasson. RÚVAK.
23.35 Eldri dansarnir
24.00 Miðnæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Örn Marinósson.
00.55 Dagskrárlok.
Næturútvarp trá rás 2 til kl.
03.00.
— Danska sjónvarpiö)
21.50 Samkvæmið
(The Party) Bandarlsk gam-
anmynd frá árinu 1968.
Leikstjóri Blake Edwards.
Aðalhlutverk Peter Sellers
og Claudine Longet. Ind-
verskur leikari kemur til
Hollywood I leit að frægð og
frama. Fyrr en varir ratar
hann I ótrúlegustu ógöngur.
Þýöandi Jón O. Edwald.
23.30 Dagskrárlok
Sn
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Einar Gunnar
Einarsson.
14.00—16.00 Við rásmarkið
Stjórnandi: Jón Ölafsson
ásamt Ingólfi Hannessyni og
Samúel Erni Erlingssyni,
iþróttafréttamönnum.
16.00—17.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00—18.00 Hringboröið
Hringborðsumræður um
múslk.
Stjórnandi: Magnús Einars-
son.
20.00—21.00 Llnur
Stjórnandi: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir.
21.00—22.00 Djassspjall
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
22.00—23.00 Bárujárn
Stjórnandi: Siguröur Sverr-
isson.
23.00—00.00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.45—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Margrét Blöndal.
Rauði
kjóllinn
Hér sjást þrír af gestum samkvæmisins sem laugardagsmyndin dregur nafn sitt af.
Laugardagsmyndin:
Um indverskan hrakfallabálk
■■■■ Laugardags-
Ol 50 ntyndin heitir
^ 1 Samkvæmið og
fjallar um Indverjann
Hrundi Bakshi, sem kem-
ur til Hollywood að leita
sér frægðar og frama.
Hann lendir fljótt í hinum
mestu raunum, því á ein-
hvern óskiljanlegan hátt
tekst honum sífellt að
verða sér til skammar.
Hann móðgar fólk og sær-
ir og verður fljótlega illa
séður í hópi Hollywood-
stjarna.
Um þverbak keyrir þeg-
ar hann eyðileggur geysi-
dýra leikmynd sem sett
hefur verið upp fyrir kvik-
myndatöku og tökuna
sjálfa. Framleiðandinn
sem verður fyrir þessu
tjóni ákveður að gera allt
sem í hans valdi stendur
til að tryggja að Bakshi
fái aldrei framar hlutverk
í Hollywood.
Samkvæmið fær þokka-
lega dóma í skræðunum.
Ráðsettari gagnrýnendum
finnst hún ef til vill um of
ærslafengin.
Aðalhlutverk leika Pet-
er Sellers og Claudine
Longet.
■■!■ í kvöld verður
Ol 40 les’n ' útvarpið
Lt J. — smásaga eftir
Alice Munro sem heitir
Rauði kjóllinn. Anna
María Þórisdóttir þýddi
söguna, en það er Ragn-
heiður Tryggvadóttir sem
les. Alice Munro er kanad-
ískur rithöfundur, sem
ólst upp og hlaut menntun
í Ontario. Hún hefur
skrifað smásögur frá
unga aldri og hafa þær
birst í ýmsum bók-
menntatímaritum vestan-
hafs. Fyrsta smásagna-
safn hennar kom út 1968
og hlaut hún æðstu bók-
menntaverðlaun Kanada
fyrir það.
Sögusvið sagna Alice
Munro eru oftast bónda-
bæir og sveitaþorp í suð-
vesturhluta Ontario-
fylkis. Hún skrifar um
það hvernig er að verða
fuilorðinn, um ástarsorgir
og ástargleði. Gagnrýn-
endur hafa lýst lýsingum
hennar á hugsunum og
tilfinningum manna við
verk Prousts.
Djassspjall við Gunnar Reyni
Gunnar Reynir Sveinsson.
Hann mun spjalla um djass
vió Vernharó Linnet á rás 2
í kvöld.
■■■■ 1 kvöld verður
91 00 sendur út á rás
^ A “ 2 þátturinn
Djassspjall, en það er
Vernharðs Linnet sem sér
um hann. Að sögn Vern-
harðar er hann vanur að
fá einhverja gamalreynda
djassista til að spjalla við
sig í þáttum þessum, en
þeir hafa verið vikulega á
dagskrá í nokkurn tíma.
„Gunnar Reynir hefur
nú að vísu mikið fengist
við klassíska tónlist, en
hann er gamalreyndur
djassleikari. Núna á síð-
ustu árum hefur hann líka
verið að snúa sér meira að
djassinum aftur. Við
munum semsagt ræða um
feril hans í stórum drátt-
um. En þó ekki síður um
vissa tegund djass sem
hefur verið kölluð þjóðleg-
ur djass. Þannig er að um
miðjan næsta mánuð
verður haldin djasshátíð
og þar kemur meðal ann-
ars fram tríó Nils Henn-
ing rsted-Pedersen, sem
mun leika íslensk þjóðlög
í djassútsetningum.
Gunnar Reynir Sveinsson
valdi einmitt þau lög sem
svo voru útsett."