Morgunblaðið - 24.08.1985, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
11
Æskulýðsmót
heima á Hólum
/ESKULÝÐSMÓT verður haldið að Hólum í Hjaltadal á vegum /Eskulýða-
starfs l>jóðkirkjunnar dagana 30. ágúst til 1. september nk.
Er þetta níunda árið í röð sem
æskulýðsleiðtogar safnaðanna
koma saman að hausti. Þessu móti
er einkum ætlað að vekja áhuga
ungs fólks á að starfa í sínum
söfnuði. Yfirskrift mótsins er val-
in í samræmi við það, „Ég vil
starfa fyrir hann“. Innritun fer
fram á skrifstofu æskulýðsstarfs-
ins í Reykjavík, Suðurgötu 22.
Ung Nordisk Musik:
Tónleikar í dag í
Norræna húsinu
UNM, Ung Nordisk Musik-
samtökin á íslandi, halda tónleika
með nýrri tónlist í dag, laugardag,
klukkan 17.00 í Norræna húsinu.
Norrænt æskufólk heldur árlega
tóniistarhátíð sína í Helsinki í haust
og eru fyrrnefndir tónleikar í kynn-
ingar- og fjáröflunarskyni fyrir ferð
íslensku þátttakendanna.
Ætlunin er að senda fjórtán
tónskáld og hljóðfæraleikara á há-
tíðina, en til þess þarf að leita
allra ráða til fjáröflunar, segir í
fréttatilkynningu.
Á efnisskránni í dag verða
rafhljóðverk eftir Lárus H.
Grímsson, Kjartan Ólafsson, Sig-
urð H. Sigurðsson og Helga Pét-
ursson. Þá mun Guðni Franzson
leika Músík Hróðmars Sigur-
björnssonar fyrir klarinett, en
verkið vakti athygli á síðustu
UNM-hátíð í Málmey. Loks eru
tvö söngverk á efnisskránni. And-
ers Torsten Josephsson syngur
með gítarleik Páls Eyjólfssonar í
Danslagi eftir Mist Þorkelsdóttur,
og Andrea Gylfadóttir syngur
þrjú lög eftir Báru Grímsdóttur.
Með Andreu leika Helga Laufey
Finnbogadóttir á píanó og Kol-
beinn Bjarnason á flautu.
Aðstandendur fatlaðra
velkomnir í Safír-hópinn
Safír-hópurinn, hinn óformlegi
starfshópur aðstandenda fatlaðra,
byrjar á næstunni þriðja starfsár
sitt.
Starfshópurinn vinnur á þann
hátt að mánaðarlega koma með-
limir hans saman til skrafs og
ráðagerða. Engar kvaðir eru á fé-
lagsmönnum né gjöld. Markmið
hópsins er fyrst og fremst sam-
vera félaganna. Aðstandendur
fatlaðra koma saman til að ræða á
óformlegan hátt um þau verkefni
sem fylgja því að vera aðstand-
andi fatlaðs einstaklings.
Safír-hópurinn hafði sl. vetur
aðstöðu til samveru í félagsein-
ingu verndaða vinnustaðarins
Örva í húsakynnum Sunnuhlíðar I
Kópavogi og fær aðstöðu þar
næsta vetur.
Ef aðstandendur fatlaðra hafa
áhuga á að kynnast þessari starf-
semi fyrir veturinn, nægir að
senda nafn, heimilisfang og síma
til Safír-hópsins, Digranesvegi 12,
200 Kópavogi, og fá þeir þá bréf
um starfsemina þegar hún hefst i
haust. Á sl. ári hélt hópurinn 13
fundi, þar af einn skemmtifund og
farið var í eitt fjölskylduferðalag.
*
Hundaræktunarfélag Islands:
Seinni hluti sýningar í dag
SEINNI hluti árlegrar sýningar
Hundaræktunarfélags íslands verð-
ur haldinn í dag klukkan 13.00 í
félagsmiðstöð gagnfræðaskólans í
Garðabæ.
Þá verða dæmdir íslenski fjár-
hundurinn og Poodle-hundar.
Dómari verður Diane T. Anderson
frá Noregi. Á sunnudag klukkan
20.00 flytur Anderson síðan fyrir-
lestur og heldur sýnikennslu í fé-
lagsmiðstöðinni um hvernig best
sé að undirbúa hund fyrir sýningu,
en þar kemur margt til greina, allt
eftir hundategundum, einnig
hvernig sýna á hund í dómhring.
Þetta er fyrsti fyrirlestur sinnar
tegundar á íslandi.
Ráðstefna:
íslensk skólastefna
BANDALAG kennarafélaga og
Kennaraháskóli íslands gangast
laugardaginn 31. ágúst sameiginlega
fyrir ráðstefnu sem ber yfirskriftina
„Káðstefna um íslenska skóla-
stefnu“. Ráðstefnan verður haldin í
Borgartúni 6 og hefst kl. 9.
Fjögur erindi verða flutt á
ráðstefnunni. Flytjendur eru Jón-
as Pálsson, rektor KÍ, Sólrún
Jensdóttir, skrifstofustjóri í
Menntamálaráðuneyti, Svanhild-
ur Kaaber, formaður Bandalags
kennarafélaga og dr. Wolfgang
Edelstein, prófessor við Max
Planck-rannsóknarstofnunina í
Vestur-Berlín.
Auk erindanna verða flutt af
myndbandi svör ýmissa aðila inn-
an skólakerfisins og utan þess, við
spurningum varðandi efni ráð-
stefnunnar. Ráðstefnan er öllum
opin. Tilkynning um þátttöku þarf
að berast skrifstofu KÍ fyrir 28.
ágúst.
TREDiA
4WD
Árgerd '86
Bíllinn, sem alla hefur dreymt um
Veröur kynntur í byrjun september
► Tregðumismunadrif ► Aflstýri
► 14" felgur ► Rafstýrðir útispeglar
► Miðstýrðar hurðalæsingar
► og margt fleira
BÍLARNIR, SEM SELJAST MEST,*
ERU FRÁ MITSUBISHI.
Verö frá kr. 577.000-
* Samkv. skýrslu Hagstofu íslands
(flr fréttatilkynningu)
PRISMA