Morgunblaðið - 24.08.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
15
Viðskiptaráðuneytið:
Nýr viðskiptasamn-
ingur milli íslands
og Tékkóslóvakíu
HINN 22. ágúst undirrituðu Matthías
Á. Mathiesen viðskiptaráðherra og Jar-
oslav Jakubec, varautanríkisviAskipta-
ráAherra Tékkóslóvakíu, nýjan við-
skiptasamning milli íslands og
Tékkóslóvakíu sem gilda á til ársloka
1990. Samningurinn er í öllum megin-
atriðum samhljóða gildandi viðskipta-
samningi landanna frá 1977 en
viðskiptasamningar þeirra hafa á lið-
num áratugum verið endurnýjaðir með
vissu millibili til nokkurra ára í senn.
son, skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu, Ragnar J. Ragnarsson for-
stjóri, fulltrúi Verslunarráðs lslands,
Jón Reynir Magnússon, framkvæmda-
stjóri, fulltrúi Félags íslenskra
fiskimjölsframleiðenda, Jón Ögmundur
Þormóðsson, deildarstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, Þórhallur Ásgeirsson,
ráðuneytisstjóri i viðskiptaráðu-
neytinu, Ólafur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna.
Viðskiptasamningurinn er
rammasamningur en samningar um
sölu einstakra vara eru gerðir milli
íslenskra og tékkneskra fyrirtækja. í
samningnum segir m.a. að stjórn-
völd í báðum löndum skuli leitast við
að auka viðskiptin milli landanna en
þau hafa minnkað talsvert ef litið er
til lengri tíma. Þannig voru viðskipt-
in um 2—3% á sjötta áratugnum en
á tíma samningsins frá 1977 var út-
flutningur íslands til Tékkóslóvakíu
0,3—1,0% af heildarútflutningnum
en innflutningur 0,3—0,7% af heild-
arinnflutningnum.
Dagana 20.—21. ágúst fóru fram
almennar viðræður milli stjórnvalda
og voru skrifstofustjórar viðskipta-
ráðuneyta landanna, Sveinn Björns-
son og Josef Keller, formenn
viðræðunefndanna. í sameiginlegri
fundargerð, sem formennirnir und-
irrituðu í lok viðræðnanna, kemur
m.a. fram að viðskipti landanna juk-
ust til muna á árinu 1984 miðað við
árið 1983. Báðir aðilar lýstu yfir
áhuga sínum á áframhaldandi við-
skiptum með hefðbundnar vörur, t.d.
heilfrystan fisk og fiskflök, síld og
síldarflök, fiskimjöl, lagmeti og ost
en einnig nýjar vörur, svo sem
þorskalýsi, gærur, lambakjöt, salt-
síld og grásleppuhrogn. Tékkar lýstu
sem fyrr áhuga sínum á að selja vél-
ar og tæki vegna byggingar orkuvera
og annarra verkefna á íslandi auk
hefðbundinna vara, m.a. dráttarvéla,
fólksbíla, prentvéla og prjónavéla.
Á árinu 1984 voru fluttar inn vör-
ur frá Tékkóslóvakíu að andvirði 104
millj. kr. eða 0,4% af heildarinn-
flutningnum. Út voru fluttar vörur
fyrir 118 millj. kr. eða 0,5% af heild-
arútflutningnum. Mikilvægasta ein-
staka útflutningsvaran var loðnu-
mjöl að verðmæti 49 millj. kr. en
verðmæti útflutts freðfisks var jafn-
hátt, þar af var flutt út fryst síld
fyrir 23 millj. kr. (1.300 tonn), fryst
fiskflök fyrir 21 millj. kr. (700 tonn)
en sú vara hefur ekki verið seld til
Tékkóslóvakíu um árabil og loks
heilfrystur fiskur að verðmæti um 5
millj. kr. (um 150 tonn). Flutt var út
71 tonn af smurosti að verðmæti um
5 millj. kr. Flutt voru út um 2.200
tonn af kísilgúr að verðmæti 12
millj. kr. en lítið sem ekkert kvað að
sölu annarra iðnaðarvara til Tékkó-
slóvakíu. T.d. komst lagmeti ekki á
blað á því ári. Á árinu 1984 voru
mikilvægustu innflutningsvörurnar
frá Tékkóslóvakíu vélar og tæki,
járn- og stálvörur, dráttarvélar, bif-
reiðir og vefnaðarvörur. Nefna má
að á liðnum árum hafa Tékkar lagt
til búnað í nokkur raforkuver og á
árunum 1971—1984 voru fluttar inn
frá Tékkóslóvakíu yfir 2.000 drátt-
arvélar eða um 36% af heildarinn-
flutningnum. Hæst yfir árshlutfallið
farið í 53%. Auk þess hafa fólksbílar
frá Tékkóslóvakíu selst vel á íslandi
og jafnvel komist í fyrsta sæti miðað
við fjölda innfluttra bíla eitt árið.
Á meðfylgjandi mynd eru eftirtaldir:
Sitjandi frá vinstri: Jaroslav Jakubec,
varautanríkisviðskiptaráðherra,
Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráð-
herra. Standandi frá vinstri: Stanislav
Veslý, deildarstjóri í utanríkisvið-
skiptaráðuneyti Tékkóslóvakíu, Pavel
Novicky, lögfræðingur í utanríkisvið-
skiptaráðuneyti Tékkóslóvakíu, Jar-
oslav Kares, deildarstjóri i innkaupa-
fyrirtækinu Koospol, Josef Keller,
skrifstofustjóri í utanríkisviðskipta-
ráðuneyti Tékkóslóvakíu, Josef Rajch-
art, sendifulltrúi í sendiráði Tékkóslóv-
akíu á Islandi, Theódór S. Halldórsson,
framkvæmdastjóri Sölustofnunar lag-
metis, Ólafur Jónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar SlS,
Helgi Gíslason, sendifulltrúi i
utanríkisráðuneytinu, Sveinn Björns-
laugardag frá kl. 13 til 17
Viö kynnum fjóra OPEL bíla á bílasýning-
unni i BÍLVANGSSALNUM á laugar-
daginn: OPEL KAPETT, sem valinn
hefur veriö sem bíll ársins 1985, OPEL
ASCONA, sem fullnægir flestum kröfum
bílaáhugamannsins, OPEL REKOWPk
bílinn sem sker sig hvarvetna úr, og OPEL
COWSA, smábílinn sem allir falla fyrir.
OPEL bílarnir eru samnefnari þess besta í
þýskri hönnun. Traustir og liprir í akstri og
einstaklega þægilegir fyrir ökumann og
farþega.
Þú kynnist þessum bílum á Opelsýning-
unni aö Höfðabakka 9. Ef þú átt góöan
notaöan bíl erum viö vísir til aö vilja kippa
honum upp í einn nýjan og spegilg|jáandi
OPEL, til aö auövelda þér viöskiptin.
Greiösluskilmálarnir hjá okkur eru líka
sveigjanlegri en gengur og gerist.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
Auglýsingaþjónustan