Morgunblaðið - 24.08.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
17
MorKunblaðið/J.S.
Fágæt en ánægjuleg sjón en hafnaraðstaóan mætti vera betri.
Blönduós:
Vaxandi útgerð
um nokkurra ára skeið varafor-
maður sóknarnefndar Hafnar-
fjarðarkirkju.
Hér að framan hefur verið
minnst á helstu atriði í lífshlaupi
Guðmundar og er þá fátt eitt talið
svo sem áhugi hans áýmsum þjóð-
þrifa- og menningarmálum, sem
hann hefur skrifað um á undan-
förnum árum og ber þar hæst
skrif hans og ábendingar um
krikjunnar mál.
Guðmundi er þannig farið að
honum finnst, að orð skuli standa
og að skilvísi og áreiðanleiki eigi
ekki að vera dyggð einstakra
manna, heldur sjálfsagður hluti af
persónu hvers og eins. Því er fyrir
mann, sem hefur lifað jafn miklar
þjóðfélagsbreytingar og hafið sig
upp úr fátækt með dugnaði og
elju, sárt að sjá, að það, sem mót-
aði uppeldi kynslóðar hans, skuli
ekki lengur vera sá ás, sem öxull-
inn veltur á, en við verðum að
vona að úr rætist og víst er, að
Guðmundur lítur til samferða-
manna sinna með sömu hlýju og
velvilja og einkennt hefur allt
hans starf.
Eiginkona Guðmundar er Elín
Einarsdóttir, ættuð úr Skagafirði.
Eiga þau fjórar dætur, þrjár bú-
settar í Hafnarfirði, og eina á Sel-
fossi. Hefur Elín verið Guðmundi
og dætrum sínum og fjölskyldum
þeirra sem sannkallaður hyrn-
ingarsteinn.
Guðmundur, megum við enn um
mörg ókomin ár njóta leiðsagnar
þinnar um lífsins torförnu slóðir.
Með kveðjum og hamingjuósk-
um með daginn.
Guðmundur verður að heiman í
dag.
Tengdasynir.
Blönduósi 20. ágÚNt.
ÞAÐ var heldur fágæt sjón sem
blasti vió þeim sem leið áttu um
bryggjuna á Blönduósi sl. þriðjudag.
Þrír úthafsrækjubátar lágu bundnir
við bryggjuna vegna brælu á miðun-
um.
1 venjulegum útgerðarbæ þykir
þetta ekkert tiltökumál. En á
Blönduósi þar sem atvinna íbú-
anna byggist að mestu leyti á
verslun og iðnaði og hafnaraðstað-
an ekki upp á það besta, þykja
slíkir atburðir tíðindum sæta.
Þetta atvik er talandi dæmi um þá
grósku sem er í útgerð á staðnum
og sem fer vaxandi. Útgerðarfyr-
irtækið Særún hf. hefur nýlega
tekið í notkun viðbótarhúsnæði
sem bætir alla aðstöðu við rækju-
og skelfiskvinnsluna. Rækjuveið-
arnar hafa gengið allsæmilega í
sumar og um síðustu helgi tók
Særún hf. á móti 20 tonnum af
úthafsrækju. J.S.
TUMBLEMOSS er sannkallað undraefni. Þaö ...
... eyðir mosa á stuttum tíma, án þess að skaða
annan gróður.
... hamlar vexti mosans svo mánuðum skiptir,
jafnvel í eitt ár.
Á haustin og vorin ber úðunin bestan árangur.
Úðun að hausti sparar þér vinnu að vori.
Láttu nú til skara skríða með TUMBLEMOSS.
TUMBLEMOSS mosaeyðirinn fæst á öllum bensín-
stöðvum ESSO. íslenskar leiðbeiningar.
(fsso) OlíufélagiÖ hf
Fyrsti maraþon*
hlauparinn flutti
góðar fréttir og
það gerum við líka:
Þeir sem koma
á undan Lesley
Watson í mark
í Reykjavíkur
maraþoni fá glas
af Gericompiex
að gjöf
Flestir þekkja söguna um fyrsta
maraþonhlaupið. Vegalengdin sem
hlaupin er enn í dag er sú sama og
sendiboðinn hljóp frá vígvellinum á
Maraþon til Aþenu.
Engin kona hefur náð eins
góðum árangri í langhlaupi og Lesley
Watson. Hún hefur gert Gericomplex
að órjúfanlegum þætti í þjálfun sinni.
Við í Heilsuhúsinu fylgjumst
spennt með árangri hennar í Reykja-
víkur maraþoninu, og tökum á móti
þeim fyrstu í mark með lítilli gjöf:
glasi af Gericomplex.
Éh
Eilsuhúsið
Skólavörðustig 1 Sími: 22966 101 Reykjavik.
Reykjavíkur maraþon sunnudaginn 25. ágúst 1984