Morgunblaðið - 24.08.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
21
Um 100.000 síkhar og hindúar voru við útíor Harchand Sing Langowal,
hins hófsama síkhaleiðtoga, á miðvikudag, en hann var myrtur á þriðju-
dag. Óþekktur hópur öfgamanna úr röðum síkha hefur lýst yfir ábyrgð
sinni á morðinu.
Punjab á Indlandi:
Kosningunum
ekki frestað
Nýju Delhi, 23. ágúst. AP.
FOSÆTISRÁÐHERRA Indlands, Rajiv Gandhí, sagði í dag að kosning-
um í Punjab yrði ekki aflýst þrátt fyrir þau hryðjuverk, sem framin hafa
verið í fylkinu í vikunni.
„Kosningarnar eru svar fólks-
ins við hryðjuverkum," sagði
Gandhí í ræðu í indverska þing-
inu í dag. Kosningunum verður
þó seinkað um þrjá daga, og fara
fram 25. september í stað 22. eins
og áformað var í upphafi.
Flokkar stjórnarandstöðunnar
í landinu hafa deilt á stjórnina
fyrir að láta kosningarnar fara’
fram í september, þar sem það
kynni að hafa í för með sér að
hryðjuverk færðust frekar í vöxt í
Punjab.
Eftir að hinn hófsami leiðtogi
shíka, Harchand Singh Longow-
al, var myrtur sl. laugardag hefur
mikil reiði ríkt í Punjab, og óttast
margir að ástandið eigi að versna
þar á næstu dögum eða vikum.
Indverska stjórnin viðurkenndi
í dag að öryggisgæslu hefði verið
ábótavant þegar Longowal var
myrtur sl. þriðjudag. Morðið var
framið aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að shíkar höfðu
ráðið af dögum einn leiðtoga
Kongressflokks Gandhís í Punj-
ab.
Fellibylur veld-
ur tjóni á Taiwan
Taipei, Taiwan, 23. if(Ú8t. Al'.
FKLLIBYLURINN Nelson fór um
norðurhluta Taiwan í dag og mæld-
ist vindhraðinn um 170 km á
klukkustund. Ein kona slasaðist, en
umferð um alla helstu flugvelli og
járnbrautir stöðvaðist á meðan byl-
urinn gekk yfir, að sögn yfirvalda.
Athafnalíf lagðist niður í bæði
Taipei og borginni Chilung á með-
an bylurinn færðist norður yfir
landið, í átt að héraðinu Fukien í
suðurhluta Kína.
Konan sem slasaðist, skarst
þegar glerbrotum rigndi yfir hana
á heimili hennar í Chilung. Miklar
rigningar fylgdu í kjölfar felli-
bylsins og mældist úrkoman rúm-
lega 470 millimetrar á sólarhring.
Union Carbide:
Galli á öryggis-
búnaði olli slysinu
N estur V irginía, Kandaríkjunum, 23. ájpÍHt. Al*.
TAI.SMADIIR Union Uarbide í
Bandaríkjunum sagði í dag að galli á
öryggisbúnaði og mannleg mistök
hcfðu valdið því að gas lak úr einni
verksmiðju fyrirtækisins í smábæn-
um Institute í Vestur-Virginíu II. ág-
úst sl.
í tilkynningu fyrirtækisins seg-
ir að eiturskýið sem myndaðist við
gaslekann, hafi haft að geyma ým-
is hættuleg efni, eins og metýl-
klóríð.
Um 135 manns þurftu að fara á
sjúkrahús vegna ýmissa kvilla af
völdum gaslekans.
Flugumferðarstjórarnir eftir slysið í Texas:
„Gátum ekkert gert til að
koma í veg fyrir slysið4<
Fort Worth, Texas, 23. ánúsL Al*.
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR sem voru á vakt þegar flugvél DelU-nugfé-
lagsins fórst utan við flugvöllinn í Dallas 2. ágúst sl., sögðu í skýrslu sem
kom út í dag, að þeir hefðu á engan hátt getað komið í veg fyrir slysið. Um
borð í flugvélinni voru 163 og fórust 133 þeirra, ásamt ökumanni bifreiðar
sem flugvélin skall á.
Flugumferðarstjórarnir höfðu
ekki áður gefið yfirlýsingar um
slysið, en í skýrslunni kom fram
að þeir hefðu ekki haft hugmynd
um hve slæmt veðrið hefði verið,
fyrr en vindhraðinn mældist 160
km á klukkustund við flugturninn,
nokkrum mínútum eftir að þot-
unni hlekktist á.
„Þegar ég fór heim þetta kvöld,
fannst mér sem ég hefði ekki á
nokkurn hátt getað gert nokkuð-
sem hefði getað komið í veg fyrir
slysið,“ sagði annar flugumferða-
stjóranna, sem leiðbeindi flug-
stjórum þotunnar þar til sex mín-
útum áður en hún fórst.
„Ég held ekki að við höfum
haldið eftir nokkrum upplýsingum
sem hefðu getað breytt ákvörðun
flugstjórans sem flaug inn í rign-
inguna," sagði hann. Tveir þriggja
flugumferðarstjóranna sem leið-
beindu þotunni þennan örlagaríka
dag ræddu við fréttamenn The
Fort Worth Star-Telegram með
því skilyrði að nöfnum þeirra yrði
haldið leyndum.
„Mér fannst ég algerlega hjálp-
arvana," sagði hinn flugumferðar-
stjórinn, sem gaf þotunni leyfi til
að lenda, en skipaði flugstjóranum
á síðustu mínútu að hætta við
lendingu og fara hring um svæðið
vegna óveðursins.
„Maður stendur þarna og horfir
á flugvél farast og maður veit að
þarna er fólk að deyja. Maður hef-
ur ekki hugmynd um hve margir
.. það er ekkert sem maður getur
gert til að bjarga þeim. Akkúrat
ekki neitt,“ sagði flugumferðar-
stjórinn.
Enn er ekki alveg ljóst hvað olli
slysinu, en helst telja menn að
Hinir tveir miðarnir voru
keyptir í New York-borg og Alb-
any, höfuðborg New York-ríkis, en
forráðamenn happdrættisins vildu
ekki gefa upp nöfn vinningshaf-
anna.
Hver vinningur hljóðaði því upp
á 13.666.667 dali og verða þeir
borgaðir út með 21 jafnri mánað-
arlegri greiðslu upp á 650.793 dali
hver, en það þýðir að hver hinna
heppnu verkamanna'fær að jafn-
aði um 24.000 dali útborgaða í
hverjum mánuði eftir að skattur-
inn hefur innheimt sitt.
Verkamennirnir vinna í verk-
sterk vindhviða, sem kom úr
óvæntri átt og með miklum hraða,
hafi átt sökina á hvernig fór. Þeg-
ar flugumferðarstjórinn kallaði til
flugstjórans um að hætta við lend-
ingu hafði vélin þegar rekist niður
á akur, norðan við flugbrautina,
reisti sig við, en skall loks á bif-
reið á hraðbraut við flugvöllinn.
Ökumaður bifreiðarinnar lét lífið
ásamt hinum 133 sem í vélinni
voru. Þrjátíu manns lifðu af.
flugslysið í Texas.
smiðju sem framleiðir prentvélar
og sagði talsmaður þeirra, Peter
Lee, að þeir hefðu ákveðið að setja
einn dollar í pott hver til að festa
kaup á happdrættismiðanum og
skyldu deila með sér vinningnum,
hver sem hann yrði.
Stærsti happdrættisvinningur í
Bandaríkjunum til þessa kom upp
í Illinois-ríki í fyrra, en verðmæti
hans var um 40 milljónir dala.
Stærsti happdrættisvinningur
sem sögur fara af var dreginn í
happdrætti á Spáni í fyrra, en þá
deildu þúsundir vinningshafa með
sér um 73,5 milljónum dala.
Hár vinningur í
Bandaríkjunum
New York, 23. áRÚst AP.
ST/ERNTI happdrættisvinningur sem dregió hefur verið um í Bandaríkjun-
um kom upp á þrjá miða, en heildarverðmæti vinningsins er 41 milljón dala,
sem svarar um 1,681 milljarði íslenskra króna. Einn vinningsmiðanna var í
eigu hóps verkamanna, sem kallaði sig „21 heppinn maður“.
Verð frá kr.
</)
•3
Q)
■<0
c
<D
O
Viðtökum notaða bílinn þinn upp
í þann nýja og greiðsluskilmálar
eru sérlega hagstæðir!
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300