Morgunblaðið - 24.08.1985, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
í
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir KARL BLÖNDAL
Rainbow Warrior veldur
Mitterrand erfíðleikum,
HÁTTSETTIR ráögjafar Frakklandsforseta og yfirmadur Frönsku leyni-
þjónustunnar (DGSE) eru taldir hafa veitt leyfi til þess að gripið yrði til
aðgerða gegn skipi Grænfriðunga, „Kainbow Warrior". Francois Mitter-
rand á nú í fyrsta hneykslismáli forsetaferils síns og er þegar farið að tala
um stjórnarkreppu.
Dæmdur fyrir nauðgun:
Sat saklaus í
fangelsi í 9 ár
Fékk 275.000 dollara bætur
Vancouver, kanada, 23. ágúst. Al*.
MAÐUR, sem sat í fangelsi í tæp níu ár fyrir nauðgun, sem
hann framdi ekki, hefur fallist á að þiggja 275.000 dollara
(um 11 millj. ísl. kr.) miskabætur frá stjórnvöldum.
Málgagn franska kommún-
istaflokksins skellti skuld-
inni á CIA. Hægri biaðið Valeurs
actuelles sagði að sökin lægi hjá
KGB. Og ríkisrekna útvarpsstöðin
France-Inter sagði að breska
leyniþjónustan stæði bak við
sprengjutilræðið til að koma óorði
á Frakka.
Franska leyniþjónust-
an bendluð viö málið
En blaðamenn tímaritsins
L’Express leituðu fanga heima-
fyrir og fundu út að hér hefði
franska leyniþjónustan víst verið
að verki.
Það væri enginn vafi á því að
útsendarar leyniþjónustunnar
hefðu komið fyrir sprengjum und-
ir kili flaggskips umhverfisvernd-
arsamtakanna Greenpeace, Rain-
bow Warrior, í hafnarborginni
Auckland á Nýja-Sjálandi 10. júlí,
sökkt skipinu og verið valdir að
dauða ljósmyndara um borð.
Charies Hernu, varnarmáiaráð-
herra Frakklands, fullvissaði al-
menning um að hann væri með
hreinan skjöid, sem ýmsum þótti
skjóta skökku við, því að franska
leyniþjónustan heyrir undir emb-
ætti varnarmálaráðherra.
Skömmu eftir tilræðið handtók
iögreglan í Auckland karl og konu
sem gáfu upp dulnefnin Sophie-
Claire og Alaine Jaques Turenge
og framvísuðu fölsuðum svissn-
eskum vegabréfum. Öll rök hnigu
að því að þau væru tengd frönsku
leyniþjónustunni og hefur lög-
reglan í Auckland nú tilkynnt að
konan heiti Dominique Prieur,
höfuðsmaður í franska hemum,
en í fjölmiðlum hefur verið haldið
fram að karlmaðurinn sé major
við kafaraskóla franska hersins á
Korsíku. Þau verða dregin fyrir
dómstóla ákærð fyrir morð og
hefur David Lange forsætisráð-
herra Nýja-Sjálands hótað að
stefna Frökkum ef aðild frönsku
leyniþjónustunnar að málinu
sannast.
Gefin hefur verið út alþjóðleg
handtökuskipun á hendur þriggja
manna áhafnar snekkju sem sást
í höfn Auckland. Þeir eru grunað-
ir um að vera meðsekir tvímenn-
ingunum.
Einnig er leitað að konu sem
kallar sig Frederique Bonlieu, en
L’Express og fréttastofan
France-Presse hafur borið kennsl
á sem Christine Huguett Cabon,
liðþjálfa. Hún starfaði fyrir
Greenpeace-samtökin á Nýja-
Sjálandi í vor, en yfirgaf samtök-
in áður en Rainbow Warrior var
sökkt. Samkvæmt leka úr frönsku
leyniþjónustunni átti hún að hafa
eftirlit og fylgjast með aðgerðum
Greenpeace.
Varnarmálaráðherra átti í upp-
hafi auðvelt með að vísa ýkju-
kenndum frásögnum franskra
blaða um að kafbátur hefði flutt
tilræðismennina að skotmarkinu
og fleiru í þeim dúr á bug sem
heilaspuna og tilbúningi. En um-
fang málsins er nú slíkt að óhætt
er að tala um stjórnarkreppu.
í franska vikublaðinu VSD var
staðhæft að Jean Louis Bianco,
aðalritari Elysée hallar, og Jean
Saulnier, forseti franska herráðs-
ins, hefðu vitað af sprengjutil-
ræðinu og jafnvel lagt blessun
sína yfir það. Bianco er einn helsti
ráðgjafi Mitterrand og Saulnier
var ráðgjafi hans í hernaðarmái-
um fram í júní.
En hvers vegna hefðu þeir átt
að grípa til svo róttækra aðgerða?
Frakkar ætla að sprengja nevtr-
ónusprengju við Mururoa kóral-
eyjuna í september. Rainbow
Warrior átti að sigla í fararbroddi
lítilla einkabáta inn í hættusvæð-
ið umhverfis eyna í mótmæla-
skyni. En það er tæplega næg
ástæða til að sökkva skipinu.
Daily Telegraph leiðir að því get-
um að geislavirkni á tilrauna-
svæðinu sé meiri en leyfilegt er og
franska leyniþjónustan hefði ekki
viljað að Grænfriðungar gætu
sýnt fram á það með mælingum.
Hægri blaðið L’Express heldur
fram að yfirmaður frönsku leyni-
þjónustunnar, Pierre Lacoste,
hafi sjálfur gefið munnlega skip-
un um að sökkva Rainbow Warr-
ior eftir að hafa fengið grænt ljós
hjá Charles Hernu og hermála-
ráðgjöfum forsetans.
Hneyksli engin ný bóla
Hneykslismál eru engin ný bóla
í Frakklandi. Charles de Gaulle
hafði ekki fyrr lýst því yfir að
hann léti sendiráðsmenn sjá um
utanríkispólitíkina, en ekki
ábyrgðarlausar leyniþjónustur,
þegar njósnarar rændu stjórn-
málamanninum Ben Barka frá
Marokkó. Það mál var aldrei upp-
lýst.
Giscard d’Estaing sagði að það
væri fyrir neðan virðingu forseta
að svara ásökunum blaða um að
hann hefði þegið demanta frá
Jean-Bedel Bokassa. Skömmu
fyrir síðustu forsetakosningar
varð hann að viðurkenna að hafa
þegið demantana og laut í lægra
haldi fyrir Mitterrand.
Mitterrand var sakaður um að
hafa sviðsett tilræði við sjálfan
sig 1959. Það mál féll í gleymsku á
ferli hans sem leiðtogi Sósíalista-
flokksins og forseta Frakklands.
Verður Rainbow Warr-
ior sósíalistum að falli?
En nú er sósíalistinn Mitter-
rand, forsvari lítilmagnans,
ábyrgur fyrir ríkisstjórn sem, ef
að líkum lætur, ryður friðar- og
umhverfisverndarsinnum úr vegi
með aðstoð njósnara og sprengja.
Hernu hefur árum saman verið
personulegur vinur Mitterrand.
Hann hefur nú þurft að aflýsa
tveimur utanlandsferðum vegna
þess að Mitterrand ætlar að ræða
við hann um „leynileg ríkismál-
efni“ (L’Express).
Gaulistinn Bernard Tricot, yfir-
dómari, hefur verið skipaður til
að rannsaka umrædd „ríkismál-
efni“ af Fabiusi forsætisráðherra.
Hernu hefur þrisvar mætt til yf-
irheyrslu hjá dómaranum og hef-
ur varnarmálaráðherrann lýst því
yfir að samviska sín sé hrein.
Tricot átti að skila niðurstöðum
sinum til Mitterrand í gær og hef-
ur forsetinn lýst því yfir að þær
verði gerðar opinberar.
Finni Tricot órækar sannanir
fyrir því að Hernu beri ábyrgð á
hermdarverkinu gæti það haft al-
varlegar afleiðingar fyrir sósíal-
istaflokkinn í þingkosningunum
næsta vor.
Fyrr í þessum mánuði hafnaði
maðurinn, sem heitir Norman
Fox, boði yfirvalda og kvaðst
mundu sækja lögregluna til saka
fyrir málshöfðun að ófyrirsynju
og vanrækslu. Miskabæturnar,
sem hann hefur nú ákveðið að
taka við, koma í veg fyrir, að af
málsókn hans gegn lögreglunni
geti orðið.
Fox hafði áður verið ákærður
Lundúnum, 23. ágÚNt. AP.
UM 11 þúsund lestarverðir í Bret-
landi greiða atkvæði um það á
morgun hvort þeir fari í verkfall til
að mótmæla þeim áformum stjórn-
arinnar um að taka í notkun nýjar
tegundir lesta. Atkvæðin verða tal-
in á miðvikudag í næstu viku.
Talsmaður verkalýðssam-
bands járnbrautarstarfsmanna,
sem um 143 þúsund félagar eru í,
sagði að hann byggist við því að
lestarverðirnir mundu sam-
þykkja með yfirgnæfandi meiri-
Panmunjom, Kóreu, 23. ágúst. AP.
SUÐUR-og Norður-Kórea komust
í gær að samkomulagi, sem heim-
ilar gagnkvæmar heimsóknir al-
mennra borgara, og er þetta í
fyrsta sinn frá því að landinu var
skipt 1945, sem slíkt samkomulag
næst.
Embættismenn suður-kóreska
Rauða krossins sögðu, að sam-
komulagið kvæði á um heimildir
Utanríkisráðherra Kanada, Joe
Clark, skýrði frá ákvörðun stjórn-
arinnar í gær, en sagði að þess í
stað íhugaði stjórnin nú ýmsa
aðra möguleika á að auka umsvif
Kanadamanna á heimskautssvæð-
inu, þ.m.t. hernaðarleg umsvif.
Deilurnar á milli þjóðanna hóf-
ust í sumar, þegar bandarískur ís-
brjótur, Polar Sea, fór um norð-
vesturleiðina, án þess að sækja um
leyfi frá stjórnvöldum í Ottawa.
Forsætisráðherra Kanada, Bri-
an Mulroney, hefur verið mikið
gagnrýndur fyrir að mótmæla
fyrir nauðgun og var dæmdur til
lífstíðarfangelsisvistar árið
1960. Hann var látinn laus 1972.
Fjórum árum seinna var hann
öðru sinni ákærður fyrir nauðg:
un og dæmdur í 10 ára fangelsi. I
októbermánuði sl. náðuðu
stjórnvöld hann, eftir að sönn-
unargögn, sem notuð voru gegn
honum í réttarhöldunum, höfðu
verið endurskoðuð.
hluta tillögu, sem veitir stjórn
verkalýðssambandsins umboð til
að grípa til aðgerða. Ef tillagan
verður samþykkt er gert ráð
fyrir því að stjórnin muni ann-
aðhvort boða til verkfalls lest-
arvarða eða banna þeim að
vinna yfirvinnu.
Ríkisstjórn Margrétar
Thatchers sagði 247 lestarvörð-
um upp störfum í síðustu vegna
þess að þeir lögðu niður vinnu til
að mótmæla áætlunum stjórnar-
innar.
til heimsókna til höfuðborga
ríkjanna, Seoul og Pyongyang,
frá 20. 23. september.
Enn fremur sögðu þeir, að
skipst hefði verið á staðfesting-
arskjölum varðandi samkomu-
lagið, en það tókst eftir þrjá
vinnufundi Rauða kross-emb-
ættismanna frá ríkjunum báð-
um í landamærabænum Pan-
munjom.
ekki siglingu ísbrjótsins harkaleg-
ar og komu þá upp hugmyndir um
að láta alþjóðadómstólinn í Haag
skera úr um málið.
Clark vildi ekki útiloka þann
möguleika, en sagði að aðrar leiðir
væru einnig í athugun, en vildi
ekki farar nánar út í þá sálma.
Rætt hefur verið um að smíða
stóran ísbrjót, sem siglt gæti um
leiðina allan ársins hring.
Bandaríkjamenn halda því fram
að norðvesturleiðin sé alþjóða-
hafsvæði og ekki þurfi leyfi Kan-
adamanna til að fara þar um.
Mitterrand ásamt góðviai sfnum, Charles Hermu: „Samviska mín er
hrein,“ segir vamarmálaráðherrann
Rainbow Warrior marar í hálfu kafi eftir sprenginguna.
Bretland:
Fara lestarverð-
ir í verkfali?
Suður- og Norður-Kórea:
Samkomulag um heim-
sóknir almennra borgara
Deilan um Norðvesturleiðina:
Kanadamenn leita ekki
til alþjóðadómstólsins
Vancouver, Bresku-Kolumbíu, 23. ágúst. AP.
KANADASTJÓRN hefur ákveðið að falla frá þeirri hugmynd
aö biðja alþjóðadómstólinn um að kveða upp úrskurð í deilu
Kanadamanna og Bandaríkjamanna um yfírráðarétt yfir
norðvesturleiðinni svonefndu, sem er nyrsta leiðin milli Atl-
antshafsins og Kyrrahafsins.