Morgunblaðið - 24.08.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985
47
• Said Aouita frá Marokkó setti
heimsmet í 1500 m hlaupi í Berlín
í gærkvöldi.
Heimsmet í
1500 m hlaupi
SAID AOUITA frá Marokkó setti í
gærkvöldi sitt annaó heimsmset
á mánaóar tímabili er hann hljóp
1500 metrana á Grand Prix-mót-
inu í Berlín á nýju heimsmeti,
3:29,45 mín. Aouita setti sem
kunnugt er heimsmet í 5000
metra hlaupi á Bislett-leikvangin-
um í Osló fyrir mánuði.
Aouita bætti heimsmet Steve
Cram um 22 hundruöustu úr sek-
úndu sem var 3:29,67 mín. og sett
í Nice í Frakklandi 16. júlí sl. Annar
í hlaupinu varö Bandaríkjamaður-
inn Sydney Maree á 3:32,90 mín.
Þess skal getiö aö Steve Cram var
ekki meö í þessu hlaupi.
Ekki voru önnur afrek á heims-
mælikvaröa unnin á þessu frjáls-
íþróttamóti í Berlin. Einar Vil-
hjálmsson var ekki einn af sex
efstu í spjótkastinu samkvæmt
fréttaskeytum frá AP.
Reykjavíkurmaraþon:
500 þátttakendur?
— hlaupið hefst á morgun, sunnudag, kl. 10.00
Á morgun, sunnnudag, hefst
hið alþjóðlega Reykjavíkurmara-
þon sem nú er haldið í annað
sinn. Er blaðamaöur Morgun-
blaðsins hafði samband viö
Ferðaskrifstofu Úrvals seinni
partinn í gær á síöasta degi
skráningar, var allt á fullu og
hafði starfsfólkiö varla undan að
taka á móti þátttökutilkynning-
um.
„Ég hef bara aldrei séö annað
eins, hér er allt á fullu, nú þegar
hafa um 400 látið skrá sig í hlaupiö
og kæmi mér ekki á óvart þó fjöld-
inn færi upp i 500,“ sagöi ein
starfsstúlka ferðaskrifstofunnar
um kl. 16.00 í gær.
Þetta veröur örugglega fjöl-
mennasta götuhlaup sem hefur
nokkru sinni farið fram hór á landi.
Hlaupiö hefst kl. 10.00 á sunnu-
dagsmorgun í Lækjargötu. Keppt
veröur í þremur vegalengdum:
maraþoniö sjálft sem er 42,195
km, hálfmaraþoni sem er 21 km og
svo skemmtiskokkiö sem er 7 km.
Reiknaö er meö aö langflestir taki
þátt í skemmtiskokkinu sem er
innan vesturbæjar Reykjavíkur.
Allir geta tekiö þátt í skemmti-
skokkinu sem eru eldri en 6 ára.
Allir sem ijúka hlaupinu fá verö-
launapening frá Morgunblaöinu.
Rás 2 mun veita yngsta og elsta
þátttakandanum sérstök verðlaun
í beinni útsendingu í Efstaleitinu.
Þeir sem hafa veg og vanda af
hlaupinu eru Feröaskrifstofan Úr-
val, Flugleiöir, Reykjavíkurborg og
Frjálsíþróttasamband íslands.
Verndari hlaupsins er Davíö
Oddsson, borgarstjóri.
Þaö er Ijóst aö keppendur veröa
á öllum aldri, jafnt börn sem
kvenmenn og karlmenn. Hlaupið
hefst stundvíslega kl. 10.00 í Lækj-
argötu en keppendur eru beönir
aö mæta klukkustundu fyrr.
Drykkjarstöðvar veröa á 5 km
fresti. Þar verður boðiö upp á vatn
og sérlagaða íþróttadrykki. Læknir
og hjúkrunarliö veröur til reiöu á
meöan á hlaupinu stendur og
veröur einnig til aöstoöar er hlaup-
arar koma i mark.
Hlaupaleiöin:
Hlaupnir eru tveir hringir. Hálf-
marþoniö er þó einungis einn
hringur. í skemmtiskokkinu er aö-
eins hlaupinn fyrsti hluti hringsins.
Hlaupiö hefst á Fríkirkjuvegi móts
viö Frikirkjuna. Hlaupiö er meö-
fram Tjörninni, yfir Tjarnarbrúna,
út Suöurgötu og farinn hringur um
Vesturbæinn. Leiöin liggur siöan til
austurs um gatnamót Elliöavogs
og Suöurlandsbrautar og þá beygt
aftur til hægri inn Langholtsveg.
Hlaupið er Langholtsveg inn aö
Laugarnesvegi þar sem beygt er til
vinstri. Laugarnesvegur er hlaup-
inn inn aö Sundlaugarvegi þar sem
beygt er til vinstri og Sundlaugar-
vegur hlaupinn inn aö Kringlumýr-
arbraut. Síöan liggur leiöin upp
Kringlumýrarbraut og þaöan niöur
Miklubraut og Hringbraut. Þeir
sem hlaupa einungis hálf-mara-
þoniö Ijúka hlaupinu viö endamark
í Lækjargötu en maraþonhlaupar-
arnir hlaupa annan hring. i
skemmtiskokkinu er farin sama
leiö og i upphafi en eftir aö komiö
er út Tryggvagötu er beygt til
hægri inn aö Lækjargötu. Hlaupiö
er allt á malbikuöum götum.
Merkingar veröa á 5 km fresti og’*
einnig eftir 10 og 20 mílur
Island — Færeyjar 1—0
ÍSLENDINGAR sigruðu Færey-
inga 1—0 í knattspyrnulandsleik
liða sem skipuð eru leikmönnum
yngri en 18 ára, í Þórshöfn í
gærkvöldi. Sigurmarkið kom á
síðustu mínútu leiksins. Páll Guð-
mundsson skoraði þá með viö-
stöðulausu þrumuskoti eftir fyrir-
gjöf frá Ólafi Kristjánssyni.
„Þaö er ekki lengur létt aö koma
hingaö til Færeyja til aö leika
landsleik í knattspyrnu. Viö áttum í
erfiðleikum meö aö vinna þá og
gat leikurinn alveg eins endaö meö
jafntefli. Viö vorum sterkari í fyrri
hálfleik en þeir aftur í seinni,“
sagöi Lárus Loftsson, þjálfari eftir
leikinn i gærkvöldi.
Bestir í liöi ísiands voru Einar
Páll Tómasson, Eiríkur Þorvarö-
arson markvöröur og Þórhallur
Vikingsson.
Heimir þjálfar Reyni
HEIMIR Karlsson knattspyrnu-
maður og handknattleíksmaöur
hefur verið ráöinn handknatt-
leiksþjálfari hjá Reyni Sandgeröi
á komandi keppnistímabili.
Reynir sem leikur í 3. deild hefur
gengiö frá ráöningu Heimis og
mun hann einnig leika meö liöinu.
Heimir lék meö handknattleiksliöi
Víkings áöur en hann hélt út í at-
vinnumennskuna í knattspyrnu í
Hollandi, þar sem hann iék aöeins
eitt keppnistímabil.
Sandgerðingar stóöu í viöræö-
um við Eyjólf Bragason úr Stjörn-
unni en ekkert varð úr þvi. Heimir
lék meö Víkingum undir stjórn
Bogdans landsliösþjálfara og kem-
ur þaöan eflaust reynslunni rikari
hvaö þjálfun varöar.
EVRÓPUFRUMSÝNING í TÓNABfÓ
„FRÁBÆR ... SPENNANDI ... ÓGNVEKJANDI ...
NÝ AMERÍSK SAKAMÁLAMYND“
„Lík frú Vincent og barnanna fundust i dag í fjölskylduherberginu í kjallara
hússins. Læknir lögreglunnar áætlar að þau hafi verið látin i a.m.k. 3 daga.
Loftkælitækið var í gangi, augljóslega til að hægja á rotnun líkanna. Enn er ekki
vitað hvar Edward Vincent er niðurkominn."
Opinber yfirlýsing frá Joe Steiner, lögregluforingja.
7 árum seinna ...
Alda fólskulegra líkamsárása í kynferðislegum tilgangi gengur nú yfir borgina.
Sama atburðarás og áður endaði með fjöldamorði er nú að koma í Ijós.
RICHARD WIDMARK
KEITH CARRADINE
KATHLEEN QUINLAN
MICHAEL BECK
-f. -^^00
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ísl. texti.