Morgunblaðið - 24.08.1985, Side 48

Morgunblaðið - 24.08.1985, Side 48
or^imWaítiít ETTT KORT ALLS STADAR LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. Mættust KVKDJA þurfti lögregluna á vett- vang til aö leysa úr ágreiningi tveggja vörubílstjóra sem mættust í austurhlióinu í Sundahorg skömmu eftir hádegi í gær, og neituóu báðir í hliðinu og hvorugur vildi víkja að víkja. Stóó í stappi milli þeirra í rúman hálftíma þegar hliövöróur ákvaó að kalla á lögregluna til aö tala um fyrir mönnunum. Að sögn sjónarvotts tóku lög- reglumennirnir af yfirvegun á málinu, og tókst þeim um síðir að telja bílstjórana á að sá þeirra sem fjær væri hliðinu skyldi víkja. Var fjarðlægðin mæld svo ótvíræð niðurstaða fengist og bakkaði þá sá sem fjær var. Höfðu vörubíl- arnir þá tafið umferð um hliðið í a.m.k. klukkutíma. vegna verkfalls opinberra starfs- manna. Reiknað er með að fram- kvæmdir muni hefjast í byrjun febrúar og standa í fjóra mánuði. Arkitektinn sem teiknaði Kjar- valsstaði, er mótfallinn því að loft- inu sé breytt og hefur opinberlega lýst því yfir að hann muni nota öll tiltæk lögleg ráð til að vernda hug- verk sitt að sögn Einars. Lifði af 34 þús- und volta straum „ÞAÐ SKILUR enginn hvernig ég fór að því að lifa þetta af. Menn tala um kraftaverk, en sjálfur hef ég enga skýr- ingu,“ segir Aðalgeir Gíslason, tvítugur Húsvíkingur, sem fékk í sig 34 þúsund voita straum úr háspennuvír, m.a. í viðtali við blaðamann Morgunblaösins, sem birtist á síðu 4 í dag. Slysið varð þann 8. júlí sl. þegar Aðalgeir var að störfum við Laxárvirkjun. Hann er nú nýútskrifaður af Landspítalan- um, þar sem hann þurfti að gangast undir margar erfiðar aðgerðir. Hann hlaut mikinn og hættulegan bruna og var vart hugað líf fyrstu sólarhringana, m.a. sökum gífurlegs vökvataps, sem fylgir slíku áfalli. Ekki er vitað til þess að maður hafi áð- ur lifað það að fá svo mikinn rafstraum og má til saman- burðar nefna að straumur, sem fólk getur fengið úr venjulegri heimilisinnstungu er 220 volt. Morgunblaðiö/Albert Arnarson Aðalgeir Gíslason og unnusta hans, Bryndís Sigurðardóttir. „Hún sat hjá mér allan þennan tíma og var minn styrki stafur,“ segir Aðalgeir m.a. í viðtali við Morgunblaðið. Sjúkrahúsin á Akureyri og f Kristnesi: Mikill munur á laun- um hjúkrunarfólks — Ekki hægt að ætlast til að fólk geti unað við þetta misrétti segir framkvæmdastjóri Kristnesspítala Morjfunbladid/Björn Guömundsson Nóg að bíta og brenna l»eir hafa það greinilega gott klárarnir á Snæfellsnesinu. I>essi hross stóðu í kafagrasi, allt upp í kvið, og ættu því að hafa nóg að bíta og brenna. Þessi hestur var sá eini í hópn- um sem gaf sér tíma til að líta upp þegar Ijósmyndarinn smellti af. Síðan hélt hann áfram að úða í sig grasinu, eins og ekkert hefði í skorist. LAUN sjúkraliða á Fjóröungssjúkra- húsinu á Akureyri (FSA) eru 14—17% hærri en laun sjúkraliða á Kristnesspítala í Eyjafirði. Hjúkrun- arfræðingar fá 3% hærri laun hjá FSA en í Kristnesi og munurinn á launum Ijósmæðra er 11 —15%. Hafa sjúkraliðar við hjúkrun aldr- aðra á Akureyri svipuð laun og hjúkrunarfræðingar í Kristnesi, og í einum starfsaldursflokknum, eftir 6 ára starf, hafa sjúkraliðar hærri laun á Akureyri en hjúkrunarfræðingar í Kristnesi. Bjarni Arthúrsson, fram- kvæmdastjóri Kristnesspítala, sagði að ástæða þessa launamunar væri sú að þrátt fyrir að bæði þessi sjúkrahús þæðu rekstrarfé sitt af fjárlögunum, kæmist Akur- eyrarbær upp með að semja fyrir sjúkrahúsið á Akureyri um hærri laun við starfsmannafélögin en fjármálaráðherra gerði fyrir rík- isspítalana. Bjarni sagði að þetta misræmi væri svo hrikalegt að hann hefði líkt því við aðskilnaðarstefnu og ekki hægt að ætlast til að fólkið gæti unað við þetta misrétti. Enda væri mikil óánægja meðal starfs- fólksins og nokkrir sjúkraliðar hefðu þegar sagt upp störfum. Ef Kristnesspítali fengi ekki nú þeg- ar að greiða sömu laun og FSA myndu sjúkraliðarnir hverfa í stórum stíl frá sjúkrahúsinu. Flestir sjúkraliðarnir væru bú- Sjónvarpið: Lengri dagskrá - aukið barnaefni ÚTVARPSRÁÐ hefur gengið frá vetrardagskrá sjónvarps- ins. Helsta breytingin verður sú að dagskráin mun hefjast kl. 19.00 alla daga og verður barnaefni sjónvarpað til klukkan 19.50. Að sögn Ingu Jónu Þórð- ardóttur formanns Ut- varpsráðs verður nú unnið að því að auka til muna efni fyrir börn í sjónvarpinu. Sigríður Ragna Sigurðar- dóttir hefur verið ráðin um- sjónarmaður barnaefnis hjá sjónvarpinu. settir á Akureyri og væri þeim ek- ið til og frá vöktum fram hjá sjúkrahúsinu á Akureyri, þar sem mun hærri laun væru greidd fyrir sömu vinnu. Bjarni sagði að til viðbótar þessu launamisrétti kæmi það að miklu meira vinnuálag væri á Kristnesspítala en á FSA. í Kristnesi væru 2,47 sjúklingar á bak við hvern starfsmann við hjúkrunarstörf en víðast hvar á hliðstæðum deildum væru 1,1—1,5 sjúklingar á bak við hvern hjúkr- unarstarfsmann. Þá væru starf- andi iðjuþjálfar, sjúkraþjálfar, fé- lagsráðgjafar og fleiri starfsmenn annars staðar á öldrunardeildum en ekki á Kristnesspítala. Fornleifafundurinn á Dagverðamesi: Aldurs- greiningin stenst ekki „ÞAÐ ER Ijóst að rústirnar eru ekki nærri eins gamlar og við töldum í fyrstu," sagði Þorvaldur Friðriksson í samtali við Morgunblaðið í gær. Þor- valdur vann að uppgreftri í Dagverð- arnesi í sumar og sendi þá til ald- ursgreiningar í Noregi birkikol úr eldstæði sem þarna fannst. Svonefnd (VI4 aðferð var notuð við greininguna og voru niðurstöður hennar túlkaðar á þann veg að líklega væri þarna um aö ræða rústir frá því um 680. Fleiri sýni voru síðar send til Þrándheims og er nú verið að rannsaka þau. Nú þegar þykir þó Ijóst að þær rannsóknir hrekja fyrri hugmyndir um aldur rúst- anna. „Þó að þar með sé ekkert sem bendi til að menn hafi búið hér fyrir 874 kastar þetta engri rýrð á fornleifarnar sem slíkar. Þær styðja enn sem fyrr þá kenningu að á þessu svæði hafi verið mjög öflug keltnesk menningaráhrif. Menn hafa löngum viljað skýra það hversvegna víkingagrafir eru svo miklu færri þarna en annars staðar á landinu á þann veg, að vegagerð hafi verið þar með öðrum hætti og uppblástur nánast enginn, en það er vitleysa. Húsarústirnar sem fundust og steinarnir eru skýr dæmi um keltnesk áhrif." Enn eru ekki komnar endanlegar niðurstöður um aldur fornminj- anna, en þeirra er að vænta snemma í september. Skýrslugerð er ekki lokið heldur. „Það eru því alls ekki öll kurl komin til grafar enn og ég vil taka það fram að aldur rústanna er í sjálfu sér ekki það sem mestu máli skiptir. Þó vil ég biðja þá sem hafa sýnt þessum rannsóknum áhuga og velvilja af- sökunar á að túlkunin á niðurstöð- um fyrri aldursgreiningar skuli hafa reynst röng,“ sagði Þorvaldur að lokum. Umboðsmaður Picasso-sýningarinnar: Loftið á Kjarvals- stöðum verði falið UMBOÐSMAÐUR Picasso-sýningar- innar, sem fyrirhuguð er á Kjarvals- stöðum í tengslum við Listahátíð í * mL UA. .4» Reykjavík næsta vor, Gilbert Haas, hefur ritað framkvæmdastjóra Lista- hátíðar bréf þar sem þess er óskað, „að reynt verði að fela loftið á Kjar- valsstöðum eða því breytt með ein- hverjum hætti,“ eins og segir orðrétt í bréfinu. í framhaldi af því hefur Sal- vör Nordal framkvæmdastjóri Lista- hátíðar óskað eftir því við stjórn Kjarvalsstaða að breytingum á loftinu verði hraöað. Einar Hákonarson, formaður stjórnar Kjarvalsstaða, sagði í samtali við Morgunblaðið, að stjórnin hefði fyrir löngu samþykkt að gera breytingar á loftinu, og hefðu menn á vegum borgarverk- fræðings, Steinþór Sigurðsson og Daði Ágústsson, hannað nýtt loft í húsið. Var verkið boðið út í fyrra- haust en framkvæmdir töfðust

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.