Morgunblaðið - 18.09.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.09.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 * Akvörðun um forstjóra Byggðastofnunar frestað: Agreiningur meðal sjálfstæðismanna um hvern þeir styðja MorgunblaAiA/RAX Melskurður á Landmannaafrétti STJÓRN Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum í gær að fresta ákvörð- un um það hver eða hversu margir skuli verða forstjórar Byggðastofn- unar, samkvæmt nýjum lögum um Byggðastofnun. Hafði verið ráðgert að greiða atkvæði um tilhögun þessa máls, en að beiðni sjálfstæðismanna í stjórninni var svo tekin ákvörðun um að fresta afgreiðslu málsins til föstudags. Stjórnarmenn vörðust allra frétta af málinu í gær, en Morgun- blaðið hefur áreiðanlegar heimild- ir fyrir því að Eggert Haukdal, einn stjórnarmanna Sjálfstæðis- flokksins, hafi látið að því liggja við aðra stjórnarmenn Sjálfstæð- isflokksins, þá Ólaf G. Einarsson og Halldór Blöndal, að hann hygð- ist styðja Bjarna Einarsson til forstjórastarfans, en framsókn- Hafa fengið leyfi til að klífa fjalls- tinda í Himalaya NOKKRIR íslendingar hafa fengið leyfi kínverskra stjórn- valda til að klífa tvo fjalls- tinda, Kongur í Sinkiang, sem er yfir 7.500 metrar á hæð, og Sisapangma í Tíbet, sem er rúmlega 8.000 metra hátt. Ekki er þó enn vitað hvort af þessum leiðangri verður þar sem ekki er ljóst hvernig hann verður fjármagnaður. Harður árekstur við Háaleitisbraut HARÐUR árekstur varð á húsa- götunni við Háaleitisbraut kl. rúmlega sex síðdegis í gær. Bandarísk bifreið af gerðinni Camaro ók á miklum hraða vestur götuna og lenti á Volks- wagen-rúgbrauði sem kom á móti og var að beygja inn að húsi númer 44. Samstuð bílanna varð svo mikið að annar þeirra hent- ist á ljósastaur i nokkurra metra fjarlægð. Ökumenn beggja bif- reiðanna voru fluttir á slysa- deild, en þeir munu ekki vera mjög alvarlega slasaðir. Bílarnir eru hins vegar báðir gjörónýtir. armenn styðja Bjarna. Er þetta varð ljóst, rétt áður en fundur hófst síðdegis í gær, var ákveðið að óska eftir frestun á afgreiðslu, og var það samþykkt á fundinum. Búast sjálfstæðismenn nú við því að þeim takist að telja Eggert hughvarf fyrir stjórnarfund á föstudag. Amadeus frumsýndur á morgun Ágóði til styrktar hjartaskurðlækning- um á Islandi Kvikmyndin Amadeus verður frumsýnd í Háskólabíói annað kvöld, en myndin hlaut 8 Óskars- verðlaun. Saul Zaentz framleið- andi myndarinnar og Háskólabíó hafa ákveðið að láta allan ágóða frumsýningarinnar renna til styrktar hjartaskurðlækningum á íslandi. Kvikmyndin er gerð eftir leikriti Peters Shaffer, en þar veltir hann því m.a. fyrir sér hvort tónskáldið W. Amadeus Mozart hafi dáið eðlilegum dauðdaga eða fallið fyrir hendi Antonios Salieri sem var opinbert hirðtónskáld Jóseps II keisara í Vínarborg. Myndin er tekin í Prag, og hlaut myndin m.a. Óskarsverð- laun sem besta kvikmynd árs- ins, en framleiðandi myndar- innar, Saul Zaentz, hlaut einn- ig Óskarsverðlaun fyrir bestu mynd ársins 1975, Gauks- hreiðrið. Tom Hulce sem Mozart í kvik- myndinni Amadeus. Landgræðslumenn eru þessa dag- ana að Ijúka við melskurð, það er söfnun melgresisfræa. Melskurð- urinn befur staðið frá 20. ágúst á Nuðurlandi og er nú einungis eftir að safna fræi í Sauðlauksdal í Patreksfirði. Melgresið þroskaðist vel sunnanlands í sumar. Land- græðslumenn safna um 20 tonnum Á FYRRI fundi ríkisstjórnarinnar í gær var tekin til meðferðar tillaga frá Seðlabanka íslands að hækka afurðalánavexti innanlands úr 26,25% í 27,5%. Jafnframt var af- greidd tillaga Seðlabankans um að jöfnun á þcssum vöxtum og öðrum meðalútlánsvöxtum yrði gerð á næstu 12 mánuðum. Ríkisstjórnin samþykkti fyrri tillögu Seðlabank- ans, samkvæmt upplýsingum Matthíasar Á. Mathiesen, viðskipta- ráðherra, en ákvað að seinni tillagan yrði til nánari umfjöllunar, áður en ákvörðun yrði tekin. Viðskiptaráðherra sagði að all- ur tilkostnaður yrði að metast við verðákvörðun vörunnar, en hann sagði að ekki lægi ljóst fyrir hvernig að verðákvörðun yrði staðið í þessu tilviki. Viðskiptaráðherra sagði að jafnframt hefði verið fallist á til- lögu Seðlabankans um breytingu á vöxtum af afurðalánum sjávarút- af óþresktu melfræi á ári hverju. Melfræið er notað í uppgræðslu á sand- og vikurfokssvæðum en melgresið hefur verið mikilvægasta uppgræðslujurtin frá upphafi sand- græðslu á íslandi. Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók myndina í gær í landgræðslugirðingunni við vegsins. Vextirnir voru 9,75%, en lagt var til að lækka þá vexti sem viðskiptabankarnir taka í sinn Áfangafell á Landmannaafrétti. Landgræðslumennirnir nota tvær sláttuvélar við melskurðinn og flytja melgresið síðan í höfuðstöðv- ar Landgræðslunnar í Gunnars- holti þar sem það er þreskt. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri er einnig á myndinni. hlut úr 1,5% í 1,25%. Vextir af þcssum lánum verða því frá 21. þessa mánaðar 9,5% í stað 9,75%. Akureyri: Kanadamenn vilja breyta 2 togurum til FYRRI kanadíski togarinn sem Slipp- stöðin á Akureyri hefur tekið að sér að breyta og endurbæta kemur til Akureyrar um næstu helgi. Á næstunni verður gengið frá samningum um breytingar á tveimur öðrum togurum fyrir sama fyrirtæki og er jafnvel búist við að um áframhaldandi verkefni fyrir kanadíska fyrirtækið geti orðið aðræða. Gunnar Ragnars forstjóri Slipp- stöðvarinnar hf. sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að breytingarn- ar fælust annars vegar í því að breyta lestum allra skipanna með tilliti til kassavæðingar þeirra og því fylgdi lenging um 6,4 metra og hins vegar ísstyrking tveggja togar- anna. Hann sagði að í fyrstunni hefði verið samið um breytingar tveggja togara en nú hefði kanad- íska fyrirtækið, sem er stærsta sjáv- arútvegsfyrirtæki Kanada, sent þeim undirritaða samninga fyrir tveimur togurum til viðbótar. Allir þessir togarar eru sömu gerðar. Samþykkt f ríkisstjórn í gær: Vextir í afurðalán- um hækka í 27,5 % Háskólaráð úrskurðar gegn deildarráði læknadeildar: Fimm nemendur komast fram hjá fjöldatakmörkunum upp á annað ár HÁSKÓLARÁÐ hefur ákveðið gegn vilja deildarráðs læknadeildar Há- skóla íslands að hleypa fimm læknisfræðinemum upp á annað ár, tii viðbótar við þá 36 sem samkvæmt reglum deildarinnar um fjöldatakmark- anir öðlast rétt til áframhaldandi náms. Er það gert á þeirri forsendu að á næsta skólaári muni aðeins einn eða jafnvel enginn erlendur stúd- ent stunda nám í læknisfræði á öðru ári, en oftast hafa þeir verið 4-6. Samþykkti háskólaráð þá röksemd nemendanna fimm að fjarvera erlendu stúdentanna skapaði svigrúm til að taka fleiri íslenska nemendur upp á annað ár. Tæplega 80 nemendur tóku próf á fyrsta ári sl. vor. Nemendurnir beindu erindi störfum, en þá tillögu felldi ráðið sínu fyrst til deildarráðs lækna- deildar, en það hafnaði málaleit- an þeirra. Sneru þeir sér þá til háskólaráðs, sem samþykkti beiðni þeirra um áframhaldandi nám á öðru ári á fundi sl. fimmtudag með níu atkvæðum gegn tveimur. Þáverandi rektor og forseti háskólaráðs, Guð- mundur Magnússon, fór fram á að afgreiðslu málsins yrði fre- stað þar til nýr rektor tæki við með sex atkvæðum gegn fimm. Guðmundur Magnússon var spurður hvort ákvörðun ráðsins að hleypa nemendunum fimm upp á annað ár væri ekki rang- læti gagnvart nemendum fyrri ára, sem voru í sömu sporum, en þurftu samt að sitja fyrsta árið aitur: „Það má vel setja fram þau rök og þetta var einmitt ein ástæðan til þess að ég fór fram á að málinu yrði frestað og það skoðað betur," sagði Guðmundur. Guðmundur var ennfremur spurður hvort þessi ákvörðun hefði ekki óhjákvæmilega for- dæmisgildi og hvort hún kæmi ekki til með að breyta því fyrir- komulagi sem er á fjöldatak- mörkunum í deildinni: „Menn verða alltaf að taka ákvarðanir með það í huga að þær veiti fordæmi og það gerir þetta mál enn snúnara," sagði Guðmundur, en benti þó á að fyrsta árið eftir að fjöldatakmörkunum var beitt í deildinni hefðu fjórir nemendur fengið undanþágu, þótt sú ák- vörðun hefði verið á öðrum rök- um reist. Ásmundur Brekkan varafor- seti læknadeildar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann teldi röksemdir nemendanna fimm ekki marktækar, þar eð flestir útlendingar sem hér byrj- uðu nám í læknisfræði hættu áður en klíníska kennslan byrj- aði, sem er á þriðja ári. „Stað- reyndin er einfaldlega sú,“ sagði Ásmundur, „að það er ekki hægt að halda uppi boðlegri klínískri kennslu fyrir meira en 36 stúd- enta í einu.“ Ásmundur sagði að hér hefði klaufalega verið staðið að málum á efstu borðum, og raunar væri mesti klaufaskapurinn af öllu sá að hafa ekki inntökupróf í deild- ina, þvf vissulega væri það órétt- látt gagnvart nemendum að láta þá eyða heilum vetri I að stunda nám sem þeir gætu síðan ekki haldið áfram með. Beið bana í Fljótunum MAÐURINN sem beið bana í bíl- veltu í Fljótunum i Skagafjarðar- sýslu aðfaranótt sl. sunnudags hét Olafur Björnsson og var frá Siglu- firði. Hann lætur eftir sig konu og fjögur börn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.