Morgunblaðið - 18.09.1985, Page 17

Morgunblaðið - 18.09.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 17 5,6 milljónir til íslenzkra verkefna Á STJÓRNARFUNDI Norræna verkefnaútflutningssjóðsins í Reykjavík í gær var samþykkt að veita Virki og Orkustofnun styrk að fjárhæð allt að 3,1 milljón íslenzkra króna til forathugana á jarðhitaverk- efni íTyrklandi. Ennfremur var ákveðið að veita styrki að fjárhæð tæplega 2,5 milljónir íslenskra króna til forat- hugana á tveimur öðrum verkefn- um sem íslendingar eiga aðild að. Er annað þessara verkefna á sviði sjávarútvegs en hitt í iðnaði. í frétt frá sjóðnum segir: „Norræni verkefnaútflutnings- sjóðurinn tók til starfa árið 1982 og hefur það hlutverk að aðstoða við að auka samkeppnisgetu fyrir- tækja á Norðurlöndum við sölu verkefna, einkum til þróunar- landa. Meginstarfsemi sjóðsins er fólgin í styrkveitinum til fyrir- tækja og stofnana við gerð forat- hugana, þ.e. skilyrða- og arðsemis- athugana sem standa í beinu sambandi við ákveðið verkefni, og einnig til annarrar starfsemi sem leitt getur til sölusamninga. í ár nemur ráðstöfunarfé sjóðsins um 40 milljónum íslenskra króna en hækkar í 50 milljónir á næsta ári. Fulltrúar íslands í stjórn sjóðsins eru Þórður Friðjónsson, efna- hagsráðgjafi forsætisráðherra, og Björn Líndal, deildarstjóri í við- skiptaráðuneytinu." Málverkasýning í Garðinum: 105 sýningar- gestir komu fyrsta daginn Gardi, 16. september. SL. SUNNUDAG opnaði ungur lista- maður úr Garðinum, Bragi Einars- son, málverkasýningu í Samkomu- húsinu í Garði. Sýnir hann þar 34 vatnslitamyndir sem allar eru málað- ar á þessu ári. Er skemmst frá því að segja að 105 manns mættu á sýn- inguna fyrsta daginn og hafa nú þegar verið seldar 13 rayndir, en nokkrar myndanna eru í einkaeign. Bragi Einarsson var í undir- búningsdeild Myndlista- og hand- íðaskólans á síðustu skólaönn og byrjar nám í auglýsingadeild skól- ans í haust. Hann hefir skreytt nokkur hús og vinnustaði hér í þorpinu vegfarendum sem heima- mönnum til ánægju. Sýningunni lýkur 22. september. Verð myndanna er mjög í hóf stillt eðafrá 3.000-7.500 kr. Arnór. !s*B» iw allt of framarlega í hljóðblönd- uninni og fór það á stundum svolítið í taugarnar á mér, þar sem það kæfði líka önnur hljóð- færi. Þá finnst mér alltaf skond- ið hvað íslendingar eru hrifnir af trommusólóum en eins og vanalega var það sólóið sem mest klappið fékk. Ég kýs að dæma trommuleikara út frá því hvernig þeir spila með öðrum, fremur en í sólóum þar sem þeir geta í raun barið hvernig sem þeim lystir án þess að hafi áhrif á aðra sem með þeim spila. Ég er ekki með þessu að gera lítið úr sólói Gunnlaugs, það var gott og alls ekki of langt eins og stund- um vill nú brenna við. Já, trommurnar voru of há- værar og það var kannski ein- mitt þess vegna að leikur Eyþórs Gunnarssonar hvarf nokkuð í skuggann. Hann tók flest sín sóló á píanóið, sem ég tek raunar alltaf fram yfir alla hljóðgervla en það sem var að var að píanóið Mezzoforte í fínu formi Tónlist Gunnlaugur Sigfússon Það voru sorglega fáir sem sáu sér akk í því að mæta i Háskóla- bió síðastliðinn laugardagseft- irmiðdag til þess að hlýða á leik hljómsveitarinnar Mezzoforte og gestaleikara hennar. Sjálfur fór ég að vísu með hálfum huga en það verður líka að virða mér það til vorkunnar að ég hef nú aldrei talist mikill aðdáandi hljóm- sveitarinnar. Hins vegar man ég ekki betur en þeir félagar hafi fyllt Háskólabíó fyrir tæpum tveimur árum, stuttu eftir vel- gengni lagsins Garden Party. Þá þóttist hið ótrúlegasta fólk hafa uppgötvað Mezzoforte, sem eitt- hvert stórkostlegasta fyrirbrigði í íslenskri tónlistarsögu. Þá var fínt að hlusta á þessa efnispilta en nú þykir það greinilega ekki eins fínt og mér er spurn, af hverju er ekki hægt að „snobba" fyrir þeim núna eins og gert var fyrir tveimur árum, þrátt fyrir að ekki hafi komist annað lag inn á lista frá þeim. Það var þó eins gott að þetta lið lét ekki sjá sig nú, því það hefði sjálfsagt orðið fyrir von- brigðum. Þeir léku ekki Garden Party og í raun var ekki margt sem minnti á plötur þeirra. Tónlistin var nefnilega blessun- arlega laus við þann „diskófíl- ing“ sem einkennt hefur tónlist þeirra allt of mikið. Ég er þeirrar skoðunar að mikið af því sem kallað er „fus- ion“ eða bræðingstónlist sé nauða ómerkileg en það fer samt sem áður ekki hjá því að það er ýmislegt gott sem gert er og dregið hefur verið á þennan bás. Tónlistin sem Mezzoforte fluttu okkur á laugardaginn var líka svo sannarlega í betri flokknum. Þeir hófu leik sinn á hressi- legu lagi, Fiona, sem samið er af Friðriki Karlssyni og er að finna á plötunni Rising. A eftir fylgdi svo lagið This Is Not the Night, eftir Eyþór Gunnarsson. Það er rétt að taka það fram að ekki má rugla þessu lagi á neinn hátt við This Is the Night en svo heitir sungið diskólag sem Mezzoforte eru að senda frá sér um þessar mundir. Það eina sem þessi lög eiga sameiginlegt er að þau voru samin um sama leyti, en þau eru á allan hátt gjörólik. This Is Not the Night er fremur rólegt og á laugardaginn mátti heyra f þvi hvert sólóið á fætur öðru, hvert öðru betra. I stuttu máli eitt besta frumsamda Mezzoforte-Iag sem ég hef heyrt. Á eftir This Is Not the Night kom svo Pools, sem upphaflega var flutt af Steps Ahead. Frem- ur rólegt en gott lag en síðan var skipt í hæsta gír og keyrt af miklum krafti i gegnum E.G. Blues, lag eftir Eyþór Gunnars- son, sem þeir félagar hafa leikið á tónleikum nú um nokkurt skeið. Fyrri hálfleiknum lauk svo með laginu Rising. Rólegt og fallegt lag það. Hafi fyrri hálfleikurinn þótt góður, þá átti þó sá seinni eftir að reynast ennþá betri. Byrjað var á lagi eftir aðalgest tónleik- anna, ástralska saxófónleikar- ann Dave Barlow, en Synapse mun þetta lag hafa heitið. Þá var keyrt í gegn kraftmikið lag, Bullett Train eftir Mike Manieri, áður en kallaður var fram á svið- ið hinn gesturinn, sem var trompetleikarinn Jens Winter. Hann er nú álitinn efnilegasti trompetleikari Dana, en svo skemmtilega vill til að hann og Barlow höfðu kynnst fyrir nokkrum árum þegar þeir voru við nám í New York og léku þeir þá saman um tíma. Þeir hittust svo aftur fyrir tilviljun í New York fyrir ári og svo aftur nú hér uppi á fslandi, þar sem þeir lentu báðir fyrir tilviljun, án þess að vita hvor af öðrum. Winter lék með í þremur síð- ustu lögunum, sem voru Caribe- an Fire Dance eftir Joe Hender- son, sem var bráðskemmtilegt og hressilegt lag. Þá kom Sound of Love eftir Charles Mingus og svo loks Take a Walk, sem samið er af Mike Brecker, en fyrir mér var síðastnefnda lagið hápunkt- ur tónleikanna. Allir stóðu hljóðfæraleikar- arnir svo sannarlega fyrir sínu. Friðrik Karlsson tók hvert gít- arsólóið á fætur öðru, hvert öðru betra. Tæki hans gefa tækifæri til fjölbreytilegs hljóðvals og nýtti hann sér þá möguleika svo sannarlega. Leiktækni hans er líka góð og virtist stundum sem svo að hann hefði ekkert fyrir því að leika hina flóknustu hluti. Bassaleikur Jóhanns Ás- mundssonar var traustur og hann kom mér raunar nokkuð á óvart, þar sem hann var laus við „slabbið" sem oft á tfðum hefur gert leik hans hvimleiðan. Sóló hans voru vel útfærð og oft mátti greina skemmtilegar rósir frá honum, þegar aðrir voru í villtum sólóum. Sömu lýsingar- orð má hafa um leik Gunnlaugs Briem og um leik Jóhanns, þ.e.a.s. hann var traustur. Hins vegar fannst mér trommumar var allt of aftarlega í hljóðblönd- uninni og því verkuðu sólóin ekki eins sterk eins og þau hefðu átt að gera, en góð engu að siður. Þá er komið að gestunum, en það væri að ég held óráðlegt að dæma leik Danans Jens Winter um of eftir þeim þremur lögum sem hann lék með Mezzoforte. Mér fannst hann góður og kraftmikill f hraðari lögunum tveimur og þá einkum f sfðasta lagi tónleikanna, þar sem hann virtist vera að ná sér virkilega á strik. Hins vegar var ég ekki eins hrifinn af leik hans í Mingus- laginu. Stjarna tónleika þessara var að mínu mati saxófónleikar- inn Dave Barlow, sem var í einu orði sagt frábær. Hann byrjaði vel og það var sem hann bætti við sig f hverju lagi í gegnum alla tónleikana og hápunkturinn var svo sannarlega Take a Walk, þar sem hann var nánast óstöðv- andi á tenórsaxófóninn en þess ber einnig að geta að hann lék f tveimur lögum á sópransaxófón og var feikur hans á það ágæta hljóðfæri einnig hinn ljúfasti. Ég er viss um að það hefur verið svo með fleiri tónleikagesti en mig, að Mezzoforte og gestir þeirra hafi komið á óvart með bitastæðari tónleikum en þeir áttu von á. Að minnsta kosti voru þeir betri en ég gerði ráð fyrir í upphafi. Um hitt hafa sjálfsagt fáir efast fyrirfram að þetta væru góðir hljóðfæraleik- arar, það er aftur á móti tónlist- arstefna þeirra á undanförnum árum sem menn hafa ekki verið sammála um. Ef Mezzoforte halda áfram á þessari braut mun ég ekki sitja heima f framtfðinni þegar þeir eru að spila eins og ég hef gert undanfarin þrjú ár eða svo. ■ þú stigurgæfusporá neuga Hugmyndin að HEUGA gólfteppum í formi 50 x 50 cm flisa hefur marga kosti: ★ ENDINGIN MARGFÖLDUÐ, slifblettir óþarfir, flísarnar fluttar til innbyrðis. ★ Laghentir leggja þær sjálfir og færa húsgögnin til eftir hendinni. ★ Engar áhyggjur af blettum: flísin er tekin upp, færð til eða endurnýjuð. ★ Auðvelt að breyta og/eða bæta. ★ Fastliming er óþörf. T.d. þessir völdu HEUGA: I.B.M., SKÝRR, Gjaldheimtan, Husgagnahöllin. HEUGA hentar þér, eins og milljónum annarra um víða veröld. /FOniX HATUNI 6A SIMI (91)24420

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.