Morgunblaðið - 18.09.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
Aö byggja hús
úr mannabeiimm
— eftir Arnór
Hannibalsson
Undarlegar hræringar áttu sér
stað í menningarlífi Vesturlanda
síðastliðin sjötíu ár. Snyrtilegt og
vel menntað fólk aðhylltist í stór-
hópum þær hugmyndir, að nauð-
syn bæri til að leggja niður lýðræð-
ið, afnema mannréttindi, þjóðnýta
framleiðslutæki og koma á alræði
eins flokks. Fyrir þessa hugsjón
lögðu margir menn allt í sölurnar.
Þeir gáfu Flokknum sinn síðasta
eyri. Þeir fluttu innblásnar ræður
á mannamótum. Þeir skrifuðu
lærð rit. Og enn undarlegra var
það, að allt þetta var í nafni rétt-
indabaráttu almennings.
Samtímis þessu var framtíðar-
þjóðféiagið, sem fólk þetta sá í
hillingum, í mótun. Varla höfðu
byltingarmennirnir komið sér fyr-
ir í valdastólunum, þegar þeir hófu
að útrýma óvinum sínum. Fangels-
in yfirfylltust. Þá þurfti að stofna
fangabúðir og smám saman
dreifðu þær sér um allan þann
sjötta hluta jarðar sem Sovétríkin
ná yfir. Fyrst þurfti að útrýma
menntamönnum. Þá þeim sem
stóðu fyrir viðskiptum og iðnaði.
Fólki sem var í öðrum flokkum.
óvinum innan Flokksins. Um 1930
þurfti að afnema bændastéttina. Á
hverri nóttu var bankað upp á hjá
ótölulegum fjölda fólks. Svartar
maríur þustu um götur borganna.
Þaö skýtur nokkuö
skökku viö, aö þeir sem
láta hæst um „frið“
styðja hvað fastast of-
beldisöflin í heiminum,
berjast jafnvel af hörku
í þeirra þágu.
Járnbrautarlestir, troðfylltar
föngum, snigluðust um landið í
norður og austur. Fangar, sem
haldið var við hungurmörkin, unnu
að hinum giæsilegu stórvirkjum
sósíalismans. Þegar það varð
glæpur að vera bóndi og kunna að
búa var milljónum bænda og búa-
liðs sturtað á auðnir Síberíu, en
allt að tíu milljónir manns fórust
í hungursneyðinni, sem á eftir
fylgdi. Árin 1937-38 voru allt að
þúsund manns skotnir á degi
hverjum í Moskvu einni. Eftir
seinni heimsstyrjöldina hélt sama
sagan áfram. Útlagar, sem sneru
heim, fórust allir í Gúlaginu. Árið
1949 var röðin komin að Gyðing-
um. Á árunum fyrir seinni heims-
styrjöldina hrópuðu sléttgreiddir
menntamenn í Vestur-Evrópu:
Sósíalisma eða barbarí;'En þegar
þeir voru beðnir að styðja starfs-
bræður sína, sem hurfu í Gúlagið,
hreyfðu þeir ekki litla fingur.
Þegar líf tónskáldsins Sjostakovits
hékk á bláþræði, fékkst enginn af
þessum „framfarasinnuðu húman-
istum" til að ganga fram fyrir
skjöldu og styðja við bakið á hon-
um.
Að lokinni seinni heimsstyrjöld
fórnuðu þessir framverðir sögunn-
ar höndum, er þeir fréttu um
Auschwitz. En þeir höfðu um ald-
arfjórðung lofsungið margfalt
hrikalegri manndrápamaskínu en
útrýmingarbúðir nazista voru.
Það var ekki fyrr en bók A.
Solsenitsins, Eyjaklasinn Gúlag,
kom út, að menn fóru að gera sér
grein fyrir því að ríki sem byggir
á ofbeldi ástundar morð, að alræð-
isríki sem álítur hvern þann rétt-
dræpan, sem ekki þóknast því,
ástundar fjöldamorð.
Þegar svokölluðum „sósíalist-
um“ varð ljóst, að hagkerfið, sem
þeir aðhyllast, fær ekki staðist, að
alræðið, sem þeir aðhyllast, hlýtur
að útrýma andstæðingum sínum,
fóru þeir að draga í land. Við
ætlum að vísu að koma sama kerf-
inu á, segja þeir, en þegar við fáum
alræðisvöld ætlum við ekki að
stunda glæpi heldur lofa fólki að
lifa. En það er lítill sannfæringar-
kraftur í orðunum, enda verkefnið
sem þeir setja sér jafnauðvelt og
að teikna ferhyrndan hring.
Um aödáun á Maó
Þegar neyðin er stærst, er hjálp-
in næst. Þegar „sósíalistar" hafa
slitið rassinn úr buxunum, koma
hógværir prelátar fram á sjónar-
Arnór Hannibalsson
sviðið og tilkynna, að leiðin til
guðsríkisins liggi gegnum ofbeldi.
Ég varð fyrir því á opinberum
fundi í Reykjavík í marz 1985, að
vígður maður hældi afkastamesta
fjöldamorðingja sögunnar, Máo
Tze-dong, og kvað menningarbylt-
ingarhugsjónir hans vera svipaðar
hugsjónum Jónasar frá Hriflu.
Hvernig getur svona nokkuð gerzt
meðal siðaðra manna? I menning-
arbyltingunni var þorri mennta-
mannastéttar Kínaveldis afnum-
inn og menntastofnanir lamaðar
eða þeim lokað. Ribbaldar réðust
inn í hús manna að nóttu og tóku
fólk höndum fyrir það eitt að hafa
menntun. Foreldrar voru teknir
frá börnum sínum og þau skilin
eftir umhirðulaus, nema nágrann-
inn sýndi af sér það hugrekki að
taka þau að sér. Karlmenn voru
fluttir í hópum á fjallaauðnir.
Eiginkonum þeirra stungið í
fangabúðir í öðru landshorni. Þeir
sem skildir voru eftir í auðnum
urðu hörðum höndum að koma sér
upp einhverju skýli. Eitthvað urðu
þeir að rækta sér til matar. En
bændur í næstu þorpum þorðu
ekki að gefa þeim útsæði af ótta
við hefndaraðgerðir. Þessir menn
voru kennarar og læknar, vísinda-
menn og tæknifræðingar. Fjöldi
þeirra fórst úr vosbúð. Þeir sem
komust aftur til manna, oft ekki
fyrr en að tíu árum liðnum, voru
niðurbrotnir á sál og líkama. Kína-
veldi verður enn lengi að ná sér
eftir þetta upphlaup ofbeldis og
morða.
Þá gerist það, að maður, sem
hefur svarið þess eið frammi fyrir
augliti guðs að útbreiða boðskap
um kærleik, hælir þessu athæfi á
fundi í Reykjavík, og telur það
vera hið sama og vakti fyrir Jónasi
Jónssyni, þegar hann beitti sér
fyrir menntun Islendinga til
munns og handa í héraðsskólum.
Er hægt að hugsa sér tvennt ólík-
ara? Jónas frá Hriflu hefur mátt
snúa sér við í gröfinni, þegar eftir-
menn hans snúa öllu öfugt, sem
hann barðist fyrir.
„Frelsunarguöfræöi“
Þeir sem ötulast berjast fyrir
því, að ofbeldi sé rétta leiðin til
réttláts þjóðfélags jafnréttis og
bræðralags, fyrirfinnast í hinni
geistlegu stétt. Til þess að koma
þessu í kring er saga Gyðingaþjóð-
arinnar fölsuð, rétt eina ferðina
enn. Brottförin úr ánauðinni í
Egyptalandi er sögð vera pólitísk
aðgerð, frelsun fyrir atbeina
Flokksins. Fyrirheitið um nýja
sögu er ekki bundið við hinn efsta
dag, heldur við það að ráða niður-
lögum auðvalds og arðráns. Castro,
fangelsisstjóri á Kúbu, og hinir
byssuglöðu sandínistar í Ník-
aragúa verða að tækjum í hendi
guðs til að frelsa hina kúguðu úr
ánauð. Svo sem Gyðingar frelsuðu
sjálfa sig með úthlaupinu úr
Egyptalandi, og gáfu þar með
fyrirheit um sjálfan Krist (önnur
fölsun á sögu Gyðinga), svo mun
borgarastyrjöldin fullkomna frels-
Stjórnsýsluhúsið á ísafirði
Athugasemd
í Morgunblaðinu þann 12. september sl. er fjallað um urg í verktök-
um vegna útboða á Isafirði. Þar er m.a. haft eftir verktaka þeira, sem
átti næstlægsta tilboð í 1. áfanga að Stjórnsýsluhúsi á ísafirði, að
verktaki með lægsta tilboð hafi fengið að hækka tilboð sitt. í greininni
er því ennfremur haldið fram, að verktakinn hafi óskað skýringa á
þessu, en engar fengið.
Enginn í byggingarnefnd
Stjórnsýsluhúss á Isafirði veit
til þess, að leitað hafi verið fyrr-
greindra skýringa, enda kemur
það fram í athugasemd frá verk-
takanum í Mbl. 14. september,
að hann hafi ekki leitað slíkra
skýringa og ekki hafi verið rétt
eftir honum haft um það atriði.
Lægsta tilboð í fyrrgreindan
áfanga var frá ísverki hf. að
upphæð 23,5 m.kr., en næst-
lægsta tilboð var frá Formi sf.
að upphæð 25,7 m.kr. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á 26,7 m.kr.
Við athugun á tilboðunum kom
í ljós, að stjórnendur ísverks hf.
ætluðu sér að blanda steypu á
byggingarstað. í tilboði Forms
hf. var hins vegar reiknað með,
að steypa yrði keypt af steypu-
stöðinni á ísafirði, en í tilboði
þeirra var tekið fram, að það
mundi lækka um 1,5 m.kr., ef
steypa yrði blönduð á byggingar-
stað.
Byggingarnefndin vildi heldur,
að steypan yrði keypt af steypu-
stöð en að hún yrði blönduð á
byggingarstað, þótt það leiddi til
aðeins hærri byggingarkostnað-
ar. Fyrir því lágu einkum tveir
ástæður. í fyrsta lagi taldi
nefndin sig tryggari með steypu-
gæði, ef steypan yrði keypt af
steypustöð, ekki síst með tilliti
til, að vinna þarf við lögn steypu
lengi fram eftir hausti, ef tíma-
áætlun framkvæmda á að stand-
ast. í öðru lagi vildi nefndin leit-
ast við að draga úr óþrifum og
ónæði við framkvæmdina, eins
og frekast væri kostur. Stjórn-
sýsluhúsinu er ætlaður staður i
hjarta bæjarins. Blöndun steypu
á byggingarstað og tilheyrandi
malarbingir hefðu eflaust orðið
til aukins ama, auk þess sem
athafnasvæði við bygginguna er
af skornum skammti.
Leitað var eftir samningum við
ísverk hf. og varð að samkomu-
lagi, að tilboð þeirra hækkaði um
l, 3 m.kr., ef steypa yrði keypt úr
steypustöð. Verksamningur ís-
verks hf. hljóðar því upp á 24,8
m. kr. til samanburðar við 25,7
m.kr. tilboð Forms sf. Lægsta
tilboði var því tekið og er það í
fullu samræmi við skoðanir verk-
takanna, sem blaðamaður Morg-
unblaðsins átti viðtal við.
ísafirði, 15. september 1985.
Byggineanefnd Stjórnsýslu-
húss á fsafírði.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásfcJum Moggans!
ý ***haí£
Vallarbraut 6.
Fegurstu garðar á Hvolsyelli
Hvolsvelli, 16. september.
FEGRUNARNEFND Hvolhrepps hefur tilnefnt feg-
urstu lóóir í hreppnum 1985.
Ein ibúðarlóð hlýtur viðurkenningu og var það
Vallarbraut 6 eign hjónanna Ásu Guðmundsdóttur
og Gunnars Guðjónssonar. Lóð í dreifbýli var til-
nefnd Útgarðar eign hjónanna ólafar Kristófers-
dóttur og Jóhanns Frankssonar. Hótel Hvolsvöllur
fékk viðurkenningu fyrir fegrun og snyrtimennsku
við fyrirtæki sitt.
— Gils.
Hótel Hvolsvöllur.
Morgunblaöið/Gils Jóhannsson