Morgunblaðið - 18.09.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
25
Morgunblaðið/Gils Jóhannsson
Sláturhússtjórinn, Skúli Jónsson á Seialsk, og stödvarstjórinn, Ólafur Sigur-
jónsson á Stórólfshvoli.
Gestir skoóa hluta af hinu fjölbr. úrvali framleiðsluvara SS, og er Stefán
Jasonarson í Vorsabæ fyrir miðri mynd.
Klara Klængsdóttir, fyrrum nemandi og samkennari Lárusar, afhjúpaði minnisvarðann. Lengst til hægri stendur
Jón M. Guðmundsson á Reykjum og að baki þeim Jóhann Gíslason, húsvörður í Varmárskóla.
Varmárskóli í Mosfellssveit:
Afhjúpun minnisvarða um
fyrstu skólastjórahjónin
MINNISVARÐI um fyrstu skóla-
stjórahjónin í Varmárskóla í Mos-
fellssveit, Kristínu Magnúsdóttur og
Lárus Halldórsson frá Brúarlandi,
sem reistur hefur verið fyrir utan
Varmárskóla, var afhjúpaður sl.
mánudag.
Að sögn Birgis Sveinssonar,
skólastjóra Varmárskóla, var
ákveðið þegar Lárus Halldórsson
lést, að stofna sjóð í því skyni að
heiðra minningu þeirra hjóna, en
ævistarf þeirra var langt og far-
sælt við kennslu, félags- og menn-
ingarmál i Mosfellssveit. Lárus
gerðist skólastjóri i Mosfellssveit
vorið 1922, en þá var skólinn
heimavistarskóli. Starfi sínu
gegndi hann til ársins 1966, er
skólanum að Brúarlandi var skipt
í barna- og gagnf ræðaskóla.
Þau hjónin gáfu kost á sér til
fjölbreyttustu félags- og menning-
armálastarfa. Kristín var organ-
isti um skeið, söng í kirkjukórnum
um langt árabil og var ötul kven-
félagskona. Lárus átti m.a. sæti i
skattanefnd, bókasafnsnefnd og
sóknarnefnd. Þá gegndi hann ýms-
um opinberum störfum, t.d. sem
simstjóri og endurskoðandi
hreppsreikninga. Lárus kenndi
ævinlega á meðan hann gegndi
skólastjórastarfinu og í nokkur ár
eftir að hann lét af því starfi.
Hreinn Þorvaldsson,_ fyrrum
byggingarstjóri hreppsiiis, sá um
að koma minnisvarðanum fyrir
samkvæmt skipulagi á skólasvæð-
inu og teikningum Ragnars Lár,
ngsta sonar Kristínar og Lárusar.
sjóðsstjórninni hafa starfað þau
Jón M. Guðmundsson, Reykjum,
Salome Þorkelsdóttir, Reykjahlíð,
Jón V. Bjarnason, Reykjum, Hauk-
ur Nielsson, Helgafelli, Guðmund-
ur Magnússon, Leirvogstungu,
Tómas Sturlaugsson, fyrrverandi
skólastjóri, og Hjalti Þórðarson,
Æsustöðum, en hann er nú látinn.
mótvægis við unga parið er svo
annað samband, systur Keiths og
eiginmanns hennar. öfugt við ást
kærustuparsins unga er þetta
hjónaband kúgunar og óhamingju;
mágurinn beitir systurina sálrænu
og líkamlegu ofbeldi sem smátt og
smátt þokar ástarsambandi unga
fólksins til hliðar og verður megin-
efni myndarinnar með hrikalegum
endalokum.
Þótt handritshöfundurinn Alice
Hoffman skrifi þessa sögu á marg-
an hátt með prýði og kveiki með
samtölum og persónusköpun
dramatískt líf vítt og breitt um
myndina þá skortir hana einbeit-
ingu, þannig að mark hennar og
mið liggur ekki ljóst fyrir: Fjallar
myndin um ofbeldi á heimilum?
Kúgun og sjálfstæðisbaráttu
kvenna? Bandarískan smábæjar-
móral? Ástina sem sigrar allt, eins
og vanhugsaöar lyktir myndarinn-
ar benda til? Love, Honour and
Obey riðar þannig dálítið á grunn-
inum. En allan tímann er hún
athyglisverð, þökk sé fínum
dramatískum áherslum og oft
frumlegum myndlausnum leik-
stjórans Roberts Mandel og úrvali
skapgerðarleikara eins og Frances
Sternhagen, Josef Sommer, Bert
Remsen, Richart Farnsworth og
Cliff De Young og Dianne Wiest í
hlutverkum hinna óhamingjusömu
hjóna.
Stjörnugjöf:
Love, Honour and Obey * * Ví
HENNAR FAST ITOPPSKONUM
Stæröir 36—41. Litir: Svartir, hvítir, gráir, rauöir. tSr,
m
sl
TOPP
--SMRUIN
VHLTUSUNDI 2
21212