Morgunblaðið - 18.09.1985, Page 36

Morgunblaðið - 18.09.1985, Page 36
36 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 Eyrarbakki: Atvinnuástand er mun betra en undanfarin tvö ár „ATVINNUÁSTAND verður ad telj- ast gott hér á Eyrarbakka nú um þessar mundir, mun betra en verid hefur tvö undanfarin ár,“ sagði Magnús Karel Hannesson oddviti Eyrarbakkahrepps í samtali við blaðamann. „I ágústmánuði í ár var 71 at- vinnuleysisdagur hér, en í sama mánuði í fyrra voru þeir yfir 200,“ sagði Magnús ennfremur. Sem kunnugt er var togarinn Bjarni Herjólfsson, sem lagði upp afla hjá stæsta atvinnufyrirtæki á Eyrarbakka, Hraðfrystistöð Eyr- arbakka hf., seldur á nauðungar- uppboði í desember í fyrra, en rekstur hans hafði þá gengið mjög illa og hann legið bundinn við bryggju langtímum saman að sögn Magnúsar. Hann sagi að Hraðfrystistöðin hefði staðið illa að vígi eftir þetta, enda hafi hún tapað um 14 milljón- um króna þegar Bjarni Herjólfs- son var seldur. Var þá brugðið á það ráð að leigja fyrirtækinu Suðurvör í Þorlákshöfn frystihús félagsins í vor. „Þeir Suðurvararmenn hafa verið duglegir að afla hráefnis, bæði frá eigin bátum og eins hafa þeir fengið afla frá togurum frá Vestmannaeyjum. Því hefur verið næg atvinna í frystihúsinu og ekki er útlit fyrir annað en að svo verði áfram í vetur. Ég veit að þeir hafa hug á síldarfrystingu og jafnvel síldarsöltun í haust,“ sagði Magn- ús Karel Hannesson oddviti Eyrar- bakkahrepps að lokum. Ólafur Þór Jónsson verkstjóri, lengst til hsegri, ásamt tveimur starfsmanna sinna. 10 mílljóna vatns- veita á Vopnafirði — Brýn framkvæmd þar sem oft hefur verið vatnsskortur á undanförnum árum NÚ STANDA yfir á vegum Vopnafjarðarhrepps framkvæmdir við nýja vatns- veitu fyrir þorpið og var það mjög brýnt að sú framkvæmd hæfist þar sem mjög hefur borið á vatnsskorti oft undanfarið, og jafnvel þurft aö grfpa til skömmtunar á undanförnum árum. Hið nýja vatnsból er í svonefndu Svína- bakkafjalli sem er um 9 km leið frá birgðatönkum á Búðaröxl. Áætluð notkun á vatni nú er á bilinu 17—20 sek./lítr., en með tilkomu hinnar nýju leiðslu er talið að fást muni um 30 sek./lítrar, þannig að vonir standa til að þarna verði um allnokkra framtíðarlausn að ræða. Fiskeldissýning í Laugardalshöll opnar í dag Undirbúningur fiskeldissýningar í Laugardalshöll var í fullum gangi í gær er ljósmyndari blaðsins leit þar inn, en sýningin verður opnuð í dag. Um 40 innlend og erlend fyrirtæki sýna framleiðslu sína, og er sýningin sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Til að afla nánari frétta varðandi vatnsveituframkvæmdirnar ræddi fréttaritari við Svein Guðmunds- son, sveitarstjóra, og spurði hann fyrst hver væri áætlaður kostnaður. „Áætlaður kostnaður er um 10 milljónir króna og má meðal annars nefna að leiðslan er þar stærsti liðurinn, þetta er 6 tommu plast- lögn frá Reykjalundi og kostar hingað komin 4,5 milljónir króna." — Hvernig gengur að fjármagna svona framkvæmd? „Lánasjóður sveitarfélaga lánar 4,5 milljónir, framlag sveitarfélags- ins er 1,5 milljónir og svo er afgang- Austurbæjarbfó: Bandarískur kontratenór heldur tónleika RODNEY Hardesty, bandarískur kontratenórsöngvari, heldur tón- leika í Austurbæjarbíói á laugar- daginn kl. 14.30 ásamt landa sínum, píanó- og semballeikaranum Ted Taylor og nokkrum íslenskum tón- listarmönnum, þeim Pétri Þorvalds- syni sellóleikara, Guðnýju Guð- mundsdóttur fiðluleikara, Kristjáni Þ. Stephensen óbóleikara og Pétri Jónassyni gítarleikara. Það er ekki oft að Islendingar fá tækifæri til að heyra kontra- tenórsöngvara syngja hérlendis, enda slíkir söngvarar sjaldgæfir, þeir tilheyra fortíðinni, endur- reisnartímabilinu nánar tiltekið. Þó hefur áhugi manna á tónlist þessa tímabils aukist á síðari árum og tónlistarmenn lagt fýrir sig í auknum mæli að spila mið- aldatónlist ýmiss konar á gömul hljóðfæri. Einnig fjölgar söngv- urum sem syngja tónlist frá þessum tíma, trúir þeirri hefð sem fylgt var þá. Rodney Hard- esty er einmitt einn þeirra. En hvaða munur skyldi vera á venjulegri tenórrödd og kontra- tenórnum? Rodney Hardesty segir kontratenór syngja á nokk- uð hærra tónsviði, án þess þó að fara í falsettu, sem kallað er, en þá eru háu tónarnir þvingaðir fram svo venjuleg karlmanns- rödd verður hjáróma og barns- leg. Kontratenórar hafa því óvenjulega hátt raddsvið. Lengi fram eftir öldum þótti mönnum óviðeigandi að konur tækju þátt í kirkjulegum tónlist- arflutningi. „Mulier in ecclesia taceat" (Konan þegi í kirkju) var boðorð sem lengi vel var aldrei brotið. Þess vegna þurftu drengir sem ekki voru komnir í mútur ellegar geldingar að syngja sópr- an og altrödd, sem aðeins konur syngja nú á timum. Kontratenórar sungu gjarnan altrödd, en þó var ekki óalgengt að þeir syngju millirödd, ein- hversstaðar mitt á milli tenór- og altraddar. Rodney Hardesty kontratenór- söngvari. Hardesty segir að þegar tónlist frá endurreisnartímanum og fyrr sé leikin eða sungin, náist aldrei hinn sanni hljómur, nema samskonar hljóðfæri séu notuð og sömu aðferðum beitt. Tónleikarnir á laugardaginn eru haldnir á vegum Tónlistarfé- lagsins, og eru fyrstu tónleikar starfsvetrar þess. Þeir eru til- einkaðir tónlistarárinu sem nú stendur yfir í tilefni 300 ára afmælis tónskáldanna Bachs, Hándels og Scarlattis. Enda er megnið af verkunum á efnis- skránni eftir þá Bach og Hándel. Einnig mun Hardesty syngja verk tveggja bandarískra nú- tímahöfunda, þeirra Philips Glass og Richards Rodney Benn- ett. urinn fenginn með skammtímalán- um í bönkum." — Nú er framlag sveitarfélags- ins hálf önnur milljón, og því vakn- ar sú spurning, Sveinn, hvort þessi vatnsveituframkvæmd muni draga úr öðrum framkvæmdum á vegum hreppsins í framtíðinni? „Nei, það á hún ekki að gera, þegar til lengri tíma er litið þó svo að í augnablikinu sé ekki hægt að fást við meira, en áætlað er að vatnsveitan standi undir sér í fram- tíðinni og skili því þessum pening- um aftur, og meðal annars þess vegna mun taxti á vatni til notenda hækka allnokkuð." Annar tveggja verkstjóra hreppsins er Ólafur Þór Jónsson. Hann var spurður hvernig verkið hefði gengið. „Það má segja að þetta hafi allt gengið nokkuð vel, þó svo að rigning og vont veður hafi tafið verulega fyrir þegar verst hefur látið. Um 6 km af þeirri leið sem við þurfum að fara með lögnina er mjög vot- lend, og svo þegar allar þessar rign- ingar bætast þar á ofan hefur ekki verið hægt að koma við tækjum nema með ærinni aukafyrirhöfn. Þá tafðist lagning vegar upp í fjal- lið að lindunum einnig vegna aur- bleytu. Nú hefur hinsvegar verið mun minni úrkoma síðustu daga og þornað verulega til.“ — Nú var upphaflega áætlað að verkinu yrði lokið um mánaðamót september—október, heldur þú að þær áætlanir standist? „Nei, það er alveg ljóst að þær munu ekki standast, en ef tíðarfar verður hagstætt vonumst við til að þetta klárist í októbermánuði. En á vegum hreppsins hefur verið unnið við fleira en að framan getur. Verulegt átak hefur verið gert til að fegra svokölluð opin svæði í þorpinu, og hefur það mælst mjög vel fyrir meðal bæjarbúa, en auk þess að þökuleggja og setja niður piöntur hafa verið hellulagðir stíg- ar og komið hefur verið fyrir bekkj- um sem vinsælt er að tylla sér á, þótt sjaldan hafi nú verið lát á rigningunni þannig að viðraði til útiveru." B.B. Patreksfjörður: Málverkasýning félagsheimilinu MAGNÚS Guðmundsson á Patreks- firði opnar málverkasýningu í Félags- heimili Patreksfjarðar annað kvöld, fimmtudag, kl. 20. Sýningin stendur opin laugardag og sunnudag frá kl. 15-22. Á sýningunni verða 38 olíu— og vatnslitamyndir sem Magnús hef- ur unnið flestar á sl. þremur árum. Magnús stundaði nám í Mynd- lista— og handíðaskóla íslands veturinn 1950-51. Hann starfar nú hjá Orkubúi Vestfjarða. Þetta er fyrsta málverkasýning Magnúsar. KrétUtilkynning Bandalag háskólamanna: Söluskattur verði ekki innheimtur af matvælum Á FUNDI sínum í gær samþykkti framkvæmdastjórn Bandalags há- skólamanna áiyktun um kjara- og skattamál. Þar er meðal annars sett fram sú krafa að hætt verði við öll áform um innheimtu söluskatts af matvælum og er ríkisstjórnin vöruð við slíkri kjaraskerðingu. Segir í ályktuninni að launafólk hafi þegar orðið að axla of þungar byrðar og aukin skattheimta af almenningi komi ekki til greina. í ályktuninni segir meðal annars: Þá hefur ekki verið staðið nema að nokkru leyti við það fyrirheit ríkisstjórnarinnar að afnema tekjuskattinn á almennar launa- tekjur í þremur áföngum. Það er eitt mesta hagsmunamál félags- manna BHM, sem flestir hafa tekj- ur á því launabili. Við gerð nýrra fjárlaga verður að standa að fullu við gefin fyrirheit og lækka tekju- skattinn um 900 milljónir 1 milljarð króna í þessum áfanga. Það eru raunhæfustu kjarabæturnar, sem enga verðbólgu hafa í för með sér. Framkvæmdastjórn Bandalags háskólamanna krefst þess að hætt verði við öll áform um innheimtu söluskatts af matvælum og varar ríkisstjórnina við slíkri kjaraskerð- ingu. Launafólk hefur þegar orðið að axla of þungar byrðar og aukin skattheimta af almenningi kemur ekki til greina."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.