Morgunblaðið - 18.09.1985, Síða 46

Morgunblaðið - 18.09.1985, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 Sundrung eða samstarf Mikið var ég ánægður með grein eftir biskupinn okkar, Pét- ur Sigurgeirsson, í Morgunblað- inu30. júlí í sumar. Þar var á einfaldan hátt gerð grein fyrir einni merkustu stefnu í trúmálum þessarar aldar á síðustu áratugum, hinni svo- nefndu samkirkjuhreyfingu. Ég gleymi aldrei gleði minni fyrir örfáum árum, þegar prestur eða biskup frá Landakoti prédik- aði í Dómkirkjunni og prófastur eða prestur frá Dómkirkjunni messaði í Landakotskirkju. Svipað gat ég glaðzt í vor, þegar fulltrúar frá nokkrum svokölluðum deildum og sértrú- arflokkum íslenzku kristninnar áttu helgistund saman vestur í Neskirkju. Það var líkt og bænheyrsla frá löngu liðinni helgistund í safnaðarheimilinu við Sólheima, þegar við buðum þangað starfs- fólkinu í Landakotssöfnuði. Þar ríkti einnig friður og fögnuður á fögru kvöldi. Það var því ljúft að lesa orðin, sem mynduðu kjarnann í grein biskupsins í blaðinu um daginn: „Að leita sannleikans og bera virðingu fyrir skoðunum annarra er rétta leiðin í einingarstarfi hinnar kristnu kirkju." En sé litið til sögu kirkjunnar, þessarar áhrifamiklu stofnunar á 2000 ár, þá er þar að mörgu leyti harmsaga sundrungar, misskilnings mótstöðu við grundvallarhugsjón meistarans mikla frá Nazaret, sem þessi lífs- og trúarstefna helgar sig og sína starfsemi. Þar hefur verið deilt, barizt, sundrað og deytt undir merkjum trúar á hans boðskap, sem þó má túlka með aðeins einu orði: Elskið. Stærra væri að nefna þessa viðleitni takmarki sínu: Kærleikur. En þetta fjölbreytta viðfangsefni mannsandans og mannkynsins er byggt á trú. Hvað er þá trú? Trúin er tilfinning hliðstæð ástinni í vitund mannsins. Hún er tilfinning gagnvart umhverfi og aðstöðu lífsins hverju sinni. Heilbrigð og jákvæð trúartil- finning birtist sem traust til umhverfisins bæði andlega og efnislega, bæði í smáu og stóru. Við verðum alltaf að treysta einhverju, annars fatast allt okkar daglega líf. Þótt ekki sé nema ferðast um borgina dag- lega, verður það ekki hægt án þess að treysta bæði vagnstjóra og vagni, svo dæmi sé tekið úr daglegu lífi. Enginn heilbrigður maður er trúlaus, hversu oft sem hann tjá- ir trúleysi sitt. Guðstrú er sambandið, traust- ið til æðstu hugsjónar manns- andans, sem við nefnum Guð. Það orð mun hér á Norðurlönd- um vera samstofna orðinu góður. Guðshugsjón er einnig á krist- inni trú tengd uppsprettu elsku og kærleika og um leið samband- ið við þessa æðstu orkulind lífs- ins. Þetta virðist í fljótu bragði ósköp auðskilið og auðvelt. En um það eru ritaðar milljónir bóka og spekirita. Þessi heilaga hugmynd um hinn ósýnilega, almáttuga og algóða kraft lífsins hefur svo oft verið misskilin og misnotuð. Margir gera sér hennar óljósa grein. Aðrir rangsnúa henni alveg til þess að geta notfært sér trúartilfinningar einstaklinga og samfélags í eigin hag. Svo er orðið trú ákaflega oft notað í merkingunni trúarbrögð eða skoðanir stærri eða minni félagsheilda. Talað er um Búddatrú, kristna trú, Múhameðstrú og fleira og fleira, að ekki séu nefndar minni heildir eins og Lútherstrú. Kaþ- ólsk og kalvinsk, mormónar, Vottar Jehóva og margt fleira. En þetta eru mismunandi skoð- anir, aðferðir og túlkun trúar. Trúarbrögð er að vissu leyti þær myndir sem trúin birtist í, þær aðferðir, sem notaðar eru við þróun hennar, sá farvegur, sem hún fellur í með hverri kynslóð. Líkja mætti trú - guðstrú - við blómstur, trúarbrögð með sínar mismunandi játningar og helgi- siði mættu þá teljast garðurinn eða jarðvegurinn, sem það skrautblóm menningar vex í. Einnig mætti líkja guðstrúnni við perlu eða gimstein. Mismun- andi trúarbrögð og kirkjudeildir eru þá líkt og umbúðirnar, sem hún er geymd eða gimsteinninn sýndur í. Þótt undarlegt megi teljast hefur sú verið mest hætta á vegum guðstrúar kynslóð fram af kynslóð, að taka umbúðirnar fram yfir hana. Fela hana og týna henni í helgisiðum, for- dómum, bókstafsblindu og svo- nefndum „rétttrúnaði", sem Jes- ús nefndi hjá sínum trúfræðifor- ingjum erfikenningar og rang- færslur, sem birtist í hroka, hindurvitnum og valdbeitingu, þar sem sízt af öllu er tekið tillit til þess Guðs og föður kærleik- ans, frelsisins og sannleikans, sem hið sanna gleðitraust og trú tekur sitt takmark og athvarf. Af slíkri dýrkun, slíkri afvega- leiðslu trúartilfinningar, hefur oft leitt hið mesta böl á vegum trúarbragða, þjóða og mannkyns alls, svo að segja mætti þar um: „Heggur sá er hlífa skyldi.“ Segja má sömu hættur á brautum guðstrúar og ættjarðar- ástar. Orka þeirra beinist meðal bæði villtra oggrimmra valdhafa inná voðans leiðir, þar sem hin óræðu öfl tilverunnar, sem vissu- lega gætu mesta blessun veitt eru höfð til að eyða og deyða, kvelja og myrða. Má þar nefna vetnis- orku og atómsprengjur. Meira að segja sólin sjálf virð- ist táknlega talað geta villzt svo langt af vegi. Það er því ekki ástæðulaust að ræða um rétta ræktun guðs- trúar í uppeldi hvers barns, hverrar mannveru. Þar er margt unnt að hafa til hjálpar. En fyrst er að velja veginn rétta, brautir sannleikans að takmarkinu æðsta, föður og orkulind kærleikans. Þar er hin sanna Guðstrú að verki. Hana má efla með tilbeiðslu, lotningu, auðmýkt og hreinleika, sem allt er til reiðu í eðli hvers heilbrigðs barns. Og tækin eru orð og tónar, línur, litir, ljós og ljóð. „Allt hið fagra er augað lítur, andinn, hvað sem dýrðlegt veit.“ Trúin er lind allra lista og nærist af þeim. Trúin þarf þann- ig fyrst og fremst að vera guðs- trú, samband mannsálar við elsku Guðs. Það er tilgangur hennar og takmark. Trúin sem veitir sannar heillir og hamingju sérhverri sál, sér- hverri þjóð, sérhverri kirkju, er samkvæmt kenningu Jesú, traustið til hinna góðu afla til- verunnar, guðstraust. Þegar Jesús hrósaði fólki fyrir trú, virtist hann lítt eða ekki taka tillit til hvaða trúarbrögð- um það fylgdi. Hann bjóst raunar við mestu af ísrael, enda höfðu þeir stund- að ræktun guðstrúar að vissu leyti um aldaraðir, með skáld og spámenn í fararbroddi. Hann varð því oft fyrir sárum vonbrigðum, þegar hann fann að sérstæð trúariðkun þeirra hafði ofstæki, þröngsýni, hroka, fyrir- litningu og jafnvel grimmd gagn- vart öðrum. Allt saman hræði- legar hættur á kærleiksbrautum guðstrúar. Hann velur því lærisveina sína úr sem flestum mismunandi hóp- um samfélagsins. Hann hrósar Samverjanum góða og gestrisna. Setur hann, sem auðvitað hafði hvorki verið skírður eða fermdur, sem sígilda fyrirmynd ókominna kynslóða kristinna manna. Vissi þó vel að ísraelsmenn fyrirlitu hann og alla Samverja sem vantrúargrey l'arís, 16. september. AF. Francois Mitterrand, Frakk- landsforseti, hefur boðið leiðtogum hinna fjórtán aðlildarríkja Samtaka Suður-Kyrrahafslanda að heimsækja kjarnorkutilraunasvæði Frakka á Mururoa-eyjum til þess að þeir geti sjálfir gengið úr skugga um öryggis- ráðstafanir þar. í tilkynningu sem Mitterrand lét frá sér fara einu degi eftir að hann snéri heim frá Mur- uroa-eyjum staðfesti hann að Frakk- ar hefðu í hyggju að halda áfram kjarnorkutilraunum þar „jafn lengi og talið er nauðsynlegt**. Mitterrand sagði einnig að inn- og villutrúarfólk, sem auðsýna skyldi fyrirlitningu. Hann hrós- ar einnig heiðnum hermanni bersyndugum tollheimtumanni, rómverskum hershöfðingja og grískri konu, sem ekki hefði verið hátt skrifuð á mælikvarða „rétt- trúaðra" meira að segja hér á landi nú ádögum. En eitt er víst. Allt þetta fólk bar þess vott, að hans áliti, að það hafði þroskað með sér heitt og bjargfast traust á krafti og sigrum hins góða í tilverunni og mannssálinni. Það var nóg. Trúin gat gert þessar mannverur heilar og sannar bæði á líkama og sál meira að segja. Kennt þeirri sem andi Guðs í eigin armi og barmi að ganga á hans vegum og gera umhverfi sitt að musteri Drott- ins allra daga. Ekkert er æðra af hlutverkum foreldra, kennara, presta og spekinga, en sú viðleitni að efla guðstrú í vitund bernsku og æsku. Þar þarf að kunna handleiðslu hins stranghlýja uppeldis, sem kennir hverju barni ljúfum orð- um og fögru fordæmi áminningu skáldsins snjalla Matth. Joch. „Trúðu frjáls á Guð hins góða“ Og um leið morgunbæn menntaskólakennarans Stgr. Thorst. við Lækjargötuna: Trúðu á tvennt í heimi, tign, sem æðsta ber: Guð í alheims geimi, Guð í sjálfum þér! Að lokum skal hér minnt á orð biskups í blaðagrein þeirri, sem varð tilefni þessara hugleiðinga „við gluggann": „Þegar Jesús biður um einingu lærisveina sinna, þá segir hann: „Ég bið, að allir séu þeir eitt, eins og ég og faðirinn erum eitt.“ Hann biður ekki um, að þeir séu eins heldur eitt“. Ein hjörð og einn hirðir í allri sinni fjöl- breytni. Sönn fylgd við þann hirði, sem er höfundur kristninnar er trú, sem ber ávöxt í kærleika, án þess er hún aðeins falskur helgihjúp- ur. Hún er samstarf en aldrei sundrung. Reykjavík, 15. ágúst Árelíus Nielsson. an mánaðar myndi hann setja fram tillögur um samvinnu franskra sérfræðinga við Kyrra- hafsþjóðirnar á breiðum grund- velli. Þá fór forsetinn fram á að áströlsk yfirvöld leyfi frönskum sérfræðigum að fara um landið til að rannsaka áhrif breskra kjarn- orkutilrauna á umhverfið þar. Eins og komið hefur fram í frétt- um hafa Ástralíumenn, Ný-Sjá- lendingar og fleiri þjóðir við Kyrrahaf mótmælt kjarnorkutil- raunum Frakka mjög harðlega. Njttl T^eNtþjöNuste »£> pRmuLw Mitterrand býður leiðtogum Sudur- Kyrrahafsríkja til Mururoa-eyja IMYND FYRIRTÆKISINS Leiðbeinandi: Pétur Guðjónsson, stjórnunarráðgjafi Hver er ímynd þíns fyrirtækis eöa stofnunar - í augum starfsfólks - í augum almennings? Gefur hún þá mynd af fyrirtækinu sem óskað er eftir? Stjórnunarfélag íslands heldur námskeiö ætlaö þeim er annast almenningstengsl og þróunarmálefni fyrirtækja og stofnana. Nýlegar rannsóknir í Bandaríkjunum sýna aö þau fyrirtæki sem eru í örustum vexti hafa lagt sérstaka áherslu á þjálfun og þátttöku starfs- fólks síns í að móta og kynna þá ímynd trausts rekstrar og ábyrgrar þjónustu sem hverju fyrirtæki er nauðsyn. ■ Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 Stjórnunarfélag Islands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.