Morgunblaðið - 18.09.1985, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
HCmAfífí
I-IZ
© 1985 Universal Press Syndicate
n Ég Skýn út sétnna,. Hann
cú* •fianx á. sjúkrcxháe "
va i
r*
Aster...
... að láta verða
af því að skrifa.
TM Reo. U.S. Pat. Off.—all rlghts reserved
c1{85 tos Angeles Times Syndicate
Síðan hvenær þarf ökuleyfi?
HÖGNI HREKKVÍSI
,,‘VIP EKSOM HAM6OI0SAKA OG FZAHSKAR."
Hvaða brögðum þarf að beita
til að Bogi komi heim?
Baddi skrifar:
Það hefur tæpast farið framhjá
nokkrum að Norðmenn gengu að
kjörborði fyrir skömmu eins og
títt er í lýðríkjum. Ég hef aðeins
það að segja um þessa kosningu, án
þess þó ég kasti rýrð á þessa
frændur mína, að flestum ef ekki
öllum stendur á sama um norska
pólitík, enda vegur hún ámóta
þungt á vogarskál heimsstjórn-
mála og orð Jóns Baldvins eða
einhvers álíka manns, — núll.
Allir sem á annað borð fylgjast
með málefnum líðandi stundar
hafa sett sig í stellingar til að
skilja aðalatriði frá aukaatriðum,
enda aðeins á færi guðs á himnum
að gefa öllu gaum. Þannig hafa
flestir áhuga á atburðum er varða
íslendinga beint eða óbeint eða
hafa veruleg áhrif á gang heims-
mála. Noregur hefur aldrei verið
púls heimsins og verður aldrei
sama, hversu blankur sem Bogi
Ágústsson er.
Ég minnist þess að Jón Ásgeirs-
Bogi Ágústsson, fréttamaður, er um
þessar mundir fréttaritari sjónvarps-
ins í Skandinavíu.
son íþróttafréttamaður hjá út-
varpinu fluttist í fáein ár til Vest-
urheims og sendi pistla daglega í
útvarpið um það sem honum bar
fyrir sjónir. Þá fékk þjóðin alls-
konar fréttir af kvennabösurum
og uppátækjum frímúrara sem
voru af íslensku bergi brotnir.
Ekki hafði nokkur óskað frétta að
vestan, en fréttastofu útvarps
hefur fundist svo gráupplagt að
nýta Jón, sem að sjálfsögðu sló
ekki hendinni á móti þeim pening-
um er fást fyrir jafn gagnmerka
upplýsingasöfnun. Gott og vel —
Jón fékk aur við „fréttir" og síðan
kemur hann heim á ný og síðan
hefur ekki spurst til nokkurs V-fs-
lendings né þeirra ferða. Málið er
að fréttaflutningurinn var aðeins
nauðsynlegur eða skemmtilegur
(sic) á meðan á dvöl Jóns stóð.
Þá kann maður að spyrja: Hvaða
brögðum þarf að beita til að Bogi
komi heim? Því annars er hætt
við að þjóðin þurfi í gegnum gervi-
hnetti að fylgjast með sveitar-
stjórnarkosningum á Álandseyj-
um...
Brúðubfllinn fellur yngstu kynslóðinni vei í geð. Hér eru þær Sigríður og Helga stjórnendur brúðanna í góðum
félagsskap.
Upplagt að hafa Brúðu-
bílinn í „Stundinni okkar“
Aðalheiður, Kristín og Guðrún,
Akureyri, skrifa:
í framhaldi af því sem við lásum
í DV fyrir nokkru viljum við taka
undir þau orð sem sögð voru um
Brúðubílinn. Og einnig þar sem
nú er að hefjast vetrarstarf sjón-
varpsins viljum við koma á fram-
færi tillögum um efni í „Stundina
okkar“. Efni það sem Brúðubíllinn
hefur upp á að bjóða er alveg
upplagt í „Stundina okkar". Það
mættu gjarnan vera fastir þættir
í „Stundinni okkar“ með þeim
Sigríði Hannesdóttur og Helgu
Steffensen, sem stjórna Brúðu-
bílnum.
Viljum við með því að koma
þessari ósk á framfæri tala fyrir
munn allra þeirra litlu krakka sem
alltaf horfa jafn hugfangin á brúð-
urnar þegar þær birtast. Alltaf er
efnið þannig úr garði gert að það
höfðar til margra aldurshópa og
alltaf eru brúðurnar að láta eitt-
hvað gott af sér leiða í sínu litla
samfélagi. Þær Sigríður og Helga
hafa lag á að láta krakkana leggja
við hlustir og taka eftir því sem
fram fer. Þá tala þær svo skemmti-
legt mál að jafnvel fullorðið fólk
tekur eftir málfari þeirra. Viljum
Þórður Sturlaugsson skrifar:
Kæri Velvakandi.
Nú er sjónvarpið okkar að hefja
sýningar úr mikilli syrpu mynda
um stríðsrekstur nazista (þjóð-
legra sósíalista) í heimsstyrjöld-
inni annarri.
Rétt er að hafa nú í huga að
þessi myndasýning er að öllu leyti
samsett, samin og textuð af póli-
tískum andstæðingum.
við allra síst að þessar ágætu lista-
konur liggi með efni ónotað og því
væri ákjósanlegt að gefa þeim
tækifæri á að koma sem oftast
fram í „Stundinni okkar" yngri
kynslóðinni, sem öðrum, til
ómældrar ánægju.
Hér er því um að ræða verk, sem
gæti haft nokkuð samsvarandi
sannleiksgildi og stykki, sem
samið væri af kommúnistum um
krata — eða framsóknarmönnum
um Sjálfstæðisflokkinn undir
stjórn ólafs sáluga Thors. „Að
öllum ólöstuðum".
Kannski fáum við einhvern tíma
að sjá þátt um stríðsrekstur Stal-
íns saminn af Solchenitzin?
Verk pólitískra andstæöinga