Morgunblaðið - 30.10.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER1985
Afmæliskveðja:
Ágústa Thors
Áttræðisafmæli á í dag frú
Ágústa Thors, ekkja Thor Thors
sendiherra. Foreldrar hennar voru
Ingólfur Gíslason héraðslæknir og
kona hans, Oddný Vigfúsdóttir,
veitingamanns á Akureyri Sig-
fússonar.
Ágústa sleit barnsskónum í
Vopnafirði en þar gegndi faðir
hennar læknisembætti um árabil,
þjóðkunnur maður, ritfær og
skemmtilegur.
Rúmlega tvítug að aldri, falleg
og glæsileg ung stúlka, giftist
Ágústa Thor Thors, nýbökuðum
lögfræðingi og efnilegum, og stofn-
uðu þau heimili í Reykjavík. Á
fyrstu hjúskaparárum sínum
dvöldu þau um skeið á Spáni og
Portúgal vegna erindagerða Thors
fyrir útgerðarfélagið Kveldúlf, en
hann varð einn framkvæmda-
stjóra félagsins þar til hann gerð-
ist forstjóri Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda. Á þess-
um Reykjavíkurárum þeirra Thors
fæddust börn þeirra: Margrét
Þorbjörg, er giftist síðar í Wash-
ington og andaðist þar fyrir aldur
fram, Ingólfur, framkvæmda-
stjóri, búsettur í Washington, og
Thor yngri, bankastjóri í New
York.
Thor, maður Ágústu, lét þegar
á unga aldri mikið til sín taka sem
stjórnmálamaður. Var hann um
skeið formaður Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna, auk þess
sem hann gegndi formannsstörf-
um í Stúdentafélagi Reykjavíkur
og stóð þá m.a. fyrir norrænu stúd-
entamóti, sem haldið var í sam-
bandi við Alþingishátíðina 1930. Á
árinu 1933 var Thor kosinn þing-
maður Snæfellinga. Reyndist hann
atkvæðamikill alþingismaður alla
tíð þar til hann afsalaði sér þing-
mennsku þegar hann varð sendi-
herra í Washington.
Árið 1939 verða þáttaskil í ævi
Ágústu og Thors, er hann var
skipaður formaður sýningarráðs
íslands á heimssýningunni í New
York og ári síðar aðalræðismaður
íslands þar í borg. Fluttust þau
hjónin þá vestur um haf með börn
sín. Þegar sendiráð íslands í
Washington var sett á stofn árið
1941 þótti Thor sjálfkjörinn í það
mikilvæga sendiherraembætti
með sívaxandi og þýðingarmiklum
samskiptum íslands og Bandaríkj-
anna í síðari heimsstyrjöldinni, en
Bandaríkin höfðu þá með sam-
komulagi við íslendinga tekið að
sér hervernd íslands meðan á
styrjöldinni stæði. Á þessum árum
fluttust nær öll utanríkisviðskipti
íslands frá Evrópu til Bandaríkj-
anna. Öll vörukaup þaðan til fs-
lands þurftu milligöngu hins nýja
sendiráðs í Washington. Meðal
annars af þeirri ástæðu voru það
því ærin störf, sem hlóðust á hinn
unga sendiherra og starfslið hans.
Einnig bættust fljótt við umdæmi
sendiherrans önnur lönd í Vestur-
álfu, en kunnastur varð Thor þó
sem formaður sendinefnda íslands
og fastafulltrúi okkar hjá Samein-
uðu þjóðunum. Á þeim vettvangi
skóp hann fslandi þann sess sem
þjóðin mun lengi búa að.
öll þessi ár stóð Ágústa við hlið
manns síns með miklum glæsibrag
og bjó honum fallegt heimili í
sendiherrabústaðnum í Washing-
ton. Gestrisni og framkomu þeirra
hjóna var viðbrugðið, jafnt meðal
ráðamanna Bandaríkjanna og full-
trúa erlendra ríkja þar sem í slend-
inga, er leið áttu til Bandaríkjanna
á þeim árum. Það var óvenjulegt
en jafnframt einkennandi fyrir
þau hjónin að enda þótt þau væru
fulltrúar eins smæsta ríkis í höfuð-
borg áhrifamesta stórveldis, þá
nutu þau ekki síður álits og velvild-
ar þar en fulltrúar margra hinna
stærstu þjóða heims.
Þegar minnst er Ágústu á þess-
um degi þá er þessi mynd skýrust:
Glæsileg kona og fríð, hjartahlý,
hressileg, glaðvær og skemmtileg
og hrókur alls fagnaðar, hvar sem
var.
Við hjónin áttum því láni að
fagna að starfa með Thor og
Ágústu um skeið eftir stofnun
sendiráðsins í Washington. Höfum
við því kunnað að meta kosti
þeirra, drengskap, gáfur og gest-
risni. Á þeim tíma tengdust vin-
áttubönd, sem ekki hafa rofnað.
Þau Thor urðu fyrir þeirri miklu
sorg á árinu 1954 að missa einka-
dóttur sína í blóma lífsins, en ára-
tug síðar féll Thor skyndilega frá.
Ofan á þessi áföll bættust langvar-
andi veikindi Ágústu. Eftir lát
Thors kaus hún að dvelja áfram í
Washington, þar sem heimili
þeirra hjóna hafði verið í aldar-
fjórðung, enda báðir synir hennar
búsettir vestra í námunda við
hana, að ógleymdum dóttursynin-
um, Blaine, augasteini hennar.
Þótt nokkur ár séu nú liðin frá
síðustu komu Ágústu til íslands,
hafa vinir hennar og ættingjar hér
heima ekki gleymt henni. Mun það
sannast með kveðjum og óskum,
sem henni berast að heiman á
þessum tímamótum.
1 4 3
■ i
mW
l.w' : i f'-sT Mr'.£
■ wp /' 1
Leikararnir f Skóarakonunni dæmalausu ásamt nokkrum aöstandenda. Leikstjórinn, Emil Gunnar Gunnarsson,
er lengst til hægri.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
30 manns taka þátt í sýningu
á Skóarakonunni dæmalausu
Keflavlk, 27. október.
FÖSTUDAGINN 1. nóvember frum-
sýnir Vox Arena, leikfélag Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja, leikritið
Skóarakonan dæmalausa eftir
spænska höfundinn Federico Garcia
Lorca, í Félagsbíó í Keflavík og
hefst sýningin kiukkan 8.30.
Með aðalhlutverk í leikritinu
fara Rósa Signý Baldursdóttir og
Bjarni Thor Kristinsson, leikar-
arnir eru 14 og alls taka um 30
manns þátt í sýningunni. Leik-
stjóri er Emil Gunnar Gunnars-
son.
Að sögn Unu Steinsdóttur, for-
manns Vox Arena, er Skóarakon-
an dæmalausa rómantískur gam-
anleikur sem fjallar um örlög skó-
arakonu einnar og baráttu hennar
við raunveruleikann. „Allir að-
standendur sýningarinnar eru
búnir að vinna dag og nótt til að
þetta verði sem best heppnað,"
sagði Una. „Við vonum því að
Suðurnesjamenn sýni okkur þann
heiður, og lyfti sjálfum sér upp,
með því að koma og sjá góða og
skemmtilega sýningu sem mikið
er lagt í.“
Eins og áður er sagt verður
frumsýningin 1. nóvember klukk-
an 8.30. Onnur sýning verður
miðnætursýning laugardaginn 2.
nóvember og hefst klukkan 11.30.
Þriðja sýning verður svo þriðju-
daginn 5. og hefst klukkan 8.30.
Aðrar sýningar verða auglýstar
síðar. Miðar verða seldir í anddyr-
inu og kosta 250 krónur fyrir gesti
og 150 fyrir nema FS.
Skóarakonan dæmalausa er
þriðja stórverkið sem leikfélag FS
setur upp. Hin voru Gildran eftir
Robert Thomas og Lokaðar dyr
eftir Wolfgang Borchert.
EFI.
Við Gígja sendum Ágústu hjart-
anlegar heilla- og hamingjuóskir
í tilefni dagsins, með þökk fyrir
alla vináttu liðinna ára.
Henrik Sv. Björnsson
í dag, miðvikudaginn 30. októb-
er, er elskuleg mannkostakona átt-
ræð. Frú Ágústa Ingólfsdóttir
Thors, sem um langt árabil var
sendiherrafrú íslands vestan hafs
í Washington D.C.
Það er okkur Ingva sérlega ljúft
að senda henni hugheilar árnaðar-
óskir á þessum merku tímamótum.
Ágústa er dóttir hjónanna
Oddnýjar Vigfúsdóttur frá Akur-
eyri og Ingólfs Gíslasonar læknis,
sem lengst af var héraðslæknir í
Vopnafirði og í Reykdælahéraði
en seinast í Borgarnesi, elskaður
og virtur af öllum er hann þekktu.
Ung að árum giftist hún Thor
Haraldi Thors, hinu mesta gáfu-
og glæsimenni, en hann var einn
af sonum Margrétar Kristjáns-
dóttur og hins þekkta athafna-
manns Thors Jensens. Þau eignuð-
ust þrjú mannvænleg börn, tvo
syni og eina dóttur er þau misstu
í blóma lífsins. Það varð þeim þung
raun og sum sár gróa aldrei hvað
svo sem máltækið segir.
Hin unga utanríkisþjónusta
okkar Islendinga átti því láni að
fagna, að eignast þau hjón Ágústu
og Thor Thors að fulltrúum lands
og þjóðar vestan hafs strax
snemma á 5. áratugnum. Gegndi
Thor hinum veigamestu embætt-
um þar fyrir land sitt í meira en
tvo áratugi með sóma og glæsibrag
þar til hann lést um aldur fram
11. janúar 1965, öllum harmdauði.
Við hlið hans hafði hún staðið
hin trausta og mikilhæfa eigin-
kona, búin öllum þeim kostum er
mest mega konu prýða. Góðvild
og glæsileiki, gáfur og glaðværð,
ásamt einstökum hæfileika til að
umgangast alla menn með sömu
fölskvalausu hlýjunni, eru hennar
aðalsmerki, og gera öllum glatt í
sinni er í návist hennar koma.
Skopskynið vantar hana ekki en
það er hárfínt og meiðir engan,
því er gott að mega hlæja með
henni því gamanið er ávallt
græskulaust. Listagyðjan hefur
heldur ekki látið hana afskipta. í
hjáverkum stundaði hún nám í
málaralist með góðum árangri en
hefur lítt viljað halda því á loft.
Það eru því fáir sem þekkja til
veka hennar á því sviði, því miður.
Allir þessir góðu eiginleikar
Ágústu nutu sín einkar vel í þeirri
stöðu er varð hlutskipti hennar í
lífinu, og oft er mjög krefjandi,
enda barst hróður þeirra hjóna
víða, bæði heima og erlendis.
Ég man alltaf hvað við Ingvi
urðum glöð er skeyti frá utanríkis-
ráðuneytinu barst okkur í lok árs-
ins 1961 til Moskvu, þar sem við
höfðum starfað við sendiráð ís-
lands í 3 ár, þess efnis, að við
ættum að flytja um áramótin til
Washington D.C. Það var sannar-
lega tilhlökkunarefni, að fá nú að
kynnast og starfa með þessum
virtu og ástsælu fulltrúum þjóðar
okkar vestan hafs.
Við urðum heldur ekki fyrir
vonbrigðum, því okkur var tekið
tveim höndum og vinátta og sam-
starf hófst sem aldrei bar skugga
á.
Minningamar um Washington-
árin, með þessum góðu vinum,
munu því aldrei fyrnast.
Elsku Ágústa, við Ingvi biðjum
þér allrar blessunar um ókomin ár
og þökkum óbrigðula vináttu og
allar gleðistundirnar á liðnum
árum.
Hólmfríður G. Jónsdóttir
Mikill vandi fylgir því að vera
sendiherra Islands og halda uppi
málstað og merki smáþjóðar á
margvíslegan hátt. Þetta er vafa-
laust mörgum ljóst, en sennilega
færri, að vandinn, sem oft hvílir á
sendiherrafrúnni er ekki minni,
og það skiptir sendiherrann ekki
litlu máli hvernig sendiherrafrúin
rækir hlutverk sitt.
Þetta kemur mér í hug í tilefni
af því, að í dag á áttræðisafmæli
kona, sem gegndi þessu hlutverki
um aldarfjórðungsskeið í því landi,
sem Islendingar höfðu þá og raun-
ar síðar mest samskipti við og
miklu varðaði því hvernig sendi-
herrann og sendiherrafrúin ræktu
störf sín. Þessi kona er frú Ágústa
Ingólfsdóttir, ekkja Thors Thors.
Thor Thors reyndist góður full-
trúi lands síns, en það skipti hann
ekki litlu máli, að við hlið sér hafði
hann eina glæsilegustu konu, sem
ísland hefur átt, en þó var meira
um það vert, að hún var gædd
þeirri meðfæddu kurteisi og
hjartahlýju, sem er eftirminnileg
öllum þ eim, sem kynntust henni
á þessum tíma.
Frú Ágústa Ingólfsdóttir Thors
er fædd 30. október 1905. Foreldrar
hennar voru Ingólfur Gíslason,
sem lengi var héraðslæknir í Borg-
arnesi, og Oddný ólöf Vigfúsdótt-
ir. Þau Thor Thors og Ágústa gift-
ust í desembermánuði 1926. Til
viðbótar áðurgreindum kostum,
var hún gædd listrænum hæfileik-
um, söngvin og músíkölsk, og lagði
síðar stund á málaralist. Heimili
þeirra Ágústu og Thors í Reykja-
vík var vinsælt og gestkvæmt, og
áttu þau bæði þátt í því. Heimili
þeirra vestanhafs var þó ekki
minna rómað og opið íslendingum,
sem dvöldu vestra eða voru þar á
ferð. Fáar konur hafa hlotið fleiri
viðurkenningarorð í mín eyru fyrir
að taka vel á móti gestum en
Ágústa Thors.
Ágústa gat líka komið vel fyrir
sig orði, þegar beita þurfti dipló-
matískri háttvísi. Ég minnist þess
á 10 ára afmælisfundi NATO í
Washington, að ég lenti við sama
borð og frú Ágústa, en hún hafði
fyrir sessunaut Bretann George
Brown, sem síðar varð utanríkis-
ráðherra Verkamannaflokksins.
Brown var mikill orðhákur, oft
fyndinn, en þó mistækur. Hann
vék umræðunni við íslensku sendi-
herrrafrúna að þorskastríði fs-
lendinga og Breta, sem þá stóð
yfir, á heldur misheppnaðan hátt,
miðað við það, að setið var undir
veisluborðum. Ágústa svaraði á
mjög háttvísan og diplómatískan
hátt og heyrði ég það á borðfélög-
um mínum að íslenska sendiherra-
frúin hefði farið með sigur af
hólmi í orðaskiptum við hinn
breska orðhák.
Þau Ágústa og Thor eignuðust
þrjú börn, öll fædd á Islandi,
Margréti, Ingólf og Thor Harald.
Margrét lést fyrir aldur fram og
varð foreldrum sínum mikill
harmdauði. Bræðurnir Ingólfur og
Thor eru báðir búsettir vestan
hafs og hafa getið sér þar gott orð.
Thor Thors lést 11. janúar 1965,
eða fyrir rúmum tuttugu árum.
Hann var jarðsettur í sama kirkju-
garði og Margrét dóttir hans og
er skammt milli leiða þeirra.
Ágústa hefur verið búsett í Was-
hington síðan, og á það vafalítið
þátt sinn í því að hún vill vera í
nálægð við syni sína, barnabörn
og ekki síður látinn eiginmann og
dóttur.
Hinir mörgu, sem gistu heimili
þeirra Ágústu og Thors og raunar
margir fleiri, óska henni í dag til
hamingju með afmælisdaginn og
þakka henni góð kynni og vináttu.
Þórarinn Þórarinsson
— O —
Heimilisfang hennar
í Bandaríkjunum er:
1710 Flora Lane
Silver Spring
Maryland
USA