Morgunblaðið - 08.11.1985, Side 17
b
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER1985
17
^3R£J^
frimerki
eru
frædandi
%
frimerki
eru
frædandi
o
^ifíRKlS^
%
frimerki
eru
frædandi
o
%
^AlfKKl^
Sýnisborn af dagstimpli Dags frímerkisins 5. nóv.
in á hér á landi. Erlendis eru slíkir
markaðir að jafnaði vel sóttir.
Þá vil ég benda mönnum alveg
sérstaklega á það, að bæði FF og
LÍF verða með söludeildir á sama
tíma og skiptimarkaðurinn stend-
ur. Verður þar til sölu ýmis áhuga-
verður varningur frá fyrri frí-
merkjasýningum. Landssamband-
ið á t.d. ýmislegt skemmtilegt eftir
frá NORDIU ’84, svo sem barm-
merki, minnispeninga o.fl. Fjár-
frekar framkvæmdir hafa staðið
yfir á þessu ári við hið nýja félags-
heimili. Þess vegna er einmitt allur
stuðningur við samtök safnara vel
þeginn og ekki sízt þessa stundina.
Loks vil ég geta þess, að laugar-
daginn 16. nóvember fer vígsla fé-
lagsheimilis FF fram í Síðumúla
17 milli kl. 15 og 17. Verða þar
ókeypis kaffiveitingar fyrir félags-
menn og aðra þá, sem sækja stað-
inn. Vil ég eindregið hvetja menn
til að fjölmenna og skoða um leið
hið vistlega félagsheimili LÍF og
FF og kynnast þannig af eigin
raun, hversu vel er reynt að búa
að söfnurum.
En það verður fleira að gerast
þessa daga hér í höfuðborginni.
Klúbbur Skandinavíusafnara, sem
hefur einkum haslað sér völl í
Breiðholtshverfum, gengst fyrir
kynningu á söfnun frímerkja 16.
og 17. nóvember í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Verður sýn-
ingin opin báða dagana frá kl.
13—19. Sýningin, sem fyrst og
fremst er tileinkuð börnum og
unglingum, hefur hlotið nafnið
UNGFRÍM ’85.
Litið er vitað um skipulegt starf
ungra frímerkjasafnara og vonast
klúbburinn til þess, að sýningin
opni augu skólanema i Breiðholti
fyrir þessari ágætu tómstundaiðju
og verði jafnvel til þess, að upp
rísi frímerkjaklúbbar innan skól-
anna. — Til þess að varpa sem
skýrustu ljósi á þá möguleika, sem
fólgnir eru í frímerkjasöfnun,
hefur klúbburinn aflað sýningar-
efnis frá unglingum i Danmörku,
Noregi og Svíþjóð, en þar er ungl-
ingastarf frímerkjasafnara vel á
vegi statt.
Auk þessa sýningarefnis munu
nokkrir af þekktari frímerkja-
söfnurum hérlendis sýna söfn sín
og leggja undir dóm dómnefndar
Landssambandsins og freista þess
þannig að ná þeim árangri, sem
veitir aðgang að alþjóðlegum frí-
merkjasýningum.
Frímerkjasýningin UNGFRÍM
’85 er þess vegna alhliða-sýning,
jafnt fyrir byrjendur sem og þá,
%
er lengra eru komnir í söfnun frí-
merkja.
Af því, sem nú hefur verið rakið
í þættinum, má ljóst vera, að frí-
merkjasafnarar og aðrir áhuga-
menn hafa nóg að gera um aðra
helgi. Er ekki nema ánægjulegt til
þess að hugsa, og vonandi glæðir
það áhuga meðal almennings og
þá ekki sízt meðal unglinga, sem
brátt erfa landið.
Jólafundur
FF 3. desember nk.
Vetrarstarf Félags frímerkja-
safnara er komið vel af stað.
Félagsheimilið í Síðumúla 17 er
opið á laugardögum frá kl. 15—
18. Vera má, að sú breyting verði
gerð hér á að opna það heldur
fyrr, jafnvel kl. 13.30. Þá er einn-
ig opið á fimmtudagskvöldum. —
Næsti félagsfundur verður 21.
nóvember, og síðan verður hinn
árlegi jólafundur þriðjudaginn
3. desember. Verður hann í Krist-
alssal Hótels Loftleiða og hefst
kl. 20.30. Jólafundir FF hafa
ævinlega verið vel sóttir og öllum
til ánægju.
Jólafrí-
merki 1985
Næstkomandi föstudag, 14.
þ.m., koma út siðustu islenzku
frímerki ársins, jólafrímerkin.
Þau hafa verið árviss atburður
síðan 1981. Eru þetta tvö frí-
merki og henta vel á væntanleg-
an jólapóst, því að verðgildi
þeirra eru 8 og 9 kr. Tákn mynd-
anna er veturinn — tími jólanna.
E.t.v. á einhver erfitt með að átta
sig á myndefninu, og því er bezt
að láta sjálfan listamanninn,
Snorra Svein Friðriksson, lýsa
því. Eftir honum er þetta haft í
tilkynningu Póst- og símamála-
stofnunarinnar: „Vetrarmyndir
íslands eru furðumyndir úr
snjó./ Sólskin kveikir ljós í snjó-
kristöllum./ Snjókorn falla,
mætast og mynda form/ á hvít-
um fjallatindum, vörðu á heiðar-
brún.“ — Margir hafa séð lit-
myndir af merkjunum framan á
tilkynningu póststjórnarinnar,
og ým°ir hafa verið anzi harðir
i dómum sínum. Ég held að menn
ættu að biða útkomu merkjanna
sjálfra, áður en þeir fella dóm
sinn um þau. Ekki er óhugsandi,
að bæði þessi frímerki og ýmis
önnur, sem út hafa komið á síð-
ustu misserum, verði mér um-
ræðuefni síðar. Jólafrímerkin
eru „sólprentuð" í Sviss, og trú-
lega á sú aðferð vel við að þessu
sinni.
þessa ákvörðun hefur verið unnið
að fyrirkomulagi ráðgjafarþjón-
ustunnar til frambúðar. Þeirri
undirbúningsvinnu er nú lokið og
hefur Ráðgjafarstöð Húsnæðis-
stofnunarinnar nú verið stofnuð.
Markmið hennar er að veita aðstoð
við undirbúning og skipulagningu
fyrir húsbyggjendur og íbúðakaup-
endur. Hvetur Húsnæðisstofnun
þá til að leita til Ráðgjafarstöðvar-
innar í tíma svo forðast megi óhóf-
lega greiðslubyrði eftir þ\ í sem
aðstæður frekast leyfa.
Húsnæðiskaupendur geta leitað
til stöðvarinnar eftir aðstoð við
gerð áætlana um fjármögnun
kaupanna. Við þá áætlanagerð er
notað tölvuforrit sem starLunenn
stofnunarinnar hafa þróað á und-
anförnum árum. Með því er m.a.
unnt að reikna út bæði greiðslu-
byrði og gjaldþol kaupandans,
jafnt til langs og skamms tíma.
Forstöðumaður Ráðgjafarstöðv-
arinnar er Grétar J. Guðmundsson
verkfræðingur. Auk hans starfar
viðskiptafræðingur við stöðina og
hún hefur aðgang að þjónustu
ýmissa sérfræðinga Húsnæðis-
stofnunar, svo sem annarra verk-
fræðinga, lögfræðings, tæknifræð-
inga, arkitekta og fagmanna I
byggingariðnaði.
Ráðgjafarstöðin mun einnig
gefa út fræðslurit, bæði á sviði
fjármögnunar, húsnæðiskau|ia og
tæknilegs efnis. Hið tækniletra efni
mun fyrst og fremst fjalla um
hagkvæmni í húsbyggingn m og
leiðir til sparnaðar, bæði á sviði
hönnunar og búnaðar húsa.
Bættu gosinu í
á sömu mínútunni
og þú drekkur
Cola- drykkinn þinn
Ekkert Cola er ferskara!
SÓLHF