Morgunblaðið - 08.11.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER1985
27
Landvernd:
Aðalfundur
á morgun
AÐALFUNDUR Landverndar, land-
græðslu- og náttúruverndarsamtaka
Islands, verður haldinn á morgun,
laugardag, í Alviðru í Ölfusi, en þar
eru Landvernd og Árnessýsla að
koma upp ' umhverfisfræðslusetri.
Fundurinn hefst kl. 9.30.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verða flutt fjögur erindi.
Fyrir hádegi ræðir Sigurður Sigur-
sveinsson um málefni Alviðru, þ.e.
umhverfi og fræðslustarf, en hann
hefur verið starfsmaður í Alviðru
undanfarin sumur.
Á dagskrá eftir hádegi verða
erindi um rannsóknir í umhverfis-
málum og eru framsögumenn: Jón
Gauti Jónsson, Sigurður St. Helga-
son og Þóra Ellen Þórhallsdóttir.
Farið verður frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 8.30 á laugardagsmorg-
Hekla hf.:
Útborgun 70—75%
en ekki 30 %
í FRÉTT í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins í gær var meinleg villa í
frétt um mismunandi greiðslukjör
er bifreiðaumboð bjóða viðskipta-
vinum sínum. Sagt var að útborg-
unarhlutfall kaupverðs bifreiða
hjá Heklu hf sé milli 25 og 30, og
eftirstöðvarnar lánaðar á skulda-
bréfi til sex mánaða. Þetta er
rangt. Rétt er að kaupendur þurfa
að greiða 70—75% út, en fyrirtæk-
ið lánar eftirstöðvarnar í sex mán-
uði á skuldabréfi. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Mjúkar kökur
og harðfiskur
— á markaði félags enskunema
HIÐ nýstofnaöa Félag enskunema
hefur unniö aö því að ná félagslífi í
enskudeild Háskóla íslands upp úr
þeirri lægð sem það hefur verið í
undanfarin ár, segir í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu.
Stofnun skemmti-, leik-, rit- og
ferðanefndar er liður í þessu auk
fjáröflunar til væntanlegrar
námsferðar til Lundúna um pásk-
ana. í ráði er að gefa út blað eftir
áramót í þessu skyni, en öflun fjár
hefst á köku- og harðfiskbasar,
sem haldinn verður í húsnæði
enskudeildar á Aragötu 14 (austan
Suðurgötu og sunnan Aragötu)
sunnudaginn 10. nóvember kl.
14.00. Nemendur hafa lagt nótt við
dag við að baka hnallþórur og
stríðstertur handa borgarbúum og
Norðlendingar hafa unnið baki
brotnu við að herða og berja úrvals
sjávarafurðir. Allir eru hvattirtil
að mæta á staðinn og spara sér
bakstur og barning og styrkja um
leið gott málefni, segir í frétt frá
félaginu.
Kvenfélag
Grensássóknar:
Basar á
morgun
HINN árlegi basar Kvenfélags
Grensássóknar verður haldinn að
þessu sinni í safnaðarheimilinu við
Háaleitisbraut á morgun, laugardag,
kl. 14.00.
Að venju verða þar til sölu
margvíslegustu munir, bæði hent-
ugir til gjafa og daglegra nota.
Einnig er ætlunin að þar verði
gott og mikið kökuúrval.
Konurnar verða í safnaðar-
heimilinu við undirbúning eftir kl.
19.00 í kvöld, föstudagskvöld, og
eftir kl. 10.00 á morgun, laugardag,
og er þá hægt að koma til þeirra
með kökur og muni.
Grunnskólanemendur í fylgd kennara að skoða Kjarvalssýninguna á Kjarvalsstöðum. morgum.moio/i' nopjomr
Kjarvalsstaðir:
Kennsluefni um Kjarval komið út
Á VEGUM Námsgagnastofnunar
hefur verið gefið út kennsluefni
um Kjarval, sem ætlað er til stuðn-
ings við undirbúning ferðar grunn-
skólanema á sýninguna „Kjarval,
aldarminning". Kennsluefninu
verður dreift í grunnskólum auk
þess, sem það liggur frammi á
Kjarvalsstöðum.
Að sögn Þóru Kristjánsdóttur,
listráðunautar Kjarvalsstaða,
hefur verið stöðugur straumur
skólanemenda að skoða sýning-
una frá því að hún var opnuð 15.
október. Til þess að anna eftir-
spurn frá skólayfirvöldum hefur
verið ákveðið að auka gæslu á
morgnana á Kjarvalsstöðum og
geta því nemendur komið í fylgd
kennara frá kl. 9 alla virka daga,
með því að bóka tíma hjá
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur-
umdæmis. Sýningunni lýkur 15.
desember nk.
Kennsluefnið er tekið saman
af safnakennurum Fræðsluskrif-
stofu Reykjavíkurumdæmis
þeim Bryndísi Sverrisdóttur og
Sólveigu Georgsdóttur.
Samverustund í
Laugarneskirkju
Laugarnessöfnuður efnir til sam-
verustundar í kjallarasal kirkjunnar
í dag kl. 14.30, en undanfarna átta
vetur hefur söfnuðurinn efnt til síö-
degiskaffis með dagskrá annan
hvern föstudag.
í samverustundina í dag koma
herra Pétur Sigurgeirsson biskup
og kona hans, frú Sólveig Ásgeirs-
dóttir, og ennfremur koma hjónin
Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari
og Hörður Askelsson organisti og
flytja tónlist.
Málefni Suðurlandskjördæmis
rædd á fundi með þingmönnum
Selfoasi, 4. nóvember.
FÖSTUDAGINN 8. nóvember verður
sunnlenskra sveitarfélaga. Á fundinum
ir frá nefndum sambandsins og lagðir
með þeim síðar um daginn.
Það eru álit þriggja nefnda, sem
tekin verða fyrir; frá samgöngu-
nefnd, orkunefnd og atvinnumála-
nefnd. Þessar nefndir héldu fundi
í október þar sem áhersluatriði
voru tekin saman.
Af hálfu samgöngunefndar, 14.
október er lögð áhersla á stokkun
Markarfljóts og Múlakvisiar. Á
meðan ekkert er aðhafst í vörnum
við Markarfljót er vatnsveita
Vestmannaeyja i mikilli hættu og
einnig þær sveitir, sem áin getur
lagt í auðn, ryðji hún sér leið úr
farveginum. Nefndin telur nauð-
synlegt að stokka Múlakvísl ofan
Höfðabrekkujökuls til varnar því
að áin gangi á jökulinn, sem er
helsta vörn Víkurkauptúns í vænt-
anlegu Kötluhlaupi. Á fundi sam-
göngunefndar var gerð grein fyrir
úttekt, sem í gangi er á sam-
göngum og samgöngukerfum,
skipulagi samgangna og flutninga-
þjónustu á Suðurlandi. Að lokinni
þeirri úttekt verður reynt að benda
Fólk þarf að huga
að jólapóstinum
NÚ FER að verða nauðsynlegt að
huga að sendingu jólaböggla,
a.m.k. til fjarlægra landa, að þvf
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá póst- og símamálastofnun.
Til þess að öruggt sé að skipa-
póstur komist til skila fyrir jól
verður að fara að senda slíkan
póst sem allra fyrst.
Póst sem senda á til fjarlægra
landa með skipi til dæmis til
Ástrallu, Asíu, Afríku og Suður-
Ameriku þarf að póstleggjast
helst ekki seinna en í dag 8. nóv-
ember.
Skipapóst til Norður-Ameríku
og Suður-Evrópu þarf að senda
eigi síðar en 25. nóvember. Og
til Norður-Evrópu og Norður-
landa í síðasta lagi 2. desember.
Flugpóst til Ástralíu, Asíu,
Afríku og Suður-Ameríku þarf
að póstleggja fyrir næstu mán-
aðamót og til Norður-Ameríku
og Suður-Evrópu eigi síðar en 5.
desember og Norður-Evrópu 10.
desember næstkomandi.
Áríðandi er að útfylla skýrt
og greinilega fylgibréf, böggla og
tollskýrslur og tilgreina ná-
kvæmlega innihald sendinga svo
að komist verði hjá töfum vegna
tollskoðunar.
haldinn fulltrúaráðsfundur Samtaka
verða teknir fyrir helstu áhersluþætt-
fyrir þingmenn kjördæmisins á fundi
á leiðir til úrbóta og bættrar þjón-
ustu. Formaður samgöngu-
nefndar er Georg Þór Kristjáns-
son, Vestmannaeyjum.
Á fundi orkunefndar 21. október
var m.a. bent á þann aðstöðumun
sem ríkir varðandi afhendingu á
raforku þar sem Sunnlendingar
þurfa að sækja orkuna í virkjanir,
en t.d. Reykjavíkurborg fær hana
afhenta við borgarmörkin. Þá var
samþykkt að beina því til iðnaðar-
ráðherra að skipa nefnd til að
endurskoða gjaldskrá raforku sem
stuðli að betri og jafnari nýtingu.
Bent var á að notendur raforku á
Suðurlandi greiða allt að 31%
Landsfundur
Kvennalistans
LANDSFUNDUR Kvennalistans
hefst í Gerðubergi á morgun, laugar-
dag, kl. 10 og verður einnig á sunnu-
dag. Er þetta þriðji landsfundur
Kvennalistans, en samtökin voru
stofnuð 1981.
í tilkynningu frá Kvennalistan-
um segir að fundurinn sé opinn
öllum konum sem áhuga hafa á
starfsemi listans, en þátttöku þarf
að tilkynna til Kvennahússins,
Hótel Vík, í Reykjavík.
hærra verð fyrir raforku til heim-
ilisnota og allt að 45% hærra verð
fyrir raforku til iðnaðar, en þeir
notendur sem skipta við rafveitur
og fá orkuna beint frá Landsvirkj-
un. Orkunefnd ályktar að við svo
búið megi ekki standa og beinir
því til þingmanna að vinna ötul-
lega að leiðréttingu þessara mála.
Formaður orkunefndar er Guð-
mundur Kr. Jónsson, Selfossi.
Á fundi atvinnumálanefndar, 18.
október skýrðu nefndarmenn frá
atvinnuástandi, hver frá sínu
svæði. Samkvæmt því er atvinnu-
ástand með besta móti á Eyrar-
bakka og atvinnufyrirtæki í deigl-
unni. Á Stokkseyri er atvinnu-
ástand viðunandi og í Þorlákshöfn
og ölfushreppi einnig. Sömu sögu
sagði fulltrúi Vestmannaeyja, þar
sem stöðugt vantar fólk til fisk-
vinnslu. A Selfossi virðast at-
vinnuhorfur dökkar, sagt hefur
verið upp fjölda manns í bygginga-
riðnaði og margir sækja atvinnu út
fyrir bæjarmörkin. í V-Skaft.
hefur atvinnuleysi heldur aukist
og atvinna einhæf. Blikur eru á
lofti í atvinnumálum í Rangár-
vallasýslu. Nýtt sláturhús hefur
valdið tilflutningi á störfum en
ekki aukningu. I uppsveitum Ár-
nessýslu er að sögn iðnráðgjafa
þörf á smáfyrirtækjum þar sem
þéttbýlt er.
Fundarmenn atvinnumála-
nefndar voru sammála um að
leggja áherslu á eftirfarandi mál
á fundi með þingmönnum: Lána-
kerfi húsnæðismála, sem veldur
mestu um samdrátt í húsasmíðum
(einingahús), stóriðjumál, fjár-
magn í iðnþróun, sem tengist m.a.
úrvinnslu og nýskipan í atvinnu-
lífi, atvinnuleysisbætur og flutn-
ing á vinnuafli, þungaskatt og
áhrif hans á flutningskostnað, og
að lokum fjárstreymi til höfuð-
borgarinnar.
Loks var ályktað um mikivægi
fyrirhugaðrar brúar yfir ölfusár-
ósa. Formaður atvinnumálanefnd-
ar er Margrét Frímannsdóttir,
Stokkseyri.
Fulltrúaráðsfundurinn og fund-
urinn með þingmönnum kjördæm-
isins verða báðir í Tryggvaskála á
Selfossi. Sig. Jóns.
Námskeið í Ayur-Vada
NÁMSKEIÐ þar sem svonefnt Ay-
ur-Veda heilbrigðiskerfi verður
kynnt hefst í Lögbergi Háskóla ís-
lands í kvöld, föstudagskvöld kl. 19
ístofu 101.
I fréttatilkynningu sem Mbl.
hefur borist segir að Dr. Lewley,
rektor Ayur-Veda háskólans í
Gujarat á Indlandi, sé kominn
hingað til lands til að kynna
Ayur-Veda heilbrigðiskerfið, en
það mun byggja á því að greina
einstaklinginn eftir lífeðlisfræði-
legum sérkennum hans og veita
ráðgjöf um líferni, mataræði og
fleira sem stuðlar að jafnvægi
líkamsstarfseminnar.
Ennfremur segir í tilkynning-
unni að í lok námskeiðsins eigi
þátttakendur þess kost á að fá
einkaráðgjöf hjá hinum indverska
sérfræðingi, en skráning á nám-
skeiðið fer fram milli kl. 18 og 19
í Lögbergi.
Samband sveitarfélaga
á Suðurnesjum:
Aðalfundur
haldinn í dag
og á morgun
AÐALFUNDUR Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum verður haldinn
í félagsheimilinu Höfnum í dag,
föstudag, og á morgun, laugardag.
Fundurinn hefst kl. 14.00 1 dag.
Auk venjulegra fundarstarfa flyt-
ur Björn Friðfinnsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
ávarp. Fjallað verður um hvort
Hitaveita Suðurnesja sé á tíma-
mótum. Þá mun Hjálmar Arnason,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, ræða um drög að
frumvarpi um skólakostnað fram-
haldsskóla.
Á laugardag kl. 10.00 hefst fund-
ur að nýju á þvi að Matthías
Mathiesen alþingismaður, ávarp
og síðan verður rætt um hvað sé
að gerast í atvinnumálum á Suður-
nesjum. Málefni aldraðra verða í
brennidepli og einnig verður fjall-
að um sameiningu sveitarfélaga á
Suðurnesjum.