Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 35
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 35 ptnrgmi Útgefandi ittUifrttk Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 400 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 35 kr. eintakiö. Prófkjör í Asunnudag og mánudag geta flokksbundnir sjálfstæðis- menn í Reykjavík valið fram- bjóðendur á lista fiokks síns í borgarstjórnarkosningunum á næsta ári. Eins og sjá má af lestri Morgunblaðsins þessa dagana er töluvert líf í kosn- ingabaráttunni. Hún ber hins vegar yfirbragð þeirrar sam- heldni, sem hefur einkennt starf borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna undanfarin ár undir forystu Davíðs Odds- sonar, borgarstjóra. Frambjóðendur sjálfstæðis- manna til borgarstjórnar hafa verið valdir í prófkjöri síðan 1970. Ef litið er til úrslita kosn- inga í Reykjavík síðan, er ekki unnt að segja annað en próf- kjörin hafi leitt til viðunandi niðurstöðu fyrir sjálfstæðis- menn. Prófkjör eru þó sama annmarka háð og önnur mann- anna verk, að þau njóta mis- mikils fylgis. Þess gætir nú meira en áður, að jafnt sjálf- stæðismenn sem aðrir hallast að þeirri skoðun, að þessi aðferð við að velja fólk í framboð hafi runnið sitt skeið. Fréttir berast um það úr Reykjaneskjördæmi, að þar hafi sjálfstæðismenn lítinn áhuga á að efna til prófkjara að þessu sinni. Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar voru listar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, Garðabæ og Mos- fellssveit skipaðir án þrófkjörs, það var aðeins fyrir flokks- menn í Kópavogi en opið öllum stuðningsmönnum flokksins á Seltjarnarnesi. Fyrir borgar- stjórnarkosningarnar 1982 var sama skipan á vali frambjóð- enda í Reykjavík og nú að því er kosningarétt varðar. Sú breyting*hefur hins vegar orðið á framkvæmdinni nú, að kjós- endur raða frambjóðendum í sæti á listann og nöfnum fram- bjóðenda er ekki raðað með hefðbundnum hætti í stafrófs- röð á prófkjörseðilinn. Ástæða er til að minna á þessi tæknilegu atriði vegna þeirra umræðna, sem orðið hafa um þau í tilefni af próf- kjöri Sj'álfstæðisflokksins hér í Reykjavík. Velkist menn í vafa um þau tefur það fyrir ákvörð- unum um aðalatriðið, sem pr auðvitað að ná samstöðu um þá, er þeir treýsta best til að veita höfuðborginni forystu á næsta kjörtímabili. Enginn flokkur leitar til jafn fjölmenns hóps í því skyni og Sjálfstæðis- flokkurinn í .Reykjavík. Próf- kjörsbaráttan ein gefur al- menningi glögga mynd af því, sem hefur gerst, er að gerast og frambjóðendur vilja að ger- ist í stjórn borgarinnar. Á meðan prófkjör eru við lýði er nauðsynlegt, að allir, sem hafa rétt til að taka þátt í þeim, Reykjavík nýti þennan rétt. Um skipan og framkvæmd prófkjara hefur mikið verið rætt í Sjálfstæðis- flokknum undanfarin misseri. Svo kann að fara, að ákvörðun verði tekin um að hverfa al- mennt frá þessari aðferð við smíði framboðslista. Þar til að því kemur er brýnt, að sem flestir sinni hvatningu fram- bjóðenda og leggi þeim lið. Anægjuleg nýbreytni í skólum IMorgunblaðsfrétt í gær er skýrt frá því, að Karvel Ögmundsson, hinn þjóðkunni útgerðarmaður, hafi farið í skólann í Njarðvíkunum og ísaksskóla í Reykjavík og skýrt börnum frá „lífsbaráttunni í gamla daga“, eins og hann orðar það sjálfur. Þetta er ánægjuleg nýíbreytni, sem aðrir skólar ættu að taka sér til fyrir- myndar. Breyting á þjóðfélagsháttum hefur leitt til þess, að tengsl ungra og aldinna eru minni en áður innan fjölskyldna. Þjóð- félagið sjálft axlar nú meira af því, sem fjölskyldan gerði áður. Á vegum sveitarfélaga og ríkisins er unnið að því að koma á fót heimilum fyrir gamalt fólk. Allir stjórnmálaflokkar eru sammála um,- að aldrei verði nóg að gert í því efni frekar en smíði dagheimila fyrir börn. í sjálfu sér er það eðlileg afleiðing þessa, að hið opinbera eða skólarnir taki að sér milligöngu, þegar að því kemur að huga að tengslunum milli þess sem var og er í þjóð- lífinu. Varla verður betur að því staðið en á þann veg, að börnum sé gefinn kostur á því í skólanum að kynnast ljóslif- andi fulltrúum þeirrar kynslóð- ar, sem man tímana tvenna hér á landi. Þegar Karvel Ögmundsson var spurður að því, hvort hann héldi að það hefði góð áhrif á börnin að fá eldra fólk til að tala við þau um lífið í gamla daga, svaraði hann: „Já. Ég lít á það sem gæfu fyrir alla þjóð- ina ef eldra fólkið fæst til að segja frá gamla tímanum. Mér er enn í fersku minni það sem gamalt fólk sagði mér þegar ég var barn.“ Þessi orð eru ítrekuð hér með ósk um að sem flest börn í íslenskum skólum fái að kynnast því af eigin raun, hvernig fulltrúar þeirrar kyn- slóðar, sem flutti ísland úr fortíð til nútíðar, segja frá lífi sínu og störfum. Bímí Bjarnasyni svarað — eftir Valdimar Kristinsson Björn Bjarnason birtir langa ritsmíð í Morgunblaðinu 30. októ- ber sl. er hann nefnir „Almanna- varnarvegir á kostnað annarra". Þar kennir margra grasa. Grein- um okkar Halldórs Jónssonar er meðal annars blandað saman og þær síðan ræddar sitt á hvað að geðþótta höfundar. Mun nú rætt um það, sem að undirrituðum snýr sérstaklega, sbr. grein mína frá 16. október um „Varnir, almanna- varnir og vegagerð". Sú skoðun mín hefur ekki breyst, að eftirlitsstöð Atlantshafsbanda- lagsins á íslandi ætti að vera fjarri byggð á norðausturhorni landsins og sem mest sjálfri sér nóg. Það væri bæði betra þjóðarinnar vegna og einnig eftirlitsins vegna með tilliti til þeirra hafsvæða norður af landinu, sem mikil þörf er talin á að hafa auga með. Einhverjar ráðstafanir þyrfti þó að gera varð- andi Keflavíkurflugvöll, sem gæti ekki verið eini alþjóðaflugvöllur- inn í heimi án alls varnarvið- búnaðar. Ekki er það rétt hjá BB, að ég hafi rætt um varaflugvöll fyrir varnarliðið á Sauðárkróki, hins vegar nefndi ég varaflugvöll fyrir millilandaflugið á sama stað, sbr. frétt Morgunblaðsins frá 18. apríl sl. Vafalaust gæti varnarliðið haft gagn af slíkum varaflugvelli við eftirlitsflug, en eigi hann að verða hernaðarflugvöllur ætti eindregið að benda á norðausturhornið í staðinn. Spurningunni um hvort koma þyrfti upp varnarviðbúnaði við varaflugvöll fyrir millilandaflugið á Sauðárkroki mætti svara á þann veg, að væri almennur varnarvið- búnaður hér á landi, þá hlyti hann að ná til slíks flugvallar og einnig til allra annarra flugbrauta lands- ins af lengri gerðinni svo og til helstu hafna. Þetta hefur hins vegar ekki verið gert, enda dettur varla nokkrum manni í hug að koma hér upp virkjum við hvern fjörð og alla flóa. Hins vegar mundi gott vegakerfi gera varnar- liði kleift að komast í skyndingu um landið, því snögg viðbrögð skipta öllu til að brjóta innrás á bak aftur. Ekki er það heldur rétt hjá BB, að ég sé þeirrar skoðunar, að það hljóti að koma að því, að ísiending- ar þurfi þúsundum ef ekki tug- þúsundum saman að leita skjóis vegna árása á land sitt; og ég kemst ekki heldur að þeirri niður- stöðu, að í stríði sé best að flytja sem flesta íslendinga frá heim- kynnum sínum. Hins vegar nefndi ég að börn á vissum aldri væru stundum flutt í varúðarskyni á sérstökum hættutímum þótt aðrir sætu heima. Er þörf á að gera andmælendum sínum upp skoðan- ir? Engin ástæða er heldur til að miða alla umræðuna og varðúðina við kjarnorkuna, sem BB er svo tíðrætt um. Ef svo væri, þá mætti leggja öll önnur vopn niður nema rétt til að verjast árásum hefndar- verkamanna og skæruliða. Þjóðin bjó við hálflokaðan Hvaifjörð í mörg ár í síðari heimsstyrjöldinni. BB nefnir þetta ekki einu orði og virðist ekki heldur telja það um- ræðunnar virði, að ekki er hægt að komast milli Keflavíkurflug- vallar og Hvalfjarðar nema um göturnar í Reykjavík. Er þó skemmst að minnast þess, að einn góðan veðurdag á liðnu sumri fyllt- ist Hvalfjörður af (her)flutninga- skipum. Þá er mér engin launung á því, að ég hugsa mér áðurnefnda vegi einnig til styrktar almannavörn- um við náttúruhamfarir. Er þörf á að biðjast afsökunar á því? Við höfum dæmið fyrir okkur. Kefla- víkurflugvöllur er rekinn að veru- legu leyti fyrir erlent fé, og honum er haldið við og flugbrautirnar lengdar á sama hátt, en við notum hann samt í ríkum mæli. Fáir segja eitthvað ljótt um þessa skip- an mála, þótt þarna fari saman varnargildi og almennt notagildi. Varðandi spurninguna um aðild íslendinga að mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins, þá hlýt- ur hún að koma til greina, ekki síst ef hann hefur lagt fram fé til framkvæmda eins og stækkun flugvallarins í Luxemburg. En um þetta hefur svo lítið verið rætt, eins og margar aðrar hliðar varn- armálanna, að ekki er hægt að taka afstöðu án frekari vitneskju. Þó hefur verið sagt, að mann- virkjasjóðurinn miði fjárveitingar sínar einkum við hernaðarmann- virki. Greiðfær vegur frá Keflavík- urflugvelli að Hvalfirði ætti að geta fallið undir þá skilgreiningu, en um leið stuðlað að almanna- vörnum með því að draga úr hugs- anlegri truflun á öðrum leiðum. Almennar samgöngur skipta Valdimar Kristinsson „Þá er mér engin laun- ung á því, aö ég hugsa mér áðurnefnda vegi einnig til styrktar al- mannavörnum við nátt- úruhamfarir. Er þörf á að biðjast afsökunar á því? Við höfum dæmið fyrir okkur. Keflavíkur- flugvöllur er rekinn að verulegu leyti fyrir er- lent fé, og honum er haldið við og flugbraut- irnar lengdar á sama hátt, en við notum hann samt í ríkum mæli.“ miklu máli á öllum tímum, þótt um enga þjóðflutninga sé að ræða, eins og þá sem BB verður svo tíð- rætt um. Þá gæti það einnig sem best verið blanda af skynsamlegum almannavörnum og hernaðarlegri varúð að flytja Reykjavíkurflug- völl nálægt þessum vegi, austan Reykjavíkur, sem flugtæknin ætti að leyfa með tilliti til fjarlægðar fjalla. Með því ynnist það mikils- vera öryggi, að varnaraðili á Kefla- víkurflugvelli gæti komið skjót- lega til hjálpar á nýja flugveilinum án þess að fara inn í höfuðborgina og án þess að varnarviðbúnaður væri aukinn að neinu leyti. Hvað sem hverjum og einum kann að finnast um þessar hugmyndir, þá er alveg óhætt að ræða þær í róleg- heitum. t grein minni var feitletruð spurning um það, hvort það flokk- aðist undir peningahyggju að bæta 3—6% við kostnaðinn af radar- stöðinni við Bolungarvík og bæta með því óshlíðarveginn til öryggis fyrir starfsmenn stöðvarinnar, Bolvíkinga og nágranna þeirra um leið. Ekki ræðir BB þetta mál. Vestfirðingar kynnu þó að hafa áhuga á svarinu. BB undrast það, að talað sé um beina þjónustu við varnarliðið samhliða aðstoð við gerð sam- göngumannvirkja. Vissulega er þetta sitt hvað, en hvoru tveggja tengist þó varnarmálum. BB legg- ur þarna til móralskan mæli- kvarða; gefur beinu þjónustunni ágætiseinkunn en vegunum víti. En ef bein þjónusta er að einhverju leyti innt af hendi án þess að við- skiptavinurinn eigi kost á sann- gjörnum kjörum, þá er miklu heið- arlegra að láta af slíkum við- skiptaháttum og biðja frekar um aðstoð við ákveðna mannvirkja- gerð, sem tengist öryggi þjóðarinn- ar. Nú er spurningin hvort BB er viss um að öll þessi viðskipti séu á sanngjörnum grundvelli? Eftir lestur greinarinnar frá 10. september hélt undirritaður, að BB vildi umræður um þessi mál, en greinin frá 30. október bendir varla til þess; í öllu falli ekki niður- lagið. Þar er talað um þá, sem stjórnist af peningahyggju og gefi lítið fyrir hugsjónir, enda gefi þær ekki mikið í aðra hönd — þeir gætu auðveldlega komist að þeirri niðurstöðu að sjálfsagt væri að athuga hvað Sovétmenn væru fúsir til að borga mikið — enda ekki nýtt að menn séu fúsir til að selja sál sína og frelsi. Þetta líkist nú frekar réttar- höldum en umræðum. Að minnsta kosti er dómsniðurstaðan skýr. Hverjir eiga þessa kveðju? Fyrir nokkrum árum létu víst um 80% kjósenda í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík í ljós skoðanir um varnarmálin, sem ekki voru í fullu samræmi við stefnuna eins og hún birtist í túlk- un BB. Búast má við að enn skilji þarna á milli. Væru þetta þá ekki nokkuð kaldar kveðjur til allra þessara flokksmanna? Hvílík ógn hlýtur það að vera að búa í ríkjum, þar sem stefnan og valdið er eitt og sérhvert frávik er hægt að túlka sem landráð. Sem betur fer er ekki svo illa fyrir okkur Birni Bjarnasyni komið og þess vegna skora ég á hann að taka þátt í umræðum um þessi mál á jákvæðan hátt og með opn- um huga. Höfundur er vidskipta- og land- fræöingur búsettur íReykjavík. Jöfnun á skattbyrði hjóna — eftir Gunnar G. Schram Á því þingi sem nú situr munu verða gerðar breytingar á skatta- lögunum til þess að framfylgja þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fella niður tekjuskatt af al- mennum launatekjum. Það á að gerast í áföngum á þremur árum og er hér um að ræða annan áfanga þess máls. Almennar launatekjur munu á þessu ári teljast um 50 þúsund krónur á mánuði en það eru meðaltekjur í landinu sam- kvæmt framtölum. Þær tekjur eiga að verða með öllu tekjuskatts- frjálsar í lok þriðja áfanga. En það er á fleira að líta í skatta- málum en þetta mikilvæga atriði. Samkvæmt núgildandi lögum greiða menn misjafnlega háa tekjuskatta af sömu tekjum eftir því hvort það er annað eða bæði hjónin sem teknanna afla. í þessu er fólgin verulegur ójöfnuður, sem tímabært er orðið að leiðrétta. skattareglum á að haga þannig að skattbyrði heimilisins fari ekki eftir því hvernig fyrirvinnur skipta með sér verkum við öflun teknanna. Það er sú grundvallar- regla, sem hér ætti að gilda. Dæmi um mismuninn Ég hefi nýlega beðið ríkisskatt- stjóra að gera samanburð á tekju- skattsgreiðslum hjóna eftir því hvernig tekjur heimilisins skiptast á milli hjónana. Er sú tafla birt með þessari grein. Þar kemur fram að af sömu tekjum þarf að greiða allt að 63 þúsund krónum meira í tekjuskatt, ef það er aðeins annað hjóna, sem þeirra aflar. Dæmi má taka af hjónum, sem hafa samtals 600 þúsund krónur í árstekjur. Ef annað hjónanna vinnur fyrir öllum tekjunum yrði tekjuskatturinn alls 109.000 krónur. Ef annað hjónanna vinnur hins vegar fyrir þriðjungi þessara tekna en hitt fyrir tveimur þriðju þeirra, eins og algengt er, yrði tekjuskatturinn ekki nema 72.000 krónur. Mismunurinn er hér 37.000 krónur. Ef árstekjurnar eru kr. 750.000 yrði mismunurinn kr. 56.500 eftir Tafla I. Samanburður á tekjuskattsgreiðslum hjóna eftir því hvernig tekjur skiptast (í krónum). Tekjuskattsstofn (tekjur 400.000 500.000 600.000 750.000 900.000 1.000.000 beggja) a) Tekjuskattur ef anriað 21.000 65.000 109.000 175.000 241.000 285.000 hjóna vinnur fyrir öllum tekjunum b) Annað hjóna vinnur 10.000 41.000 72.000 131.500 191.000 230.666 fyrir % hluta teknanna — hitt fyrir Vá hluta c) Tekjur skiptast jafnt 10.000 41.000 72.000 118.500 178.000 222.000 milli hjóna Mismunur á a) og c) 11.000 24.000 37.000 56.500 63.000 63.000 (Heimild: Ríkisskattstjóri, nóv. 1985). því hvort annað eða bæði hjónanna vinna fyrir þessum tekjum. Brýtur í bága við jafn- ræðisregluna Það liggur í augum uppi að oft getur högum fólks verið svo háttað að öðrum makanum er ekki kleift að vinna utan heimilis. Til þess getá legið ýmsar ástæður, svo sem fjöldi barna, veikindi eða umönnun aldraðs fólks og sjúks. Á það hefur verið bent að í slíkum tilvikum sparar heimavinnandi makinn ríkinu eða sveitarfélögum oft mikið fé vegna rekstrarkostnaðar barnaheimila, sjúkrahúsa og elli- heimila. En útkoman verður sú að þessu fólki er í raun refsað fyrir að annast þessi störf á heimilinu með því að gera því að greiða mun hærri tekjuskatt af sömu tekjum en aðrir þurfa að inna af hendi. Slíkt fyrirkomulag nær vitanleg engri átt og er greinilega í and- stöðu við heilbrigða skynsemi. Við það má bæta að til grundvallar íslensku skattalögunum liggur svokölluð jafnræðisregla, þ.e. að allir skattgreiðendur lúti sömu reglum, sama skattstiga. í þessu tilviki er sú regla brotin. Beinir skattar fara lækk- andi Þessi mál hafa oft verið rædd á Alþingi og þar verið bent á nauð- syn þess að jafna skattbyrði hjóna. Raunar var upphaflega gert ráð fyrir því að svo yrði í því skatta- lagafrumvarpi, sem samþykkt var Gunnar G. Schram „Hér er um það að ræða að skipta tekjunum jafnt milli hjóna án tillits til þess hver aflar þeirra áður en tekjuskattur er á lagður. En jafnframt slíkri breytingu verður þó að taka tillit til kostn- aðarauka heimilisins, sem skapast við það að bæði hjónin vinna úti.“ 1978, en frá var illu heilli horfið í meðförum þingsins. Á síðasta þingi var einn þáttur- inn í breytingunni á tekjuskattin- um sá að stigið var spor í þessa átt. En það spor var hvergi nærri nógu stórt eins og taflan, sem þessari grein fylgir, sýnir. Fróðlegt er í þessu sambandi að rifja upp álit ríkisskattstjóra í þessu efni, en hann ritaði alls- herjarnefnd Sameinaðs þings er- indi þann 22. maí sl. þar sem hann segir m.a.: „Að mínu áliti er fyrir löngu orðið tímabært að leiðrétta að fullu þann ójöfnuð sem nú er milli skattbyrði hjóna eftir því hvort annar makinn eða báðir eru tekna- aflandi aðilar utan heimilisins." Síðasti landsfundur Sjálfstæðis- flokksins ályktaði mjög á sömu lund og sagði að skattareglur ættu að vera þannig að skattbyrði heim- ilisins fari ekki eftir því hvernig fyrirvinnur skiptá með sér verkum við öflun tekna. Alþýðuflokkurinn og fleiri flokkar hafa gert áþekkar samþykktir um þetta mál. Mætti þvl ætlalið slíkar breytingar ættu nægu þingfylgi að fagna eins og málum er háttað. Hér er um það að ræða að skipta tekjunum jafnt milli hjóna án tillits til þess hver aflar þefrra áður en tekjuskattur er á lagður. En jafnframt slíkri breytingu verður þó að taka tillit til kostnaðarauka heimilisins, sem skapast við það að bæði hjónin vinna úti. Slíkur kostnaður getur verið verulegur, en honum má mæta á ýmsan hátt m.a. með hækkun barnabóta. Sem betur fer hefur greiðslu-. byrði beinna skatta farið minnk- andi síðustu árin, m.a. vegna lækk- unar tekjuskattsins. Hún var 5,5% árin 1981—83, en verður ekki nema 3,8% á næsta ári. En eftir stendur þó sá ójöfnuður, sem hér hefur verið gerður að umtalsefni. Hann þarf að leiðrétta á því þingi, sem nú situr. Höfundur er alþingismaður Sjálf- stæöisflokks fyrir Reykjaneskjör- dæmi. FISKAFLINN 1970-1985 Vísitala Hér er borinn saman afli landsmanna og verðmæti hans á föstu verðlagi árin 1970 til 1985. Eins og sjá má eru sveiflur í verðlagi ekki eins miklar og í afla og stafar það fyrst og fremst af því, að aflatopparnir og lægðirnar stafa af mismunandi loðnuveiði, en loðnan hefur ekki eins mikil áhrif á verðmæti aflans og aðrar fisktegundir. Stefnir í met aflaár: „Raunvirði aflans erþó 10%lægri en árið 1981 ÞRÁTT fyrir að nú stefni í metafla í fískveiðisögu íslendinga, er áætl- að framleiðsluverðmæti aflans nú allmiklu lægra í dölum talið en á árunum 1979, 1980 og 1981. Áætlað framleiðsluverðmæti nú er 546 milljónir dala (23 milljarðar króna), en árið 1981 varð framleiðsluverft- mætið mest, 727 milljónir dala (30 milljarðar króna). Þar munar mestu mun hærra hlutfall þorsks í aflanum en nú. Aflaverðmæti er hins vegar svipað þessi ár á föstu verðlagi. Áætlað raunvirði framleiðslunnar er um 10%lægra nú en 1981. Niðurstöður þessar voru kynnt- ar af sjávarútvegsráðuneytinu á mánudag og í frétt þaðan segir meðal annars eftirfarandi: „Á mælikvarða aflamagns upp úr sjó í tonnum talið má reyndar leiða að því líkur, að árið 1985 geti orðið metaflaár. Sama gæti orðið uppi á teningnum, þegar aflaverðmætið er skoðað, en þá virðist stefna í svipaðar tölur 1980 og 1981, sem eru mestu afla- árin til þessa. Sé hins vegar litið á afurðaverðmætið, kemur í ljós, að talsvert skortir á, að hámark- inu árið 1981 verði náð. Mælt í dollurum vantar um fjórðung, en þar sem miklar sveiflur hafa verið í dollaragengi undanfarin ár, er eðlilegra að líta á raunvirði afurðaverðmætis, sem gefur þá niðurstöðu, að þrátt fyrir metafla á þessu ári, verði afurðaverðmæ- tið enn tæplega 10% minna en 1981, þegar það fór hæst. Þessi samanburður sýnir þannig glöggt, hversu hæpið það getur verið að skoða eingöngu tonna- fjölda upp úr sjó, án tillits til afla- eða afurðaverðmætis." Sé litið á afla og verðmæti afla og framleiðslu sjávarvöru árin 1979 til 1985, kemur í ljós að hlutur þorsks í aflanum skiptir mestu hvað verðmæti framleiðsl- unnar varðar. Árið 1979 var heildaraflinn 1.649.000 lestir, þorskur 360.000 og loðna 964.000, framleiðsluverðmæti talið í döl- um 601 milljón. 1980 var aflinn 1.514.000 lestir, þorskur 428.000 og loðna 760.000, framleiðslu- verðmæti 711 milljónir dala. 1981 var aflinn 1.441.000 lestir, þorsk- ur 461.000, loðna 642.000, fram- leiðsluverðmæti 727 milljónir dala. 1982 var heildaraflinn 788.000 lestir, þorskur 382.000 lestir, loðna 13.000, framleiðslu- verðmæti 570 milljónir dala. 1983 var aflinn 839.000 lestir, þorskur 294.000, loðna 133.000, fram- leiðsluverðmæti 503 milljónir dala. 1984 var aflinn 1.530.000 lestir, þorskur 281.000, loðna 867.000, framleiðsluverðmæti 523 milljónir dala. Á þessu ári er áætlaður afli 1.671.000 lestir, þorskur 317.000, loðna 1.000.000, framleiðsluverðmæti 546 milljijn- ir dala. Aflaaukning.milli Þessa árs og síðasta er áætluð 8,8% og aukning aflaverðmætis 5,5%. SJÁVARAFURÐAFRAMLEIÐSLAN Hér má sjá þróun framleiðsluverðmætis sjávarafurða síðustu 15 árin og eru sveiflur svipaðar og aflasveiflur, en þó ekki eins miklar. Miðað við verðlag í dölum vantar talsvert á að toppnum frá 1981 verði náð en á fóstu verðlagi er munurinn minni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.