Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.11.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER1985 Leiðtogafundurinn í Genf „Kjánalegt" að tala um tískustríð leiðtogafrúnna í ' M f OA HAnAaaLnB / \nnn DiabmajIÁMhb faAtl a bk HABmmklaAnmn Genl, 20. nóvember. Frá Önnu Rjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaóains. AP/Símamynd Leiðtogafrúrnar, Nancy Reagan og Raisa Gorbacheva, á tefundi. Frúrnar hafa itt viðræðufundi á sama tíma og eiginmenn þeirra ræddust við. Þær þykja báðar hinar giæsiiegustu og talað var um tískustríð þeirra á milli. RAISA Gorbaschev, eiginkona leið- toga Sovétríkjanna, sagði að hún og Nancy Reagan, eiginkona leiðtoga Bandaríkjanna, myndu gera allt sem þær gætu fyrir frið í heiminum, eftir að hún tók á móti frú Reagan í teboð á miðvikudagseftirmiðdag. Frúrnar settust saman í sófa í Villa Rosa, dvalarstað sovésku leiðtogahjónanna hér í Genf, fyrir Ijósmyndara áður en teið var borið fram. Frú Reagan Sovétmönnum leiðist tal um mannréttindi Genf, 20. nóvember. AP. MIKAIL Gorbachev, leiðtogi Sovét- ríkjanna, embættismenn í loruneyti hans og jafnvel kona hans hafa verið spurð margra spurninga um mann- réttindaraál þá daga, sem þau hafa verið í Genf. Hafa þau átt undir högg að sækja í þessum efnum, ýmist neitað því að nokkuð væri um mannréttindabrot í Sovétríkunum eða komið sér undan að svara eða jafnvel brugðist við með að skamma vestræn ríki fyrir sömu sakir. Sovétmennirnir hafa ekki haldið svo fund, að ekki hafi einhver orðið til að vekja máls á mannréttinda- brotum. „Hvenær ætlið þið að leyfa móður minni, 86 ára gamalli, að koma til mín,“ hrópaði maður nokkur á blaðamannafundi, sem Leonid Zamyatin, talsmaður sov- ésku stjórnarinnar, hélt í gær. Zamyatin lét sem hann heyrði ekki spurninguna. Bandaríski blökku- maðurinn Jesse Jackson átti svo í gær fund með Gorbachev og færði þá m.a. í tal við hann hlutskipti sovéskra gyðinga. „í Sovétríkjun- um er ekki neitt til, sem heitir gyðingavandamál," svaraði Gor- bachev. Vladimir Lomeiko, tals- maður sovéska utanríkisráðuneyt- isins, hélt einnig fund í gær og var þá inntur eftir sovéska gyðingnum og andófsmanninum Anatoly Scharansky, en hann vildi ekki svara og bað blaðamennina að halda sig við efni fundarins. Þær sakir, sem bornar eru á Sovétmenn, eru einkum þær, að andófsmönnum sé haldið nauðug- um á geðveikrastofnunum, gyðing- um og öðrum minnihlutahópum meinað að flytjast úr landi og að þeir, sem gagnrýna stjórnvöld, séu ofsóttir og dæmdir í langa vinnu- búðavist. í desember fyrir ári kom Gor- bachev til Lundúna og breskir þingmenn færðu mannréttinda- brot í tal við hann. Gorbachev svaraði og sagði efnislega, að þeir skyldu ekki vera að skipta sér af því, sem þeim kæmi ekki við. Reagan á forsíðu Pravda Moskvu, 20. nóvember. AP. MYND af Ronald Reagan Banda- ríkjaforseta birtist í fyrsta sinn á fosíðu Pravda á mióvikudaginn, og sýnir hún þá Reagan og Gorbachev ræðast við. Sjónvarp í Sovétríkjunum hefur oft sýnt fréttamyndir þar sem Reagan kemur fram og grínmyndir af honum, t.d. sem kúreka sitjandi á eldflaug, eru algengar í þarlendum blöðum. Sovéskir sjónvarpsáhorfendur njóta nú líflegri dagskrár en venju- lega vegna leiðtogafundarins I Genf, því sovéska sjónvarpið sýnir nú amerískan jazz, Hollywoodkvik- myndir og annað sjónvarpsefni frá Bandaríkjunum. Sjónvarpsefni þetta er verulega frábrugðið því sem venjulega er flutt í sovétsjón- varpinu sem lengi hefur gefið sjón- varpsáhorfendum mjög neikvæða mynd af bandarísku þjóðlífi. sagði við sama tækifæri að henni þætti fréttir af klæðaburði þeirra kvennanna heldur kjánalegur og hristi höfuðið yfir að þær háðu tísku- stríð í Genf. Þær voru báðar viðstaddar at- höfn í morgun þegar hornsteinn að nýju safni Rauða krossins var afhjúpaður við aðalstöðvar Rauða krossins. Frú Reagan sagði í stuttri ræðu að Genf væri rétti staðurinn fyrir slíkt safn þar sem Henry Durant hefði stofnað Rauða krossinn í Genf 1863. Hún sagði að safnið myndi minna umheiminn á mannúðarstarfsemi Rauða krossins. Frú Gorbachev sagði að safnið væri virðingarvottur við þá sem stundum stofnuðu lífi sínu í hættu í starfi fyrir Rauða kross- inn. Hún sagði einnig að það væri mikilvægt fyrir þjóðir að finna sameiginlegt tungumál til að ræða líf, heilsu og framtíð mannkynsins. Sovéska sjónvarpið sagði frá athöfninni við höfuðstöðvar Rauða krossins og nefndi að Raisa Gor- bachev hefði verið þar. Það hefur ekki greint frá ferðum hennar í Genf fyrr og aldrei nefnt hana á nafn í fréttum áður samkvæmt fréttum úti. Frú Gorbachev heimsótti bóndabæ fyrir utan Genf og ræddi við íbúa hans á miðvikudag. „Fólk er dásamlegt, okkur fannst við hafa þekkst alla ævi,“ sagði hún um reynslu sína með Svisslending- unum. Nancy Reagan heimsótti meðal annars alþjóðaskólann í Genf á miðvikudag og var fagnað af mörghundruð börnum hnað- anæva úr heiminu. Frúrnar hittust aftur í móttöku forsetahjóna Sviss um kvöldmat- arleytið á miðvikudagskvöld og Gorbachev-hjónin sátu síðan kvöldverð í boði Reagan-hjónanna í La Maison de Saussure, dvalar- stað þeirra í Genf. Haft var eftir Donald Regan, starfsmannastjóra í Hvíta húsinu og ráðgjafa Reagans, í dag að konur hefðu ekkert vit á mann- réttinda- og afvopnunarmálum. Nancy Reagan sagðist ekki hafa séð þessa frétt þegar hún var spurð um sína skoðun á málinu. Ronald Reagan sagði fyrir eftirmiðdags- fund sinn með Gorbachev að Reg- an hefði meint að konur hefðu einnig áhuga á börnum og mann- legum áhrifum. Gorbachev lét þýða spurninguna fyrir sig tvisvar áður en hann sagði að konur og karlar beggja stórþjóðanna vildu frið og að hann myndi haldast, þess vegna væru afvopnunarmál miðpunkturinn í samræðum sínum við Reagan. Kostnaður stjórnvalda af fundinum yfir milljón dollarar Genf, 20. nóvember. AP SVISS hefur varið jafnvirði rúmlega einnar milljónar dollara til undir- búnings fyrir leiðtogafund og til fegr- unar Genfarborgar vegna hans. Hefur mikill hluti kostnaðarins legið í því að gera borgina aðlaðandi í augum hinna pólitísku fulltrúa og þeirra hundruð blaðamanna og Ijósmyndara sem þar eru nú vegna fundarins. Þá hafa yfirvöld varið tölverðu fé til að cndurnýja og fegra bústaði stjórnmálamanna sem sækja fund- inn og voru innréttingar dvalar- staðar Reagans, Maison de Sauss- ure, t.d. endurnýjaðar að mestu. Umdeild mynd sýnd í sænska sjónvarpinu Höfundurinn heldur því fram að sovéskir kaf- bátar hafi aldrei farið inn í lögsöguna Stokkhólmi, 20. nóvember. AP. í SÆNSKA sjónvarpinu verður í kvöld, miðvikudagskvöld, sýnd mynd þar sem því er haldið fram, að Sovétmenn hafi aldrei siglt kaf- Kosningar í Danmörku: Vinstri menn unnu mest á Kaupmannahöfn, 20. nóvember. AP. VINSTRIFLOKKARNIR unnu á í sveitarstjórnarkosningunum f gær og hefðu fengið meirihluta á þingi ef til þess hefði verið kosiö. Sósíalíski þjóðarflokkurinn vann mest á í kosningunum en næstur honum kom íhaldsflokkur- inn. Ef um þingkosningar hefði verið að ræða hefðu jafnaðarmenn og aðrir vinstriflokkar fengið 91 af 179 sætum á þingi. í fyrsta sinn fengu græningjar menn í sveitar- stjórnir. Framfaraflokkur Glistrups galt mikið afhroð í kosningunum, fékk aðeins 2,2% en hafði 7%. Sjálfur náði hann ekki kjöri en bar sig þó vel yfir úrslitunum og sagði, að þau væru „upphafið að upprisu" flokksins. bátum inn fyrir sænska lögsögu, a.m.k. ekki viljandi. Verða umræður um myndina að lokinni sýningu og er búist við, að þar verði heitt í kolunum. Sjónvarpsmyndin, sem gerð var fyrir opinbert fé, er 90 mínútna löng og er höfundur hennar Maj Wechselmann. Mun hún taka þátt í umræðunum ásamt foringjum úr sjóhernum og blaðamanni, sem heldur því fram, að myndin sé dæmigerð áróðursmynd í þágu Sovétmanna. í myndinni fer Wechselsmann háðulega orðum um „kafbátstrufl- unina“ hjá sænska sjóhernum og í fjölmiðlunum og fullyrðir, að þegar sovéski kafbáturinn strand- aði rétt við sænska flotastöð árið 1981 hafi það eingöngu stafað af því, að skipshöfnin villtist inn fyrir lögsöguna vegna bilaðra siglinga- tækja. Wechselmann vísar einnig ERLENT á bug þeim sönnunum, sem sænska stjórnin segist hafa fyrir lögsögu- brotum Sovétmanna, og ollu því, að Sovétstjórninni voru send form- leg mótmæli árið 1983. Myndin var fyrir nokkru sýnd á blaðamannafundi og olli þar áköf- um deilum. Anders Hellberg, blaðamaður, sem skrifað hefur bók um kafbátamálin og tekur þátt í þættinum í kvöld, segir í nýlegri blaðagrein, að í myndinni séu „málin matreidd á nákvæmlega sama hátt og í dæmigerðum áróð- ursmyndum ... með því að sleppa því, sem máli skiptir, og umfram allt með því að reyna að gera andstæðingana hlægilega". í myndinni er rætt við nokkra sér- fræðinga í hernum og sögðu þeir í dag, að höfundur myndarinnar hefði rifið orð þeirra og yfirlýsing- ar úr samhengi og skeytt saman eftir þörfum. Maj Wechselmann er umdeild kona og ákaflega vinstrisinnuð og eru formælendur hennar einkum lítill en mjög hávær hópur vinstri- sinnaðra blaðamanna. Kafbátamálin eru ofarlega á baugi í Svíþjóð um þessar mundir vegna einstæðrar „uppreisnar" nokkurra foringja í sjóhernum en þeir hafa sakað ríkisstjórn Olofs Palme um að reyna að gera sem minnst úr yfirgangi Sovétmanna við Svía í þeim tilgangi að bæta samskipti þjóðanna. Sovéski kafbáturinn á strandstað í nóvember 1981 skammt frá flotastöð sænska sjóhersins í Karlskrona. Sovétmenn sögðu, að vegna bilaðra siglinga- tækja hefði áhöfnin viilst inn fyrir skerjagarðinn og að herstöðinni og Maj Wechselmann veit það líka. Noregur: Um 85.000 lítrar af olíu láku úr geymi á Svalbarða Ósló, 20. nóvember. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morjjunblaósins. OLÍULEKI, sem átti sér stað á Svalbarða í Norður-íshafi, getur haft ómældar afleiðingar í för með sér fyrir dýralíf eyjaklasans. Um 85.000 lítrar af olíu láku úr geymi í Kings Bay í óveðrinu um síðustu helgi og hefur enn ekki verið unnt að kanna umfang tjónsins. Fjórir vísindamenn hafa nú hafist handa við rann- sóknir þar að lútandi. óttast er að selur hafi drepist unnvörpum. Ef öndunarop dýr- anna fyllast af olíu, verður að aflifa þau. Annars bíður þeirra hægur og kvalafullur dauðdagi. Olíuna hefur rekið inn á nær- liggjandi fjörð og getur það vald- ið mikilli eyðileggingu á strand- lengjunni beggja vegna. Ekki er þó loku fyrir það skotið, að takist að forða fuglalífinu þar frá al- varlegum skakkaföllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.