Morgunblaðið - 15.01.1986, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR15. JANÚAR1986
3
Víkingar tileinka
Reykjavík titilinn
í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar
í TILEFNI 200 ára afmælis Reykjavíkur tileinka Víkingar
borginni sigur I íslandsmótinu í handknattleik 1986 og afhentu
í gær Davíð Oddssyni, borgarstjóra, bikarinn til varðveislu út
árið. Borgarstjóri þakkaði Víkinguni og sagði að íslandsbikar-
inn yrði varðveittur á Kjarvalsstöðum og yrði borgarbúum þar
tilsýnis.
Yngsti leikmaður íslandsmeist-
ara Víkings, Bjarki Sigurðsson,
afhenti borgarstjóra bikarinn og
með honum voru Páll Björgvins-
son, sem hefur unnið alla íslands-
meistaratitla Víkings - sex að tölu
- og Magnús Guðmundsson, for-
maður handknattleiksdeildar Vík-
ings. Við það tækifæri sagði
Magnús, að hann vonaðist til að
aðrir reykvískir íþróttamenn fet-
uðu f fótspor Víkinga og færðu
Reykjavík jafn ánægjulegar af-
mælisgjafir og hjálpuðu þannig
til að skapa viðeigandi afmælis-
stemmningu á þessum tfmamót-
um.
Davíð Oddsson lýsti því yfir,
að hann myndi beita sér fyrir að
Reykjavíkurborg gæfi nýjan bikar
fyrir næsta Islandsmót, en keppt
hefur verið um núverandi bikar
frá árinu 1965.
Davfð Oddsson, borgarstjóri, virðir íslandsmeistaratitilinn fyrir sér eftir að Bjarki Sigurðsson,
hinn ungi Víkingur, hafði afhent hann til varðveislu. Með á myndinni eru Magnús Guðmundsson,
formaður handknattleiksdeildar Víkings, og PáU Björgvinsson.
AStVSÍogVMSS:
Fyrsti samn-
ingafundur hald-
inní dag
Fundur með BSRB
á mánudag
SAMNINGAFUNDIR aðila
vinnumarkaðarins vegna vænt-
anlegra kjarasamninga eru nú
að hefjast og var fyrsti fundur
samninganefnda Alþýðusam-
bands íslands, Vinnuveitenda-
sambands íslands og Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna
boðaður klukkan 10.00 árdegis i
dag.
Pyrsti samningafundur BSRB og
fjármálaráðuneytisins hefur verið
boðaður klukkan 14.00 á mánudag-
inn næstkomandi. Auk Guðlaugs
Þorvaldssonar ríkissáttasemjara
gera lög um BSRB ráð fyrir tveimur
sáttanefndarmönnum til viðbótar.
Ekki hafði endanlega verið gengið
frá skipan nefndarinnar í gær nema
að Hrafii Magnússon mun áfram
eiga sæti í nefndinni eins og undan-
farinár.
Bjamarborg
auglýst
tíl sölu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
söluskilmála fyrir Bjarnarborg,
sem borgarverkfræðingur hef-
ur gert að beiðni borgarstjóra.
Engin ákvörðun hefur þó verið
tekin um sölu hússins heldur
samþykkt að leita eftir tilboð-
um.
Varðandi söluskilmálana þótti
nauðsjmlegt að gera sérstaka grein
fyrir þeim möguleikum sem skipu-
lag Skúlagötusvæðisins býður upp
á. Samkvæmt því er fyrirhuguð
miðbæjarstarfsemi í þeim reit sem
lóðin er á og getur húsið orðið hluti
af sambyggingu meðfram Hverfis-
götu, en getur einnig staðið með
óbreyttu útliti. Húsið er ekki friðað
og má því einnig byggja nýtt hús
á lóðinni, en samkvæmt skipu-
lagstillögu verður það að vera
svipað.
Lagt er til að húsið verði auglýst
til sölu samkvæmt þessum skilmál-
um. í þeim er tekið fram, að bjóð-
andi skal upplýsa fyrirhuguð not
hússins, að skilmálar skulu verða
hluti af þinglýstum kaupsamningi
eftir því sem við á og að réttur sé
áskilinn að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Plastprent hf.
Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf.
Höfðabakka 9. Sími 685600.
Krumpuvélar.
Allt að 50% sparnaður við
pökkun. ■
Lofttæmingarvélar.
Aukið geymsluþol og verðmæti
matvöru.
Pokalokunarvélar.
Frá 6.500 kr. Fyrirstórar sem
smáar rekstrareiningar.
Plastprent selur fleira en plast.
Við bjóðum einnig úrval stórra og smárra pökkunarvéla sem
spara vinnu og auka verðmæti vörunnar. Notagildi vélanna er
næsta ótakmarkað. Yfir 50 fyrirtæki keyptu pökkunar-
vélar af okkur á síðasta ári, t.d.: Sól hf, Mjólkur-
samsalan hf, Vífilfell hf, Nói—Síríus hf, K. Jónsson &
Co hf, Kaupfélagið Fram, Síldarvinnslan Nesk, Vest-
firska harðfisksalan, Rækjuvinnslan Skagastr.,
Gunnarsbakarí Reyðarf., Valberg Ólafsf., Staðarskáli
Hrútaf., Hraðhreinsun Árbæjar, Broadway,
Júmbósamlokur. . .
Þú handleikur umbúðirnar okkar daglega.
I 26 ár höfum við jafnframt framleitt alls konar plastumbúðir úr
eigin filmu, með og án áprentunar. Við svörum síaukinni eftir-
spurn eftir hagkvæmum umbúðum sem nýtast allt frá
framleiðanda til neytanda. Það er því engin tilviljun
að flestallir Islendingar meðhöndla daglega vörur
sem pakkað er í umbúðir frá okkur.
Plastpökkun er framtiðarlausn.
Plast sparar miðað við aðrar umbúðir, verndar vel
og uppfyllir auknar kröfur um geymsluþol og aug-
lýsingargildi. Forysta Plastprents byggist á tækni-
framförum, fjölhæfu starfsliði og mikilli reynslu. Þess vegna leys-
um við pökkunarvanda íslenskra fyrirtækja.
Brettavafningsvéfar.
Brettapökkun í plast —
hagkvæm og hlífir vöru í flutn
ingum.