Morgunblaðið - 15.01.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR15. JANÚAR1986
Útgefandl
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, simi 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 40 kr. eintakiö.
Andstaða gegn
hvalveiðum
Alþingi ályktaði á þann veg
hinn 2. febrúar 1983, að
samþykkt Alþjóðahvalveiði-
ráðsins um takmörkun hval-
veiða, sem kunngerð var með
bréfi til ríkisstjómarinnar 2.
september 1982, verði ekki
mótmælt af íslands hálfu. í
þessari þingsályktun felst, að
Islendingar ætla ekki að stunda
hvalveiðar í atvinnuskyni á ár-
unum 1986 til 1990. Þá vilja
þeir einnig, að hvalastofnar
verði endurmetnir fyrir árið
1990. Við stefnumörkun Al-
þingis var byggt á þeirri for-
sendu, að rannsóknir á hvala-
stofnum yrðu auknar, enda
yrðu þær grundvöllur ákvarð-
ana um veiðar eftir 1990.
Alþjóðahvalveiðiráðið heimilar
veiðar í þágu vísindarann-
sókna. Hafrannsóknastofnunin
hefur gert þjónustusamning við
Hval hf. um að afla þeirra hvala
sem nauðsynlegir em til að
stunda fyrirhugaðar rannsókn-
ir hér, er í því efni talað um
200 dýr á ári.
Útlendir áhugamenn um
náttúmvemd em andvígir
þessum ákvörðunum íslenskra
stjómvalda. Sumir þeirra vilja
alls ekki að nokkrir hvalir séu
drepnir, aðrir telja, að ónauð-
sjmlegt sé að drepa 200 dýr til
að stunda haldgóðar rannsókn-
ir. Andstaðan gegn hvalveiðum
er mest í Bandaríkjunum. Þar
hafa hvalavinir það að yfírlýstu
markmiði að reyna að spilla
fyrir sölu íslenskra fyrirtækja
á sjávarafurðum. Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og sjávaraf-
urðadeild Sambands íslenskra
samvinnufélaga sendu um
66.000 lestir af físki til Banda-
ríkjanna á síðasta ári. Hvergi
eiga íslendingar meira í húfi á
einum markaði en bandaríska
fískmarkaðnum.
Sendiráði íslands í Wash-
ington hafa nú borist um
90.000 póstkort með mót-
mælum vegna ákvarðana ís-
lenskra stjómvalda um hval-
veiðar í vísindaskyni. í banda-
rískum blöðum hafa birst aug-
lýsingar, opin bréf og áskoran-
ir, þar sem íslendingar em
hvattir til að hætta þessum
veiðum. Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra,
og Halldór Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, segja í samtali
við Morgunblaðið á laugardag,
að hvalavinir séu með rang-
færslur í auglýsingum sínum;
þeim verði svarað og ekki verði
horfíð frá fyrri ákvörðunum um
veiðamar. Þá er haft eftir for-
sætisráðherra: „Hann sagði að
mótmæli frá alls konar skóla-
krökkum og einstaklingum
hefðu borist að utan, bæði
hingað heim og til sendiráðsins
í Washington. Þetta væri skipu-
lagt og ekki mikið mark á þessu
takandi."
Ástæða er til að ætla, að
forsætisráðherra geri of lítið úr
mætti þess áróðurs, sem beint
er gegn íslandi vegna hvalveið-
anna. Varla verða aðgerðir af
þessu tagi marklausar vegna
þess að þær em skipulagðar.
Hitt er sönnu nær, að þeim
mun meiri ástæða er til að taka
þær alvarlega því skipulegri
sem þær em. Umhverfisvemd-
armenn sýna oft óbilgimi í
baráttu sinni, en þeir ná óft
langt og hafa veruleg áhrif á
almenningsálitið. í Morgun-
blaðsviðtalinu við ráðherrana
kemur ekki fram, hvemig þeir
hyggjast svara gagnrýni hvala-
vina í Bandaríkjunum. Þar þarf
skipulagt átak eigi árangur að
nást. Sé það ætlun íslenskra
stjómvalda að fara í auglýs-
ingastríð í bandarískum fjöl-
miðlum yrði upphæð á borð við
40 milljónimar, sem á að veija
meðal annars til að halda úti
íslenskum flokksmálgögnum á
þessu ári, ekki lengi að hverfa.
Kannski ætla forsætisráðherra
og sjávarútvegsráðherra hvor í
sínu lagi eða saman að ganga
fram fyrir skjöldu í bandarísk-
um fjölmiðlum og skýra mál-
stað ríkisstjómarinnar? Með
hliðsjón af af því, hver þróunin
hefur orðið í þessum umræðum
í Bandaríkjunum undanfama
mánuði, kynnu slík afskipti þó
aðeins að verða til þess að vekja
meiri andúð á málstað íslands.
Ákvarðanir um að stigmagna
átök af þessu tagi þarf að íhuga
gaumgæfílega.
Þegar Morgunblaðið tók.
afstöðu til vísindalegra hval-
veiða á liðnu sumri var meðal
annars komist svo að orði:
„Við megum alls ekki gefa
höggstað á okkur með því að
fara í kringum þær samþykktir
sem leyfa vísindalegar hval-
veiðar. Það gæti stefnt miklum
hagsmunum svo sem á Banda-
rílq'amarkaði í hættu fyrir
minni hagsmuni; engri þjóð,
síst af öllu smáþjóð, líðst það
að byggja stefíiu sína og
ákvarðanir á tvöföldu siðgæði."
Þessi orð em enn í fullu gildi.
ÍSLENDE
iHASTI
Islenskir skákmeistarar hafa
ætíð gert góða för á hið árlega
jólaskákmót í Hastings þar sem
Margeir Pétursson tryggði sér
stórmeistaratitil.
Sigur Margeirs Péturssonar á
jólaskákmótinu í Hastings er
vissulega glæsilegur en hann er
þó engin nýiunda íslendingum.
Þrír íslenskir skákmeistarar
höfðu áður fetað i fótspor Vil-
hjálms sigurvegara og unnið
frækna sigra í bænum. Guð-
mundur S. Guðmundsson var alls
óþekktur á alþjóðlegum vett-
vangi þegar hann settist að tafli
í Hastings árið 1946 en náði eigi
að siður þriðja sæti og varð fyrir
ofan ýmsa kunna meistara. Frið-
rik Olafsson tefldi þrívegis í
Hastings og alltaf vel; um ára-
mótin 1955/56 tókst honum að
sigra og sýndi með því að mikils
var að vænta af honum í framtíð-
inni. Og á mótinu 1975/76
tryggði Guðmundur Siguijóns-
son sér stórmeistaratitil þegar
hann lenti í 2.-3. sæti ásamt
Rafael Vaganjan sem nú er einn
af heimsmeistaraefnunum fjór-
um.
Það er orðið langt síðan farið var
að halda skákmót í Hastings. Eitt
fyrsta, og um leið frægasta, mótið
var haldið árið 1895 og er það
kannski enn sterkasta skákmót sem
haldið hefur verið á enskri grund.
Heimsmeistarinn Emanuel Lasker
var meðal þátttakenda, svo og
Steinitz, fyrrum heimsmeistari, og
fiestir frægustu skákmeistarar
þeirra tíma: menn eins og Rússinn
Tsígórín, Þjóðveijinn Tarrasch,
Austurríkismaðurinn Schlechter og
Englendingurinn Blackbume.
Fyrstu verðlaunin vann hins vegar
lítt þekktur Bandaríkjamaður,
Harry Neison Pillsbury, sem tefldi
þama á sínu fyrsta alþjóðamóti og
sló öllum heimsfrægu köppunum ref
fyrir rass. Pillsbury á söguna, stutta
en göfuga.
Þá má nefna fyrsta skákmótið
eftir fyrri heimsstyijöldina en það
var haldið í Hastings 1919 og José
Raul Capablanca vann yfirburða-
sigur; svo og mótið 1922 þegar
Alexander Alekhine varð á undan
Akiba Rubinstein og fleimm. Þegar
síðara mótið fór fram var raunar
hafin sú röð skákmóta sem nú em
yfírleitt kölluð Hastings-skákmótin
en þau em haldin af skákklúbbi
bæjarins, með stuðningi fyrirtækja
og einstaklinga ef þörf krefur. Teflt
er í ýmsum flokkum en mest at-
hygli beinist jafnan að boðsflokkn-
um þar sem frægir útlendir meistar-
ar etja kappi við helstu skákmenn
heimamanna. Mótið hefst eftir jólin
og stendur fram á næsta ár; það
mun láta nærri að svo til allir öflug-
ustu skákmeistarar aldarinnar hafí
einu sinni eða oftar eytt áramótun-
um í Hastings. Ef mótið 1895 er
talið með hafa allir heimsmeistarar
sögunnar teflt í Hastings nema
Bobby Fischer og Garrí Kasparov
og ekki öll nótt úti enn, hvað varðar
þann síðamefnda að minnsta kosti.
Tígran heitinn Petrósjan er eini
tilvonandi, ríkjandi eða fyrrverandi
heimsmeistarinn sem teflt hefur á
jólaskákmótunum og ekki tekist að
sigra. Hann var aldrei sérlega mikið
fyrir það að vinna mót.
Annáluð þrautseigja
Guðmundar S.
Fyrsta jólaskákmótið í Hastings
stóð um áramótin 1920/21 og
keppendur í boðsflokknum voru
raunar allir enskir. Árið eftir var
Júgóslavinn Boris Kostic einn út-
lendinga meðal keppenda en allar
götur síðan hefur verið um raun-
veruleg alþjóðleg mót að ræða, og
hafa þau aldrei fallið niður nema á
ámm heimsstyijaldarinnar síðari.
Eins og sjá má af meðfylgjandi lista
yfir sigurvegara er hann harla
glæsilegur; altént þarf Margeir Pét-
ursson ekki að skammast sín fyrir
þennan félagsskap.
Víkur nú sögunni að Guðmundi
S. Guðmundssyni. Hann var í hópi
allra sterkustu skákmeistara ís-
lendinga á heimsstyijaldarámnum
og áratugnum þar á eftir og þar
að auki afskaplega virkur í félags-
lífi skákmanna; hann var til að
mynda lengi formaður Taflfélags
Reykjavíkur og efldi félagið til
mikilla muna. Guðmundur fæddist
í Reykjavík árið 1918 og tólf ára
gamall var hann farinn að tefla í
skákklúbbi KFUM. Hann varð fljót-
lega annálaður fyrir þrautseigju
sína og styrkleika í vöm en einnig
var hann mikilhæfur hraðskákmað-
ur. Um 1950 var taflmennsku
Guðmundar lýst svo í tímaritinu
Skák: „Skákstíll Guðmundar ein-
kennist af glöggu stöðumati, þraut-
seigju og viljaþreki. Hann er enginn
áhlaupamaður og lætur ekki óraun-
hæfar bollaleggingar villa sér sýn.
Ömenguð hlutlægni er honum í blóð
Fríðrik Ólafsson tefldi þrísvar á
fjórum árum í Hastings og um
áramótin 1955/56 tókst honum
að sigra, flestum á óvart, ásamt
Viktor Kortsnoj.
borin og á sá eiginleiki sterkasta
þáttinn í skákstíl hans. Jafnaðar-
geði hans er viðbrugðið."
Kanadíski stórmeistarinn Abe
Yanofsky tefldi á íslandi snemma
vors 1947, ekki síst fyrir atbeina
Guðmundar, en þeir höfðu kynnst
á Hastings-mótinu þá um veturinn.
Sex sterkustu skákmenn íslands
kepptu á móti með Yanofsky og
Ný-Sjálendingnum Robert Wade og
urðu úrslit þessi:
1. Yanofsky 6
2. Ásmundur Ásgeirsson 5
3. Guðm. S. Guðmundsson 4
4. -5. Baldur Möller og
Guðm. Ágústsson 3
6.-7. Eggert Gilfer og
Robert Wade 2,5
8. Ámi Snævarr 2
„ ... sérkennilegastan
stíl þeirra allra“
Eftir mótið felldi Yanofsky dóma
um taflmennsku íslensku keppend-
anna og taldi hann Ásmund snjall-
astan en sagði að Guðmundur S.
hefði „sérkennilegastan stíl þeirra
allra. Hann teflir gætilega og bygg-
ir upp traustar stöður, en bíður
átekta uns honum gefst færi á að
ráða niðurlögum andstæðingsins. “
Það var B.H. Wood, ritstjóri
skáktímaritsins Chess í Birming-
ham, sem varð þess valdandi að
Guðmundur fékk tækifæri til þess
að spreyta sig í Hastings. Wood
þessi dvaldist á íslandi um hríð
snemma vetrar 1946 og kynntist
íslenskum skákmönnum. Auk
blaðamennskunnar var Wood
frammámaður í ensku skáklífí og
fékk hann mótstjómina í Hastings
til þess að bjóða íslenskum skák-
Jólaskákmótið í Hastings 1946/47
1. Alexander, Englandi ..........'
2. Tartakower, Frakklandi .......
3. Guðm. S. Guðmundsson .........
4. Yanofsky, Kanada .............
5. Abrahams, Englandi ...........
6. Golombek, Englandi ...........
7. Raizman, Frakklandi ..........
8. Aitken, Skotlandi ............
9. G. Wood, Englandi ............
10. Prins, Hollandi ..............
1 2 3 4 5 6 7 8 9 0
X 0 1 1 1 V2 1 1 1 1 -7.5
1 X V2 V2 1 V2 0 1 1 1 -6.5
0 V2 X V2 V2 1 1 1 V2 1 -6
0 V2 V2 X V2 1 1 1 V2 V2 -5.5
0 0 V2 V2 X V2 1 1 0 1 -4.5
V2 V2 0 0 V2 X V2 1 1 0 -4
0 1 0 0 0 V2 X 0 V2 1 -3
0 0 0 0 0 0 1 X 1 1 -3
0 0 V2 V2 1 0 V2 0 X 0 -2.5
0 0 0 V2 0 1 0 0 1 X -2.5