Morgunblaðið - 15.01.1986, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1986
33
Katja Drewing-
Robert Stolz
Gerhard Deckert
Johann Strauss
Yínartónleikar í Háskólabíói annað kvöld
ANNAÐ kvöld kl. 20.30 verða haldnir árlegir Vínartónleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabiói. Að þessu sinni verður
leikin tónlist eftir valsakónginn Johann Strauss og arftaka hans,
Robert Stolz, en hann lést 1975, þá hátt á tíræðisaldri. Fyrir hlé
verða Ieikin og sungin verk eftir Strauss: Forleikur að Sígaunabar-
óninum, polkar og valsar og lög úr Leðurblökunni og Fanny
Elssner, og eftir hlé verða vinsælustu verk Stolz, bæði hljómsveit-
arverk og sönglög.
Stjómandi Vínartónleikanna er
Gerhard Deckert, en hann stjóm-
aði uppfærslu á Leðurblökunni í
íslensku óperunni sl. vor. Gerhard
Deckert er Vínarbúi og hefur verið
aðstoðarmaður þekktra hljóm-
sveitarstjóra, einkum Karls Böhm
og Herberts von Karajan. Árið
1974 var hann ráðinn hljómsveit-
arstjóri við Ríkisóperuna í Vín og
jafnframt hefur hann stjómað
mörgum kunnum hljómsveitum
m.a. Fílharmóníuhljómsveitinni í
Vín. Hann er nýkominn frá Aust-
ur-Berlín þar sem hann stjómaði
sex Strauss-tónleikum sem var
sjónvarpað víða.
Einsöngvari er þýska mezzo-
sópran söngkonan Katja Drewing.
Hún stundaði nám hjá Christa
Ludwig og síðar í Siena á Ítalíu.
Hún hefur sungið í Volksoper í
Vín, m.a. hlutverk Orlofskys í
Leðurblökunni, haldið fjölmarga
ljóðatónleika, bæði á Ítalíu og í
Þýskalandi, og auk þess sungið
kabarett- og söngleikjalög.
Heiðursgestur á fimmtudags-
kvöld verður Hólmfríður Karls-
dóttir, nýkrýnd Ungfrú heimur.
Viss stemmning er ríkjandi á Vín-
arkvöldi; tónlist sem gengur beint
inn í hjörtu áheyrenda og um-
hverfið blómum skreytt. Svo verð-
ur næsta fimmtudag, — tólf
blómabúðir taka þátt í að gera
Háskólabíó eins fallegt og hægt
er. Eftir tónleikana verður Att-
hagasalur Hótel Sögu opinn. Þar
verður á boðstólum Austurrískt
miðnætursnarl fyrir þá sem vilja,
Vínartónlist sem þau Sigurður
Snorrason, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir og Páll Einarsson
flytja, og einsöngvari kvöldsins,
Katja Drewing, mun syngja nokk-
ur lög við undirleik stjómandans,
Gerhard Deckert.
Miðasala er hafin í bókabúðum
Lámsar Blöndal og Sigfús Ey-
mundssonar og í Istóni, Freyju-
götu 1.
(Fréttatilkynning)
Hveragerði:
Sautján að-
ilar styrkt-
ir með fé
GÍSLl Sigpirbjömsson, forstjóri
Elli- og dvalarheimilisins Ass í
Hveragerði og Grandar í Reylga-
vík, hélt kaffisamsæti í Ási 28.
nóvember sl. og afhenti þar
sextán félögum 15 þúsund krón-
ur hveiju og sundlauginni í
Hveragerði gaf hann 50 þúsund
króna gjöf í minningu Hjartar
Jóhannssonar sundlaugarfor-
stjóra.
Eftirtalin félög styrkti Gísli með
gjöfum sínum samtals 240 þúsund
krónum; Sundlaugin Laugaskarði,
Ungmennafélag Hveragerðis, Leik-
félag Hveragerðis, Skátafélagið
Strókur, Hveragerði, Hjálparsveit
skáta, Hveragerði, Foreldrafélag
Undralands, Hveragerði, Félag
aldraðra, Hveragerði, Skógræktar-
félag Hveragerðis, Tónlistarfélag
Hveragerðis, Lúðrasveit Hvera-
gerðis, Kvenfélag Hveragerðis,
Kirkjukór Hveragerðis og nágrenn-
is, Kvenfélagið Bergþóra, Olfusi,
Kvenfélag Þorlákshafnar, Kirkju-
kór Þorlákshafnar og Egilsbúð,
Þorlákshöfn.
í fréttatilkynningu þessara fé-
laga eru Gísla Sigurbjömssyni sér-
. staklega þakkaðar gjafír hans.
Kennslumiðstöð Námsgagnastofn
unar gengst fyrir fræðslufundum
Kennslumiðstöð Námsgagna-
stofnunar mun gangast fyrir
ýmiss konar fræðslustarfsemi á
næstu mánuðum. Haldnir verða
fræðslufundir, námskeið o.fl.
Skólastarf í Ghana verður kynnt
þann 16.janúarkl. 16.00. Þaðgerir
Daníel Hansen kennari sem starfaði
í Ghana skólaaárið 1984—1985 á
vegum American Field Service í
samvinnu við menntamálaráðu-
neytið og Þróunarsamvinnustofnun
íslands. Menntamálaráðuneytið
veitir tveimur kennumm styrk til
að fara til Ghana skólaárið
1986—87 og gefst áhugafólki og
hugsanlegum umsækjendum tæki-
færi til að kynna sér hvað felst í
starfinu.
Bergljót Jónsdóttir kennari kynn-
ir nýtt námsefni í tónmennt sem
kom út á vegum stofnunarinnar sl.
haust þann 22. janúar kl. 16.00.
Efnið er ætlað aimennum kennur-
um og tónmenntakennumm.
Sigrún Proppé listmeðferðar-
fræðingur heldur fræðslufund 30.
janúar kl. 16.00. Þar verður fyallað
um hvemig kennarinn getur haft
Sýning á verkum níu erlendra
myndlistarmanna hefst í Slunka-
ríki á ísafirði nk. laugardag kl.
15.00. Sýningin ber yfirskriftina
„Made in Holland“, en myndlist-
armennimir starfa allir í Hol-
landi og eru í tengslum við Rikis-
Geðhjálp:
Fyrirlestur um
nálarstunguaðferð
Fyrirlestur um nálarstunguað-
ferð verður haldinn á vegum Geð-
hjálpar annað kvöld, fimmtudag,
kl. 20.30. Úlfur Ragnarsson læknir
flytur erindið sem flutt verður á
Geðdeild Landspítalans, í kennslu-
stofu á 3. hæð. Fyrirspumir, um-
ræður og kaffi verða eftir fyrirlest-
urinn. Allir em velkomnir. Aðgang-
ur er ókeypis.
áhrif á og þróað skapandi hæfileika
bamsins.
Sýning á námsgögnum í dönsku-
kennslu verður frá 15. janúar til
5. febrúar. Fræðslufundir í tengsl-
Almennur félagsfundur í íbúa-
samtökum Vesturbæjar verður
haldinn í Norræna húsinu í kvöld,
miðvikudag, kl. 20.30 en samtök-
in hafa ákveðið að gangast fyrir
afmælisgjöf til borgarinnar frá
íbúum gamla Vesturbæjarins og
velunnurum hans í tiiefni af 200
ára afmæli Reykjavíkurborgar.
Gjöf þessi verður i mynd lista-
verks sem komið verður fyrir á
almannafæri í hverfinu, t.d. á
Landakotstúni, og verður þannig
væntanlega til að prýða borgina.
Þrír listamenn hafa verið fengnir
til að gera tillögur um listaverkið
og skal þeim skilað fyrir 15. febrúar
akademíuna í Amsterdam og
stunda þar nám.
Hver listamaður sýnir verk sín í
eina viku í senn og hefst sýningin
á verkum Christine Hamelberg frá
Þýskalandi. Síðan kemur Morten
Thomsen frá Danmörku, þá Erik
Petersen frá Hollandi, Henk van
der Spoel frá Hollandi og Mark
Met einnig frá Hollandi. Síðan koma
Petra Dolleman frá Hollandi, Claud-
ia Kölgen frá Þýskalandi og loks
César Jorajuria Lara frá Mexíkó
og Tom Swerfer frá Hollandi. Verk-
in eru málverk, teikningar, grafík
og skúlptúr og eru öll til sölu.
Sýningin er opin þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 16.00
til 18.00 og um helgar kl. 15.00 til
18.00. Ókeypis er inn á allar sýning-
ar á vegum Myndlistarfélagsins á
ísafirði í Slunkaríki. Sýning þessi
stendur til 15. mars nk.
um við sýninguna verða auglýstir.
Dagskrá Kennslumiðstöðvarinn-
ar er opin öllum meðan húsrúm
nk. Þessir listamenn _eru Helgi
Gíslason, Jón Gunnar Ámason og
Sigrún Guðmundsdóttir. Sérstök
dómnefnd leggur mat á tillögumar
og velur eina þeirra til gjafar að
lokinni úrvinnslu. I dómnefndinni
eiga sæti þau Bjöm Th. Bjömsson,
Hrafnhildur Schram, Magnús Tóm-
asson og Stefán Öm Stefánsson.
Aflað verður fjár til þessarar
gjafar með ýmsum hætti, og hefur
verið sett á fót sérstök fláröflunar-
nefnd í því skyni. í henni em þau
Bryndís Schram formaður, Baldur
Möller, Brynhildur Andersen, Helga
Gísladóttir og Hjörtur Aðalsteins-
son. Neftidinni til aðstoðar er Pétur
Þorsteinsson ellimálafulltrúi.
Áuk gjafarinnar verða á dagskrá
fundarins áætlanir um heilsugæslu-
stöð og miðstöð fyrir aldraða í ný-
byggingu á homi Garðastrætis og
Vesturgötu. Páll Gíslason læknir
og borgarfulltrúi og Hjörleifur Stef-
ánsson arkitekt hafa framsögu.
Auk þeirra mæta á fundinn Katrín
Fjeldsted formaður heilbrigðisráðs
borgarinnar og Stefán Öm Stefáns-
son arkitekt, en þeir Hjörleifur og
Stefán hafa með höndum hönnun
hússins.
Landfræðifélagið:
Fyrirlestur
um fjarkönnun
Annar fræðslufundur Land-
fræðifélagsins á þessum vetri
verður annað kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20.30 í stofu 101
í Lögbergi, húsi lagadeildar.
Þar mun Guðrún Gfsladóttir
landfræðingur halda fyrirlestur um
verkefni á sviði fjarkönnunar við
landfræðideild Stokkhólmsháskóla,
þar sem hún stundar nú nám.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki.
Isafjörður:
Níu erlendir lista-
menn sýna í Slunkaríki
leyfír.
(Úr fréttatilkynningu)
íbúasamtök Vesturbæjar:
Félagsfundur í kvöld
Gisi seldist upp
fyrirjólinen er
nú komin aftur í
verslanir
Útsölustaðir:
Liverpool ........ Laugavegi 18a, R.
Hjá Hirti ........ Laugavegi 21, R.
Hagkaup ............. Skeifunni 15, R.
Leikfangahúsið .... Skólavörðust. 10, R.
Mikligarður ............ Holtavegi, R.
Jójó ............ Austurstræti 18, R.
Hólasport .............. Hólagarði, R.
Undraland ................ Glæsibæ, R.
K. Einarss. & Björnss...Laugav. 25. R.
Bókab. Breiðholts ...... Arnarb. 2, R.
Leikbær ................. Hafnarfirði.
Búkabúðin Grima ............ Garðabæ.
Höfn hf. ................... Selfossi.
Óðinn ...................... Akranesi.
Amaro ...................... Akureyri.
Heiidsölubirgðir:
K. Árnason, sími 75677.