Morgunblaðið - 18.02.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. FEBRÚAR1986
13
Búum okkur til endurminmngar
Nemendaleikhúsið sýnir í
Lindarbæ Ó muna tíð eftir Þór-
arin Eldjárn. Leikmynd og bún-
ingar: Jenný Guðmundsdóttir.
Tónlist: Arni Harðarson. Lýsing:
Ágúst Pétursson. Yfirumsjón
með tæknivinnu: Ólafur Orn
Thoroddsen. Leikstjóri: Kári
Halldór.
Lóa og Þröstur reka „minninga-
fyrirtæki“, hið athyglisverðasta
þarfaþing. Séu einhverjir þeir — og
líkast til eru þeir margir — sem
vilja fá sér nýjar minningar og
skemmtilegri þurrka út hvimleiðar,
sem sagt gera tilveruna bærilegri
sem við hrærumst í. Því tilveran
er eiginlega alltaf fortíð — fyrir
utan þessar nústundir, sem eru
liðnar eins og örskot og þar með
orðnar að liðinni tíð. Þeir aðilar sem
þurfa á þessari þjónustu að halda
leita til Lóu og Þrastar. Og ef
aðgerðin tekst vel skundar fólk á
braut með nýjar og betri endur-
minningar.
Hugmynd Þórarins Eldjáms er
verulega skemmtileg og honum
tekst að færa hana í snjallan búning
leikverks. Tilsvör eru skemmtilega
klisjukennd og krydduð þekkilegum
húmor höfundar. Það er vissulega
gert grín að þessu öllu og ekki sízt
hugmyndinni sjálfri. Og það er gert
á býsna yfírvegaðan og fyndinn
hátt.
Mikið er um tækniútbúnað í
þessari sýningu, svo að allt verði
nú sannfærandi. Og er ekki annað
að sjá en það hafi allt tekizt bara
vel. Minningahjálmamir ekki ósvip-
aðir þurrkum á hárgreiðslustofum
og alls konar takkar og sveifar sem
þarf að stilla eftir kúnstarinnar
reglum gerir þetta ljómandi sann-
færandi.
Það er Kári Halldór sem stýrir
leiklistamemunum sem em að út-
skrifast í vor eftir fjögurra ára
strangt nám. Þau virðast öll una
sér prýðilega á sviðinu og gervi
hvers og eins vandlega úthugsað
að því er bezt verður séð. Guðbjörg
Þórisdóttir sem stjómar minninga-
stöðinni skilar hlut sínum vel, fram-
sögn hennar var í fyrstu dálítið
tilgerðarlega áreynslulaus, ef ég
mætti orða það svo. Minna varð úr
Þresti í meðförum Valdimars Flyg-
enrings, en hlutverk Lóu skyggir
töluvert á og hefur höfundi sýnilega
þótt skemmtilegra að glíma við
það. Gervi og framganga þeirra
Aðstandendur „Ó muna tíð“.
Eiríks Guðmundssonar og Skúla
Gautasonar vom til fyrirmyndar og
Bryndís Petra Bragadóttir og Inga
Hildur Haraldsdóttir sem Spes og
Rósa nutu sín ágætlega í hlutverk-
um sínum og sýndu „minninga-
skiptin" á liðlegan hátt.
Svo vill til að ég hef ekki fyrr
séð sýningu hjá þessum hópi. En
betra seint en aldrei og vonandi að
þau fái verkefni á sínu sviði á næstu
ámm. Og að Þórarinn Eldjám
spreyti sig á frekari leikritun.
. Eitt
lægsta
rúmmetraverö
í bílakaupum
idag
Af smábíl að vera er SEATIBIZA ótrúlega stór.
Þegar verð þeirra smábíla sem eru á markaðinum eru skoðuð
sést að SEATIBIZA er ekki ódýrastur
- en rúmmetraverðið er eitt hið hagstæðasta sem um getur.
Verðfrákr. 339.000
Sprækur, sparneytinn og framhjóladrifinn spánverji
__ með vél og gírkassa frá Porche.
TÖGGURHF.
UMBOÐ FYFUR SAAB OG SEAT
BÍLDSHÖFÐA16, SÍMAR 681530- 83104