Morgunblaðið - 18.02.1986, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR18. FEBRÚAR1986
Indland:
Óeirðir
og átök
milli trú-
flokka
Nýju Delhí, 17. febrúar. AP.
HINDÚI og kunnur maður í
Kongressflokknum í Punjab var
í dag skotinn til bana. Voru sík-
har þar að verki og er þetta
annar maðurinn, sem þeir drepa
á tveimur dögum.
Að sögn lögreglunnar komu þrír
ungir menn inn í verslun í bænum
Tam Taran og skutu þar til bana
Gian Chand, starfsmann Kongress-
flokksins og fyrrum bæjarfulltrúa
í bænum. Flúðu mennimir síðan af
hólmi og höfðu ekki náðst þegar
síðast fréttist. í gær, sunnudag, var
myrtur af leiðtogum öfgafullra
samtaka hindúa myrtur en sagt er,
að það sé efst á blaði hjá þeim að
beija á síkhum.
Það er ekki aðeins að grunnt sé
á því góða með síkhum og hindúum,
heldur hefur einnig komið til átaka
með hindúum og múhameðstrúar-
mönnum. Var það upphafið, að
gamalt hof, sem múhameðstrúar-
menn hafa lengi notað átölulaust,
var af þeim tekið og afhent hindú-
um. Kom þá til óeirða og hafa
a.m.k. fjórir menn látið lífið í þeim.
Framganga skipsljór-
ans verður rannsökuð
Wellington, Nýja Sjálandi, 17. febrúar.
SOVÉSKT skemmtiferðaskip
með 739 manns innanborðs
sökk í dag við Nýja Sjáland.
Tókst að bjarga öllum far-
þegunum en eins skipverja er
saknað. Er haft eftir tveimur
nýsjálenskum skipstjórum, að
framferði Sovétmannanna,
yfirmanna skipsins, hafi verið
mjög undarlegt svo ekki sé
meira sagt og annað en venju-
AP.
lega er ætlast til af þeim, sem
ábyrgð bera á skipi og fólki.
Sovéska skipið Mikhail Lerm-
ontov, sem er 20.000 tonn, var í
gær á leið norður Marlborough-
sund þegar það tók niðri á skeij-
um og kom þá mikið gat á síðu
skipsins og vélamar stöðvuðust.
Sendi þá skipstjórinn út neyðar-
ka.ll en þegar fyrsta skipið kom á
vettvang tilkynnti skipstjórinn, að
engrar aðstoðar væri þörf. Var
þá skipið að sökkva og verið að
koma farþegum í björgunarbát-
ana.
Eftir að Mikhail Lermontov tók
niðri rak það í átt til hafnarinnar
í Port Gore og var skipstjórinn
að vona, að það ræki þar upp, en
skipið rak aftur frá og sökk loks
á 30 metra dýpi. David Lange,
forsætisráðherra Nýja Sjálands,
hefur fagnað björgun fólksins en
hann skýrði jafnframt frá því, að
nefnd yrði skipuð til að kanna
hvort skipstjórinn á Mikhail Lerm-
ontov hefði gerst sekur um van-
rækslu í starfí.
Öllum farþegunum, 409 að
tölu, tókst að bjarga eins og fyrr
sagði en saknað er eins sovésks
sjómanns úr áhöfninni, sem taldi
330 manns. Talið er, að hann
hafí lokast inni í skipinu þegar
það sökk.
Ferdinand Marcos á fréttamannafundi:
„Ég er forsetínn. Þeir geta
ekki hrakið mig úr embættí“
Manilla, 17. febrúar. Frá fréttaritara Morgunblaösins, Önnu Bjamadóttur.
FERDINAND Marcos, forseti Filippseyja, segist ætla að gegna embætti næstu
sex árin. Hann boðaði fréttamenn til fundar í Manacananghöll síðdegis á sunnu-
dag. Samtímis ávarpaði Corazon Aquino, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hundruð
þúsunda sem söfnuðust saman í miðborg Manilla til að hlýða á hana. Marcos
sagði að hundrað þúsund manns væru á fundinum. „Fólk kemur saman í mið-
borginni á hverjum sunnudegi til að hlýða á músík,“ sagði hann um fund Aquino.
Marcos leit heldur illa út og svaraði lýðræði ríktu þar til maður hennar setti á
seinlega spumingum. Hann sagðist ekki herlögin árið 1972. Imelda virtist óróleg
heyra alveg nógu vel og eiga erfítt um og röddin titraði, þegar hún var spurð um
mál, því að einhver hefði óvart slegið hann
í eyrað nóttina áður í fagnaðarlátum í
höllinni, þegar hann var úrskurðaður sigur-
vegari. Meirihluti þingsins flýtti úrskurðin-
um og birti hann á laugardagskvöld. Marcos
kallaði tvo leiðtoga þingsins til sín þá um
kvöldið og er talið, að hann hafí skipað
þeim að ljúka málinu hið fyrsta, svo að
hann væri löglega úrskurðaður forseti,
þegar Philip Habib, sendiboði Ronalds
Reagan, Bandaríkjaforseta, hæfí eftir-
grennslanir sínar, en Habib kom til Filipps-
eyja á laugardagskvöld.
Marcos lýsti yfír á fréttamannafundin-
um, að Fabius Ver, yfírhershöfðingi, hefði
látið af störfum og Fidel Ramos tæki við.
Svo virðist sem Marcos hafí fómað Ver,
gömlum og tryggum þjóni, til að þóknast
Bandaríkjamönnum á einhvem hátt. Marc-
os sagði að fleiri herforingjum yrði vikið úr
embætti á næstu mánuðum. Ramos gegndi
starfínu meðan rannsókn stóð yfír á ákæru
á hendur Ver um að hann hefði verið viðrið-
inn morðið á Benigno Aquino 1983. Ver
og menn hans voru sýknaðir fyrir sérstök-
um dómstóli en liggja enn undir gran
almennings. Fidel Ramos er virtur herfor-
ingi og vonir eru bundnar við störf hans
innan hersins.
Imelda Marcos, forsetafrú, rabbaði stutt-
lega við fréttamenn í höllinni á sunnudag.
Hún sagði að Marcos hefði verið yfír sig
hamingjusamurá laugardagskvöldið. „Ég
spurði hann af hveiju," sagði hún rámri
röddu. „Af því að kosningamar sýndu að
frelsi og lýðræði ríkja í landinu. Þetta
tvennt sem ég hef barizt fyrir í 20 ár,“
sagði Imelda að eiginmaðurinn hefði sagt.
Hún virtist hafa gleymt því að frelsi og
mannfjöldann í miðborginni. „Við erum
tilfínningarík þjóð," sagði hún „kosningam-
ar höfðu djúp áhrif á okkur og tilfinningar
hjaðna ekki á stundinni." Þegar hún var
spurð að því, hvort henni þætti milljón
manna útifundur stjómarandstöðunnar
ekki heldur stór svaraði hún: „Það búa 60
milljónir í landinu. Ein milljón er ekki stór
hluti af því.“ Hún sagði að Marcos ætlaði
ekki að efna til hátíðahalda eftir að hann
sver embættiseið þann 25. febrúar. „Við
höfum alltof mikið að gera til þess,“ sagði
frúin.
Á fréttamannafundinum sagði Marcos
ennfremur að hann myndi sjá til þess að
allir sem bijóta lög eða brutu þau í kosning-
unum yrðu leiddir fyrir dómstól og refsað.
Hann sagði að hans menn gætu sannað
að stjómarandstaðan hefði brotið af sér í
kosningunum. „Hún fullyrðir að við höfum
brotið lögin, en hvar eru sönnunargögn
hennar?" spurði hann. Eitt dagblað svaraði
honum í dag og sagði að hans menn feldu
sönnunargögnin.
Efnahagsvandi þjóðarinnar er mikill og
endurkjör Marcosar mun varla bæta hann
þótt forsetinn segist nú ætla að taka efna-
hagsmálin fostum tökum. Efnahagsaðstoð
Bandaríkjanna gæti minnkað og aðgerðir
Aquino, sem vikið verður að á eftir, bæta
ekki úr skák. Gjaldmiðill landsins hefur
fallið gagnvart dollar á þremur síðustu
vikum og búist er við frekara sigi á næst-
unni. Mikið af Qármunum var sett í umferð
fyrir kosningamar, milljónum eytt í kaup
á atkvæðum og er búizt við að verðbólgan
aukist mjög. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins frestaði um sinn komu sinni hingað
en Marcos kveðst ætla að fylgja ráðlegging-
um sjóðsins. Forsetinn segist ætla að endur-
skipa ríkisstjómina og gera sitt bezta fyrir
land og þjóð. En það er hætt við að margir
séu búnir að fá nóg af honum og hans
mönnum. Þeir sem vettlingi geta valdið
vilja komast úr landi. Eftir sitja þeir, sem
eiga ekki annarra kosta völ og þeir sem
ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana.
Aquino hvetur tíl aðgerða
Mikil stemmning var á fundi Aquino í
Manilla. Fólk streymdi að úr öllum áttum,
klætt í gult eða grænt til að sýna stuðning
sinn við stjómarandstöðuna. Fólk söng og
skemmti sér og tók orðum Vorazone Aquino
með miklum fagnaðarlátum. Hún mælti
með því að mótmælaaðgerðir hæfust 26.
febrúar með eins dagsverkfalli. Hún hvatti
fólk til að hætta að eiga viðskipti við fyrir-
tæki í eigu vina Marcosar. Hún sagði að
menn skyldu draga að borga rafmagns og
vatnsreikninga. Hún segist ætla að halda
útvarpserindi kl. 20 á kvöldin og mæltist
til að menn hefðu uppi mikinn hávaða í
15 mínútur eftir að hún lyki máli sínu. Hún
sagði að nauðsynlegt væri að vinna að
því innan kirkjunnar að ráða verði leitað
til að losna við Marcos. Mótmælaaðgerðim-
ar eiga að vera í anda Gandhis á Indlandi
og Martins Luthers King í Bandaríkjunum.
Greinir innan hersins?
Hermenn innan endurbótahreyfíngarinn-
ar sendu frá sér yfirlýsingu um helgina og
skoruðu á lögreglu og hermenn að neita
að beita valdi eða ofbeldi gegn borgurum,
sem taka þátt í mótmælaaðgerðum vegna
kosninganna. „Filippseyingar eru reiðir
vegna misferlis í kosningunum og ætla að
sýna það á friðsamlegan hátt unz vilji fólks-
ins er virtur," segir í yfírlýsingunni. Tveir
háttsettir stuðningsmenn í stjómarandstöð-
unni fullyrtu við blm. Morgunblaðsins um
helgina, að nokkrir hæfír ungir hermenn
og foringjar hefðu haft samband við menn
Aquino og lýst yfir stuðningi við hana.
„Þeir vita að fólkið í landinu styður
Marcos ekki lengur," sagði þingmaður.
„Þeir eru tilbúnir að bylta stjóminni fyrir-
Aqino sagði einn fyrrverandi þingmaðurinn.
Þingmenn stjómarandstöðunnar gengu
úr þingsal á laugardagskvöld þegar stjóm-
arsinnar, sem hafa um 70 prósent þing-
sæta, gengu á bak orða sinna og úrskurð-
uðu Marcos forseta án umræðna. Stjómar-
andstaðan vildi ræða um kjörgögnin, sem
bárust til þingsins, eins og stjómarsinnar
höfðu sagt að þeir gætu gert áður en for-
seti yrði úrskurðaður. Marcos kærði sig
ekki um neina töf og fékk vilja sínum
framgengt. Stjómarandstaðan var rétt
gengin úr salnum, þegar KBL-flokkur
Marcosar lýsti hann réttkjörinn forseta og
brutust út fagnaðarlæti meðal viðstaddra
stuðningsmanna Marcosar.