Morgunblaðið - 18.02.1986, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR18. FEBRÚAR1986
EB-ráðherrar
á fundi um at-
vinnuleysismál
Haag, Hollandi, 17. febrúar. AP.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRAR Evrópubandalagsríkjanna komu sam-
an í dag í Haag í Hollandi til tveggja daga viðræðna um leiðir til
að vinna bug á hinu mikla og þráláta atvinnuleysi í EB-Iöndunum.
Á þessum fyrsta atvinnumáia-
fundi EB á árinu verður almennt
rætt um atvinnuleysismál í löndun-
um 12, svo og leiðir til að fjölga
atvinnutækifærum kvenna.
í nýlegri skýrslu framkvæmda-
nefndar EB um atvinnuástandið
segir, að 12,9 milljónir manna hafi
verið atvinnulausar í desembermán-
uði síðastliðnum, eða 11,3% af
heildarvinnuaflinu. Er það heldur
lægra hlutfall en í janúarmánuði
sama ár (1985), er atvinnuleysið
náði hámarki — nam 11,9% vinnu-
færra, en mun hærra hlutfall en í
Risastór
fugl lendir
í hreyfli
Nairóbí, 17. febrúar. AP.
FLUGMENN Boeing-707-þotu
Kenya Airways lentu fari sínu heilu
og höldnu með eldtungur standandi
aftur úr einum hreyfli. Þotan var í
brottflugi frá flugvellinum í Nairóbí
og hafði náð um 300 feta, eða 100
metra flughæð er hún lenti í
árekstri við risastóran fugl. Fuglinn
hvarf að mestu inn í einn fjögurra
hreyfla þotunnar og kviknaði eldur
í honum.
aðalviðskiptalöndunum, Bandaríkj-
unum og Japan.
í Bandaríkjunum var hlutfallið
t.d. 6,9% í desember síðastliðnum,
þegar um 8 milljónir manna voru án
atvinnu, og lækkaði það enn í jan-
úar á þessu ári — niður í 6,7% —
er nýjum störfum fjölgaði um hálfa
milljón í kjölfar batnandi efnahags.
Þó að hagvöxtur hafi verið svip-
aður í EB-löndunum og í Bandaríkj-
unum upp á síðkastið, hefur stöðn-
un ríkt á evrópska vinnumarkaðn-
um. Hefur þetta komið harðast
niður á konum og ungu fólki af
báðum kynjum. Ríflega þrír fjórðu
hlutar atvinnulausra í EB-ríkjunum
er fólk undir 25 ára aldri.
í skýrslu framkvæmdanefndar-
innar er atvinnuleysisvandamálið
talið afleiðing vanmáttar evrópskra
iðnfyrirtækja til að hasla sér völl í
hátækniiðnaði í samkeppni við
bandarísk og japönsk fyrirtæki.
í skýrslunni er spáð 11,1% at-
vinnuleysi að meðaltali í EB-ríkjun-
um á þessu ári. Er það óveruleg
minnkun frá árinu 1985, er atvinnu-
leysið nam 11,2% að meðaltali.
Framkvæmdanefndin telur, að
lækkun sú, sem orðið hefur nýlega
á olíuverði í heiminum, geti leitt til
þess, að betri aðstæður skapist til
að draga úr hinu mikla atvinnuleysi
í Vestur-Evrópu en vonir stóðu áður
til.
AP/Símamynd
Anatoly og Avital Shcharansky ræða saman í eldhúsi íbúðar sinnar í Jerúsalem. Þau munu aðeins
dvelja í íbúðinni til bráðabirgða, en hafa verið þar öllum stundum frá því að Shcharansky kom
til Israels fyrir viku.
Kímnigáfan bjargaði mér
— segir Shcharansky í viðtali
Jerúsalcm, 16. febrúar. AP.
SOVÉSKI andófsmaðurinn Anatoly Shcharansky sagði á sunnu-
dag að kimnigáfa sín hefði verið öflugt vopn í baráttunni við
sovésku leyniþjónustuna, KGB,
að lifa af níu ár í fangelsi.
Shcharansky, sem Sovétmenn
slepptu úr haldi fyrir viku, sagði
að hann hefði öðlast aukinn styrk
við að narrast að kvölurum sínum
þegar verst lét og henda gaman
að aðferðum þeirra.
I viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina NBC sagði Shchar-
ansky að væri hann enn í Sovét-
ríkjunum myndi hann bjóða þar-
lendum yfirvöldum byrginn á
sama hátt og áður og beijast fyrir
og kímnigáfan hefði hjálpað sér
auknum mannréttindum og frelsi
gyðinga til að flytjast brott.
Shcharansky sagði að fangavist
sín hefði verið „hræðileg mar-
tröð“. Mikhail Gorbachev, leiðtogi
Sovétríkjanna, hafí látið að því
liggja að kúgun á andófsmönnum
fari minnkandi, en því sé öfugt
farið; meðferðin á Shcharansky í
þrælkunarbúðunum í Úralijöllum
hafi farið dagversnandi.
„Skopskynið er mikilvægasta
vopnið, sem þú hefur til vamar,"
sagði Shcharansky: „Án skop-
skynsins hefði ég tapað. Mér hefði
mistekist."
„Stundum hlógu þessir
KGB-menn með mér, en yfirleitt
reiddust þeir. Og eftir því sem
þeir reiddust meira, þeim mun
auðveldara var þetta fýrir mig.“
Shcharansky kveðst hafa verið
rúma fjögur hundruð daga í ein-
angrun. Sagðist hann hafa haldið
geðsmunum sínum heilum með
því að syngja þjóðlög, æfa sig í
hebresku og leysa skákþrautir
eftir minni.
Frakkar senda
liðsauka til Chad
París og Trípólí, 17. febrúar. AP.
FRAKKAR tilkynntu í dag að
þeir myndu senda liðsauka til
Chad til stuðnings ríkisstjóm
landsins. Kom tilkynning þessa
efnis skömmu eftir að líbýsk
flugvél hafði varpað sprengjum
á flugvöilinn í N’djamena höfuð-
borg landsins.
Jana, hin opinbera fréttastofa í
Líbýu, sagði frá loftárásinni. Hún
sagði að flugher uppreisnarmanna
bæri ábyrgð á henni og hefði árásin
verið gerð til þess að hefna fyrir
loftárásir franskra orustuþota á
flugvöll uppreisnarmanna í norður-
hluta landsins á sunnudag. Þann
flugvöll byggði Líbýa fyrir upp-
reisnarmenn og sagði fréttastofan
að þetta væri ekki herflugvöllur,
heldur hefði hann verið notaður til
að taka á móti matarsendingum til
fómarlamba hungursneyðarinnar í
Norður-Chad.
Franski vamarmálaráðherrann,
Paul Quiles, þvertók fyrir að þetta
gæti verið rétt og sagði flugvöllinn
herflugvöll og útbúinn sem slíkan.
Framsókn uppreisnarmanna virðist
hafa verið stöðvuð í bili. Litlar
skemmdir urðu á flugvellinum í
höfuðborginni. Frakkar segja að
einungis ein sprengja hafi hitt eina
flugbraut vallarins og hafi verið
fljótlegt að gera við hana.
Duvaher synjað um
landvist í Bandaríkjunum
Portau Prince/Waahington, 17. febrúar. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur neitað hinum landflótta Jean-Claude
Duvalier um landvist i Bandaríkjunum.
Anita Stockman, talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins, sagði á sunnu-
dag að bandarísk yfirvöld gætu
ekki ábyurgst öryggi Duvaliers,
fyrrum forseta Haiti. Reiðir Ha-
itibúar, búsettir í Bandaríkjunum,
gætu ráðist á hann og einnig yrði
honum vísað aftur til Haiti vegna
þess að hann hefði ekki vegabréfsá-
ritun til Bandaríkjanna.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
gaf út þessa yfirlýsingu eftir að
kvittur komst á kreik um að Duvali-
er og fjölskylda hans hefðu átt bók-
að flugfar frá París til New York,
en flugfarið hefði verið afpantað
eftir að bandarísk yfirvöld neituðu
að taka á móti honum.
Fall Duvaliers var ávöxtur sam-
særis, sem gert var til að koma á
ringulreið á Haiti og kalla fram
ofbeldisaðgerðir ríkisstjómarinnar,
að því er þrír Bandaríkjamenn frá
Haiti, sem vom pólitískir fangar
Duvaliers mánuðum saman, segja.
Hingað til hefur verið talið að
mótmælaaðgerðimar, sem leiddu til
þess að „Baby Doc“ Duvalier flúði
land, hafi verið óskipulagðar og er
vitnisburður þremenninganna
fyrsta vísbending þess að þær hafi
verið skipulagðar.
Jacques Bemardin, George Cle-
ment og Joseph Chery kveðast hafa
verið handteknir í október á síðasta
ári. Þá hafi þeir verið að samræma
mótmæli gegn stjóm Duvaliers á
Haiti.