Morgunblaðið - 18.02.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1986
Stofnskrárbreytingar hjá EB;
Þrjú ríki taka ekki þátt
í undirskriftarathöfninni
Stuðningsmennirnir helmingi fleiri en andstæð-
ingarnir samkvæmt nýrri skoðanakönnun í Danmörku
um Efnahagsbandalagsins í Lúx- þeir, sem á móti eru.
emburg. Danski jafnaðarmannaflokkur-
Niðurstöður skoðanakönnunar, inn, sem knúði fram þjóðarat-
sem birt var í Kaupmannahöfn í kvæðagreiðsluna, virðist hafa tapað
gær, sýna, að stuðningsmenn stofn- fylgi vegna þessa máls, og mikill
skrárbreytinganna eru helmingi klofningur ríkir um það meðal
fleiri meðal danskra kjósenda en flokksmanna sjálfra.
Líbanon:
Hörð átök við
Souk El-Gharb
Briissel og Kaupmannahöfn, 17. febrúar.
BÚIST er við að fulltrúar þriggja
af tólf ríkjum Evrópubandalags-
ins neiti að taka þátt í athöfn
þeirri, sem fram fer í dag, þegar
breytingar á stofnskrá banda-
lagsins, hinar fyrstu frá stofnun
þess 1957, verða undirritaðar.
Danir bíða eftir niðurstöðum úr
þjóðaratkvæðagreiðslunni 27. þ.m.,
og ítalir og Grikkir, sem eru fylgj-
andi breytingunum, vilja ekki skrifa
undir, fyrr en afstaða Dana verður
ljós. Getur þetta tafið fyrir gildis-
töku nýja samningsins.
Klofningur sá, sem kominn er
upp í EB vegna fyrirhugaðra breyt-
inga á stofnskrá þess, er táknrænn
fyrir gang mála hjá bandalaginu.
Og þó að það sé kaldhæðnislegt var
það einmitt vegna þess, hversu
erfiðlega hefur gengið að ná sam-
stöðu um afgreiðslu ýmissa mikil-
vægra málefna, sem ákveðið var á
síðasta ári að freista þess að ná
fram fyrmefndum stofnskrárbreyt-
ingum.
í dag munu utanríkisráðherrar
Bretlands, Belgíu, Frakklands,
Lúxemburg, írlands, Hollands,
Portútgals, Spánar og Vestur-
Þýskalands undirrita breytingamar
við athöfn, sem fram fer í aðalstöðv-
Beirút, 17. febrúar. AP.
TVEIR menn féllu og um 13
særðust í dag í bardögum í Beir-
út og fjöllunum í kring. Áttust
þar við hermenn úr stjórnar-
hernum og vopnaðar sveitir mú-
hameðstrúarmanna.
Harðastir vom bardagamir við
fjallaþorpið Souk El-Gharb, sem
kristnir menn ráða, en það stendur
við mikilvæga þjóðleið. Létu drúsar
sprengjunum rigna yfir bæinn en
kristnir menn svömðu fyrir sig með
fallbyssum og skriðdrekum. Einnig
var barist við grænu línuna svoköll-
uðu í Beirút en hún skiptir borginni
milli trúflokkanna. Vitað var, að
tveir menn höfðu fallið og 13 særst
áður en samið var um vopnahlé.
Líbanski stjómarherinn er nú
ekki lengur til sem ein heild. Kristn-
ir hermenn hafa tekið afstöðu með
Gemayel, forseta, en þeir, sem játa
múhameðstrú, hafa gengið fjand-
mönnum hans á hönd eða bíða
átekta. Hingað til hafa stjómar-
hermenn þó ekki tekið mikinn þátt
í átökum trúflokkanna en ef þeir
gera það, er óttast, að ekki verði
komist hjá allsheijarstríði í landinu.
Leifar feiknlegrar
hallar í Makedóníu
Peila, Grikklandi, 17. febrúar.
HÉR ER aðeins um grunninn
að ræða, en raðir tilhöggvinna
hleðslusteina og súlufóta rekja
útlínur hinnar fornu hallar,
sem ekki er útilokað að sé
fæðingarstaður Alexanders
mikla.
Höllin var reist á fjórðu öld
fyrir Krists burð á hæð með útsýni
til hafs. Flóknar byggingamar,
umgirtar súlum, vom nógu stórar
til að skjóta skjólshúsi yfir stóran
her manna og náðu yfir sex hekt-
ara lands.
„Ekkert þessu líkt hefur áður
verið grafíð úr jörðu á Grikk-
landi,“ segir Mairi Siganidou,
grískur fomleifafræðingur, sem
hóf uppgröftinn í Pella 1981.
„Stærðin er ótrúleg. Þetta em
leifar stærstu byggingar, sem
nokkurs staðar hefur fundist.“
Þessi fornleifafundur rennir
stoðum undir kenningar um að
aðallinn í Makedóníu hafi lifað í
vellystingum af stríðsgróða og
útflutningi á timbri oggulli.
Pella er þtjátíu og átta kíló-
metra frá Saloníku, fyrrum höfuð-
borg konungdæmisins Makedón-
íu, sem náði frá Indlandi til
Egyptalands þegar veldi Alexand-
ers mikla stóð hæst.
„Við vitum að Alexander fædd-
ist í Pella 356 fyrir Krist. En það
er ekki vitað fyrir víst hvort faðir
Alexanders, Filippus II, reisti
höllina eða Cassander, sem réði
ríkjum í Makedóníu eftir að hafa
myrt erfingja Alexanders," segir
Siganidou.
-------------------
Hraðlestrarnámskeið
Viltu auðvelda þér námið og vinnuna?
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Viltu bæta náms- og vinnutækni þína?
Viltu margfalda lestur þinn á fagiu-bókmenntum?
Viltu auka fritíma þinn?
Bf svörin eru játandi þá skaltu drífa þig á
næsta hraðlestrarnámskeið sem hefst þriðju-
daginn 4. mars.
Skráning á kvöldin kl. 20-22 í síma 611096.
Hraðlestrarskólinn.
0DEXION
Höfum ávallt fyrirliggjandi
Dexion hilluefni.
Pöntum eftir óskum þunga-
vöruhillur, færibönd o.fl.
Nýtt fyrirtoeki á traustum grunni
LANDSSMIÐJAN HF.
SÍMI91-20680
Þú svaiar lestrarþörf dagsins
á^tóum Moggans!
iiíi
BEIHTFLUG
ÍSÓISKINID
Alls verða famar tíu ferðir til Benidorm í sumar, flogið er í beinu leigu-
flugi. Gistimöguleikar eru allmargir, íbúðir eða hótel og mismunandi verð-
flokkar. Páskaferð 26. marz, 2 vikur.
Njótið þess að fara til Benidorm á ströndina hvítu,í ósvikna tveggja,
þriggja eða fjögurra vikna sólarlandaferð á eina bestu baðströnd Spánar.
Blessuð sólin skín allan daginn og það er bara ekkert notalegara en að láta
hana baka sig. Gleðjið sál og líkama og kynnist götulífinu með kaffihúsum
og sölubúðum. Rannsakið næturlífið: Kitlandi diskótek eða rökkvaða og
rómantíska dansstaði.
FERÐA.. Ce+itccd
MIÐSTODIIM lccwd
AÐALSTRÆTI 9 • SÍMI 28133 • REYKJAVÍK
'WW .i^„i ..