Morgunblaðið - 18.02.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1986
31
Skálafell:
Morgunblaðid/Bjami
Skemmtun fyrir vaktavinnufólk
Rúmlega 70 manns skemmtu sér sl. þriðjudagskvöld í Skálafelli á Hótel Esju þar sem boðið var
upp á sérstaka skemmtidagskrá undir heitinu „Gott kvöld“ með það í huga að ekki geta allir
skemmt sér um helgar. Að sögn Hans Indriðasonar hótelstjóra virðist þessi nýjung ætla að fá
góðan hljómgrunn hjá vaktavinnufólki og hafa þegar nokkur starfsmannafélög sýnt skemmtikvöld-
inu áhuga. Skemmtikvöldið verður endurtekið næstkomandi þriðjudag og mun Tony Kay söngvari,
píanóleikari og grínisti, koma þar fram.
Divine
skemmtir
á Islandi
BANDARÍSKUR skemmtikraft-
ur, Glen Milstead að nafni, er
væntanlegur til Reykjavíkur
fyrrihluta aprilmánaðar. Mil-
stead þessi hefur tekið sér lista-
mannsnafnið Divine (hin guð-
dómlega) og hefur öðlast frægð
fyrir að leika í kvikmyndum,
syngja og hafa í frammi marg-
víslegt sprell — undantekninga-
lítið í konugervi. Flestar kvik-
myndanna hafa verið gerðar af
bandaríska kvikmyndagerðar-
manninum John Waters og tvær
hafa verið sýndar hérlendis,
Polyester og Pink Flamingo.P
Divine kemur hingað á vegum
Ólafs Laufdal veitingamanns og
mun skemmta í Hollywood og á
Hótel Borg 10.—13. apríl næst-
komandi. Hingað kemur Divine úr
ferðalagi um Bretland, þar sem
hann treður upp með kabaretta
sína. Viðbrögð áhorfenda skiptust
nokkuð í tvö hom, eins og oft áður:
ýmist er Milstead/Divine fagnað
og klappað óspart lof í lófa eða
honum er úthúðað og hann ausinn
skömmum.
Divine/Glen Milstead, sem
skemmtir í Reykjavík í apríl.
Nýjustu kvikmyndir Divine eru
Lust in the Dust og Trouble in
Mind, þar sem hann leikur á móti
Kris Kristofferson, Keith Carrad-
ine og Lori Singer.
Þú sralar lestrarþörf dagsins
raöauglýsingar — raðauglýsingaf — raðauglýsingar |
Vestur-Húnvetningar
í Reykjavík
Bersi, fólag ungra sjálfstæðismanna í Vestur-Húnavatnssýslu, heldur
rabbfund í Valhöll Háaleitisbraut 1 fimmtudaginn 20. febrúar nk.
og hefst hann kl. 20.30 með ungu fólki úr Vestur-Húnavatnssýslu i
Reykjavík. Júlíus Guðni Antonsson formaður Bersa mætir á fundinn
ásamt Þór Sigfússyni formanni Heimdallar og Sigurbirni Magnússyni
1. varaformanni SUS.
Umræðuefni verður stjórnmálaviðhorfið, samskipti FUS o.fl. Ungt
sjálfstæðisfólk úr Vestur-Húnavatnssýlu er hvatt tiiað mæta.
Bersi félag ungra sjálfstæðismanna
i Vestur-Húnavatnssýslu.
Akureyringar
i tengslum við prófkjör sjálfstæðisfélaganna á Akureyri þann 22.-23.
febrúar 1986 veröur utankjörstaðakosning á skrifstofu flokksins i
Kaupangi við Mýrarveg á Akureyri dagana 17.-21. febrúar kl.
17.00-19.00.
Einnig verður utankjörstaðakosning á skrifstofu flokksins í Valhöll
við Háaleitisbraut i Reykjavik dagana 19.-21. febrúar frá kl.
09.00-17.00.
Heimild til þátttöku hafa þeir sem orðnir eru 16 ára, hafa lögheimili
á Akureyri og eru flokksbundnir i Sjálfstæðisflokknum, eða hafa ritaö
inntökubeiðni i eitthvert sjálfstæöisfélaganna á Akureyri.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu flokksins á Akureyri i
síma 96-21504.
Formaður fulltrúaráðs.
Prófkjör sjálfstæðismanna
íVestmannaeyjum
Utankjörfundaratkvæðagreiösla á skrifstofu flokksins i Samkomuhúsi
Vestmannaeyja alla virka daga kl. 17-19 og á laugard. kl. 13-15. í
Reykjavik er hægt að kjósa á skrifstofu flokksins i Valhöll, Háaleitis-
braut 1, kl. 9-17 alla virka daga.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vörn, Akureyri
Almennur félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 18. febrúar kl.
20.30 í Kaupangi við Mýrarveg.
1. Kynntar verða konur sem taka þátt i prófkjöri flokksins á Akureyri.
2. Hvernig á aö vinna að þvi að gera hlut kvenna sem mestan í
bæjarstjórnarkosningunum i vor.
3. Önnurmál.
Félagskonur mætið allar og takið með ykkur gesti. Inntaka nýrra
félaga.
Stjórnin.
HFIMDALI.UR
F • U ■ S
Heimdallur
Á næstu dögum mun hefja störf á vegum Heimdallar nefnd, sem
ræða mun kosningastarf félagsins fyrir borgarstjórnarkosningar.
Þeir félagar sem hafa áhuga á þátttöku i þessari nefnd eru vinsam-
legast beðnir að skrá sig i sima 82900.
Stjórn Heimdallar.
Grindvíkingar
Samkvæmt ákvörðun kjörnefndar 10. febrúar 1986 um að viðhafa
prófkjör um skipan framboðslista i væntanlegum sveitarstjórnarkosn-
ingum, auglýsir kjörnefnd hér með eftir frambjóðendum i prófkjörið.
Frambjóðandi getur hver verið sem hefur meðmæli minnst 10 flokks-
bundinna Sjálfstæöismanna í Grindavik og kjörgengur er á kjördegi.
Hver félagsmaður getur aðeins stutt 3 frambjóöendur.
Framboðum ber að skila til undirritaðs fyrir kl. 20.00, laugardaginn
22.febrúarnk.
Sjálfstæðisfólag Grindavikur,
Guðjón Þorláksson, formaður.
HFIMDALI.UR
F • U • S
Skólafólk ath!
Fundur skólafólks í Heimdalli veröur haldinn i Valhöll, Háaleitisbraut
1, miðvikudaginn 19. febrúar kl. 20.00.
Formaöurfélagsins mun fjalla um kosningaundirbúning o.fl.
Ræddar verða nýjar og frisklegar hugmyndir um kosningabaráttuna.
Allir áhugasamir félagar hvattir til að mæta.
Kópavogur — Spilakvöld
Spilakvöld Sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi verður i Sjálfstæöis-
húsinu Hamraborg 1, þriöjudaginn 18. febrúar kl. 21.00 stundvíslega.
Ný þriggja kvölda keppni. Mætum öll.
Stjórnin.
Fulltrúaráðið í Reykjavík
Ákvörðun um
framboðslista
Almennur fundur i fulltrúaráöi sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik veröur
haldinn þriöjudaginn 18. febrúar nk. kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Ákvörðun tekin um skipan framboðslista sjálfstæðismanna í
Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar 1986.
2. önnurmál.
Fulltrúaráðsmeðlimir eru hvattir til að fjölmenna.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Stjórnmálaskóli
Sjálfstæðisflokksins
kvöld- og helgarskóli 24.febrúar -
8. mars 1986.
Skólahald fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Innritun er hafin en
takmarka verður þátttöku við 30 manns. Upplýsingar eru veíttar i
sima 82963 og 82900 á venjulegum skrífstofutíma.
Dagskrá:
Mánudagur 24. febrúar:
Kl. 18.30. - skólasetning.
Kl. 18.45-20.15 - stjórn efnahagsmála.
Kl. 20.30-23.00 - ræðumennska.
Þriðjudagur 25. febrúar:
Kl. 18.30-21.00 - almenn félagsstörf.
Kl. 21.15-23.00 - ræðumennska.
Miðvikudagur 26. febrúar:
Kl. 18.30-20.00 - utanrikis- og öryggismál.
Kl. 20.15-21.15 -Jón Þorláksson.
Kl. 21.20-23.00 - Einstaklingurinn og frelsið.
Fimmtudagur 27. febrúar:
Kl. 18.30-21.00 - almenn félagsstörf.
Kl. 21.15-23.00 - ræðumennska.
Föstudagur 28. febrúar:
Kl. 18.30-20.00 - þáttur fjölmiðla í stjórnmálum og uppbygging
greinaskrífa.
Kl. 20.15-23.00 - frjálst útvarp.
Laugardagur 1. mars
kl. 09.30-12.00 - starfshættir og saga ísl. stjórnmálaflokka.
Kl. 13.00-14.00 - sveitarstjórnarmál.
Mánudagur 3. mars:
Kl. 18.30-20.00 - fundarsköp.
Kl. 20.15-23.00 - ræðumennska.
Þriðjudagur 4. mars:
Kl. 18.30-19.30 - heimsókn á alþingi.
Kl. 20.00-21.30 - sjálfstæðisstefnan.
kl. 21.35-23.00 - stjórnskipan, stjórnsýsla, kjördæmamál.
Seinni hluti
Ath. þátttakendur velja sér annað sviðið.
Svið I efnahags- og atvinnumál
Miðvikudagur 5. mars.
Kl. 18.30-20.30.
Uppbygging atvinnulifs og þróun.
Kl. 20.45-23.00
Panel - Hlutverk launþega og
atvinnurekendasambandsins.
Fimmtudagurinn 6. mars.
Kl. 20.00.
Vandamál velferöarríkisins
- verðbólga og verðbólguhvatar.
Kl. 21.30 Norrænt samstarf.
Sviö II utanríkismál
Útflutnings- og markaðsmál.
Aukin þátttaka í vömum landsins.
l'sland i alþjóðasamstarfi.
Laugardagur 8. mars.
Kl. 10.00-12.00 Sjálfstæöisf lokkurinn - Panel
Kl. 18.00 Skólaslit.