Morgunblaðið - 25.02.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1986
3
BJOÐUM 10 FIAT PANDA4x4 MEÐ DRIFI ÁÖLLUM
HJÓLUM, ÁRGERÐ 1984.
Verð aðeins kr.
298.000
með ryðvörn.
Til afgreiðslu strax. Greiðslukjör við allra hæfi.
Sýningarsalurinn er opinn virka daga frá 9-18, laugardaga frá 13-17.
anaa
j
umboðið,
Skeifunni 8, s. 688850.
Fjölmenn útf ör í Hveragerði
Hveragerði, 23. febrúar.
ÚTFÖR ungfu mannanna tveggja, þeirra Gísla Jóns Hannessonar
og Geirs Halldórssonar, sem létust í bifhjólaslysi í Ölfusi þ. 14
febrúar si. var gerð frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 22.
febrúar. Sóknarpresturinn séra Tómas Guðmundsson jarðsöng.
Kirkjukór Hveragerðis og Ölfus söng. Sigrún Gestsdóttir söng
einsöng. Organisti var Róbert Darling.
Mörg hundruð manns voru við athöfnina, sem var sérlega hátíðleg
og falleg. Kirkjan okkar er stór, en rúmaði þó ekki nema hluta gest-
anna, en rútubílum var komið fyrir á kirkjuplaninu og leitt þangað
hljóðflutningskerfí svo allir mættu fylgjast með athöfninni.
Fánar voru dregnir í hálfa stöng um allan bæinn og flest fyrirtæki
höfðu lokað. Þetta var mikill sorgardagur.
— Sigrún.
Prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum:
Signrður Einarsson
útgerðarmaður efstur
Vestmannaeyjum, 24. febrúar.
SIGURÐUR Einarsson útgerðarmaður hlaut flest atkvæði í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Vestmanneyjum um helgina. Fékk Sigurður
624 atkvbæði í 1. sætið en alls 1314 atkvæði í fyrstu 6 sætin sem
kosið var um. Alls greiddu 1787 manns atkvæði í prófkjörinu. Gild
atkvæði voru 1611 en auðir seðlar og ógildir voru 176. Kjörseðlum
var dreift heim til fólks.
I morgun fengust gefnar upp
atkvæðatölur 6 efstu manna, er.
alls voru frambjóðendur 16. Efstu
fímm menn hlutu bindandi kosn-
ingu með meira en 50% greiddra
atkvæða.
1. Sigurður Einarsson, 624 at-
kvæði í 1. sæti. 1314 samtals.
2. Sigurður Jónsson, 535 atkvæði
í 1,—2. sæti. 1048 samtals.
3. Bragi I. Ólafsson, 528 atkvæði
í 1.—3. sæti. 1044 samtals.
4. Helga Jónsdóttir, 652 atkvæði
í 1.—4. sæti. 1021 samtals.
5. Amar Sigurmundsson, 740
atkvæði í 1,—5. sæti. 843 samtals.
6. Ólafur Lárusson, 795 atkvæði
í 1.—6. sæti.
Mjótt var á mununum á vali í
3. sæti. Þar munaði 14 atkvæðum
á Braga og Amari. Röð annarra
frambjóðenda var þessi:
7. Georg Þór Kristjánnson, 8.
Ómar Garðarson, 9. Unnur Tómas-
dóttir, 10. Stefán Runólfsson, 11.
Grímur Gíslason, 12. Ásmundur
Friðriksson, 13. Hanna Bima Jó-
hannsdóttir, 14. Gísli Ásmundsson,
15. Hafliði Albertsson og 16. Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
sex fulltrúa í bæjarstjóm og sóttust
4 þeirra eftir endurkjöri. Sigurður
Jónsson hélt 2. sætinu. Amar Sig-
urmundsson féll niður um sæti í
það fimmta, en Bragi I. Ólafsson
færðist upp um 2 sæti í það þriðja.
Georg Þór Kristjánsson féll niður í
7. sæti úr því 3. Sigurður Einarsson,
Helga Jónsdóttir og Ólafur Láms-
son hafa ekki áður haft afskipti af
bæjarmálum.
„Þessi úrslit komu mér vemlega
á óvart. Ég átti alls ekki von á
þessum mikla stuðningi, en ég
þakka traustið. Þessi mikla þátt-
taka í prófkjörðinu er mjög ánægju-
leg og sýnir að flokkurinn er í sókn
hér í Vestmannaeyjum," sagði Sig-
urður Einarsson, sem hlaut efsta
sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður hvemig honum litist á
að taka við oddvitastöðu sjálfstæð-
ismanna í bæjarmálum í Vest-
mannaeyjum sagði Sigurður ^Þetta
er nú alveg nýtt fyrir mig. Eg hef
ekki verið í bæjarmálunum áður,
en mér líst bara vel á þetta og nú
er að hella sér út í baráttuna".
— hkj
• • *
Orn Olafsson
skrifaði um
Tournier
Höfundur greinarinnar í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag um franska
skáldið Michel Toumier var Öm
Ólafsson. Nafn hans féll niður og
em hlutaðeigendur beðnir velvirð-
ingar á því.
Lézt af
völdum
brunasára
FULLORÐINN karlmaður, vist-
maður á Kópavogshæli, lézt í gær
í gjörgæsludeild Landspítalans af
völdum bmnasára. Maðurinn,
Bjamþór Jónsson Valfells, brennd-
ist að kvöldi þriðjudagsins 18. febr-
úar síðastliðinn og er talið að kvikn-
að hafí í fötum hans út frá vindlingi.
Hafnfirðingar o g Garðbæing-
ar vilja fá áfengisútsölur
ÍBÚAR Hafnarfjarðar og Garða-
bæjar greiddu á laugardaginn
atkvæði um það hvort opna ætti
áfengisútsölu í þessum bæjarfé-
lögum. Á báðum stöðunum sam-
þykktu bæjarbúar að opna bæri
áfengisútsölur.
í Hafnarfírði em 8252 á kjör-
skrá. Þar greiddu 59,65% þeirra
atkvæði eða 4922. 4022 þeirra
sögðu já (81,83%). Nei sögðu 880
(17,87%). Auðir seðlar vom 11
(0,22%) og 3 vom ógildir (0,06%).
í Garðabæ em 3793 á kjörskrá
en atkvæði greiddu 1887 eða
49,75%. Já sögðu 1397 (74,03%),
en nei sögðu 482 (25,54%). Auðir
seðlar vom 8 (0,42%). _
Ólafur Haukur Ámason hjá
Áfengisvamarráði var spurður um
viðhorf ráðsins til þessara úrslita.
Hann sagði að Áfengisvamarráð
hefði ekki annað viðhorf en það sem
er almennast hjá Heilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna og rannsóknir
benda til. „Við óttumst að þetta
auki neyslu áfengis. Það virðist
gilda sama lögmál við dreifingu á
þessari vöm og öðmm að því víðar
sem hún er til sölu því meira er
neytt af henni að öðm jöfnu. Ef
ekkert annað breytist í þjóðfélaginu
samfara opnun áfengisútsölu er lík-
legt - og allar rannsónir benda til
þess- að neysla aukist. En bæði
hækkað verð á áfengi , minni efna-
hagur fólks og viðhorfsbreytingar
gætu haft áhrif á neysluna" sagði
Olafur.
Friðrik Sóphusson alþingismaður
var spurður að því hvort úrslit í
þessum atkvæðagreiðslum hefði
hugsanlega áhrif á afstöðu þing-
manna til bjórmálsins. Hann sagðist
telja að svo væri alls ekki. Afstaða
alþingismanna til þess máls væri
ljós og hafí verið það þegar í fyrra.
TORFÆRUBÍLL
A TOMBOLUVERÐI
Öflugt
hraðskákmót
Búnaðarbanka
ÖFLUGASTA hraðskákmót, sem
hér hefur verið haldið, verður í
Búnaðarbankanum í Austur-
stræti í kvöld. Ekki færri en tíu
stórmeistarar munu taka þátt í
mótinu — þeir Friðrik Ólafsson,
Helgi Ólafsson, Guðmundur Sig-
uijónsson, Margeir Pétursson,
Jóhann Hjartarson, Valery
Salov, Yasser Seirawan, Bent
Larsen, Efim GeUer og líklega
MikhaUTal.
Þá tefla alþjóðlegu meistaramir
Jón L. Amason, Sævar Bjamason
og Karl Þorsteins og Bragi Krist-
jánsson verður einnig meðal kepp-
enda.
Sextán keppendur verða á mót-
inu, sem er haldið í tilefni 50 ára
afmælis Starfsmannafélags Búnað-
arbanka íslands. Keppni hefst
klukkan átta í kvöld og verður opin
almenningi.
JUsrijitoMnaiti
~ •ssSiii'iFi.
24 síðna
íþróttablað
MORGUNBLAÐIÐ gefur í dag út
24 síðna íþróttablað og á 16 þeirra
er efni einungis tengt heimsmeist-
arakeppninni í handknattleik sem
hefst í Sviss í dag. Meðal annars
em 11 lið keppninnar kynnt í máli
og myndum.